Bændablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 26
26 Þriðjudagur 28. september 2004 Bragð er að þá barnið finnur, má kannski segja um ræðu sem Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, flutti um miðjan september en hún vakti talsverða athygli. Þar sagðist hann vera "sjokkeraður" yfir þeim teiknum sem hrannast upp um hlýnun andrúmslofts jarðar og að hún gangi stöðugt hraðar. Hann sagðist ætla að beita sér fyrir því á næsta ári að fá önnur iðnveldi til að stíga afgerandi skref í þá átt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en á því ári gegna Bretar formennsku bæði í Evrópusambandinu og samtökum átta mestu iðnríkja heims, svonefndum G8-hópi. Blair sagði að mestu máli skipti að telja Bandaríkjastjórn hughvarf og fá hana til þess að staðfesta Kyoto-bókunina um losun gróðurhúsalofttegunda ásamt því að setja risunum tveimur í austri, Kína og Indlandi, raunhæf markmið. Þessi tvö stórveldi eru í örum vexti og orkunotkun þeirra vex afar hratt. Þau teljast hins vegar bæði til þróunarríkja og eru þar af leiðandi undanþegin Kyoto-bókuninni. Um hlut Breta hafði hann mörg orð sem lutu að nauðsyn þess að endurskoða öll viðhorf þjóðarinnar, ekki síst unga fólksins, til orkunotkunar og efla vitundina um sjálfbæra þróun. Breskir fjölmiðlar hafa hins vegar bent á að í ræðu Blairs hafi ekki verið sett fram nein ný markmið eða hugmyndir um breytta stefnu. Þvert á móti hafi stjórn Blairs frekar ýtt undir aukna orkusóun, svo sem með því að heimila stækkun og fjölgun flugvalla í Bretlandi. Umhverfisverndarmenn hafa gagnrýnt þá ákvörðun á þeim forsendum að hún væri til þess fallin að auka flugumferð sem veldur mikilli losun gróðurhúsalofttegunda. Raunar er flugumferð sá losunarþáttur sem hraðast vex um þessar mundir. Blair reyndi þó að mæta þeirri gagnrýni með því að hvetja til þess að flugumferð verði tekin með í viðskipti með losunarkvóta sem framundan eru á vettvangi Evrópusambandsins en samkvæmt Kyoto-bókuninni er flugumferð undanþegin. Jöklar og freðmýrar hverfa En þótt menn fettu fingur út í einstök ummæli breska forsætisráðherrans þá sætir það tíðindum að svo valdamikill maður skuli tjá sig með jafn afgerandi hætti um hlýnun andrúmsloftsins. Ræðan þótti tilfinningarík og Blair hélt því meðal annars fram að tíminn væri að hlaupa frá okkur, loftslagsbreytingarnar væru orðnar svo hraðar að líf mannkyns liggi við að þjóðir heims stingi við fótum. Hann sagði að nú blöstu við breytingar á loftslagi sem líkja mætti við náttúruhamfarir og þær hæfust sennilega meðan hann væri enn á lífi og örugglega meðan börn hans væru á dögum. Þetta mat forsætisráðherrans styðst við niðurstöður vísindamanna sem hafa lagt mat á loftslagsbreytingar og hugsanlegan þátt mannkyns í þeim. Aukning gróðurhúsalofttegunda, einkum koltvísýrings, hefur verið afar hröð undanfarnar tvær aldir. Borkjarnar úr botni Suðurheimskautsins sýna að undanfarna hálfa milljón ára hafi koltvísýringur í andrúmsloftinu verið á bilinu 200-270 ppm (hlutar af milljón). Við upphaf iðnbyltingar fyrir tveimur öldum var þetta magn 270-80 ppm en árið 1990 var það komið í 360 ppm og nú er það 379 ppm. Talið er að það aukist um 3 ppm á ári um þessar mundir. Þegar loftslag hlýnar bráðna jöklar og freðmýrar breytast í votlendi. Talið er að Grænlandsjökull hverfi á þúsund árum ef hraði loftslagsbreytinganna verður sem horfir. Það veldur sjö metra hækkun á yfirborði sjávar sem er meira en margar strandbyggðir heims þola. Bráðnun freðmýranna gæti ekki síður reynst afdrifarík því vitað er að í túndrum Síberíu og Kanada er bundið gífurlegt magn af metangasi. Losni það út í andrúmsloftið veldur það enn meiri hlýnun og herðir á þróuninni. Vísindamenn telja að sú losun gæti í lok þessarar aldar orðið jafnmikil og losun af mannavöldum er nú. Þau teikn sem Blair hafði komið auga á blasa við öllum sem fylgst hafa með veðurfréttum undanfarin ár. Undanfarin tíu ár hafa flest hitamet verið slegin og meðalhitinn hækkað jafnt og þétt. Auknar sveiflur í veðurfari, öflugir fellibyljir, flóð og þurrkar, hitabylgjur og djúpar lægðir - allt eru þetta teikn um breytta tíma. Helstu skúrkarnir Að sjálfsögðu eru þjóðir heims mismiklir áhrifavaldar um hlýnun andrúmsloftsins. Á enga er þó hallað þó bent sé á Bandaríkin sem helsta sökudólginn. Þar býr innan við 5 af hundraði mannkyns en þjóðin ber ábyrgð á fjórðungi allrar losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Við undirritun Kyoto- bókunarinnar árið 1997 féllust bandarísk stjórnvöld á að draga úr losuninni um 6% frá því sem hún var árið 1990. Þegar George W. Bush komst til valda dró hann Bandaríkin út úr Kyoto- samstarfinu og í stað þess að minnka losun gróðurhúsalofttegunda hefur hún aukist um 15 af hundraði frá 1990. Ríki Evrópusambandsins voru 15 þegar Kyoto-bókunin var undirrituð og þau staðfestu hana öll árið 2002. Evrópusambandið hefur gengið harðast fram um að hvetja ríki heims til að staðfesta bókunina og beitt sér af hörku gegn öllum undanþáguákvæðum, svo sem að heimila ríkjum að rækta skóg sem dregur í sig koltvísýring í stað þess að minnka útblástur. Sambandið hefur þó orðið að sætta sig við reglur sem settar hafa verið og heimila ríkjum viðskipti með mengunarkvóta. ESB skuldbatt sig til að draga úr losun um 8% en það hefur gengið hægar en skyldi að ná því markmiði. Árið 2002 hafði losun allra gróðurhúsalofttegunda minnkað um 2,9% en losun koltvísýrings hafði hins vegar aukist lítillega og einungis fjögur af fimmtán aðildarríkjum eru á áætlun hvað varðar samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda. Rússland og ríkin í austanverðri Evrópu eru í þeirri stöðu að þar hefur losun gróðurhúsalofttegunda dregist verulega saman á undanförnum árum. Það kemur ekki til af góðu heldur stafar samdrátturinn af hruni iðnfyrirtækja sem ekki þoldu umskiptin að hagkerfi Sovétríkjanna gengnu. Þessi ríki, ekki síst Rússland, eygja nú möguleika á að selja iðnríkjunum í vestri ónýttan mengunarkvóta fyrir hundruð miljarða króna. Samt hafa stjórnvöld hikað við að staðfesta Kyoto-bókunina. Stórveldin tvö í austri, Kína og Indland, eru eins og áður var nefnt undanþegin Kyoto-bókuninni þar sem þau teljast til þróunarríkja en þau hafa bæði staðfest bókunina. Hver Kínverji notar ekki nema rúmlega tíunda hluta þeirrar orku sem Bandaríkjamaðurinn gerir en hagvöxtur í Kína er svo hraður um þessar mundir að vísindamenn spá því að heildarlosun Kínverja fari fram úr Bandaríkjunum um miðja öldina. Menn muna fréttir sumarsins af rafmagnsskorti og skömmtun vegna þess að orkukerfi landsins heldur ekki í við vöxt atvinnulífsins. Kínverjar eru heimsins mestu kolaframleiðendur og olíunotkun þeirra hefur tvöfaldast á tuttugu árum. Svipaða sögu er að segja af Indlandi þar sem losun gróðurhúsalofttegunda jókst um helming á tíunda áratug síðustu aldar. Bandaríkin einangrast Í ljósi þessa er hægt að taka undir með leiðarahöfundi breska blaðsins Guardian sem segir að hvað sem öðru líði þá sé mikilvægasta verkefni Blairs að hafa áhrif á Bandaríkjastjórn og fá hana ofan af andstöðu sinni við Kyoto-samkomulagið. Þar er við ramman reip að draga því þótt menn vilji kenna Bush forseta um þvermóðskuna megi ekki gleyma því að öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti með 95 samhljóða atkvæðum að staðfesta ekki bókunina. Enginn var á móti. Bandarísk stjórnvöld bera því fyrir sig að sannanir fyrir því að maðurinn eigi þátt í hlýnun loftslagsins séu ekki einhlítar og meðan svo sé ætli þau ekki að fórna hugsanlegum hagvexti fyrir óljósa framtíðarmúsík. Það þarf eitthvað mikið að gerast eigi að leiða Bandaríkjamönnum það fyrir sjónir að þeir eru óðum að einangrast í þessu máli sem kann að skipta sköpum fyrir framtíð mannkyns. -ÞH/stuðst við fréttir frá BBC og The Guardian Tony Blair varar við hlýnun andrúmsloftsins Hraði loftslagsbreytinga eykst stöðugt og birtist með ýmsu móti - Bandarísk stjórnvöld helsta hindrun í vegi sameiginlegs átaks gegn losun gróðurhúsalofttegunda Að sjálfsögðu eru þjóðir heims mismiklir áhrifavaldar um hlýnun andrúmsloftsins. Stórborgarsamfélagið hefur gjörbreytt ásýnd landa.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.