Bændablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 28
28 Þriðjudagur 28. september 2004 Dráttarvélar hafa tekið miklum breytingum í áranna rás. Liðin er sú tíð er ökumenn þeirra ríghéldu sér í stýrið og hentust til og frá. Búnaður nýrra dráttarvéla gefur sportbílum ekkert eftir og þægindin eru ótrúlega mikil. Bændablaðið átti þess kost að fara á dráttarvélasýningu hjá Valtra á Skáni í Suður-Svíþjóð. Sýningin var á stórbýlinu Gårdstånga Nygård. Á hlaðinu stóðu allar nýjustu vélarnar frá Valtra. Hver og ein Valtra dráttavél er "sérsmíðuð" en Valtra verksmiðjan í Finnlandi smíðar ekki vél nema búið sé að selja hana. Þegar pöntun berst - með öllum þeim sérkennum sem hver og einn vill fá - hefst framleiðslan. Það má því með sanni segja að engar tvær vélar eru nákvæmlega eins en daglega renna 50 til 60 vélar af færibandi verksmiðjunnar í Suolathi í Finnlandi. Undanfarin ár hefur um það bil fimmta hver ný dráttarvél á Íslandi verið Valtra. Í dráttarvélaheimi gildir það sama og þegar bílar eru annars vegar. Módel koma og fara og vélarnar breytast stöðugt. Líklega er tími "byltinga" í hönnun nánast liðinn en þróunin er hægt í áttina til meiri afkasta og þæginda. En hvað um nýjungar hjá Valtra? Blaðamenn norrænna landbúnaðarblaða fengu að prófa hinar ýmsu dráttarvélar en aðeins við slíkar aðstæður geta menn fengið að upplifa sjálfvirkar gírskiptingar í HiTech skiptingunni, sem eiga sér stað, þegar stutt er á hnappinn fyrir rafstýrðu inngjöfina. Það er líka mikil upplifun að aka hratt á ósléttum vegi og njóta þæginda fjaðrandi framássins og nýju fjöðrunarinnar á ökumannshúsi T og M vélanna. Það er líka skoðunar virði að kynnast t.d. hvernig vökvaknúni lyftukrókurinn virkar - og fá að sjá hve auðvelt er að skipta um krók. Aðalnúmer sýningarinnar var ný A-lína (74-98 hestöfl) en fyrirrennari hennar hefur notið mikilla vinsælda hér á landi. Nú hefur útliti A línunnar verið breytt til samræmis við aðrar vélar frá Valtra og sagði dóttir blaðamanns sem staddur var á sýningunni að vélin væri "krúttleg" en ekki er nú alveg víst að bændur noti almennt þetta orð um A-línuna! Mesta athygli vekur glænýr framendi, sem beygist niður að framan, til að bæta útsýnið enn frekar auk þess sem hægt er að svipta vélarhlífinni upp með einu handtaki. En til viðbótar við útlitsbreytinguna hafa líka verið gerðar breytingar á A-línunni sem varða öryggi og notagildi. A-lína Valtra var upphaflega kynnt til sögunnar með alsamhæfðum gírbúnaði með 12 gírum áfram og 12 gírum afturábak. Nú er búið að þróa gírbúnaðinn enn frekar, tenging fjórhjóladrifs er nú með sama hætti og á stærri Valtra dráttarvélunum, með fjöldiskakúplingu sem aftengjast með vökvaþrýsting og tengjast með fjöður á vélrænan hátt. Útkoman verður sjálfvirk hemlun á öllum fjórum hjólum við allar aðstæður. Að auki er nú hægt að tengja og aftengja mismunadrifslásinn á einfaldan hátt með rafmagnsrofa, rétt eins og dráttarvélarnar í A- línunnu eru fáanlegar með rafstýrðri Hishift kúplingu, sem minnkar álag á fætur. Það er líka Hishift kúpling fyrir aflúrtakið sem hægt er að tengja og aftengja rafrænt. Auðvelt er að stilla hve snöggt er tekið af stað eða hve hratt aflúrtakið tengist og þegar þörf krefur við krefjandi aðstæður er mögulegt að stýra aflúrtakskúplingunni vélrænt með handfangi. Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötuns Véla ehf., er þarna með dráttarvél í A-línunni. Finnbogi sagði að kaupendur nýrra dráttarvéla ættu að íhuga alvarlega að hafa loftkælingu í þeim. Á sólríkum dögum væri fátt eins þægilegt og að geta lokað gluggum og andað að sér kældu, ryklausu lofti. Þegar haft er í huga að margir bændur dvelja allt að 600-800 klukkustundir á ári í dráttarvélunum skiptir máli að loftið sé hreint. Hvað framleiðir Valtra? T-línan 6 strokka(125 til 210 hö). T-línan kom fram fyrir tveimur árum. C-línan 4ra strokka (95- 150 hö). Kom fram á sjónarsviðið vorið 2004. Þessar vélar eru víða í sveitum Íslands. Þess má geta að þyngdarhlutföll í þessari vél henta sérstaklega vel við ámoksturtækjavinnu. A-línan 4ra strokka (74- 98 hö). Nýtt útlit og fjölmargar nýjungar. XM-línan 4ra strokka (135-150 hö). Liðstýrðir traktorar. Bændablaðið á Valtra-sýningu Aðalnúmerið ný A-lína Á sýningunni í Gårdstånga Nygård voru kynnt tæki og tól sem norrænir bændur nota í skógunum. Athygli vakti sterklegur frágangur á tækjunum enda gengur mikið á þegar trén eru felld og sneiddar af þeim greinar. Tæki í skógarvinnslu eru þegar farin að líta dagsins ljós á Íslandi og má nefna að í vor flutti Jötunn til landsins tvo skógarvagna með krönum. Góðir gestir í Garðyrkjuskólanum Björn Bjarndal Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga og formaður Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), heimsótti nemendur og starfsmenn Garðyrkjuskólans á Reykjum nýverið á fyrsta miðvikudagsfundi annarinnar. Á hverjum miðvikudegi á önninni munu góðir gestir heimsækja skólann og fara yfir það helsta sem þeir eru að fást við. Byrjað var á þessum fundum í skólanum síðasta vetur og var ákveðið að halda þeim áfram núna enda hafa þeir heppnast mjög vel. Í máli Björns kom m.a. fram að 230 jarðir eru nú í Suðurlandsskógum og nokkur biðlisti eftir því að komast inn í verkefnið. Þá sagði hann frá því að 70 þúsund manns eru félagsmenn í UMFÍ en félagið fagnar 100 ára afmæli árið 2007. Björn svarði nokkrum spurningum nemenda og starfsmanna eftir ávarp sitt. Næstu gestir á miðvikudagfundi skólans verða Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu (29. september), Árni Magnússon félagsmálaráðherra (6. október), Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu, (13. október) og Sigurður Guðmundsson landlæknir (20.október). Á myndinni má sjá Björn Bjarndal Jónsson kynna starfsemi Suðurlandsskóga og UMFÍ á miðvikudagsfundi Garðyrkjuskólans. Fundirnir eru ætlaðir nemendum og starfsmönnum skólans. Bændablaðsmynd/MHH Seinni part ágústmánaðar 2002 komu þau hjón Guðni Ágústsson og Margrét Hauksdóttir í heimsókn að bænum Erpsstöðum í Dölum vestur og meðan á dvöl þeirra stóð bar ein kýrin. Það fæddist kvíga og hlaut hún nafnið Ráðherrafrú. Fyrr í mánuðinum bar svo kýrin og hér á myndinni má sjá þá Guðmund Kára og Einar Björn Þorgrímssyni - sem annast gjarnan ungviði á bænum - líta eftir kálfinum. Kynningarfundur um breiðbands- væðingu Samband íslenskra sveitarfélaga hefur verið beðið um að koma á framfæri við öll sveitarfélög upplýsingum um kynningarfund um breiðbandsvæðingu í sveitarfélögum, sem haldinn verður á Nordica hótelinu í Reykjavík 29. september nk. Umræddur kynningarfundur er sérstaklega haldinn fyrir fulltrúa sveitarfélaga og þar verður m.a. fjallað um hvers vegna sveitarfélögin ættu að taka upp breiðbandið. Kynningarfundurinn er haldinn í tengslum við ráðstefnuna “Digital Reykjavík” sem haldin verður á Nordica- hótelinu dagana 30. september til 1. október og þangað eru fulltrúar sveitarfélaga einnig velkomnir. Akureyri s.462 3002 Egilsstaðir s. 471 2002 Yamaha Bruin 350cc 4x4 sjálfsk Nýtt verð 590 þús + vsk. Yamaha Kodiak 400cc 4x4 sjálfsk Nýtt verð 638 þús + vsk. Traust og góð hjól á Tompólu verði! Plus Gallery ehf sími: 898-2811

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.