Bændablaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 8. júlí 2003
9
Fjörutíu ára útskriftarafmœli
Þann 28. maí sl. fóru nokkrir búfræðikandidatar, sem útskrifuðust frá
Hvanneyri árið 1963, ásamt mökum í ferð til Desenzano við Gardavatn á
Ítalíu i tilefni þessara tímamóta. Ekki áttu þó allir þeir sem útskrifuðust
1963 heimangengt. Ferðin tókst vel og sneri hópurinn heim 2. júni sl.
Hópurinn hefur haft þá venju að hittast einu sinni á vetri þegar haldinn er
ráðunautafundur og á fimm til tiu ára fresti hefur hann hist að sumarlagi
hjá einhverjum félaganna viðsvegar um land. Á myndinni eru ferða-
langarnir, taldirfrá vinstri, Magnús B. Jónsson, Steinunn Ingólfsdóttir, Ól-
afur Guðmundsson, Jón Snæbjörnsson, Lilja Ólafsdóttir, Erlendur
Danielsson og Gréta Jónsdóttir.
Ferfiir i heimsleika íslenska hestsins
Löngum hefur verið vinsælt meðal hestamanna að fylgja íslenska
landsliðinu í hestaíþróttum til keppni erlendis. Nú í sumar fer
heimsmeistaramót í hestaíþróttum fram hjá frændum okkar Dönum og
stendur það yfir dagana 29. júlí nk. ti! 3. ágúst. Fjöldi íslendinga hyggst
fara á mótið enda auðvelt að ferðast til Danmerkur og margt áhugavert
að sjá og gera. Mótið fer ffam í Heming á Jótlandi, en þaðan er stutt
t.d. í Legoland og fleiri skemmtilega staði fyrir fjölskyldufólk.
íslenska landsliðið þykir sterkt í ár eins og svo oft áður og án efa
munu íslensku knapamir berjast til sigurs í hverri grein. Liðið hefur
ekki verið fúllskipað ennþá, en Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla sem
stýrir liðinu mun hnýta síðustu hnútana í þeim efnum nú í vikunni.
Fyrir þá sem áhuga hafa á því að heimsækja Danaveldi og styðja
íslenska landsliðið má benda á að ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn býður
upp á ferðir á mótið í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga,
auk þess sem hægt er að fljúga til Billund eða Kaupmannahafnar og
ferðast þaðan á eigin vegum. Þeir sem vilja kynna sér dagskrá mótsins
o.s.ffv. geta kíkt á heimasíðu mótshaldara sem er að finna á slóðinni
www.vm2003.dk
58 REITIR A HLAfl-
BORfll Á VATNSNESI
Fjölmcnni var samankomið við
Hamarsbúð í Húnaþingi vestra
þegar Húsfreyjurnar á Vatnsnesi
(gamla Kirkjuhvammshreppi)
efndu til veislu fyrir skömmu. Þessi
samkoma sem kallast Fjöruhlað-
borðið var nú haldin i níunda
skipti, tilgangurinn er að fólk komi
saman eina kvöldstund og blandi
geði og einnig að kynna og viðhalda
áratuga gamalli matarhefð. Að
þessu sinni voru 58 réttir á boð-
stólum og meðal drykkjarfanga
var að sjálfsögðu mysa. Af
skemmtiatriðum má nefna böggla-
uppboð og kvæðamenn af Vatns-
nesi kváðu stemmur. I lokin var svo
stiginn dans. Þessi samkoma er
einn liður í Björtum nóttum sem
eru í raun nokkrar skemmti- og
menningarsamkomur sem Vestur-
Húnvetningar hafa haldið víðsveg-
ar um sveitarfélagið síðan árið
1994.
„Hátíðin hefiar verið með svipuðu
sniði ffá upphafi þó réttum á hlað-
borðinu fari alltaf fjölgandi. Við
höfiim reynt að vera með einhvem
nýjan rétt árlega þ.e. sem ekki hefiir
áður verið á boðstólum. Nú vorum
við t.d. með sauðaábiystir og grafið
kjöt.
Við em með sjávarfang s.s.
selkjöt reykt og nýtt með spiki, súra
selshreifa, höffungakjöt,reyktan og
grafinn fisk og að sjálfsögðu hákarl
og harðfisk. Einnig sauðahangi-
kjöt,lambakjöt og súra sviðasultu.
Líka má nefna súrsuð egg og blóð-
pönnukökur. Auk margra annarra
rétta er margs konar brauðmeti með
áleggi. Svo er boðið upp á ábrysti,
fjallagrasamjólk og heimagert skyr.
Úndirbúningur að hátíðinni hefst
eiginlega í sláturtíðinni á haustin. A
Hvammstanga býr Bjöm Þ. Sig-
urðsson, hann er okkur afar hjálpleg-
ur, verkar hákarlinn, grásleppuna og
harðfiskinn o.fl. Allur undirbún-
ingurinn krefst mikillar skipulagning-
ar og við Húsffeyjumar vinnum vel
saman, það er góð samstaða í
hópnum. Okkur finnst nokkurs virði
að halda í jjessar gömlu matarhefðir
og fólki líkar þetta vel, a.m.k. heyrum
við ekki annað á þeim sem koma til
okkar, "sagðiKristínGuðjónsdóttirá
Húsfreyjurnar á Vatnsnesi sem
stóðu að Fjöruhlaðborðinu í þetta
skipið. Frá vinstri. Guðlaug á
Bergsstööum, Þóra á Sauðadalsá,
Andrea á Neðra-Vatnshorni.
Kristin á Ásbjarnarstöðum. Helga i
Helguhvammi. Stella i Gröf. Sigríð-
ur á Svalbarði. Kristín á Þorgríms-
stööum.Katharina í Galtanesi og
Aðalheiður á Sauðá.
Bændablaðið/Öm
If
. %
BÆNDU R i
Til afgreiðslu strax
NÝJA 548 RÚLLUBINDIVÉLIN FRÁ NEW HOLLAND
• Sópvinda, 2 mtr.
• Mötunarvals
• Netbindikerfi
• Flotdekk
• Smurkerfi
• Baggasparkari
• Tvöfaldur hjöruliður
á drifskafti
^ HAGSTÆÐUSTU
KAUPIN ERU í
NEW HOLLAND
RÚLLUBINDIVÉL
VELAVERf
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • Akureyri Sími 461 4007 • www.velaver.is