Bergþór


Bergþór - 01.12.1963, Síða 3

Bergþór - 01.12.1963, Síða 3
Desember 1963 BERGÞÓR 3 þrjá eða fjóra tíma að villast frá Auðsholtsferju, en loksins séð ljósið, og það bjargaði hon- um. — Mér er það minisstætt, að okkur þótti talsvert til gests ins koma, af því að hann var bróðir prestsins. — Næsta morgun rétt eftir fótaferð kom hann að Torfastöðum. Þá varð frú Steinuni að orði: „Guð hjálpi mér, Ágúst, nú hefur þú legið úti í nótt.“ En Ágúst svaraði: „Nei, ég lá ekki úti. Ég átti góða gisting, og mér leið mikið vel.“ Þetta atvik rifjaðist upp fyr- ir mér um daginn, þegar önnur frásögn um gistingu hér í sveit inni kom á prenti. Það voru ekki allir, sem kunnu að meta og þökkuðu eins og Ágúst, þann beina, sem þeim var veittur af vanefnum á fátæk- um heimilum. — Hestarnir Annars man ég ekkert öðru merkara í sambandi við ferða- menn, sem fóru um hjá okkur. Þegar gestir stöldruðu og fóru inn til að þiggja góðgerðir, vor- um við krakkarnir alltaf hjá hestunum, snerumst í kring um þá og höfðum mikla ánægju af því. — Minnisstæðastir eru mér nú Spóastaðahestarnir — og svo aftur löngu seinna skjóttur hestur, sem Grímur í Skálholti (síðar í Gröf) átti. 1 bernsku minni voru tveir Pálar á Spóastöðum og voru báðir miklir hestamenn. Sá eldri hét Páll Þórðarson. Hann var hættur búskap, en tengda- sonur hans, Páll Guðmundsson, bjó. Kona yngra Páls og dóttir eldra Páls hét Anna. — Síðasti hesturinn, sem eldri Páll átti var kallaður Hlýri. Hann var bógaskjóttur, rauðskjóttur. 1 endurminningunni finnst mér, að hann muni hafa verið þýður klárhestur, mikið viljugur. Mér fannst skepnan ákaflega mikið falleg. Anna á Spóastöðum hafði átt brúna hryssu, sem mikið orð fór af. Ekki man ég eftir henni, en um hana orti Brynjúlfur á Minna-Núpi í orðastað önnu. Eitt erindið var þannig: Einkanlega afbragð mundi um að þræða vötnin blá. — Bar hún þomaþór á sundi þrisvar yfir Brúará. En ég man eftir tveim hest- um yngri hjónanna á Spóastöð- um. Þeir voru báðir miklir skeiðhestar. Reiðhestur Páls hét Stígandi. Hann var rauður og mikill vilja hestur. En reiðhest- ur önnu var ljósgrár og hét Snillingur. Hann fór vist varla annað en skeið. Hestur Gríms var alltaf kall- aður Skjóni. Hann var brún- skjóttur, líklega mesti fjör og snillingshestur, sem ég hef séð. Eg minnist þess, þegar pabbi og mamma töluðu um, að þarna kæmi nú Grímur. Hann bar svo fljótt yfir, að þótt til hans sæ- ist í fjarska, þá var hann á augabragði kominn eins og fugl inn fljúgandi. Ég held, að þessi hestur sé mér minnisstæðastur fyrir fjörið og svo e. t. v. líka fyrir það, hvað sambandið var einstakt milli manns og hests. Það fannst mér einstakt. Ég man, hvernig Grímur brá hönd um um háls hestinum og faðm- aði hann að sér, þegar hann fór af baki. Grímur fór frá Skálholti, þeg ar ég var fjórtán ára. Þeim var það sameiginlegt, honum og tengdafeðgunum á Spóastöðum, að þeir voru alltaf með eitthvað í tamningu, verzluðu með hesta og ferðuðust mikið. 1 Hrosshaga voru ekki sér- stakir gæðingar nema ein rauð- stjörnótt hryssa, sem til var á barnsárum mínum. Hún var ágætt reiðhross, bæði mikið viljug og þýð á skeiði og kapps full að hleypa ekki fram fyrir sig. Vigga, systir mín, naut hennar mikið. Hún var það eldri en ég. Stjarna var líka reiðhross Jóhanns, á meðan hann var hjá okkur. Hann fór þá oft eitthvað á sunnudögum. Hann hafði miklar mætur á Stjörnu. Svo reið mamma henni náttúrlega, ef hún fór eitthvað. og alltaf var þó farin a. m. k. þessi eina kirkjuferð á sumri á hestum. Vinnufólkið var nú stundum að tala um, að það borgaði sig ekki umstangið við að ná saman hrossunum fyrir svona stutta ferð, en mamma svaraði því til, að þetta væri nú fastur siður, og kirkjuferð- in yrði þá krökkunum minnis- stæðari, ef farið væri ríðandi. Spóastaðaheimilið „Hvar var ég nú við, Elín mín?“ sagði presturinn, þegar honum varð eitthvað litið út yfir söfnuðinn og missti þráð- inn. — Við vorum að tala um Spóastaðafólkið. — Á Spóastöð um var alveg sérstakur heim- ilisbragur að því leyti, að þetta fólk var allt svo handgengið skepnunum og einstaklega miklir dýravinir. Ég var mjög kunnug þar. Þar var aðeins eitt barn, Kristín, jafnaldra mín. Hér var heldur fátækt, en þar var velsæld, og ég var þar oft í löngum orlofum. Foreldrar Kristínar urðu eins og hálfgerð ir fósturforeldrar mínir. Þó ekki í þeim skilningi, að ég æl- ist þar upp. Þá voru tvær eldri konur á Spóastöðum, Kristín, móðir önnu og kona eldra Páls, og svo systir hennar Ingveldur. Þær voru svo mikið fyrir kind- ur. Þær voru alltaf einlægt að tala um kindur, ef til þeirra sást einhvers staðar nærri, og ef ekki, þá var talað um ætt- irnar, út af hverju þessi og þessi skepna væri. Eins var þegar þær komu á réttarvegg- inn, þá var eins og þær þekktu þetta allt á svipnum og ættar- mótinu. — Þessi eiginleiki hef- ur svo gengið í erfðir til eftir- komendanna. Annars finnst mér alltaf, að allt fólk í nágrenni við Hross- haga hafi verið ákaflega gott fólk. —o— Það er og hefur verið háttur margra Islendinga, sem næmt auga hafa fyrir spaugilegum til svörum og atvikum, að henda slíkt á lofti og varðveita frá gleymsku með því að vitna til þess sí og æ, þegar annað bros- legt bar fyrir augu og eyru. Þetta er list, sem sumir hafa orðið slyngir í. Þær frásögur, sem hér fara á eftir, eru þann- ig komnar á blað, að ég hef heyrt Margréti segja þær í samræðum um hin ólíkustu efni, án þess að hún hafi við því búizt, að ég vildi skrá þær. Aldrei dró ég hana á hárinu Á öldinni, sem leið, var bóndi í Skálholti, sem Ölafur hét og var nokkuð drykkfeldur, glaðlyndur og stríðinn. Ein- hvern tíma var hann við kirkju hjá séra Jakobi á Torfastöðum. Séra Jakob var ekki mikill raddmaður og hefur e. t. v. verið eitthvað illa fyrir kallað- ur, nema Ólafi þótti heldur lítil fjörlegt að heyra tónið og gell- ur við í kirkjunni: „Þú hefðir átt að hafa svolítið hærra, Kobbi minn.“ Guðmundur í Höfða, faðir Ingveldar, móður Jóhanns Bjarnasonar, var hlédrægur hæglætis og sómamaður. Hann var kvæntur Margréti, einni hinna nafnkenndu Kópsvatns- systra, sem þóttu góðir kven- kostir. — Einhvern tíma hitt- ast þeir að morgni dags í rétt- um, Ólafur og Guðmundur. Þá segir Ólafur, sem var drukkinn og gefinn fyrir að pexa að vanda: „Þér ferst ekki að láta mikið, Guðmundur. Þú fékkst lökustu Kópsvatnssysturina.“ Þá svarar Guðmundur: „Aldrei dró ég hana þó á hárinu“. — En það var sagt um Ólaf, að hann væri ærið aðsópsmikill, þegar hann kom kenndur heim. Hvorugum þessara manna man ég eftir. Morgungjöfin Á bamsárum mínum kom oft kona að Hrosshaga, sem kölluð var í daglegu tali Sigga vitlausa. Hún hét annars Sigríður Guð- mundsdóttir og var ættuð frá Höfða. — Hún hafði verið heil- brigð fram til 16 ára aldurs. Þá bilaðist hún, en var yfirleitt með sjálfri sér annað misserið, líklega frekar á veturna, og gat þá unnið eitthvað. Ég man t.d. eftir henni með prjóna. — Prýðilega var hún gefin. — Hún átti heimili hjá Halldóri á Vatnsleysu, en þegar veikindin komu yfir hana, þá tolldi hún ekki heima, fór samt líklega ekkert út úr Tungunum, en hafðist mest við á Torfastöðum og fleiri bæjum þar í kring. Hún var ákaflega meinlaus og var fjarska kærkominn gestur hjá okkur Dóra, bróður mínum, en Vigga var ekki eins hrifin. Var það helzt, að Sigga væri eitthvað utan í þeim, sem hún fann, að voru smeykir við hana. Þegar hún var á ferð, var alltaf fans af hundum á eftir henni. Hún hafði feikna dálæti á hundum. — Einhvern tíma kom hún að Tjörn. Þá var þar nýkominn flökkuhundur og hafði sezt þar upp. Þegar svo Sigga fór frá Tjörn, gaf Guð- mundur, bóndi þar, henni hundinn, — vitanlega guðsfeg- inn að losna við hann. Þá varð Siggu að orði: „Þetta var nú betri morgungjöfin, Guðmund- ur minn.“ Skeggið hans séra Magnúsar Sigga var eitt sinn sem oftar sezt upp á Torfastöðum og hafði verið í hálfan mánuð. — Þá stóð til að messa þar, lík- lega í túnasláttarlok eða svo, því von var á utansóknarfólki, sem þá fjölmennti oft í kirkj- urnar til skiptis sér til skemmt- unar. Var Sigga auðvitað hvum leið, þegar svo stóð á, því að hún var alveg óð og svo vitan- lega illa til fara eins og geng- ur. Var því verið að reyna með hægð og í góðu að koma henni í burtu fyrir messuna. Seinni hluta laugardags var því sótt- ur reiðhestur frú Steinunnar og lagður á hann söðull hennar. Átti svo Bogi, uppeldissonur þeirra prestshjónanna að reiða Siggu upp að Vatnsleysu. En kerling sá við lekanum og hummaði ferðina fram af sér, og hefur henni sjálfsagt mislík- að þetta eitthvað við húsbænd- urna. — Daginn eftir, annað hvort þegar séra Magnús var að ganga í kirkju eða úr, þá var hún stödd við kirkjuþrösk- uldinn og vék sér að presti og sagði: „Stígðu ekki í skeggið, séra Magnús." Ódýri báturinn Þannig átti Sigga til að vera meinlega hnyttin í orðum, ef henni þótti eitthvað, þó að allt væri það í góðu raunar. Eitt sinn sem oftar var hald- Framh. á bls. 6

x

Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergþór
https://timarit.is/publication/925

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.