Bændablaðið - 14.03.1995, Page 5

Bændablaðið - 14.03.1995, Page 5
Þriðjudagur 14. mars 1995 Bœndablaðið 5 Sameinuð bændasamtök efna til ráðstefnu um bleikjueldi undir heitinu ÍSLENSK BLEIKJA‘95 í samvinnu við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Veiðimálastofnun. Ráðstefnan verður í BÆNDAHÖLLINNI við Hagatorg á annarri hæð í Búnaðarþingssal, fimmtudaginn 30. mars. Ráðstefnan hefst með skráningu og afhendingu gagna kl. 8.00. Á ráðstefnunni halda erindi margir þeirra sem hafa lagt hönd á plóginn við þróun þessarar búgreinar. Vfsindamenn munu kynna helstu niðurstöður rannsókna sinna og nokkrir bleikjuframleiðendur segja frá reynslu sinni. Farið verður yfir þróun greinarinnar og framtíðarhorfur, rætt verður um bleikjufóður, fyrirgreiðslur banka og fjármagnsstofnana, útflutning, vinnslu og markaðsmál. Þáttökugjald er 2.500 kr. - innifalið: ráðstefnugjald og hádegisverður. Skráning á ráðstefnuna er hafin í símum 5 630 300,5 630 338 og 5 630 308. Vinsamlega skráið ykkur tímanlega þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Þátttakendum ráðstefnunnar, sem gista vilja á Hótel Sögu eru boðin eftirfarandi kjör: Gisting með morgunverði: Eldri álma: Eins manns herbergi kr. 2.600.- Tveggja manna herbergi kr. 3.900.- Nýrri álrna: Eins manns herbergi kr. 3.100.- Tveggja manna herbergi kr. 4.900.- Gistingu á Hótel SÖgu þarf að panta með góðum fyrirvara og taka fram að víðkomandi sé að fara á ráðstefnuna ÍSLENSK BLEIKJA '95. Vakin skal athygli á að afhendíng gagna hefst kl. 8:00 fimmtudaginn 30. mars. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30, “Síðustu sex árin hefur ríkt kreppa í loðdýrarækt. Margir bændur hafa þurft að hætta þar sem verðið fyrir skinnin var of lágt. Sem betur fór hækkaði verðið í desember 1993 og á sínum tíma var því spáð að verð á skinnum á liðnu ári yrði viðunandi. Sú spá stóðst ekki. Þannig urðum við fyrir áfalli á uppboði í desember en sérfræð- ingar telja þó að verðið sé á uppleið,” sagði Reynir Barðdal eigandi Þel hf. á Sauðárkróki sem hlaut 1. verðlaun fyrir rauðbrún minkaskinn sem fagmenn nefna “scanglowe.” Hér er um að ræða skinn sem hafa verið í tísku undan- farin 10 - 15 ár. Sigurður Ólafsson frá Sandi í Aðaldal hlaut 1. verðlaun fyrir bestu blárefaskinnin. Reyni voru afhent verðlaunin á skinnasýningu sem var haldin á Hótel Örk fyrir skömmu. Þama voru sýnd bestu minka- og refaskinnin á landinu, loðfeldar frá Eggerti feld- skera og vörur frá Þingborgar- hópnum. Það voru Samband ís- lenskra loðdýraræktenda og Loð- dýraræktarfélag Suðurlands sem stóðu að sýningunni. Fjöldi loð- dýrabænda hlaut verðlaun en sér- staka athygli vakti fjöldi verðlauna sem féll í skaut hjónunum Björgvin og Rúnu frá Torfastöðum í Grafningi. “Ef maður hugsar vel um dýrin og lætur þeim líða vel þá skilar það í Hveragerði sér fljótt í betri árangri,” sagði Reynir. “Það sem gerir loðdýra- ræktunina skemmtilega er sú staðreynd að mikill hluti vinnunnar fer í að skoða dýrin og reyna velja rétt til ásetnings. Munur á milli dýra er oft ótrúlega mikill. Hvað varðar dómara á sýningu sem þessari þá er verk þeirra erfitt því matið er huglægt en ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið vel staðið að sýningunni enda hefur hún hlotið góðar undirtektir". Svartminkur 1. Björgvin og Rúná Torfastöðum II Grafningi, 248 stig 2. Félagsbúið Engihlíð Vopnafirði, 242 stig 3. Bjami og Veronika Túni Hraungerðishreppi, 240 stig 4. Þel hf. Sauðárkróki, 238 stig 5. Steinn L. Guðmundsson Neðra Dal V-Eyjafj. Rang., 230 stig Dökkbrúnt 1. Björgvin og Rúna Torfastöðum II Grafningi, 249 stig 2. Félagsbúið Engihlíð Vopnafirði, 246 stig 3. Loðdýrabúið Þómstöðum Ölfusi, 242 stig 4. Þorbjöm Sigurðsson Ásgerði Hrunamannahr., 239 stig 5. Feldur hf. Höfn Homafirði, 235 stig Rauðbrúnt 1. Þel hf. Sauðárkróki, 265 stig 2. Félagsbúið Engihlíð Vopnafirði, 264 stig 3. Björgvin og Rúna Torfastöðum II Grafningi, 248 stig 4. - 5. Heimir Magnússon Hrísum Vopnafirði og Loðdýrabúið Þómstöðum Ölfusi, 243 stig Ljósbrúnt 1. Þórður M. Kristinsson Múla III Geithellnahreppi, 256 stig 2. Björgvin og Rúna Torfastöðum II Grafningi, 254 stig 3. Þorbjöm Sigurðsson Ásgerði Hrunamannahr., 248 stig 4. Bjami og Veronika Túni Hraungerðishr., 246 stig 5. Steinn L. Guðmundsson Neðra- Dal V-Eyjafj., 245 stig Blárefur 1. Sigurður Ólafsson Sandi Húsavík,137 stig 2. Refabúið Brún Húsavík, 136 stig 3. Grétar Guðmundsson Skammbeinsstöðum Rang., 131 stig 4. Tómas Jóhannsson Grenivík, 130 stig Skuggarefur 1. Jónas Vilhjálmsson Húsavík, 132 stig 2. Félagsbúið Brautartungu Stokkseyri, 128 stig 3. Eyþór Ámórsson Oddsmýri Hvalfjarðarströnd, 126 stig 4. Tómas Jóhannsson Grenivík, 125 stig lifrænn landbúnaQur I sökn Alþjóðleg ráðstefna og vörusýning í Frankfurt í Þýskalandi Dagana 28. febrúar - 3. mars sl. héldu Alþjóðasamtök lífrænna landbúnaðarhreyfmga (IFOAM) 4. alþjóðlegu viðskiptaráðstefnu sína í tengslum við stærstu sýningu á lífrænum vömm sem til þessa hefur verið haldin í heiminum, BIO FACH '95. Ráðstefnuna sátu um 400 fulltrúar frá 60 þjóðum en aðild að IFOAM eiga um 500 sam- tök og stofnanir í 95 löndum. Á vömsýningunni vom 900 sýnendur og var fjölbreytnin gífurleg, 650 tegundir lífrænna matvæla auk hundmða tegunda annarra slíkra vömtegunda svo sem vefnaðarvara úr vistvænum efnum. Þar á meðal vom íslenskar ullarvömr í þrem sýningarbásum, tveim frá þýskum fyrirtækjum og einum frá Foldu á Ákureyri. Annað var ekki sýnt frá Islandi. Ráðstefnan var vel skipulögð og hafði ég mikið gagn af þeim erindum sem þar voru flutt og umræðum sem tengdust þeim. Á einum fundinum flutti ég stutt erindi um stöðu og þróun lífræns landbúnaðar á íslandi. Heimsókn á lífrænt býli í nágrenni Frankfurt var frábær og vömsýningin var glæsileg, þótt ekki sé meira sagt. Gróska í lífrænum landbúnaði. Þátttakendur vom frá öllum heims- álfum og er lífrænn landbúnaður greinilega í sókn, bæði í iðnríkjum og svokölluðum þróunarlöndum. IFOAM tengir saman viðskipta- sjónarmið, umhverfisvemd og félagslegar umbætur. í ýmsum löndum Evrópu er mikil gróska í lífrænum landbúnaði talin vera í beinu sambandi við aðlögunar- styrki til bænda. IFOAM lítur á líf- rænan landbúnað sem búskapar- hætti framtíðarinnar og er ljóst að svipuð sjónarmið liggja að baki stefnumörkun í landbúnaði í ýms- um löndum. Gott dæmi er Austur- ríki en þar em nú hlutfallslega flestir bændur komnir út í lífrænan landbúnað. I Þýskalandi og víðar er einnig mikil hreyfing í þessa átt. Lífrænar vörur em í hæstu verðflokkum en á móti vegur, að nokkrn, hærri framleiðslukostnaður enda umhverfiskröfur mun meiri en í hefðbundnum landbúnaði. Til dæmis er algert bann gegn þrengslabúskap á borð við hænsna- hald í búmm og stöðuga innistöðu búfjár líkt og tíðkast í verk- smiðjubúskap. Óheimilt er að nota tilbúinn áburð, eiturefni og hefð- bundin lyf. Ljóst er að vaxandi Qöldi neytenda í Þýskalandi og víðar kaupir lífrænar búvömr til að stuðla að umhverfis- og búfjár- vemd og bættu eigin heilsufari. Það er skiljanlegt að lífræni bú- vömmarkaðurinn sé sterkastur í löndum þar sem mengun og önnur umhverfisvandamál em augljósari og alvarlegri en hér á landi. Engu að síður er nú þegar vísir að slíkum markaði á Islandi og verið er að kanna útflutningsmöguleika bæði austanhafs og vestan. Borgað fyrir gæði og hollustu. Þótt lítill tími væri til annars en fylgja fastri dagskrá ráðstefnunnar og skoða vömsýninguna reyndi ég að afla mér upplýsinga um verð á nokkmm lífrænt vottuðum mat- vömm í Frankfurt og nágrenni og kom þá eftirfarandi í ljós: Kúa- mjólk (ógerilsneydd) kr. 79 1, Kaplamjólk (ógerilsneydd) kr. 990 1, (sjúkrafæða), nautakjöt kr. 1350 - kr. 1440 kg, svínakjöt kr. 810 - kr. 900 kg, egg kr. 344 kg, kartöfl- ur kr. 72 kg, gulrætur kr. 113 (óþvegnar), kr. 135 (þvegnar) kg, tómatar kr. 270 kg, heilhveitibrauð kr. 248 kg. Vottað, lífrœnt nautakjötfrá Argentínu á vörusýningunni BIO FACH '95. Markaður fyrir lífrœnar búvörurfer vaxandi. Mér var tjáð að verðmunur á hefðbundnum og lífrænum vömm væri um 45% fyrir mjólk, 30% fyrir mjólkurafurðir svo sem osta, 30% fyrir kjöt og 20% fyrir græn- meti og komvömr, þeim lífrænu í hag. Mun sá verðmunur all breyti- legur eftir verslunum, þ.e. öllu minni í stórmörkuðum en í smærri verslunum. Mest er framboðið á lífrænt ræktuðu grænmeti en þróun lífrænnar búfjárræktar er skemmra á veg komin. Svipaða sögu er að segja frá öðmm Evrópulöndum þar sem ég hef kynnt mér stöðu lífræns landbúnaðar. Þróunin hér á landi. Þótt enn séu aðeins fáeinir bændur sem hafa tekið upp viðurkennda lífræna búskaparhætti má vænta breytinga á næstunni. Með lögum um lífræna landbúnaðarframleiðslu nr. 162/1994 var myndaður laga- legur rammi um þessa framleiðslu- hætti og innan skamms er væntan- leg reglugerð við lögin sem tekur til hvers konar framleiðslu, vinnslu, flutninga, geymslu, pökk- unar og dreifingar lífrænna land- búnaðarafurða svo og til eftirlits, vottunar og vömmerkinga. Einnig er unnið að faglegri úttekt á skil- yrðum til lífræns búskapar hér á landi og með nýrri lagasetningu er heitið sérstökum stuðnings við öflun markaða fyrir lífrænar afurð- ir. Bændur sýna þessum málum vaxandi áhuga og mun ég og fleiri starfsmenn bændasamtakanna miðla upplýsingum og leiðbeiningum um þau, m.a. hér I blaðinu. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.