Árblaðið - 25.11.1977, Qupperneq 4
4
ÁRBLAÐIÐ
Steinþór bestur
18 keppendur voru frá Umf.
Selfoss á Unglingasundmóti KR
15. nóv. sl. Selfyssingar kornust í
úrslit í öllum greinum nema einni
og voru 5 af 8 í einni grein.
Hæst bar 100 metra skriðsund
drengja þar sem Steinþór Guðjóns-
son sigraði á íslensku drengjameti
57,2 sek., sem er einni sek. betra
en á Selfossmeistaramótinu. Virð-
ist Steinþór vera óstöðvandi, enda
í rnjög góðri þjálfun og á uppleið.
Urslit hjá öðrum Selfyssingum
voru sem hér segir: 100 m fjórs.
sveina: (1) Hugi Harðarson 1:11,7
(2) Tryggvi Helgason 1:13,4 (3)
Pröstur íngvarsson 1:14,0. 50 m
baks. sveina: (1) Hugi Harðarson
33,3 (3) Svanur Ingvarsson. A-
sveit Selfoss 4x50 m skrs. drengja
(1) 1:51,5. 100 m brs. stúlkna:
(3) Erla Gunnarsdóttir 1:25,8
mín. 200 m fjórs. stúlkna: (3) Ólöf
Eggertsdóttir 2:47,5 mín. 100 m
skrs. telpna: (3) Sigrún Ólafsdótt-
ir 1:13,0. 4x50 m fjórs. stúlkna:
A-sveit Self. 2:27,5.
Næsta sundmót er Bikarkeppni
SSÍ 1. deild, þar keppa: Ægir, Ár-
mann, A- og B-lið HSK. Mótið
verður 25.—27. nóv. í Hafnar-
firði.
Gatnamótin við Ölfusárbrú.
Umferðarmál
Stefán A. Magnússon
Litsjónvarpstæki
Yðar er valið
Japönsk
SHARP - SANYO
Vestur-þýsk
BLAUPUNKT
Sænsk
LUXOR
« EYRAVEGI 1 — SELFOSSI — SÍMI 1131
Undanfarna mánuði hafa um-
ferðarslys orðið óhugnanlega mörg
hér á landi. Orsaka þeirra má víða
leita, en lang oftast er þó um að
kenna mannlegum mistökum, þ. e.
of hröðum akstri miðað við að-
stæður, umferðarreglur ekki virt-
ar o. s. frv.
Fleira kemur þó til sem hefur
áhrif á tíðni umferðaróhappa og
má þar nefna ástand ökutækis,
ástand og gerð vega, merkingar á
yfirborði gatna og umferðarmerki
sem sett eru upp til þess að um-
ferð gangi greiðar og verði áhættu-
minni. Pað eru einkum þessi síðast-
töldu atriði sem ég vil lítillega
fjalla um, og þá aðallega hér á
Selfossi.
Stundum hcfur vcrið sagt, að ef
ókunnugum gangi vel að aka um
þéttbýlisstaði þá hafi þar vel tek-
ist skipulagning umferðar og um-
ferðarmerkingar.
Heyrt hef ég nokkra aðkomu-
menn kvarta yfir að erfitt sé að aka
hér á Selfossi, einkum er þá tal-
að urn gatnamótin við brúarend-
ann.
Par skapast oft þær aðstæður að
öll umferð stöðvast þegar ókunn-
ugir eru að aka austur yfir brúna
og ætla austur Austurvcg.
Er þetta ekki óeðlilcgt, þar sem
ekkert gefur tit kynna að þeir sem
þarna aka séu staddir á aðalbraut
annað en að sjá má í rönd á bið-
skyldumerki uppi í ljósastaur við
Eyraveg ef vel er að gáð.
Parna tel ég umferðarmerking-
um verulega áfátt. Ég vil því
benda á nokkur atriði sem að mínu
áliti myndu mjög greiða fyrir um-
ferð á þessum fjölförnu gatnamót-
um.
1. Biðskyldumerki verði sett upp
á vestustu eyjuna á móti umferð
sem kemur neðan Eyraveg og ætl-
ar vestur yfir brúna.
2. Biðskyldumerki verði sett á
austustu eyjuna á móti umferð sem
kemur vestur Austurveg og ætlar
framhjá brúarendanum og niður
Eyraveg.
3. Aðalbrautarmerki verði sett á
brúna og Austurveg.
4. Akbrautarmerki verði sett á
umferðareyjarnar.
5. Austurvegi verði skipt í ak-
reinar a. m. k. frá Sigtúni að brú-
arenda og á þær málaðar hvítar
örvar, sem gefi til kynna hvaða
akrein beri að nota miðað við fyr-
irhugaða aksturstefnu, þ. e. að þeir
sem ætla framhjá brúarendanum
velji vinstri akrein, en ef ætlunin
er að aka yfir brúna skal velja
hægri akrein.
6. Eyravegi verði skipt í akrein-
ar a. m. k. frá Selfossvegi að brúar-
enda, jafnvel frá Kirkjuvegi, og
málaðar á þær hvítar örvar eins og
áður er lýst.
ÚTGERÐARMENN - SKIPSTJÓRAR
önnumst uppsetningu og viðhald á kælikerfum.
Reynið viðskiptin strax.
FQSSPLAST H F.
Eyrarvegi 15 - Selfossi - Sími 1760.
Smáauglýsingasími 1979. - Árblaðiö kemur