Bændablaðið - 08.07.2003, Qupperneq 12

Bændablaðið - 08.07.2003, Qupperneq 12
12 Bændabloðið Þriðjudagur 8. júlí 2003 UmhverliO er okkar mál Takhi þatt í að vernda umhverfiO með okkur! í þcssum síðasta pistli Ferðaþjónustu bænda og Hólaskóla í tengslum við umhverfisstefnu Ferðaþjónustu bænda verður sjónum beint að: - samstarfi við sveitarfélög, önnur fyrirtæki og íbúa, - lögum og reglugerðum, - stöðugum úrbótum á sviði umhverfismála. Samstarf við sveitarfélög, önnur fyrirtœki og íbúa á svœðinu Samstarf er lykilatriði í vinnu að umhverfismálum. Það getur verið mjög fjölbreytt en hér fyrir neðan er að fmna dæmi um mikilvæga samstarfsmöguleika. Sveitarfélög 0 Mikilvægt er að sveita- stjómir geri sér grein fyrir mikil- vægi ferðaþjónustu á svæðinu og því er tilvalið að bjóða sveitar- stjómarmönnum í dagsferð til að upplýsa þá um starfsemi ferða- þjónustufyrirtækjanna á svæðinu. #Umhverfisstarf sveitarfélaga skiptir miklu máli, t.d. hvað varðar ffárennslismál og sorpmál en margir ferðaþjónustubændur kvarta yfir því að ekki sé hægt að flokka sorpið nógu mikið þar sem sveitarfélög hafi ekki komið upp fúllnægjandi sorpflokkun. #Annar mikilvægur þáttur sem skiptir miklu máli í ferðaþjónustu er snyrtimennska og þar geta sveitarfélög unnið mikil- vægt starf, þ.e. sýnt gott fordæmi, hvatt íbúa og fyrirtæki til þess að leggja sitt af mörkum og veita þeim aðstoð t.d. við að safna saman drasli, koma upp moltu- kassa o.s.ffv. #Þá má einnig nefna frum- kvæði sveitarfélagsins sem stuðla ætti að góðri samvinnu innan sveitarfélagsins. Samvinna á sviði skipulagsmála fer nú stöðugt vax- andi og í því sambandi má nefna íbúaþing þar sem allir íbúar eru velkomnir að taka þátt í að móta eigin framtíð í sinni heimabyggð. #Ferðaþjónustubændur og aðrir sem áhuga hafa á umhverfis- málum ættu að standa saman og hvetja sitt sveitarfélag til dáða í umhverfismálum og leggja til að það vinni markvisst að Staðar- dagskrá 21. Ef sveitarfélagið er að gera góða hluti þá má ekki heldur gleyma að minnast þess sem vel er gert. Önnur fyrirtœki #Það má læra margt af því sem aðrir eru að gera. Því er til- valið að heimsækja önnur ferða- þjónustufyrirtæki á svæðinu og skoða hvemig "hinir" gera hlutina. Það getur lagt grunninn að frekari samvinnu. #Önnur fyrirtæki en þau sem koma beint að ferðaþjónustu geta verið í samstarfi við ferða- þjónustufyrirtæki, t.d. gróðurhúsa- bændur, sauðfjárbændur, mjólkur- samsölur, kjötvinnslur og ullar- vinnslu-fyrirtæki. Afurðimar geta verið á boðstólum hjá ferða- þjónustubændum, en jafnframt gætu gestir heimsótt fyrirtækið þar sem varan er framleidd. Slík sam- vinna getur stuðlað að markvissari svæðisbundinni markaðssetningu á hreinum íslenskum afúrðum. #lbúar: Það er stórsniðugt að hafa opið hús fyrir íbúa í sveitarfé- laginu. Slíkt styrkir tengslin við nágrannana auk þess sem það getur verið góð auglýsing. Lög og reglugerðir Það er grundvallaratriði að starfsemin uppfylli ákvæði laga og reglugerða á öllum sviðum. Til þess að vera fullgildur aðili innan Ferðaþjónustu bænda þarf að upp- fylla eftirfarandi skilyrði, sett af opinbemm aðilum. #Reglugerð samgönguráðu- neytis um veitinga- og gististaði #Leyfi sýslumanns/lög- reglustjóra fyrir rekstrinum. #Sýslumaður krefst umsagnar ffá heilbrigðisfúlltrúa, byggingar- fúlltrúa, eldvamareflirliti og vinnueftirliti. Nánari upplýsingar um ofan- greind lög og reglugerðir er m.a. að fmna á eftirfarandi heima- síðum: http ://www. samgonguraduney t i. is, http://umhverfisraduneyti.is, http://www.ust.is, http://www.skipulag.is, http://vinnueftirlit.is. Stöðugar úrbœtur á sviði umhverfismála Það er mikilvægt að vinna stöðugt að úrbótum í rekstri og þjónustu til að draga úr skaðlegum umhverfisáhrifúm. Það er undir hverjum og einum komið hvað er gert á hverjum tíma en nauðsyn- legt er að setja niður verkefnalista, forgangsraða honum og skrifa niður raunhæf markmið. Að tíma- setja markmið er mikilvægt, hvort sem um er að ræða nokkra daga, vikur eða ár og setja ný markmið þegar öðrum hefúr verið náð. Þess má geta að með því að sækja um vottun á umhverfisstarfi fyrirtækis skapast aðhald sem stuðlar að því að fyrirtækið þarf stöðugt að huga að úrbótum á sviði umhverfismála. Slík vottun getur ekki síður verið trygging fyrir gæðum á vöru og þjónustu. Hólaskóli og Ferðaþjónusta bænda ætla ekki að láta sitt eftir liggja í umhverfisstarfinu og stefna að því að vera til fyrir- myndar á sviði umhverfismála - í samvinnu við ykkur hin! Elín Berglind Viktorsdóttir er gœðastjóri Ferðaþjónustu bœnda og kennari við ferðamáladeild Hólaskóla. Netfang: berglind Cafiolar. is/bergluulafarmholidays. is Bændablaðiö Eins og undanfarin ár verður gert hlé á útgáfu Bændablaðsins meðan starfsfólk fer í sumarleyfi. Vinna hefst á nýjan leik um miðjan ágúst en fyrsta blað eftir sumarleyfi er væntanlegt þriðjudaginn 2. september. Nýtl fjós að rísa á Á bænum Hríshóli í Eyjafjarðarsveit er að rísa 640 fermetra lausagöngufjós með 68 legubásum auk þriggja bása í sjúkrastíu. Nýbyggingin verður tengd eldra fjósi á bænum. Það eru þau Sigurgeir B. Hreinsson og Bylgja Sveinbjömsdóttir sem búa á Hríshóli. Framleiðsluréttur búsins er 190 þúsund lítrar og í sauðfé eru 144 ærgildi. Framkvæmdir hófúst í maí og gert er ráð fyrir að kýmar flytji í fjósið fyrir haustið. I fjósinu verður mjaltari frá DeLaval, sem einnig leggur til innréttingar og lagði línur varðandi skipulag, en byggingaþjónusta landbúnaðarins hannar bygginguna að öðm leyti. Skipulag fjóssins verður áþekkt því sem er á Lambastöðum á Mýrum og Bændablaðið greindi ffá fyrr á árinu. Hér er á ferð límtréshús með yleiningum ffá Límtré á Flúðum og er það væntanlegt norður í lok júlí. "Við höfúm skoðað mörg fjós og finnst límtrésbyggingamar skemmtilegri en stálgrindin. Límtrésbyggingar em heldur dýrari en hinar en nú þurfa menn að fara að klæða af stálbita og þegar það er búið þá tel ég að munurinn sé hverfandi," sagði Sigurgeir. Nýja húsið er nokkuð breitt, eða 21 m, og því verða settar súlur í það. Uppeldi gripa verður í gamla fjósinu sem er rúmlega 300 fermetrar og er ffá árinu 1973. Næst nýja fjósinu verða smákálfar. Munu þau hjón kaupa meiri ffamleiðslurétt? Sigurgeir sagði að verðlag á kvóta réði þar stefnu en í fjósinu verður hægt að framleiða yfir 400 þúsund lítra. "Afúrðimar nú em yfir 6 þúsund lítrar á kú og ég vil sjá þá tölu hækka," sagði Sigurgeir. Steypa í fjósið er og hefúr verið hrærð af Sigurgeir og hans mönnum en Sigurgeir sagði að það væri mun ódýrara en ef steypan hefði verið keypt hjá steypustöð á Akureyri. "Auðvitað tekur steypuvinnan eitthvað lengri tíma þar sem við emm ekki með aðkeypta vinnu við það verk," sagði Sigurgeir. Byggingameistarinn hefúr mætt á svæðið ásamt sínum sveinum og slegið upp veggjum en Sigurgeir, sonurinn og tengdasonurinn hafa þá tekið við ásamt vinum og vandamönnum. Utreikningar Sigurgeirs benda til þess að hver rúmmetri í steypu kosti rétt rúmar 6000 krónur. Tilboð ffá steypustöðvum á Akureyri, sem sveitungar Sigurgeirs hafa fengið, hljóða upp á rúmar 12 þúsund krónur. Byggingarmeistari hússins er Gunnlaugur Ingólfsson hjá byggingarfyrirtækinu Timbm. Múrarameistari er Hannes Óskarsson. Heildarkostnaður er áætlaður um 34 milljónir fyrir utan vinnu heimamanna. 1 ffamangreindri tölu er ekki heldur gert ráð fyrir eigin vélavinnu. F.v. Sigurgeir B. Hreinsson, Elmar Garðarsson. Sigurgeirsson og Stefán Elvar # Að fyrri slætti loknum vaknar sú spuming hvort ástæða sé til þess að bera áburð á tún á milli siátta. Þegar vel árar og spretta er góð, eins verið hefúr undanfarin ár, ásamt því að flestir eiga nægjanlega stór tún, þá virðist við fyrstu sýn lítil ástæða til þess að bæta við fóðurforðann með viðbótaráburði. Einnig skal hafl í huga að víða em fymingar umtalsverðar og er það vemlegt umhugsunarefni hvað leggja eigi í mikinn kostnað vegna þeirra (sjá grein Bjama Guð- mundssonar í Bbl. 29. apríl 2003), þótt hæfilegar fym- ingar séu nauðsynlegar af öryggisástæðum. En fleira kemur til. Þegar vel árar og snemma er borið á og tún em tví- og þríslegin eða beitt síð- sumars þarf að hafa í huga að væntanlega hefúr gengið á köfnunarefnisforða jarð- vegsins. Þar sem 'nægjan- legt köfnunarefni er undir- staða þess að pró- teininnihald uppskemnnar verði sem mest getur því verið nauðsynlegt að bera á köfnunarefni á milli slátta. Þetta á sérstaklega við ef nota á hána fyrir mjólkurkýr eða til beitar fyrir sláturlömb. Hver kannast ekki við það að sláturlömb fitna við túnbeit að hausti í stað þess að vöðvamir vaxi eða að hámjólka kýr mjólka minna en skyldi við beit eða fóðmn með há? Úr þessu má bæta með viðbótar köfnunarefni á milli slátta, t.d. 20 - 30 kg/ha af N eða sem svarar 75 - 150 kg á hektara af algengum köfnunarefnisáburði. Á markaði er áburðarkalk sem jafnframt inniheldur 5% N (köfiiunarefni). Þar sem bæta þarf kalsíumástand jarðvegsins reynist mörgum vel að bera þennan áburð á tún á milli slátta. Þá er hæfilegt að nota 400 - 600 kg/ha (samsvarar 20 - 30 kg/ha af N). Hins vegar skal skýrt tekið ffam að þótt með þessu fáist, auk köfnunarefnisins, æskileg kalsíumviðbót (Ca) á túnin, þá er þetta ekki fúll- nægjandi til þess að hækka sýmstig, pH, nema mjög lítið. Því telst þetta ekki kölkun í þeim skilningi að um rétt á framlagi sé að ræða, til þess þarf að lágmarki 2 tonn á hektara af kalki. Kalkið getur hins vegar komið sér afar vel ef Ca - tölur í jarðvegi og uppskeru hafa við mælingar reynst lágar. Það villir ofl um fyrir mönnum að spretta getur verið góð þótt próteininnihald grasanna sé ffemur lágt. Því er ekki nægjanlegt að líta eingöngu til sprettunnar ef nýta á uppskemna til bötunar sláturlamba eða fyrir hámjólka kýr. Við ákvörðun á þvi hvort bera skuli á köfnunarefni á milli slátta, verður að taka tillit til þess hversu mikið köfnunarefni var borið á að vori og gæta þess að heildar N - magnið verði ekki alltof hátt. Einnig skal hafa í huga hvort um ffjósaman jarð- veg er að ræða, sem hefúr fengið ríkulegan skammt af búfjáráburði undanfar- in ár, eða hvort jarðvegur- inn er rýr. Reynsla kal- áranna sýndi að mikill köfnunarefhisáburður jók líkur á kali. Mild vetrar- veðrátta undanfarin ár veldur því að e.t.v óttast menn síður kal í þeim mæli sem áður þekktist, en um veðurfar komandi vetrar verður aldrei fúllyrt fyrirffam. Þá skal bent á að ef ráðlagður skammtur steinefna er borinn á að vori þá er óþarfi að bera þau á vegna háarsprettu. Reynslan hefúr sýnt að próteinmagn í há er afar breytilegt. Því er mikilvægt að taka sýni til efha- greiningar, sérstaklega ef háin er slegin, því að þá má haga fóðmn eftir niðurstöðunum. Þótt háin sé beitt og niðurstöður efhagreininga liggi ekki fyrir fyrr en eftir nýtingu, þá geta niðurstöðumar verið mikilvægar við ákvörðun á áburðargjöf næsta árs. Víða reynist vel að dreifa vatnsblandaðri kúa- mykju á tún á milli slátta, en þá er best að gera það strax eftir slátt til þess að grösin brennist síður. Hafa skal í huga að nái búfjáráburðurinn ekki að ganga nógu vel ofan í svörðinn þá getur uppskeran verið blönduð búfjáráburði sem er afar óæskilegt. Þá færist það í vöxt að bera búfjáráburð á tún síðsumars eða snemma að hausti og láta margir vel af því þótt óvissa um nýtingu hans að vori verði meiri miðað við það að bera búfjáráburðinn á snemma vors. /Árni Snæbjörnsson

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.