Bændablaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 27. mars 2001 BÆNDABLAÐIÐ 11 Þorsteinn Snædal ullan daginn og fór svo í fjárhúsin milli klukkan tíu og tólf á kvöldin. Við vorum hér yfirleitt tveir-fjórir að gaufa en það þurfti að skreppa í gegningar og annað. Stebbi Ola, skólabílstjóri hérna, þurfti alltaf að skjótast annað slagið og keyra börnum. Og Páll á Hákon- arstöðum, hann skaust alltaf og gaf og kom svo aftur. En allt gekk þetta nú upp.‘‘ Var engum vandkvœðum bundið að fá leyfi fyrir skemmt- anahaldi ífjárhúsum? „I upphafi var talað um það að það væri útilokað að ætla sér að halda samkomu hér með lilskyld- um leyfum og þess vegna urðum við staðráðnari í að gera þetta af alvöru. T.d. skelltum við 90 m2 af parketi á dansgólfið bara upp á grín. Á endanum fengum við öll leyfi sem við þurftum. Við feng- um meira að segja leyfi frá bruna- Baldri (slökkviliðsstjóra) sem er nú ekki venjan. Þetta er kannski í fyrsta skipti í sögunni sem bændur á Skjöldólfsstöðum hafa leyfi fyrir öllu sem þeir gera!“ .“Ég verð að fá að enda á að syngja nefndarvísuna sem samin var um mig: Eg lieiti Lalli og er lagari Með bóndanum er ég slagari Hvar sem ég um sveitirfer Allt lagast íhöndunum á mér Ég hef gert við alltfrá eylandsljá upp í rakstrarvé! sem raka má en helst vil konunni sofa hjá og barna ef ég má. “ Sukkstjórinn Kári Ólason, athafnamaður og bóndi á Árbakka í Hróars- tungu, var titlaður sukkstjóri þessarar sérstæðu skemmtunar. Hvaðfólst í þessum titli? Varst þú aðalmaðurinn á bak við þetta? „Ekki veit ég það en þeir sögðu að ég hefði verið upp- hafsmaðurinn.“ Hvernig datt þér í hug að halda þorrablót ífjárhúsum? „Ég sá bara að það vantaði hús á Jökuldal til að halda þorrablót í og vildi ekki láta það falla niður. Þessi hugmynd kviknaði þegar við vorum að byggja héma og það var verið að kvarta yfir því að ekkert húsnæði væri til á Jökuldal og það yrði að halda sameiginlegt þorra- blót. Ég sá að það væri ekkert mál að halda blót hérna í húsunum, það yrði aldrei búið að setja féð í þau hvort sem væri. Það yrði bara að klæða þau og svo væri hægt að halda blótið hér.“ Gekk ekkert illa að fá fólk til að taka þátt iþessu með þér? „Jú. í upphafi áttu þetta bara að vera brottfluttir Jökuldælingar en það var nú í þeim hópi eins og hjá litlu gulu hænunni, allir vildu borða brauðið en enginn vildi baka það. Svo var farið á stúfana og auðvitað fundust menn sem vildu taka þátt í þessu. Þeir segja hérna að þetta hafi verið burtflutt- ir, tilfærðir og afsettir Jökuldælingar. Margir lögðu góðu mátefni lið, enda um einstaka skemmtun að ræða.“ /IS Hjálmar Guðjónsson og Þórey Helgadóttir í fjósinu á Tunguhálsi II í Skagafirði. mynd Örn. ___________ Kýrnar á Tunguhálsi II mjölkuflu mesl i Skagafirði Kýrnar á Tunguhálsi II (áður Lýtingsstaðahreppi) voru að jafnaði afurðahæstu kýr í Skaga- firði árið 2000. Þær skiluðu 6.179 lítrum hver á því ári. Næstu bú hvað meðalnyt varðar voru Ytri-Mælifellsá (Lýting- staðahr.) 6.093 lítrar, Garðakot í Hjaltadal 6.048 lítrar, Stóru- Akrar I í Akrahreppi 5.958 lítrar, Ytri-Hofdalir í Viðvíkur- sveit 5.928 lítrar og Varmaland (Staðarhr.) með 5.899 lítra. Ef búunum væri raðað eftir meðal- talsframleiðslu af samanlögðum efnum mjólkurfitu og mjólkur- próteins væri Ytri-Mælifellsá efst með 473, Tunguháls II næst með 455 og Stóru-Akrar II þar á eftir með 452. Á Tunguhálsi II búa hjónin Hjálmar Guðjónsson og Þórey Helgadóttir. Þegar Hjálmar var spurður hver væri helsta ástæðan fyrir þessari góðu útkomu sagði hann að ástæðan væri margþætt, ekki síst sérlega gott árferði sem jafnframt hefði átt þátt í að hey var með besta móti. Hann sagðist ávallt byrja heyskap tímanlega og slá mest af túnunum tvisvar. Einn- ig sagði hann að þau væru mjög ströng á að vera með góðar kýr og létu kýr sem ekki skiluðu nægum afurðum að þeirra mati hiklaust fara. Svo hefði ræktun kúnna ef- laust eitthvað að segja. Þau væru með talsvert af kúm útaf nautinu Lýtingi og þær hefðu reynst vel. Hjálmar sagðist alltaf byrja snemma að gefa kúnum með beit- inni á haustin en láta þær út eins lengi og hægt væri og gefa þeim rúllur úti í gjafagrindur. Þau hjón lögðu áherslu á að síðast en ekki síst væri það umhirðan um gripina sem máli skipti ef ná ætti miklum afurðum. Þá er það skoðun þeirra að kúabúskapur eigi fyrst og fremst að vera fjölskyldubúrekst- ur, þ.e. ekki umfangsmeiri en svo að fjölskyldan nái að mestu að sinna honum sjálf. Einnig telja þau að íslensku kýrnar mjólki alveg nægilega mikið þannig að ekki sé nein þörf á að blanda aðkomu- stofnum saman við þann íslenska. ÖÞ Merki sem þú getur treyst! Varahlutir MASSEY FERGUSOIM Varahlutir 4pTRIMA Varahlutir Kverneland Varahlutir FISHER Brynningartæki og varahlutir ZWEEGERS Varahlutir Varahlutir Varahlutir Varahlutir mm Industrial Varahlutir œaaiai Klippur og varahlutir <4 :> CMflS < Varahlutir 1 Varahlutir Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2, sími 525 8000 Vélavarahlutir, sími 525 8040 Sparaðu fé og fyrirhöfn 01 Iráttarvéladekk / 01 1 ey vinnu véladekk / 01 /örubíladekk / eppadekk / 01 :ólksbíladekk / Hjd Gúmmívinnslunni fœrð þú allt á einum stað! Felaur Rafgeymar Keðjur Básamottur • • Oryggishellur Kannaðu málið á www.gv.is Sendum um allt land - Frír flutningur til Reykjavíkur Haltu mo þeim á ttunni! Gúmmívinnslan hf. Réttarhvammi 1 • Akureyri Hringið og fáið frekari upplýsingar Sími 461 2600 *Fax 461 2196. V/SA (D Þýsku básamotturnar frá Gúmmívinnslunni má nota jafnt undir hesta, kýr, svín og fleiri dýr Eigum á lager 100,110 og 120 cm breiðar mottur í ýmsum iengdum, einnig dregla og mottur í kerrur og pallbíla.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.