Bændablaðið - 27.03.2001, Page 14
14
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. mars 2001
Til afgreiðslu strax
á verði frá síðasta ári
• Fjósvélar (minivélar).
• Álrampar fyrir minivélar.
• Kornmylla með blandara.
• Sturtuvagnar.
• Þrítengiskúffur.
• Lyftut. hjólrakstrarvélar.
• Dragt. hjólrakstrarvélar.
• Hnífatætarar tilboð.
• Pinnatætarar tilboð.
• Fjaðraherfi.
• Flagjöfnur.
• Kílræsaplógar.
• Snjóblásarar.
• Haugsugudælur.
• Barkar + tengi.
• 6“ lokar + stútar.
• Mykjudælur.
• Brunadælur.
• Vökvayfirtengi.
• Snjókeðjur.
• Sagarblöð 800 mm.
• Plöntunarrör.
Upplýsingar í síma: 587-6065.
Betra bú, samstarfsverkefni Landgræðslunnar og bænda:
„Markmiðið er að ná
sjálfbærri landnýfingu"
Landgræðslan hefur nú hafið
þróunarverkefni í samvinnu við
nokkra bændur sem kallast
Betra bú. Þar eru bændur að-
stoðaðir við að gera beitar- og
uppgræðsluáætlanir í þeim til-
gangi að nýta lönd sín sem best.
Það er Guðrún Schmidt sem
sér um verkefnið fyrir hönd
Landgræðslunnar.
Guðrún segir að vinnan núna
snúist um að þróa vinnuferli fyrir
gerð þessara áætlana. „Við erurn
með 10 bændur núna í verkefninu
í tilraunaskyni og í framhaldi af
því sjáum við hvernig þetta kem-
ur út. Bændumir eru núna að fara
eftir ýmiss konar vinnuferli í til-
raunaskyni."
Verkefnið skiptist í nokkur
skref. Fyrst skrá bændur upp-
lýsingar inn á loftmyndir af
jörðunum, eða öllu heldur leggja
glæru ofan á loftmyndir og teikna
inn á þær, auk þess sem þeir skrá
upplýsingar á borð við gróðurfar,
gróðurþekju, rof o.þ.h. á sérstakt
eyðublað. Ætlunin er að verk-
efnið Nytjaland nýtist við þessa
skráningu þegar því verður lokið.
I framhaldi af þessu koma bænd-
ur með eigin hugmyndir um
hvernig æskilegt væri að hvert
landsvæði fyrir sig sé nýtt, þ.e.
hvort eigi að friða það, græða
upp, beita eða eitthvað þess
háttar. Þá setja bændur sér mark-
mið með þessum áætlunum og
tiltaka leiðir til að ná þeim.
Bændur vinna því áætlanirnar
sjálfir með aðstoð Land-
græðslunnar. „Þegar þróunar-
verkefninu lýkur höfum við
hugsað okkur að halda námskeið
í slfkri áætlanagerð," segir
Guðrún.
Þessar áætlanir geta skipt
miklu máli nú á tímum aukinnar
gæðastýringar að mati Guðrúnar.
„Þetta gæti t.d. nýst sem úrbóta-
áætlun fyrir þær jarðir sem eiga
erfitt með að fá vottun.“
Endanlegt markmið með
verkefninu er svo að sögn
Guðrúnar að ná sjálfbærri
landnýtingu. „Við vonumst til að
við getum nýtt vinnuferli verk-
efnisins í víðara samhengi, jafn-
vel í samvinnu við fleiri stofnan-
ir. Það eru ýmsar áætlanagerðir í
gangi, sérstaklega þar sem
ráðunautar vinna áætlanir fyrir
bændur. Við höfum hugsað okkur
að bjóða bændum upp á heildar-
pakka í samvinnu við fleiri stofn-
anir þar sem gerðar eru áætlanir
fyrir búið í heild en við höfum
dæmi um slík verkefni frá
Astralíu,“ segir Guðrún.
Stærðir 2,5 - 4 m.
MASCMO
Rotherf
Jöfnunarvals
ÞÓR HF
REVKJAVÍK - AKUREYRI
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - sími 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - sími 461-1070
Líl í fjósinu
óný
Þann 20. mars sl. fékk Wassing
fjölskyldan á Vestergárd í
Fjerritslev á Norður-Jótlandi nýjar
kýr í stað þeirra sem lógað vai'
þann 16. janúar sl. eftir að kúariða
kom upp í hjörðinni. Eftir að
öllum gripum hafði verið lógað,
var bærinn settur í sóttkví í tvo
mánuði, hús sótthreinsuð og öllu
fóðri eytt. A búið eru nú komnar
um 40 kyr, um 100 til viðbótar
koma á næstu dögum en alls voru
um 225 kýr í fjósi á bænum þegar
kúariðutilfellið kom upp. Fjöl-
skyldan, sem er af hollensku bergi
brotin, er ánægð með að nú skuli
vera líf í fjósinu á nyjan leik og
lítur björtum augum til framtíðar.
/BHB.
www.valtra.com
Power Partner
Valtra er sú dráttarvélategund sem mest hefur
vaxið í evrópu undanfarið, og er markaðsleiðandi
á Norðurlöndum.
Velgengni Valtra er byggð á faglegri og hraðri
þjónustu.
vaitra - mest selda dráttarvél á Norðurlöndum.
Þegar gæðin skipta máli
:i i
Auslurvogi 6S • 100 telfoui • Slrai 402 4102 • Fn 402 4101