Bændablaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 24.03.1995, Blaðsíða 10
10 Bœndablaðið Föstudagur 24. mars 1995 Úr nióurstöóum búreikninga SamanbHrður i afknmu áranna 1991 -1993 Á haustmánuðum lauk hjá Hag- þjónustu landbúnaðarins söfnun og uppgjöri búreikninga ársins 1993. Þetta verk hefur verið unnið hjá stofnuninni samfellt frá árinu 1991, þ.e. fyrir bókhaldsárin 1990, 1991, 1992 og 1993, og sér sífellt gleggri merki um árangur þess starfs. Fyrsta árið bárust 323 bú- reikningar en af þeim voru efna- hags- og rekstrarreikningar unnir fyrir 152 bú. Árið eftir voru unnar niðurstöður 375 búreikninga og fyrir bókhaldsárið 1992 lágu 413 búreikn- ingar að baki niðurstöðum. Fyrir árið 1993 er sama tala komin í 433 bú. Hagþjónustan hefur nú stillt upp rekstrar- og efnahagsreikningi þeirra búa sem komu til uppgjörs árin 1991 til 1993 og flokkuðust árið 1991 sem kúabú, sauðíjárbú eða blönduð bú. Alls er um að ræða 210 bú eða 6,4% af þeim búum sem hafa framleiðslurétt verðlagsárið 1992/93. Dregnar hafa verið fram helstu niður- stöðutölur. Rétr er að skýra hvemig launagreiðslugeta er fund- in en hún er samtala hagnaðar fyrir laun eigenda og greiddra launa. Engir vextir eru reiknaðir af eigin fé. Þá er skuld vegna ógreidds virðisaukaskatts tilgreind sér- staklega því við það að beinar greiðslur voru teknar upp urðu verulegar breytingar á þessum lið sem hefur áhrif á samtölu skamm- tímaskulda búsins. Þá skal tekið fram að allar tölur eru á verðlagi hvers árs fyrir sig.' Sauðfjárbú Tafla 1 greinir frá niðurstöðum úr rekstri sauðfjárbúa árin 1991- 1993. Áberandi er lækkun á hagnaði fyrir laun eigenda og launagreiðslugetu milli áranna 1992 og 1993. Á það ber þó að líta að bætur fyrir niðurfærslu á greiðslumarki námu um 270 þúsund krónum árið 1992. Þá vekur athygli að breytilegur kostnaður hefur hækkað þrátt fyrir minnkandi greiðslumark. Þar virðist tvennt koma til, annars veg- ar hækkar fóðurkostnaður og má að líkindum rekja það til erfiðs ár- ferðis norðanlands og austan sumarið 1993. Hins vegar hækkar aðkeypt þjónusta og má rekja það bæði til aðkeyptrar þjónustu við heyverkun (rúllubindingu) og hins vegar upptöku verðskerðingar- gjalds. Áfskriftir hækka einnig milli áranna 1992 og 1993 liggur það í auknum afskriftum útihúsa. Líklegt er að þetta skýrist af því að á fáeinum sauðfjárbúum voru færð niður lán vegna loðdýraræktar á árinu 1993 og á móti hafi menn að líkindum nýtt heimildir til að flýtifyma loðdýrahús. Niðurfærsla skulda nam að meðaltali um 140 þúsund krónum á bú. Eftir stendur að 45% af launagreiðslugetu bú- anna á rætur að rekja til tekna af öðm en búgreinum. Séu til við- bótar reiknaðir 5% vextir af eigin fé, skilar búreksturinn sjálfur (án annarra tekna) aðeins 268 þúsund krónum til greiðslu launa. Kúabú Meiri stöðugleiki virðist hafa ríkt í afkomu kúabúa en sauðQárbúa á liðnum ámm. Markaður fyrir mjólk- urafurðir hefur verið nokkuð traustur en á móti kemur verðlækkun á nautgripakjöti. Enda kemur fram samdráttur í tekjum af nautgripum frá árinu 1991. Þá vekur nokkra athygli sú hækkun sem kemur fram á skammrímaskuldum. Blönduð bú Um blönduðu búin er fátt að segja til viðbótar því sem áður hefur komið fram. Afkoma þeirra endurspeglar nokkuð meðaltal af afkomu sauðfjárbúa og kúabúa. Að auki eru búin í þessum flokki mun færri en í hinum flokkunum og því varasamara að yfirfæra niður- stöður á heildina. Lokaoró Hér hefur verið stiklað á stóru í yfirferð um afkomu í nautgripa og sauðfjárrækt síðustu þijú árin. Ásamt því að koma niður- stöðunum til skila var markmiðið með þessari umfjöllun einnig að sýna fram á hve margt má lesa úr fyrirliggjandi gagnasafni. Skýrsla um niðurstöður búreikninga ársins 1993 mun fljótlega liggja fyrir og verður þar margan fróðleik að finna. Hún verður nú í lítið eitt auknu formi sem vonandi kemur í góðar þarfir fyrir notendur hennar. Má nefna að framleiðslukostnaður á heyi verður reiknaður á fram- leidda fóðureiningu. Einnig verður eins og áður gefið yfirlit yfir fjárfestingar og framlegðar- reikningar einstakra búgreina birt- ir. Þá er unninn samanburður á af- komu áranna 1992 og 1993 þar sem sömu bú liggja til grundvallar bæði árin. Ema Bjarnadóttir og Chabane Ramdani, Hagþjónustu landbúnaðarins Tafla 2 Kúabú, fjárhæðir í þúsundum króna 1991 1992 1993 Fjöldi reikninga 117 117 117 Tekjur af nautgripum 5,366 5,169 5,133 Tekjur af sauðfé 319 265 265 Aðrar búgreinar 115 226 209 1. Búgreinatekjur 5,800 5,659 5,606 2. Breytilegur kostnaður 2,367 2,2Í4 2,259 3. Framlegð 3,433 3,445 3,347 4. Fastur kostnaður 1,193 1,144 1,189 5. Afskriftir 788 822 792 6. Fjármagnsliðir 438 398 361 7. Aðrar tekjur 358 343 490 8. Hagn./tap f. laun eig. 1,372 1,424 1,495 9. Hagn./(tap) 0-búgr. (2) 3 (0) Launagreiðslugeta 1,633 1,699 1,855 11. Veltufjármunir 866 1,046 876 12. Fastafjármunir 9,879 9,645 9,644 Eignir alls 10,746 10,691 10,520 13. Skammtímaskuldir 1,717 1,701 2,081 14. Uppgjör VSK 409 400 120 15. Langtímaskuldir 2,671 3,048 2,913 Skuldir alls 4,797 5,149 5,114 - Tekjur utan bús 190 195 309 16. Höfuðstóll í árslok 5,949 5,542 5,405 Höfuðstóil og skuldir 10,746 10,691 10,520 Eiginfjárhlutfall 0.55 0.52 0.51 0-búgreinar: Búgreinar með sjálfstæðum efnahags- og rekstrarreikningi s.s. vörubifreið, smábátaútgerð o.s.frv. Tafla 1 Sauðfjárbú, fjárhæðir í þúsundum króna 1991 1992 1993 Fjöldi búa 62 62 62 Tekjur af nautgripum 104 72 68 Tekjur af sauðfé 2,607 2,605 2,499 Aðrar búgreinar 107 190 228 1. Búgreinatekjur 2,819 2,867 2,794 2. Breytilegur kostnaður 941 961 1,024 3. Framlegð 1,878 1,906 1,771 4. Fastur kostnaður 603 638 680 5. Afskriftir 399 434 486 6. Fjármagnsliðir 272 234 284 7. Aðrar tekjur 310 494 486 8. Hagn./tap f. laun eig. 914 1,095 687 9. Hagn./(tap) 0-búgreina50 55 55 Launagreiðslugeta 1,034 1,250 862 11. Veltufjármunir 996 1,402 836 12. Fastafjármunir 6,118 5,910 5,852 Eignir alls 7,114 7,312 6,688 13. Skammtímaskuldir 730 866 977 14. Uppgjör VSK 485 245 215 15. Langtímaskuldir 1,917 2,084 1,859 Skuldir alls 3,132 3,195 3,051 - Tekjur utan bús 463 517 592 16. Höfuðstóll í árslok 3,983 4,116 ,3,637 Höfuðstóll og skuldir 7,114 7,312 6,688 Eiginfjárhlutfall 0.56 0.56 0.54 0-búgreinar: Búgreinar með sjálfstæðum efnahags- og rekstrar- reikningi s.s. vörubifreið, smábátaútgerð o.s.frv. Tafla 3. Blönduð bú, fjárhæðir í þúsundum króna 1991 1992 1993 Fjöldi búa 28 28 28 Tekjur af mjólk 2,602 2,424 2,517 Tekjur af sauðfé 2,158 2,074 1,894 Aðrar búgreinar 121 316 303 1. Búgreinatekjur 4,881 4,813 4,714 2. Breytilegur kostnaður 1,825 1,799 1,876 3. Framlegð 3,056 3,015 2,838 4. Fastur kostnaður 986 989 975 5. Afskriftir 610 637 670 6. Fjármagnsliðir 310 246 275 7. Aðrar tekjur 409 554' 522 8. Hagn./tap f. laun eig. 1,559 1,696 .1,440 9. Hagn./(tap) 0-búgreina 5 3 (32) Launagreiðslugeta 1,764 1912 1,717 11. Veltufjármunir 1,196 1,493 1,044 12. Fastafjármunir 7,533 7,788 7,822 Eignir alls 8,729 9,281 8,866 13. Skammtímaskuldir 928 1,178 1,249 14. Uppgjör VSK 568 408 229 15. Langtímaskuldir 1,546 1,607 1,640 Skuldir alls 3,042 3,193 3,118 - Tekjur utan bús 236 226 307 16. Höfuðstóll í árslok 5,686 6,088 5,747 Höfuðstóll og skuldir 8,729 9,281 8,866 Eiginfjárhlutfall 0.65 0.66 0.65 0-búgreinar: Búgreinar með sjálfstæðum efnahags- og rekstrarreikningi s.s. vörubifreið, smábátaútgerð o.s.frv. Bóndi vikunnar Þorlákur Aðalsteinsson Baldursheimi Arnarneshreppi Eyjafirði Hversu lengi hefur þú starfað sem bóndi? “Hátt í aldarfjórðung. Ég hóf búskap vorið 1971.” Hvað starfaðir þú áður en þú hófst búskap? “Ég lagði stund á nám í jámsmíði og starfaði við skipaiðnað um tíma. Lauk þó aldrei síðustu prófum í iðninni því jörðin losnaði með litlum fyrirvara og ég ákvað að slá til.” Blundaði bóndinn í þe'r allt frá bernsku? “Ég get sagt bæði já og nei. Á tímabili var ég tilbúinn að fara aðra leið. En þegar foreldrar mínir ákváðu að bregða búi þá tók ég þessa ákvörðun. Taugin til upprunans hefur því trúlega verið nokkuð sterk.” Hvað finnst þér skemmtilegast að fást við á búinu? “Heimflutning á heyi eftir góðan þurrkdag með hjálp vina og vandamanna. Þá nýtur mað- ur ánægjunnar af góðu dags- verki.” Hver eru leiðinlegustu bústörfm ? “Ætli það séu ekki fjós- verkin á sunnudagsmorgni eftir velheppnað þorrablót.” Áttu þér einhvem uppáhalds grip? “Ég hef stundum sagt að ég hafi upp úr kúnum, ærnar séu til gamans og ég tapi á hrossunum. Uppáhaldsgripurinn er þó sá sem gerir það best á hveijum tíma.” Hvað gerirþú helst ífrítímum? “Eftir því sem maður eldist virðist tíminn líða hraðar og minna verða afgangs til þess að taka sér frí. Ég reyni að fara á hestbak þegar ég á stund auk þess sem ég á bát o§ hef gaman af að skreppa á sjó. Ég komst þó aðeins einu sinni á sjó síðastliðið sumar og svo fór ég í eina viku til útlanda um haustið.” Hvar vildir þú helst eiga heima annars staðar en á bújörðinni? “Ég gæti hugsað mér að eiga skika í Moseldalnum og rækta vínvið.” Finnst þér munur á að stunda búskap nú og þegar þú byrj- aðir? “Já grundvallarmunur. Nú verður að leggja alla áherslu á hagkvæmnina í stað þess að framleiða sem mest.”

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.