Bændablaðið - 13.03.1996, Page 12

Bændablaðið - 13.03.1996, Page 12
12 Bændablaðið Miðvikudagur 13. mars 1996 Garðyrkjan Mikið hefur verið um fyrir- spumir varðandi hita við ræktun papriku, eftir útplöntun og framan af ræktuninni. Ekki er auðvelt að gefa upp staðlað hitaprógramm sem myndi henta öllum hvar og hvenær sem er. Við val á hita verður ætíð að taka tillit til veðurs og vaxtar plantnanna. Hafa ber jafnframt í huga að ákveðin breyting á hita, hvort heldur er til hækkunar eða lækkunar, getur haft áhrif á einn þátt en um leið nei- kvæð áhrif á annan. Þar af leiðir að oft verður að leitast við að ná ákveðinni málamiðlun við val á hita og gera verður ráð fyrir að breyta þurfi út frá áður ákveðnum hita þegar efla þarf ákveðinn þátt, þó svo að það verði á kostnað ein- hvers annars. Útplöntun - 1 .frjóvgun Mjög mikilvægt er að plöntur- nar róti sig sem örast og best eftir útplöntun. Ef ekki, þá hleypur kyrkingur í plöntumar sem myndi valda meiri eða minni erfiðleikum síðar á ræktunarskeiðinu. í því sambandi skiptir jarðvegshitinn mjög miklu máli og verður að tryggja að hann sé nægilega hár við útplöntun. Auk þess að valda kyrkingi í vexti plantnanna, eykur of lágur jarðvegshiti hættuna á rót- arsjúkdómum (t.d. Pythium). Kjörjarðvegshiti er 20-22°C, sem tryggir nægilegt orkustreymi til rótanna og stuðlar þá um leið að hraðari rótarvexti sem skilar sér í skjótari og betri rótun. Því meira sem jarðvegshitinn fer undir 20°C, því meira dregur úr rótarvexti og því meiri verður hættan á rótarsjúkdómum. Plöntumar geta þó sœtt sig við 18°C, en neðar ætti jarðvegshitinn ekki að fara. Ef hann er fulllágur er gott að vökva með vel volgu vatni. Jarðvegs- hitinn má þó ekki heldur vera of hár, því þá verða rætumar veikari og vaxtarbroddar þeirra drepast of fljótt. Jarðvegshitinn ætti helst ekki fara yfir 24°C og ekki vera hærri en lofthitinn. Mjög æskilegt væri því að vera með jarðvegs- upphitun við ræktun papriku, sér- staklega fyrstu 6-8 vikurnar eftir útplöntun og er paprikan meðal þeirra tegunda sem launa slíkt hvað best. Framan af ræktuninni eru plöntumar of smáar til að bera Kartöflubændyr skili viflhorfskOnnun sem allrafypst Búið er að senda út við- horfskönnun til allra kart- öflubænda landsins. Til- gangurinn er að fá fram skýra mynd af viðhorfum þeirra til ýmissa mála. Stjórn Landsambands kart- öflubænda vill skora á þátt- takendur í könnuninni að skila útfylltum eyðublöðum sem allra fyrst eða í síðasta lagi fyrir 20. mars n.k. aldin og leggja ber því mikla áherslu á að byggja upp sem mestan blaðflöt og sem örast á um fyrstu sex vikunum (4 til 8) eftir útplöntun. Með stómm blaðfleti geta plöntumar nýtt sér birtuna betur og þar með myndað meiri sykrur við ljóstillífun. Nauð- synlegt er að fjarlægja fyrsta blómið, því ef það fær að þroskast áfram og mynda aldin myndi aldinið taka það mikla orku til sín að það myndi bitna mjög illa á grænvextinum. Á þessu stigi annar plantan ekki bæði að mynda aldin og halda grænvexti áfram. Ef plönturnar mynda aldin of fljótt dregur úr rótarvexti og þar með upptöku á kalsíum, sem myndi m.a. auka hættuna á stflroti á fyrstu aldinunum. Ef birtan er mjög léleg kæmi jafnvel til greina að fjarlægja annað blómið líka. Lofthitinn verður því að vera nægilega hár fyrstu vikumar. Miðað mætti t.d. við að halda 22 - 23 °C dag og nótt fyrstu 2-3 dagana. Þá væri hitinn lækkaður dálítið, þannig að haldið væri 21- 22°C meðalhita yfir sólarhringinn, með tiltölulega litlum hitamun á milli dags og nætur, t.d. 22-23°C að degi og 20-21°C að nóttu, a.m.k. þegar birtan er þokkaleg. Loftrakinn þyrfti líka að vera nægilega hár til að frumurnar geti þanist sem örast út og náð hámarks stærð. Lægri meðalhiti veldur því að plöntumar mynda blóm of fljótt og hærri hiti veldur óþarfa orkueyðslu hjá plöntunum. Ætíð verður að gæta þess að samræmi sé á milli hita og birtu. Hærri plöntuhiti táknar hraðari brennslu sykra. Við snemm- plöntun er birtan yfirleitt það lítil að framleiðsla ljóstillífunarinnar er mjög lítil. Þar sem forðanæring lítillar plöntu er lítil getur of hár hiti tekið of mikla orku til sín, sem bitnar á vexti plöntunnar. Frá og meó 1. aldinmyndun. Til að stuðla að kröftugum og góðum blómum við fyrstu fijóvgun er rétt að lækka hitann dálítið 2 - 3 vikum áður en blómgun hefst. Ágæt viðmiðun er að halda um 20°C meðalhita, með um 21 - 22°C að degi og 17 - 18°C að nóttu, háð birtu. Ekki ætti að lækka hitann meira en nauðsynlegt er fyrir góða blómmyndun og frjóvgun. Lægri næturhiti, allt niður í 12-l5°C, skaðar ekki plöntumar ef daghitinn er samsvarandi hærri. Hætta er á lélegri frjóvgun þegar plantað er út snemma árs við léleg birtuskilyrði og haldið er lágum hita til að koma í veg fyrir að plönturnar trjónist um of upp, sökum þess að ekki berst næg orka til blómanna. Enn fremur er mikil hætta á að blómin detti af þegar haldið er of lágum hita og grænvöxturinn jafnframt lélegur. Að lokinni 1. frjóvgun gæti verið til bóta að hækka nætur- hitann aftur svolítið um tíma, t.d. um 1°C, sem myndi flýta aldinmynduninni. Þegar aldinin eru farin að tútna út er rétt að lækka næturhitann á ný í 17 - 18°C og halda 20 - 21°C að degi þannig að meðalhitinn sé um 20°C, því aldinin taka mikla orku til sín. Tiltölulega lágur næturhiti gefur lfka stærri aldin. Á þessum tíma er birtan oft mjög takmarkandi þáttur og ef hún er mjög léleg gæti þurft að halda ívið lægri hita. Hins vegar ætti meðalhitinn ekki vera lægri en 19,5°C, þar sem slíkt seinkar þroska plantnanna um of. Þegar aldinmyndunin er komin vel af stað vilja menn stundum kynda ívið meira til að efla grænvöxt plantnanna. Gæta verður þó hófs og taka verður fullt tillit til birtunnar. Við of háan hita geta plöntumar kastað aldinvísum af sér, jafnvel geta þær kastað aldinum af sér sem eru orðin 3-4 cm í þvermál. Eins og áður var getið væri í flestum tilfellum hæfilegt að miða við 20°C meðalhita, sem á einkum við um græn og rauð afbrigði en þau gulu myndu gjaman kjósa um 1°C hærri hita. Hafa ber einnig í huga að því hærri sem hitinn er því smærri verða aldinin og því fyrr ná þau uppskeruhæfum þroska, t.d. styttist vaxtartími aldinanna um 2- 3 daga við hverja 1°C hækkun meðalhita. í Hollandi er algengt að miða við að hækka hitann um 1°C fyrir hverja 200 W/m2 birtu- aukningu. Hitamunur dags og nætur hefur áhrif á stærð aldin- anna, því meiri sem munurinn er því stærri verða aldinin. Hins veg- ar þarf að hafa í huga að stór aldin krefjast meiri orku og em við- kvæmari fyrir korkrákum. Garðar R. Árnason garðyrkjuráðunautur Bœndasamtaka íslands Jarðir til leigu Hjá jarðadeild landbúnaðarráðuneytislns eru neðangreindar jarðir lausar til ábúðar frá komandi fardögum: 1. Framnes, Kaldrananeshreppi, Strandasýslu; (á jörðinni eru 15 ha. ræktun, íbúðarhús b. 1968, geymsla, fjárhús, 2 refahús). 2. Selá, Árskógshreppi, Eyjafjarðarsýslu, (á jörðinni er 42 ha ræktun, íbúðarhús b. 1937, fjós, fjárhús, 2 hlöður, mjólkurhús, fjárhús). 3. Unaós, HJaltastaðahreppl, Norður-Múlasýslu; (á jörðinni er24,3 ha. ræktun, íbúðarhús b. 1960, fjós, fjárhús, 3 hlööur, votheysturn, fjárhús m/áburðarkjallara). Greiðslumark sauðfjár 196 ærg. 4. Arnhólsstaðir, Skrlðdalshreppl, Suður-Múlasýslu; (á jörðinni er49,2 ha. ræktun, íbúðarhús b. 1936, 2 fjós, fjárhús, 2 hlöður, votheysgryfja). Greiðslumark sauðfjár 234 ærg. 5. Kvíarhóll, Ölfushreppi, Árnessýslu; (á jörðinni er 21,1 ha. ræktun, íbúðarhús b. 1960, hlaða, tvö minkahús, hesthús). Jafnframt eru til leigu eyðijarðirnar Staður og Faxastaðlr, Norður-ísafjarðarsýslu (áður Snæfjallahreppur), Brekkusel í Tunguhreppl, Norður-Múlasýslu og Brimnesgerðl í Fáskrúðsfjarðarhreppi, Suður- Múlasýslu. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560 9750. Grænt símanúmer. 800 6800. Umsóknareyðublöð fást hjá jarðadeild. Umsóknir berist jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík fyrir 25. mars nk. Landbúnaðarráðuneytið, 27. febrúar 1996. Skipulögð beit - Landvernd rafgirðingavörur • Vandaö efni • Fjölbreytt úrval Hagkvæmasta lausnin er JÖTrafgirðing! • Hagstætt verð • Gerum efnis- áætlanir og tilboð Rafgirðing er raunabót reynist vel en kostar Irtið. Fénaði varnar vegsins rót vænkast hagur minnkar str'rtið Ártorgi 1 - 550 Sauöárkrókur S: 455 4610 • F: 455 4611 • Leiöbeinum um uppsetningu UMBOÐSMENN UM ALLT LAND Leitið upplýsinga og fálð sendan bækllng og vörulista

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.