Bændablaðið - 24.03.1995, Page 1

Bændablaðið - 24.03.1995, Page 1
2. tölublað l.árgangur Föstudagur 24. mars 1995 Val um formann stóð á milli Jóns Helgasonar, Ara Teitssonar og Hauks Halldórssonar. Jón fe'll ífyrstu umferð en kjósa þurfti öðru sinni til þess að fá niðurstöðu milli Hauks og Ara. Ari hafði betur, hlaut 22 atkvœði gegn 16 atkvœðum Hauks. He'r eru þeir þremenningar skömmu eftir að úrslit urðu Ijós. Ari Teitsson kjðrinn tormaður Bændasamtaka íslands Sjóðagjöld af útfluttum hrossum Malinu vísaO 01 stjúrnar Bi Innheimta Félags hrossa- bænda á sjóðagjöldum af út- fluttum hrossum frá árinu 1986 til árins 1994 hefur hlotið talsverða umfjöllun í fjöl- miðlum. Fjárhagsnefnd Bún- aðarþings fjallaði um málið og beindi hún því til stjórnar Bændasamtaka íslands að taka málið til frekari skoðunar og sjá til þess að endur- skoðunarfyrirtækið Stoð-end- urskoðun hf., sem fengið var til að endurskoða bókhald og fjárreiður stofnverndarsjóðs, fái í hendur þau gögn sem for- svarsmenn Félags hrossa- bænda telja að Stoð hafi ekki fengið og Ijúki endurskoðun vegna ársins 1994. Fjárhags- nefndin lagði áherslu á að hér væri um áfangaskýrslu að ræða og Ijúka beri endur- skoðun fyrir 1994 þannig að fyrir liggi með óyggjandi hætti hverjar séu útistandandi kröf- ur stofnverndarsjóðs. f áfangaskýrslu, sem fjárhags- nefnd vitnar í og barst 12. mars sl., frá Stoð segir að Félag hrossa- bænda hafi ekki staðið rétt að fjár- reiðum og reikningshaldi vegna innheimtu þeirra gjalda sem fé- lagið hefur innheimt í umboði annarra. “Þá hefur Félag hrossa- bænda ekki farið að öllu leyti eftir samkomulagi frá árinu 1988 við Búnaðarfélag íslands. Þeir aðilar sem framselt hafa innheimtu til Félags hrossabænda virðast ekki hafa rækt eftirlitsskyldu sína sem skyldi." Stjóm Bændasamtaka íslands samþykkti málsmeðferð fjárhags- nefndar og taldi ekki rétt að aðhafast neitt frekar í málinu fyrr en endurskoðunarfyrirtækið hefði lokið sínu verki. í fréttatilkynningu sem Félag hrossabænda sendi frá sér kemur fram að þess sé vænst að lokaendurskoðun geti farið fram sem fyrst. Sjá nánar á bls. 2. Innflutningur Indbúnaðaraf- urða verður gefinn frjáls frá og með 1. júlí nk. í samræmi við GATT-samkomulagið. Ljóst er að allmargir inn- flutningsaðilar eru í viðbragðs- stöðu og tilbúnir til að hefja starf- semi á þessum vettvangi. I aðal- fundarskýrslu Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði segir fróð- legt að fylgjast með því hvemig stjómvöld hyggjast standa að út- hlutun innflutningskvóta, töku jöfnunargjalda og tollmeðferð. Utflutningur mjólkurvara mun ekki njóta útflutningsbóta eða Búnaðarþingi lauk á sunnu- daginn. Á þinginu voru tekin til umræðu og afgreidd fjöl- mörg mál, nýjum samtökum gefið nýtt nafn, Bændasamtök Islands, og kosin stjórn til þriggja ára. Ari Teitsson var kjörinn formaður en með Ara í stjórn eru Guðbjartur Gunnars- son Hjarðarfelli og Þórólfur Sveinsson Ferjubakka af Vest- urlandi, Pétur Helgason Hranastöðum af Norðurlandi, endurgreiðslu jöfnunargjalda nema í formi unninna afurða - þ.e. af- urða sem innihalda ákveðið hlut- fall mjólkurafurða. Nokkuð er ljóst að vissar tegundir svo sem Létt og laggott, Klípa, Smjörvi, pizzur og bökur falla undir þessi ákvæði og hið sama má segja um jógurt, ef til vill skyr með ávöxt- um, ostatertur og ostapaj, auk þess sem ýmsar fisk- og kjötafurðir blandaðar ostum og öðrum mjólk- urafurðum, súpur og ýmsar aðrar afurðir munu falla undir reglu- gerðina og njóta útflutningsbóta. Álfhildur Ólafsdóttir af Austur- landi og af Suðurlandi Hrafn- kell Karlsson Hrauni og Hörð- ur Harðarson Laxárdal. Samþykktirnar "Ég vil nefna samþykktimar og hve vel tókst að ná sáttum um fyrirkomulagið á félagskerfinu. Ekki var það síður ánægjuefni hve vel tókst til að ná sáttum um fyrirkomulag stjómarkjörs sem margir óttuðust að yrði erfitt," sagði Ari þegar hann var spurður í þinglok hvað honum væri efst í huga. Gæðamálin Þá nefndi Ari umræðu um gæða- mál. "Hún sýnir svo ekki verður um villst að við emm mjög meðvituð um að bændur ætla sér að geta boðið fram hreinar vömr sem fást af hreinu landi. Mikið var rætt um vistvænan og lífrænan landbúnað í þessu sambandi sem em mikilvægir þættir í landbúnaði framtíðarinnar." Innflutningur A þinginu var fjallað um stöðu innflutnings, tollaígildi og notkun þeirra. Ari sagði að bændur hefðu vemlegar áhyggur af því að þeim málum hefði ekki enn verið skipað í ömggan farveg. Samkeppnislögin "Það hefur komið í ljós að sam- keppnislög hér á landi em mun ósveigjanlegri en víða annars stað- ar. í Rómarsáttmála er gert ráð fyr- ir því að landbúnaðurinn hafi möguleika á að hafa samráð um verðlagningu þar sem einingamar em örsmáar og dreifðar. Þessu hafnar Samkeppnisráð eins og t.d. í máli svínabænda. Samkeppnis- lögin gera bændum hér erfiðara fyrir en í nágrannalöndunum. Þar em víða ákvæði um að óeðlileg undirboð séu bönnuð. Með öðmm orðum að það samrýmist ekki samkeppnislögum að selja vömr langt undir kostnaðarverði. Hér á landi láta samkepplög sig slíkt engu varða. Þetta veikir sam- keppnisstöðu bænda." Sauðfjárbændur Að lokum nefndi Ari umræðuna um málefni sauðfjárbænda. "Hún var mun opnari en venja er til. Það er jákvætt því það er forsenda góðrar niðurstöðu að geta rætt mál af hreinskilni. Okkur tókst líka að ná algjörri sátt um ályktun um sauðfjárræktina," sagði Ari. Hrossaræktin Metárí hrossaútflutnlngl Árið 1994 var metár í út- flutningi hrossa frá Islandi og fóm utan samtals 2758 hross eða rösklega 10% fleiri en árið 1993 því þá voru flutt utan 2485 hross. Það ár var einnig metár með 24% aukningu frá 1992. Tæpur helmingur allra út- fluttra hrossa fer til Þýska- lands eða 1321 hross í fyrra. Ekkert lát virðist vera á þýska markaðnum þrátt fyrir meiri og meiri ræktun íslenskra hesta þar. Virðist sem hrossa- ræktin skili sér í sífellt meiri áhuga og stuðli þannig að enn frekari kaupum á hestum beint frá íslandi. Svíþjóð er annað stærsta markaðslandið fyrir íslenska hesta en þangað fóm 507 hross árið 1994, til Danmerkur fóm 282 hross og til Noregs 237. Tiltölulega fáir aðilar sjá um hrossaútflutninginn og voru þessir atkvæðamestir á síðasta ári: Gunnar Amarson, Hinrik Bragason og Edda- hestar hf. Þessir aðilar og fleiri sjá um útflutninginn, þ.e. flutning til markaðslandsins, útvegun nauðsynlegra leyfa og fylgiskjala heima og erlendis, en em ekki endilega seljendur hrossanna um leið. Tryggingar Selnagangur átallnn Búnaðarþing átaldi harðlega þann seinagang sem orðið hef- ur á að bændur og makar þeirra njóti réttar til atvinnu- leysisbóta. Ekki þarf að fjöl- yrða um hvert nauðsynja- og hagsmunamál er hér um að ræða og óviðunandi að ekki fáist úr því bætt. Hinn 7. október 1994 gáfu félagsmála- ráðherra og landbúnaðarráð- herra út yfirlýsingu um að þeir væm reiðubúnir "að beita sér fyrir þeim breytingum sem nauðsynlegar kunna að vera til þess að bændur og makar þeirra njóti eðlilegra réttinda til atvinnuleysisbóta". Bún- aðarþing krefst þess að við þetta verði staðið. Ráóstefnur Ráðstefnaum blelkjueldl Bændasamtök íslands hafa ákveðið að efna til ráðstefnu um bleikjueldi undir heitinu íslensk bleikja '95 í samvinnu við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Veiðimála- stofnun. Ráðstefnan verður í Bændahöllinni fimmtudaginn 30. mars. Á ráðstefpunni verða flutt mörg erindt og farið verður yfir þróun grein- arinnar og framtíðarhorfur. Skráning á ráðstefnuna er hafin í síma 5 630 300. Innflutningur landbúnaðarvara brátt írjúls

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.