Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 13

Bændablaðið - 28.09.2004, Síða 13
Þriðjudagur 28. september 2004 13 Bændur vara við Skaftárveitu Bændur sem eiga aðild að Veiðifélagi Skaftár hafa lýst áhyggjum af hugmyndum um Skaftárveitu og áhrif hennar á veiði á vatnasvæði árinnar. "Það vantar frekari rannsóknir á þessi svæði," segir Gísli Kjartansson á Geirlandi, formaður veiðifélagsins. "Við erum ekki að mótmæla Skaftárveitu, en við viljum fá að vita hvaða áhrif hún hefur á veiði í ám og lækjum hér allt um kring og við sam- þykkjum ekki fyrirfram að hróflað verði við ánni. Það er verið að segja okkur að Skaftárveita sé forsenda síðari virkjunar í Skaftá. Ég held að sú virkjun sé ekkert á döfinni. Það vantar ekki orku frá henni hér í sveitinni, en Skaftárveitan er hugsuð til að veita vatni inn á síþyrstar vikjanir á Þjórsár-Tungnársvæðinu og síðan burt til stóriðju." /Soffía. www.bondi.is Stóðréttir Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugard. 25. sept. um kl. 13:00 Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugard. 2. okt. kl. 10:00 Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit, Eyjaf.laugard. 2. okt. kl. 11:00 Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit, Eyjaf. sunnud. 3. okt. kl. 10:00 www.strandir.is/saudfjarsetur

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.