blaðið - 10.05.2005, Blaðsíða 6
þriðjudagur, 10. maí 2005 I blaðið
1985-2005
OPlNJ££B^
wvvw. ok.is
Samvinna
= árangur
Velkomin á afmælisráðstefnu
Opinna kerfa
Hátíðarsal Öskju í Háskóla íslands,
fimmtudaginn 12. maí 2005, kl. 13.00.
Dagskrá:
Halldór Ásgrímsson
Forsætisrá&herra Islands
ávarpar gesti
Frosti Bergsson
Einn stofnenda Opinna kerfa:
Saga Opinna kerfa sl. 20 ár
Bernard Meric
Forstjóri HP í Evrópu,
Mi&-Austurlöndum og Afríku (EMEA):
HP - fyrirtækið og stefna þess í Evrópu
Andy Lockhart
Framkvæmdastjóri Cisco Systems í
Nor&ur-Evrópu:
Aherslur Cisco til framtí&ar
Andrew Butler
Framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs
Gartner Group:
Upplýsingatækni til framtíðar
Ráðstefnustjóri
Gylfi Árnason
Forstjóri Opin Kerfi Group hf.
kl. 16.30-18.00
Léttar veitingar
*Verð 20.000 kr. skráning fer fram á
www.ok.is/20ara
OPIN KERFI
www.ok.is / Sími 570 1000
*Takmarkað sætaframboð
6 innlent
Orðrómur um uppsagnir
hjá Varnarliðlnu
KristjánGunnarsson.formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Keflavíkur og nágrennis
(VSFK), er rólegur þrátt fyr-
ir þrálátan orðróm þess efnis
að segja eigi upp allt að 300
starfsmönnum Varnarliðsins
á næstu mánuðum. „Þvert á
móti hefur Varnarliðið verið
að auglýsa eftir fólki, bæði
í fóst störf og í sumarafleys-
ingarstörf," sagði Kristján og
bætti við að illa gengi að fylla
þessi störf.
Kristján segir að því miður hafi
yfirleitt verið töluverð innstæða fyr-
ir þeim orðrómi sem varðar starfs-
H--------
Auðvitað fer
um mann
þegar spurt
er að þessu
hvað eftir
annað.
mannahald svæðisins
en nú hafi hann engar
tilkynningar á borðinu
hjá sér um uppsagnir.
Reyndar heyri hann mik-
inn orðróm um uppsagnir
og segir að sömu sögu sé
að segja um þá sem starfa
í starfsmannahaldinu.
Ekkert bendi þó til þess
að uppsagnir séu yfirvof-
andi. „Hér hjá mér voru
bæði starfsmenn utanrík-
isráðuneytisins og vam-
arliðsins að segja mér að það væri ró-
legt yfir málunum en auðvitað fer um
mann þegar spurt er að þessu hvað
eftir annað.“ Friðþór Eydal, blaðafull-
trúi Varnarliðsins, segist engar upp-
lýsingar hafa um að uppsagnir standi
til. Hann telur fólk tengja þetta því
að í september endar íjárhagsárið
hjá Varnarliðinu. „Það gengur alltaf
þessi orðrómur um að nú standi þetta
og hitt til en þetta er orðrómur. Hér
bíða menn eftir ákvörðunum stjóma
íslands og Bandaríkjanna um það
hver framtíðin hérna verður. Ákvarð-
anir verða síðan teknar eftir því.“
Hann segist ekkert hafa heyrt um
málin utan þeirra yfirlýsinga sem ut-
anríkisráðherra hefur gefið.
íbúðalán bankanna (ma.kr.)
250-1---------------------------
okt.04 des.04 feb.05 apr.05
Bankarnir hafa lánað 200
milljarða til íbúðakaupa
Bankamir lánuðu tæpa 20 milljarða
króna til íbúðakaupa í aprílmánuði
og nemur heildampphæð
lána nú sléttum 200 millj-
örðum króna frá því í sept-
ember á síðasta ári. Athygli
vekur að ekkert virðist
draga úr spum eftir lánum.
Meðalfjárhæð hvers láns
nemur 11 milljónum króna
og hefur meðalfjárhæðin
sömuleiðis lítið sveiflast
frá því að farið var að bjóða
upp á þessi lán. Samkvæmt
Meðalfjár-
hæð hvers
láns er 11
milljónir
króna.
Morgunkomi íslandsbanka er fjöldi
lána kominn í rúmlega 14.500. Frá
áramótum hefur rúmlega
3.800 kaupsamningum ver-
ið þinglýst á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri og
írá sama tíma hafa bank-
amir afgreitt ríflega 7.900
íbúðalán. íslandsbanki seg-
ir að enn virðist töluvert
um að fólk enduríjármagni
eldri lán án þess að um
íbúðaskipti sé að ræða.
Skipskaði
undan Siglunesi:
Tveir
bjargast
Tveimur mönnum var bjargað heilu
og höldnu þegar línubáturinn Ásdís
Ólöf SI23 sökk skammt norðvestur af
Siglunesi í gærnótt.
Neyðarkall barst frá línubátnum
rétt fyrir klukkan tvö og í kjölfarið
var reynt að ná sambandi við skip-
veija aftur, án árangurs. Björgun-
arbáturinn Sigurvin, frá Björgunar-
sveitinni Strákum, var kallaður út
frá Siglufirði, þyrla Gæslunnar var
ræst út og eins vílt samband haft við
nærstadda báta.
Áhöfn Sigurvins kom auga á neyð-
arblys skammt fyrir klukkan þijú og
skömmu síðar fundust mennir tveir
um borð í gúmbjörgunarbát um tíu
mílur norður af Siglufirði. Línubát-
urinn maraði þá í hálfu kafi með
stefnið upp úr. Sigurvin kom svo með
bátinn í togi inn til Siglufjarðar á ní-
unda tímanum í morgun.
Við fyrstu sýn lítur út fyrir að leki
hafi komið að bátnum með skrúfunni
en rétt er að taka fram að eiginleg
rannsókn er ekki hafin. Gott veður
var á þessum slóðum, gola og gott
skyggni. Um fjögur tonn af fiski voru
í bátnum og hann því nokkuð hlað-
inn.
Auglýsingadeild 510-3744
I ^ FTT.Tr.Tl