Dagsbrún - 01.10.1989, Síða 8
Hvers vegna á ég að
Lífeyríssjóðirnir
Hugmyndir embættismanna á haust-
dögum um að skattleggja vaxtatekjur
lífeyrissjóðanna vöktu upp hörð við-
brögð og snögg - raunar svo hörð, að
fjármálaráðherrann sá sitt óvænna og
bar til baka allar vangaveltur um að ein-
hver alvara væri í þeim hugmyndum.
Það er ekki undarlegt þótt fjáröfl-
unarmenn ríkissjóðs líti hýru auga til
lífeyrissjóðanna - eignir þeirra nema
samtals nærri 80.000.000.000 krónum,
áttatíu milljörðum. Það slagar hátt í all-
ar erlendar skuldir þjóðarinnar.
En þetta er ekki einasta atlagan, sem
gerð hefur verið að lífeyrissjóðunum á
undanförnum vikum og mánuðum. All-
ir hafa heyrt menn tala illa um lífeyris-
sjóðinn sinn og láta í ljós þá skoðun, að
miklu betra væri að sjá um sína ávöxtun
sjálfur; menn tala jafnframt um kosti
gegnumsstreymissjóða, flókið kerfi, of
marga lífeyrissjóði, einn lífeyrissjóð fyr-
ir alla landsmenn og svo framvegis - fyr-
ir nú utan almennt þjark um að lífeyris-
sjóðirnir séu ræningjabæli og aðsetur
smákónga á topplaunum.
Fjórði stærsti sjóðurinn
I framhaldi af þessu fórum við á fund
Hrafns Magnússonar, framkvæmda-
stjóra Sambands almennra lífeyrissjóða
(SAL), en í því sambandi er meðal ann-
arra Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og
Framsóknar, fjórði stærsti lífeyrissjóður
landsins.
Fyrsta spurningin sem lögð var fyrir
Hrafn var þessi: -Hvers vegna á maður
endilega að vera í lífeyrissjóði - fyrir nú
utan þá staðreynd, að það er lögboðið?
„Lífeyrissjóðirnir eru samtrygginga-
kerfi sjóðfélaganna,“ sagði Hrafn.
„Með þátttöku í lífeyrissjóði eru
launþegar mjög vel tryggðir - auk ellilíf-
eyris njóta sjóðfélagar örorku-, barna-,
og makalífeyris. Frá næstu áramótum
munu launamenn leggja tíunda hluta
allra launa sinna í lífeyrissjóðina - þeir
sjálfir fjögur prósent, atvinnurekendur
sex - og þannig tryggja þeir enn frekar
afkomu sína þegar þeir láta af störfum.
f öðru lagi hafa lífeyrissjóðirnir þann
þjóðhagslega kost, að þeir eru í eðli
sínu lögbundinn skyldusparnaður og
eru stærsti þáttur innlends sparnaðar í
landinu. Lífeyrissjóðirnir halda uppi
húsnæðiskerfinu, veita lán til félaga
sinna og veita fé í ýmsa fjárfestinga-
sjóði, sem ætlað er að treysta atvinnu-
vegina. Á þann hátt draga lífeyrissjóð-
irnir úr þörfinni fyrir erlent lánsfé.“
— Er það besti kosturinn fyrir Dags-
brúnarmann að vera í Lífeyrissjóði
Dagsbrúnar og Framsóknar?
Lífeyrissjóðirnir ekki bankabók
„Nei, besti kosturinn væri að vera rík-
is- eða bankastarfsmaður. Lífeyrisrétt-
indi þeirra eru miklu betri en aðrir
launamenn njóta og raunar svo góð, að
í heild hefur þjóðfélagið ekki efni á að
veita öllum starfandi mönnum sambæri-
leg lífeyrisréttindi."
5 mánaða fangelsi
Tveir fyrrum eigendur Tívolísins í
Hveragerði voru nýlega dæmdir í fimm
mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú
ár, fyrir fjársvik. Svikin fólust í því að
mennirnir tveir héldu eftir lífeyrissjóðs-
framlögum starfsfólks í Tívolíinu og
skyldusparnaði starfsfólks annars fyrir-
tækis, sem þeir ráku í Reykjavík. Sam-
tals var þetta nærri hálf milljón króna.
Þessi dómur, sem kveðinn var upp í
Sakadómi Reykjavíkur, sýnir glögglega
hversu alvarlegum augum dómstólar
líta það, ef atvinnurekendur skila ekki
lögbundnum greiðslum í lífeyrissjóði.
Ástæða er til að minna Dagsbrúnar-
menn á að fylgjast vel með því, að öll-
um greiðslum, sem teknar eru af kaupi,
sé skilað til réttra aðila. Nánari upplýs-
ingar má fá á skrifstofu Lífeyrissjóðs
Dagsbrúnar og Framsóknar á Suður-
landsbraut 30 í Reykjavík, s. 84799.
launa
rætt við Hra
framkvæmdi
— Hvað með aðild að svokölluðum
frjálsum lífeyrissjóðum, eins og til dæm-
is þeim sem Fjárfestingafélag íslands
rekur?
„Andstætt við almennu lífeyrissjóð-
ina, sem byggjast á svokölluðu upp-
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Sambands
almennra lífeyrissjóða: Besti kosturinn væri að vera
ríkis- eða bankastarfsmaður.
söfnunarkerfi, það er að segja að fólk
safnar sér réttindum á löngum tíma, eru
þessir sjóðir sem þú nefnir séreignar-
sjóðir. Þeir eru í rauninni ekki annað
en bankabók, sem menn leggja inn á og
fá síðan lífeyri í samræmi við það. En
við þetta fyrirkomulag er sá augljósi og
alvarlegi galli, að þegar þú ert orðinn
8 DAGSBRÚN