Dagsbrún - 31.05.1957, Síða 6

Dagsbrún - 31.05.1957, Síða 6
6 DAGSBRUN hækkunum, sem komu fram í enn nýjum verðhækkunum á öllum vörum og þjónustu og juku verðbólguþróunina til mikilla muna. Þessum nýju tolla- og skattahækkunum fylgdu þau fyrirheit, að hér væri aðeins um bráðabirgðaráðstafanir að ræða, annað og meira þyrfti að gera og var ekki farið leynt með að átt væri við nýja gengislækkun. En til að framkvæma svo óvinsæla ráðstöfun þurftu kosningar að vera að baki. Verkalýðshreyfingin stóð nú á vegamótum. Átti hún að halda að sér höndum og láta mótmælin ein duga meðan árangur verk- fallsbaráttunnar væri að engu gerður með hinum miklu verðhækkunum og síðan nýrri gengislækkun eftir kosningar, sem óhjá- kvæmilega hefði á ný leitt til fórnfrekrar verkfallsbaráttu. Eða átti hún að nota það tækifæri sem kosningarnar gáfu til að að tryggja sér áhrif á lausn efnahagsmál- anna eftir kosningarnar. Alþýðusambandið valdi hiklaust síðari kostinn og beitti sér fyrir samstarfi vinstri aflanna í kosningun- um og studdi félag okkar eindregið þá á- kvörðun. Þótt tih-aun Alþýðusambandsins til að koma á vinstra samstarfi í kosningunum tækist ekki nema að nokkru leyti, urðu úr- sht kosninganna á þann veg, að knúin var fram myndun vinstri ríkisstjórnar að þeim loknum. Hin nýja ríkisstjórn hét því að hafa náið samstarf við verkalýðshreyfinguna varðandi efnahagsmálin. Reynt að stöðva verðhækkanir Þegar ríkisstjórnin tók við völdum var að allra dómi málum þannig komið, að höfuð útflutningsatvinnuvegur þjóðarinnar mundi stöðvast ef ekki yrðu gerðar stórfelldar ráð- stafanir honum til aðstoðar. Vegna aðgerða fráfarandi ríkisstjórnar var verðbólgu- þenslan í fullum gangi. Eitt fyrsta verkefni hinnar nýju stjórnar var því að stöðva verð- hækkanirnar. í því skyni leitaði hún til verkalýðshreyfingarinnar og óskaði eftir að ekki kæmi til framkvæmda sex vísitölustiga hækkun á kaupið 1. september eins og til stóð og að það héldist óbreytt til áramóta. Gegn þessu hét ríkisstjórnin því, að leggja algert bann við öllum verðhækkunum til sama tíma, en vitað var að fyrir dyrum stóðu ýmsar verðhækkanir, þar á meðal á landbún- aðarvörum og hefði sú verðhækkun ein að mestu etið upp sex stiga kauphækkunina. Af eðlilegum orsökum var of skammur tími til að ræða þetta á fundum verkalýðsfélag- anna, en leitað var álits forustumanna þeirra víðsvegar um landið. Hér í Reykjavík var haldinn sameiginlegur stjórnarfundur allra sambandsfélaganna og samþykkti hann, með miklum meirihluta atkvæða, fyrir sitt leyti þessa ráðstöfun. Á sömu lund voru undir- tektir forustumanna verkalýðsfélaganna annarsstaðar. Að þessu loknu gaf ríkisstjórn- in út bráðabirgðalög, sem fólu í sér þessar ráðstafanir. Það er flestra dómur, að launþegarnir hafi ekki borið skarðan hlut frá borði vegna þess- ara aðgerða og víst er að þær auðvelduðu síð- ari ráðstafanir þar sem upphæð sú er afla varð til aðstoðar útflutningsatvinnuvegunum varð lægri en ella. ( Rætt við ríkisstjórnina um eínahagsmálin Þing Alþýðusambands íslands, sem háð var hér síðari hluta nóvembermánaðar, kaus 19 manna efnahagsmálaráð og skyldi það ásamt miðstjórn sambandsins fara með umboð af hálfu verkalýðshreyfingarinnar í viðræðum við ríkisstjórnina um væntanlegar ráðstafan- ir i efnahagsmálunum. Alþýðusambandsþing- ið hafði samþykkt einróma, að gengislækkun kæmi ekki til mála sem aðstoð við útflutn- ingsframleiðsluna, en vitað var að meðal á- hrifamanna bæði innan og utan ríkisstjórnar- innar voru sterkar tilhneigingar í þá átt. Samþykkt Alþýðusambandsþingsins hafði úrslitaáhrif á að ekki var frekar um gengis- lækkun rætt. Ríkisstjórnin lagði tillögur sínar í efna- hagsmálunum fyrir fulltrúa verkalýðshreyf- ingariimar nokkru fyrir miðjan desember s.I. í tillögum ríkisstjórnarinnar var gert ráð íyrir að afla um 200 milljóna króna, er varið skyldi til aðstoðar sjávarútveginum og land- búnaðinum og til ýmisra framkvæmda. Upp- hæðin átti að stórum hluta að fást með nýj- um skatti á innfluttar vörur. Fulltrúar verka- lýðshreyfingarinnar áttu aðgang að og gátu kynnt sér öll gögn varðandi þarfir atvinnu- veganna fyrir aukinni aðstoð ásamt öðru er málið snerti. í viðræðum sinum við ríkis- stjórnina lögðu fulltrúar verkalýðsfélaganna á það höfuðáherzlu, að byrðarnar kæmu sem minnst á alþýðu manna en þeir látnir borga, sem auðnum hafa safnað. Ennfremur að ráð- stafanirnar mættu ekki verða þess eðhs, að þær kölluðu á aðrar ráðstafanir í sama skyni að ári liðnu, þá væri til lítils unnið nú. Viðræðurnar við ríkisstjórnina verða ekki frekar raktar hér og endanleg afgreiðsla málsins er öllum kunn. Fulltrúum verkalýðs- félaganna varð nokkuð ágengt. Lækkuð var álagning á ýmsum almennum vörum frá því sem hugsað var, fyrirheit var gefið um að lagður skyldi á stóreignaskattur og 15 millj- ónir af honum látnar ganga inn í áætlun þessa árs um aðstoð við atvinnuvegina, 10 milljónir króna voru teknar af gróða bank- anna í sama skyni. Þá var því heitið að komið skyldi á ströngu verðlagseftirliti og álagn- ing miLLihða lækkuð verulega. Ýmsar aðrar ráðstafanir var heitið að gera, sem almenn- ingi ætti að gagni verða og má þar til nefna að til bygginga verkamannabústaða verði tryggðar 10—15 milljónir króna, tekjuskattur lækkaður um % á lægstu tekjur, breytt með löggjöf skipulagi á sölu sjávarafurða úr landi, sett ný löggjöf um skipulag bankamálanna, ein mihjón króna verði veitt á fjárlögum til byggingar orlofsheimilis verkalýðsins. Lýst var yfir þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að stórátak verði gert til lausnar húsnæðis- vandamálsins. Þá verður reiknaður út nýr vísitölugrundvöhur jafnhhða þeim eldri, sem kaup verður áfram greitt eftir. Þessi nýi grundvöhur verður meira í samræmi við nú- verandi neyslu og á að auðvelda verkalýðs- hreyfingunni að fylgjast með kaupmætti launanna. Enginn kostur góður Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar áttu engan kost góðan í afskiptum sínum við lausn þessara mála í vetur. Að þeirra dómi var allt of skammt gengið í að skattleggja þá, sem safnað hafa auði á undanförnum árum. Þeir töldu vafasama nokkra hði, sem fjáröflunin átti að ganga til, eða að fjár til þeirra mætti afla á annan hátt, til dæmis með lántökum. Hætta væri því á að byrð- arnar yrðu um of lagðar á alþýðu manna. í yfirlýsingu, sem stjórn Alþýðusambandsins Látinn stofnfélaqi Halldór Jónsson, Bræðraborgarstíg 24, lézt 14. maí s. 1. Hann var einn af stofnendum V erkamannaf élags- ins Dagsbrúnar og var alla tíð í félag- inu. HaUdór var heiðursfélagi Dags- brúnar og var sæmdur gullmerki félagsins á 50 ára afmæli þess í fyrra vetur. Hann var fæddur að Seli í Grímsnesi 26. sept- ember 1876. Halldór var ein- lægur unnandi verkalýðssamtakanna, en hann kom ekki mikið fram opinberlega í félagsstörfum sökum heilsuleysis er hann átti við að stríða allt frá unglingsárum. og efnahagsmálanefndin samþykkti í lok viðræðna sinna við ríkisstjórnina segir svo: ,,í trausti þess að vel takist með fram- kvæmd þessara ráðstafana og með tiUiti til þess höfuðmarkmiðs að tryggja næga atvinnu telur miðstjórnin og efnahagsmálanefndin að veita beri núverandi ríkisstjórn starfsfrið þar til úr því fæst skorið hvernig fram- kvæmdin tekst.“ Dómur fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar var því sá að láta reynsluna skera úr. Ekk- ert er enn hægt að segja um endanleg áhrif þessara ráðstafana og er því ályktun full- trúanna í fuUu gildi. Verkalýðshreyfingin verður nú sem ætíð að vera vel á verði um hag félaga sinna. Siglingar togaranna Atvinnuástandið hefur verið gott að und- anförnu. Segja má að atvinna hafi verið mikil hér aUt s.l. ár og afkoma manna því verið góð. Eins ber þó að geta í sambandi við at- vinnumáhn, en það eru siglingar togaranna með af la sinn á erlendan markað. Þessar sigl- ingar hófust eftir að löndunarbannið í Eng- landi var leyst á s.l. hausti, og vegna þeirra hefur atvinnu í frystihúsum verið mun minni á undanförnum mánuðum en verið hefur í mörg ár. Þessi þróun er mjög varhugaverð og ekki af neinni nauðsyn, þar sem markaðir fyrir fiskafurðir, sem fuUunnar eru hér á landi virðast vera fyrir hendi. Verkalýðsfé- lögin eiga að gera kröfu til að afla togaranna verði landað hér og úr honum unnið, þetta ber að gera bæði vegna atvinnu verkafólks- ins og þeirra auknu gjaldeyristekna, sem þannig fást fyrri fiskinn. Góðir félagar. Ég ætla engu að spá um þróun mála í næstu framtíð Við munum hafa vakandi auga á að ekki verði gengið á rétt verkalýðs- ins. Við munum styðja stjórarvöldin til allra góðra verka og láta í okkur heyra ef þau bregðast skyldum sínum við fólkið. Ég þakka ykkur öUum góða samvinnu á hinu hðna starfsári og óska Dagsbrún og Dagsbrúnarmönnum gæfu og gengis á því ári, sem nú er að byrja.

x

Dagsbrún

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.