Bændablaðið - 08.07.2003, Page 1

Bændablaðið - 08.07.2003, Page 1
13. tölublað 9. árgangur Þriðjudagur 8. júlí 2003 ISSN 1025-5621 Mahir og menning á Helgina 18. til 20. júlí verður fjölskylduhátíðin MATUR OG MENNING lialdin á Blönduósi í fyrsta sinn. Markmið hátíðar- innar er að festa í sessi ímynd héraðsins sem matvælaframleið- anda í hæsta gæðaflokki, þar sem byggt er á hefðum, inn- lendu hráefni og stöðugri ný- sköpun í nýtingu og framleiðslu. I matgæðingatjaldi verður boðið upp á rétti framleidda úr af- urðum af staðnum. Margvíslegt verður til skemmtunar, m.a. verður boðið upp á vönduð og íjölbreytt leik- tæki sem staðsett verða á lóð grunnskólans, auk þess sem trúð- ar, og aðrir bamvænir gleðigjafar skemmta gestum og gangandi og má þar nefna Afa gamla, leikinn af Emi Amasyni, og Lalla töffa- mann. Fyrir eldri gesti er meðal annars boðið upp söng og lifandi tónlist, harmonikkuleik og hag- yrðingakvöld, dansleik í Félags- heimilinu með hljómsveitinni Landi og sonum, tónlistaratriði á veitingastaðnum Við Árbakkann auk fjölda annarra uppákoma. LokaO vegna sumarleyla Skrifstofur Bændasamtaka íslands verða lokaðar vegna sumarleyfis starfsmanna dagana 21. júlí til 1. ágúst. Sí'órn Bísaniþykkir tHlogu iim úttiiúiiggsShiffall A fundi stjórnar Bœndasamtaka Islandsfyrir skömmu var lögð fram áœtlun um framleiðslu, ráðstöfun og birgðir kindakjöts almanaksárið 2003. Birgðir dilkakjöts 31. maí voru 3.110 tonn, en þar af voru óútflutt á ábyrgð sláturleyfishafa og Bændasamtakanna 436 tonn. Gert er ráð fyrir að birgðir á innanlandsmarkaði verði 1.200 tonn 1. september nk. Þannig þarf útflutningshlutfallið nk. haust að verða 30,8% til að halda þeirri birgðastöðu en 36,6% til að takast megi að lœkka birgðirnar aftur i 800 tonn. A fundinum var eftirfarandi tillaga um útflutningshlutfall i ágústmánuði samþykkt samhljóða: “I samrœmi við tillögu Markaðsráðs kindakjöts um hlutfallslega skiptingu útflutningsskyldu eftir árstimum er lagt til að útflutningsskylda af dilkakjöti verði 10% 3.-16. ágúst og 17% 17.-31. ágúst 2003. ” Þessi tillaga var send Guðna Agústssyni, landbúnaðarráðherra, sem tekur endanlega ákvörðun um útflutningshlutfallið. um í garðinum í Reykjavík Vaxandi áhugi bænda á heima- Aðalfundur Félags raforku- bænda var haldinn fyrir skömmu og mætti um 30 manns á fundinn. Fyrir utan venjuleg aðalfundar- störf voru flutt erindi á fundinum á vegum vatnamælingasviðs Orkustofnunar og einnig flutti Kristján Haraldsson, forstjóri Orkubús Vestfjarða, erindi. Olafur Eggertsson, formaður Fé- lags raforkubænda, segir að þetta hafi verið mjög gagnlegur upplýsingafundur og að greinilega sé mikill hugur í mönnum að koma sér upp heimarafstöðvum. „Eina vandamálið sem hægt er að tala um er að vatnamælingasvið Orkustofhunar kemst ekki yfir að mæla samtímis hjá öllum þeim sem þess óska. Sem dæmi má nefha að um þessar mundir eru í gangi 23 vatnsmælingar á vegum vatna- mælingasviðs Orkustofhunar bara á Austurlandi og menn sækja um alls staðar að af landinu," sagði Ólafur. Hann segir að þeir sem hafa áhuga á að koma sér upp rafstöð og óska eftir að Orkustofnun mæli hjá þeim vatnið þurfa að útfylla sérstakt umsóknareyðublað sem þeir geta fengið hjá Orkustofhun. Þar gefa menn upp grunnupplýs- ingar sem Orkustofnun fer síðan yfir og metur. I sumum tilfellum dettur umsókn út við skoðun en í öðrum tilfellum fer ffarn nánari skoðun og síðan vatnsmæling ef allt er í lagi. Hver vatnsmæling kostar á bilinu 200 til 300 þúsund krónur. Af þeirri upphæð greiðir bóndinn 50 þúsund krónur en afgangurinn er styrkur ffá ríkinu. Ólafur segir að sökum þess hve margir hafa áhuga á að byggja heimarafstöðvar sé ljóst að það fjármagn sem ríkið áætlaði til sfyrktar dugi ekki. Áætlaðar voru 5 milljónir króna á ári í fimm ár. Ólafur Eggertsson segir að í sumum tilfellum ætli menn að selja afgangs raffnagn ffá heimastöðvum inn á kerfi RARIK en í öðrum til- fellum sé bara verið að hugsa um heimarafstöð. Bændasamtök Islands gefa út með tveggja ára millibili bæklinginn Icelandic Agricultural Statistics. Þar eru settar fram helstu hagstærðir landbúnaðarins á skýran hátt í máli og myndum. Bæklingnum er m.a. dreift til utanríkisþjónustunnar og til ferða- og leiðsögumanna. Hagtölurnar eru notaðar í erlendu samstarfi Bændasamtakanna og gegna mikilvægu hlutverki við að kynna íslenskan landbúnað á erlendri grund. Þeir ferðaþjónustubændur sem vilja fá bæklinginn sendan er vinsamlegast bent á að hafa samband við útgáfu- og kynningarsvið Bændasamtakanna í síma 563-0300 eða á netfangið bbl@bondi.is. Brn bndhdnadapsaiiniiwip fyrir allar Upiaar M 2007? Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna, segir í við- tali við Bændablaðið að afstaða Guðna Ágústssonar land- búnaðarráðherra til komandi mjólkursamnings, sem fram kom í viðtali við hann í síðasta Bændablaði, þurfi ekki að koma neinum á óvart. Hann hafl í viðtalinu sagt það sama og á aðalfundi Landssambands kúa- bænda á Laugum í Sælingsdal árið 2002. Síðan ræðir Ari um mjólk- ursamninginn og hátt verð á mjólkurkvóta í ljósi þeirra breytinga sem eru að verða vegna nýrra alþjóðlegra samninga og segir síðan: "Ég hygg að rétt sé að velta því fyrir sér hvort það breytta umhverfi sem nú virðist fram- undan, þar sem stuðningur við bændur flyst meira yfir á jarðir og umhverfi og frá fram- leiðslunni, geri okkur ekki erfitt fyrir um að gera sérstaka sam- ninga fyrir einstakar búgreinar. Ef stuðningurinn er í vaxandi mæli fluttur yfir á jörðina, hvað sem framleitt er, þá fellur það illa að því að gera samning um einstakar búgreinar. Því er e.t.v. rétt að skoða þann möguleika hvort skynsamlegt sé að gera einungis mjólkursamning til tveggja ára með heildarland- búnaðarsamning í huga sem tæki gildi árið 2007." Sjá viðtal við Ara Teitsson á bls. 15.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.