Bændablaðið - 08.07.2003, Page 4

Bændablaðið - 08.07.2003, Page 4
4 Bændabtaðið Þriðjudagur 8. júli 2003 BúneManhinn fllbúinn til nú tapa iiáum fjárhæQum til að halda úti shemmdan verkastarfsemi ú kjötmarkafii - segir varafarmafinr sflúrnar Bændasamtaka íslands "Ábyrgð lánastofnana á því ástandi sem nú ríkir á kjötmarkaði er mikil og þar virðist Búnaðarbankinn vera í fararbroddi. Þaó hlýtur að vera spurning hvernig við eigi að bregðast en bankinn er tilbúinn að tapa háum fjárhæðum til að halda úti skemmdarverka- starfsemi á kjötmarkaði," sagði Gunnar Sæmundsson, varaformaður stjórnar Bændasamtaka Islands, í ávarpi á aðalfundi sauðfjár- bænda sem haldinn var á Hótel Vin í Eyjaíjarðarsveit fyrir skömmu. "Því miður er Lána- sjóður landbúnaðarins ekki saklaus heldur. Gjaldþrota fyrirtæki eru endurreist hvað eftir annað. Til hvers? Fyrir hvern? Það hlýtur að vera spurning sem sauðfjárbændur verða að velta fyrir sér, hvað þeir eigi að greiða gjald til sjóðsins í þeim mæli sem nú er." Gunnar sagði fjölda aðila á kjötmarkaði stefna í gjaldþrot ef ekki yrði gripið til róttækra aðgerða. "Nú er svo komið að cðlileg markaðslögmál ná ekki fram að ganga heldur er spurn- ingin að lifa af með klækjum og brögðum á annarra kostnað." Varðandi sláturhúsamálin sagði varaformaður Bændasamtakanna að þar yrðu menn að taka upp annan hugsunarhátt. "Það er vonlaust að hægt sé að halda uppi atvinnu við sauðfjárslátrun á öllum þeim stöðum sem nú slátra sauðfé. Framtíðin er sú að bændur munu leggja inn dilka sína hjá þeim aðilum sem bjóða besta verðið og menn treysta til að standa við greiðslur á réttum tíma. Það er ekki nóg að bjóða gott verð ef ekki er staðið við greiðsludaga." Elín Sigurðardóttir, bóndi á Neöri Vindheimum. Við hlið hennar er vinnumaðurinn á bænum, Geir Konráð Theodórsson, en þá kemur Kristján Gunnarsson, mjólkureftirlitsmaður. Saujján bændnr á svæii Norlur- mjálknr hnia rífifi nifiur gömlu rör mjaltaknrfin og keypt brautakerfi Á liðnum mánuðum hafa margir norðlenskir bændur látið setja upp brautarkerfi í fjósin hjá sér. Kostnaður við uppsetningu svona kerfa, auk mjaltabúnaðar, er að sjálfsögðu aðeins brot af þeim útgjöldum sem verða við kaup á mjaltabás eða róbót. Kristján Gunnarsson, mjólkureftirlitsmaður hjá Norðurmjólk, sagði að á sl. tveimur árum hefðu um 17 bændur á svæði Norðurmjólkur rifið niður gömlu rörmjaltakerfin og keypt brautarkerfi. Vinna við mjaltir verður mun léttari en talið er að fólk þurfi að beygja sig hclmingi sjaldnar en það helgast af því að hér fylgja sjálfvirkir af- takarar sem gera það að verkum að ekki hangir um of á kúnum. Þetta kerfi gefur fólki færi á að mjólka með fieiri tækjum og stytta þar með mjaltatímann og ekki má gleyma því að þetta er mun betra mjaltakerfi fyrir kúna en gömlu rörmjaltakerfin vegna af- kasta og flutningsgetu brautarkerfisins. Þessi tæki (milkmaster) eru stillanleg á marga vegu eftir óskum eða sérvisku hvers og eins bónda og ýmsar gagnlegar upp- lýsingar er hægt að lesa af skjá tækisins s.s. mjólkurmagn sem gerir þá kjamfóðurgjöf skilvirkari þar sem bóndinn er í raun að mæla úr kúnum í hvert mál. "Hér er oft um að ræða fólk sem á tiltölulega ný fjós og vill síður endumýja þau í hólf og gólf. Einnig má í þessum hópi bænda finna fólk sem er komið um eða yfir miðjan aldur og vill ekki standa í miklum fjárfestingum en vill létta sér störfin en algengt er að mjaltafólk í básafjósum bili á efri árum í hnjám og baki. Þá mega menn ekki gleyma því að það er hægt að rífa þessi brautar- kerfi niður og selja þau ef viðkomandi hættir búskap," sagði -Kristján. "Eg er eins og mein- dýraeyðir í veiðihug, ég vil út- rýma gömlu rörmjaltakerfúnum því þau em - að mínu mati - líklega ein af orsökum bágrar júgurheilsu auk þess sem flutn- ingsgeta þeirra er slök þegar um er að ræða vel mjólkandi kýr. Auðvitað er ég láglínumaður en það er mikið dýrari Ieið og ekki skynsamleg fýrir alla." Elín Sigurðardóttir í Neðri Vindheimum á Þelamörk sagði að nú væri liðið um eitt ár síðan hún og maður hennar, Sverrir B. Sverrisson, hefðu tekið kerfið í notkun. "Við greiddum rúmar þrjár milljónir tyrir kerfið með virðisaukaskatti," sagði Elín. Þess má geta að fjósið í Neðri Vind- heimum er þrístætt og því varð brautarkerfið lengra og dýrara en t.d. í tvístæðu fjósi. I ijósinu [ Neðri Vindheimum em 46 kýr og ffamleiðsluréttur búsins er 185 þúsund lítrar og mjólkað er með 5 tækjum. "Eftir að við fengum þetta brautarkerfi emm við um helmingi fljótari að mjólka, en vinnan við mjaltimar er líka miklu léttari. Flestar kúnna sættu sig við breytinguna án mótmæla." I Neðri Vindheimum og Skriðu em tölvustýrðar þvottavélar sem þvo kerfin eftir mjaltir. Þær em afar fullkomnar og forritanlegar, hita t.d. þvottavatnið ef það er ekki nægilega heitt þannig að í raun gerilsneyðist mjaltakerfið al- gjörlega í þvotti. Sigríður Sverrisdóttir og Þór Jónsteinsson búa í Skriðu í Skriðuhreppi (Hörgárbyggð) ásamt foreldmm Sigríðar. Þau tóku brautarkerfi með sex tækjum í notkun fyrir nokkmm vikum. Þau tóku undir orð Elínar varð- andi tímaspamað og léttari vinnu. "Þá má skoða þessa leið sem stökkpall í eitthvað annað. Fjósið hér er ekki gamalt og mikið eftir í því," sagði Þór og gat þess að kostnaðurinn hefði numið tæpum þremur milljónum. í Skriðu er tvístætt fjós með 40 kúm og fram- leiðslurétturinn er 180 þúsund lítrar. Eftir að brautarkerfið kom upp tekur um 40 mínútur að mjólka. Allt gamla rörmjalta- kerfið var lagt til hliðar þegar brautarkerfið kom til sögunnar. Sigríður sagði að það hefði tekið rúma viku að setja kerfið upp. Á báðum þessum bæjum koma brautarkerfin ffá DeLaval. Sláturhúsið í BúDardal ekki lagt niOur Dalamenn eruaO endurbæta húsið Nefnd á vegum landbúnaðar- ráðherra sem fór yfir málefni sláturhúsa í landinu lagði til að 11 sláturhúsum yrði boðinn styrkur til úreldingar og þá væru eftir þau 7 sláturhús sem hafa viðurkenningu Evrópu- sambandsins. Sláturhúsið í Búðardal er ekki í hópi þessara 7 húsa en heimamenn vilja ekki úrelda húsið. Þeir ætla að endurbæta það þannig að það nái ESB-staðlinum og halda áfram slátrun í þvi. Haraldur L. Haraldsson, sveitarstjóri Dala- byggðar, sagðist telja víst að svo verði. Endurbœtur hafnar „Menn eru byrjaðir að vinna að því að húsið nái ESB-staðlinum og í fyrra var framkvæmt fyrir um 8 milljónir króna í endurbótum á húsinu og nú eru uppi plön um að halda áffam í sumar. Við munum ekki ná að ljúka ffamkvæmdunum í haust en stefnum að því að það geti orðið haustið 2004. Það er alla vega sú áætlun sem menn vinna nú eftir," sagði Haraldur. Hann sagði að í fyrra hefði allt ónýtt jám á húsinu verið endur- nýjað og að meiningin væri að ljúka endurbótum utanhúss í sum- ar og fara síðar í þær breytingar sem nauðsynlegar eru innanhúss til þess að ESB-staðli verði náð. Öflug kjötvinnsla Miðað við hina venjulegu sláturtíð hér á landi taldi Haraldur að mögulegt væri að slátra um 40 þúsund fjár í húsinu en það er ekki stórgripasláturhús heldur aðeins fyrir sauðfé. I tengslum við sláturhúsið í Búðardal er kjötvinnsla þar sem 15 til 20 manns hafa starfað allt árið. Haraldur bendir á að fyrir ekki stærra pláss en Búðardal skipti þetta verutegu máli í at- vinnulegu tilliti. Kjötvinnslan í Búðardal er öflug og vinnur kjöt fyrir Bónus og fleiri verslanir í landinu. Bandnblflðið 2. september Fyrsta blað eftir sumarleyfi Úttekt á stnðu og nýfingu lax-ng silungsstofna Aðalfundur Landssambands veiðifélaga, sem haldinn var á Húsavík dagana 13.-14. júní 2003, skorar á stjómvöld að láta fara ffam heilstæða úttekt á stöðu og nýtingu laxa-og silungstofna landsins. Sú úttekt taki til verð- mætasköp- unar, lagaumhverfis, nýtingar auk líffræðilegrar stöðu og ástands. Stjómvöld tryggi að lagaumhverfi og fjármagn sé til staðar og að það nýtist til vemd- unar og viðhalds á auðlindinni.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.