Árblaðið


Árblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 8

Árblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 8
Bílaleiga jSö(uská(inn Arnbergi Áhöld s.f. Sími 1685 Nýkomið: Snjókeðjur í öllum stærðum, einnig þverbönd, hlekkir og lásar. ^miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHHiiiiiHHHiniiiiiiiiiiiiiiiiiimtiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Hitaveitan Vegna kuldakastanna nú undan- farið hafði Árblaðið samband við Erlend Sigurjónsson verkstjóra hitaveitu, og spurðist fyrir um ástand hitaveitunnar. Erlendur kvað tvær holur í gangi og gefa þær um 80 sekúndulítra af 78 gráðu heitu vatni, og taldi Erlend- ur að það mundi duga nema ef gerði aftöku gadd og þá yrði að loka fyrir eins mikið og hægt væri til vatnsfrekra fyrirtækja. Erlend- ur sagði jafnframt að sótt hefði verið um að fá bor til borana nú í vetur því nauðsynlegt væri að Dælustöð hitaveitu. hafa varaholu, en borinn væri enn fastur í verkefnum á Norðurlandi og varla væri von til að fá hann fyrir nýjárið. Tilbúnir í slaginn. J ólasveinaumboð „Jólasveinarnir eru farnir að hugsa sér til hreyfings.“ Petta sögðu forráðamenn ung- mennafélagsins, þegar blaðið hitti þá að máli fyrir skömmu. Upp- Iýstu þeir að Jólasveinarnir hefðu hringt og boðið félaginu að verða umboðsaðili fyrir ekta jólasveina á Selfossi. Jólasveinarnir vilja nú í ár fá foreldra til samstarfs við sig, með þeim hætti að hafa samband við Ungmennafélagið og panta heim- sókn um jólin. Petta gera þeir til þess að vera vissir um að koma til þægra barna. Foreldrar eru því beðnir að hafa augu og eyru opin fyrir auglýsingu varðandi JÓLA- SVEINAPJÓNUSTU UNG- MENNAFÉLAGSINS. Einnig báðu ungmennafélagar blaðið að koma því á framfæri að jólakorta- og pappírssala félagsins færi fram nú á næstunni, en þeir hyggjast ganga í hús og bjóða þess- ar vörur til sölu. Á hœl og tá Undanfarna daga hefur verið mikil hálka á götum bæjarins og fólk dansað „listdans“ á hæl og tá, fjórum fótum og jafnvel á magan- um, þegar það hefur ferðast um gangbrautir og gatnamót. Áhaldahúsið hefur alltaf verið bjargvættur fólksins í þessum mál- um sem mörgum öðrum. Hjálpin hefur verið fólgin í því að starfs- menn hreppsins hafa stráð sandi af miklum eldmóð á gönguslóðir og þar sem hálla bletta er helst von. í nýjustu hálkunni þótti mönn- um þeir Áhaldahússmenn heldur sparir á sandinn, sem má vera verulegur þegar svo viðrar sem raun ber vitni. Pað er gífurlegt ör- yggisatriði fyrir gangandi vegfar- endur að hafa sandinn undir hálum skósólum sínum og eitt er víst að fáeinar skóflur í viðbót eru ódýr- ari en eymsli, marblettir og jafn- vel beinbrot. Sigur Að undanförnu hafa ungmenna- félögin og önnur frjáls félagasam- tök á Suðurlandi háð harða bar- áttu fyrir því að felld yrði niður söluskattskrafa, sem nam 9—10 millj. Krafa þessi var allt upp í 3 ár aftur í tímann og var þar beitt ákvæði í söluskattslögum um sölu- skatt af skemmtunum og samkom- um. Félögin hafa nú fengið kærkom- ið bréf frá fjármálaráðuneytinu þess efnis að krafan félli niður. Kristján Jónsson formaður HSK sagði að þetta væri aðeins áfangi í þá átt að breyta lögunum, og gera þau vinsamlegri sjálfboðaliðastarfi félaganna. Nú þegar er hafinn und- irbúningur að þessari lagabreyt- ingu. Heimir í landsiið Heimir Bergsson var valinn f unglingalandslið 14—16 ára, sem Iék við Wales tvo leiki, jafntefli á Laugardalsvelli og sigur í Wales. Ileimir var yngsti meðlimur liðs- ins og aldurs vegna getur hann leikið með liðinu í tvö ár. Er nokk- uð víst að hann verður valinn í liðið næstu árin. Heimir hefur æft vel og reglulega, oft við erfiðar að- stæður. — Blaðið óskar Heimi til hamingju með árangurinn og von- ast til að hann standi sig í fram- tíðinni. URVAL AF NIÐURSOÐNUM ÁVÖXTUM Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI e.rr . diIh Austurvegi 22 - Selfossi Símar. 143Q Qg 1630 ——

x

Árblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árblaðið
https://timarit.is/publication/931

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.