Árblaðið


Árblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 2

Árblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 2
2 ÁRBLAÐIÐ Útgefandi: Ritstjóri: Ábyrgðarmaður: Stjórn Blaðsels hf.: Ritnefnd: Umbrot og prentun: BLAÐSEL HF. - Box 237 - Selfossi Sigurður Jónsson Einar Elíasson Helgi Bjarnason Sigurður Hjaltason Jón B. Stefánsson Bárður Guðmundsson Björn Gíslason Guðmundur Eiríksson Þorsteinn Ásmundsson (augl.) Prentsmiðja Suðurlands hf. Fylgt úr hlaði Hvað er nú á seiði? Gat verið, kosningar framundan og einhverjir galgopar komnir af stað með und- irbúning að framboði. Eitthvað í þessa átt hafa margir hugsað er þeir heyrðu fyrst minnst á Árblað- ið, og ekki er hægt að segja að slíkur hugsunargangur sé óeðlileg- ur þegar þess er gætt að stutt er til kosninga, bæði til sveitarstjórn- ar og Alþingis, og einmitt við slík- ar aðstæður spretta upp blöð eins og gorkúlur. Er Árblaðið þá þann- ig bóla? Nei, hugmyndin að baki Árblaðinu er annars konar, þó svo hittist á að þessi tími sé valinn til framkvæmda. Að Árblaðinu standa þeir einstaklingar er upp cru taldir í blaðhaus. Ástæðan fyr- ir þeirri samblöndu manna er þar kemur fram er fyrst og fremst áhugi á málefninu og vilji til starfa í þágu blaðsins. Hver er þá til- gangur Árblaðsins? Tilgangur og stefna Árblaðsins er þjónusta við byggðarlagið í formi frjáls frétta- flutnings án íhlutunar pólitískra afla. Petta þýðir þó engan veginn að ekki verði skrifað um pólitík í blaðið. Pvert á móti. Blaðið er frjást og í þjónustu byggðarlagsins og býður velkomna alla þá er vilja láta í sér heyra og skrifa undir nafni (eða dulnefni). Árblaðið inu er ætlaður fréttaflutningur jafnframt því að vera vettvangur til skoðanaskipta manna á milli. Framtíð Árblaðsins er undir þér komin lesandi góður. Hvernig meturðu þetta þjónustuframlag til byggðarlagsins, ertu tilbúinn til þátttöku í leiknum, telurðu þörf á að hagsmunamál bæjarfélagsins séu rædd í blaði, ertu tilbúinn til þess að láta skoðanir þínar í ljós? Ef svo er, gjörðu svo vel. A ðventukransar Jólaskreytingar - Jólaskreytingaefni Gjafavörur í miklu úrvali. Blómahornið Eyravegi 21 - Selfossi - Sími 1712. ÆÐISGENGIÐ ÚRVAL AF LEIKFÖNGUM THerslun Reykjavíkurflóttinn Nú fer í hönd tími mikillar verslunar og viðskipta. Hjá kaupmönnum og kaupfélögum er fyrir all nokkru bafinn undir- búningur að innkaupum fyrir jólasölu, svo vöruúrval í versl- unum megi verða sem mest og best. Þá vaknar sú spurning: Er vöruúrval i verslunum á Selfossi jafn fjölbreytt og í Reykjavík? Því fer viðs fjarri að svo sé. Það er eðlilegt. Svo ólikt er markaðs- svœðið að stœrð. En sýnnm við bœjarverslunum okkar nœga virðingu og skilning. Jú, sumir. En örugglega alltof fáir. ★ Hafið þið, lesendur góðir, nokkurn tíman velt því fyrir ykkur hve mikill hluti af versl- un Selfyssinga fer fram í Reykja vik, viðskipti er auðveldlega vœri hœgt að gera hér innan hér- aðs? Jú, eflaust bafið þið hugs- að um það, e. t. v. þegar þið er- uð á leiðinni „í bœinrí' til þess að versla. Afleiðingin ætti að vera hverjum heilvita manni augljós. Þarna erum við að skerða möguleika yerslana okk- ar til þess að veita okkur aukna þjónustu, fjölbreyttara vöruú/r- val og lægra vöruverð. Þetta er ekki raunhœft. Finnst þér það ? ★ Hvers vegna er sjaldan aug- lýst eftir starfskrafti til verslun- arstarfa? Það þarf ekki. Hjá ftestum verslunum eru langir listar með nöfnum á fólki sem óskar eftir vinnu. Hefur þú hugs að um það á leiðinni í verslunar- leiðangur til Reykjavíkur, að um leið ert þú að stuðla að því að ekki verði bœgt að f jölga starfs- fólki við verslunarstörf. Næg atvinna er þó atlra hagur, ekki satt. Auknir skattar til hrepps- ins, meira malbik og svoleiðis, þú skilur. ★ Árblaðið skorar á Sunnlend- inga að snúa hér tapi í hag og sameinast um að efla sunnlensk fyrirtæki, hvaða nafríi sem þau nefnast og burt séð frá allri pólitík. Frá Hreppsnefnd Mörgum hefur fundist að held- ur hljótt sé um störf hreppsnefnd- ar og ekkert heyrast nema þegar einhver stórmál ber á góma. En fleiri mál eru þar tekin fyrir en þau sem við í daglegu tali nefn- um stórmál. í þessum þætti sem ber nafnið „FRÁ HREPPSNEFND“, verður Ieitast við að skýra bæjarbúum á sem hlutlausastan hátt, frá þeim málum sem hreppsnefnd tekur til umfjöllunar. Fyrirkomulag þessa þáttar verð- ur þannig að birtir verða úrdrætt- ir úr fundagerðarbókum Hrepps- nefndar Selfosshrepps og/eða blaðamaður Árblaðsins mun fylgj- ast með fundum og gera þeim síð- an skil. 77. fundur Hreppsnefndar Sel- fosshrepps var haldinn 16. nóv. 77. Hér á eftir verður getið nokk- urra þeirra mála sem voru á dag- skrá. 1. Greinargerð um fjárhagsstöðu Héraðsbókasafns Árnessýslu í nóv. 77. Samþykkt samhljóða að sveit- arstjóri og skrifstofustjóri taki upp viðræður við sýslumann til lausnar á fjárhagsvanda bókasafnsins. 2. Lögð fram fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 1978. Niðurstöðutölur gjaldameg- in kr. 13.480.000,00. Samþykkt samhljóða til annarrar umræðu. B. H. Steingrímsson sat hjá. Önnur mál voru þau að Sigur- jón Erlingsson bar fram eftirfar- andi fyrirspurn til oddvita: Á hvaða stigi eru samningar við menntamálaráðuneytið um framtíð- arhlutverk gagnfræðaskólans sem fjölbrautaskóla og greiðsluhlutfall Selfosshrepps í byggingarkostnaði. Oddviti svaraði því til að þessi mál væru ófrágengin enn, utan það að H. S. hefði mótað afstöðu sína um stofnun samræmds framhalds- skóla á Selfossi.

x

Árblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árblaðið
https://timarit.is/publication/931

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.