blaðið - 25.07.2005, Side 4

blaðið - 25.07.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaöið Slysum um verslunar- mannahelgi hefur fækkað Framundan er mesta ferðahelgi ársins, því miður með tilheyrandi óhöppum og slysum í umferðinni. Blaðið til Grindavíkur Dreifing Blaðsins er hafin í Grinda- vík. Er þetta sjötti staðurinn utan höfuðborgarsvæðisins sem fær Blað- ið. 1 síðustu viku hófst dreifing á Selfossi, Hveragerði, Reykjanesbæ, Akranesi og í Borgarnesi. Á öllum þessum stöðum geta íbúar nálgast Blaðið í öOum helstu verslunum og á bensínstöðvum. Undirbúningur fyrir dreifingu til Akureyrar, Egils- staða og ísafjarðar stendur nú yfir og er stefnt að því að íbúar þessara staða geti nálgast Blaðið innan skamms. ■ Torfærubraut í Jósepsdal Svæðið sunnan við Litlu kaffistof- una og inn í Jósepsdal verður fram- vegis notað undir æfingaakstur torfæruhjóla og vélsleða. Samn- ingar þess efnis á miOi Vélhjóla- íþróttaklúbbsins, Landssambands íslenskra vélsleðamanna og sveitar- félagsins Ölfuss voru undirritaðir á föstudag. Útbúnarverðasérmerktar akstursbrautir á svæðinu þar sem áhugamenn um torfæruhjól og vél- sleða geta æft sig jafnt sumar sem vetur. Bannað verður að fara út fyr- ir svæðið og þannig verður komið í veg fyrir gróðurskemmdir. ■ Skátar fást við orkunýtingu MikiO mannfjöldi var samankom- inn við Úlfljótsvatn um helgina en þar lýkur landsmóti skáta á morgun. Ríflega þrjú þúsund manns höfðu tekið þátt í mótinu fram að helgi en á laugardag náði gestafjöldi upp í átta þúsund manns. Þema móts- ins er orka jarðar og skátarnir hafa glímt við fjölbreytt verkefni sem snúa að orkuframleiðslu á landsmót- inu. Hulda Sólrún Guðmundsdótt- ir, mótsstjóri, segir að mótið hafi heppnast ákaflega vel og að krakk- arnir séu sérstaklega áhugasamir um verkefni vikunnar. ■ Rómantiskir hamborgarar jtxx cafe Kidda Rót Hveragerði S: 552-8002 Verslunarmannahelgin, mesta ferða- mannahelgi ársins, er framundan og að venju er búist við því að þús- undir einstakhnga haldi út á þjóð- vegi landsins. Á þessum tíma fer saman að fjölmargir einstaklingar eru í fríi og jafnframt er mikið um að vera víðsvegar um landið, þó kannski síst í höfuðborginni. Gera má ráð fyrir að straumur bíla út úr höfuðborginni á föstudag og laug- ardag verði gríðarlegur og þá ekki síður straumurinn inn í borgina á Óvíst er hvenær ákvörðunar mennta- málaráðherra um nýjan útvarps- stjóra er að vænta samkvæmt upplýs- ingum frá menntamálaráðuneytinu. Tuttugu og þrjár umsóknir um starf- ið hafa nú borist en ein umsókn barst í pósti síðastliðinn föstudag. Hún var frá Kjartani „Vido” Ólafs- syni varastjórnarmanni í Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Ekki er um neitt formlegt og fyrir- fram ákveðið ráðningarferli að ræða fyrir stöðuna heldur munu starfs- menn menntamálaráðuneytisins einfaldlega fara yfir umsóknirnar á næstunni. Svarið sem fékkst frá ráðuneytinu um það hvenær ákvörðunar mennta- Kornbændur búst við góðri sprettu þetta árið þrátt fyrir að fyrir norð- an og austan hafi vorið verið mjög óhagstætt kornræktinni. Eymund- ur Magnússon, bóndi í VaOanesi á Héraði, segir að kuldar í maí hafi ekki haft veruleg áhrif á kornið þar. Hann segir að kornið hafi ekki verið komið upp úr jörðinni þegar frysta tók í maí og því hafi enginn skaði orðið. Þó megi gera ráð fyrir að hægt hafi á vexti og því verði kornið á Austurlandi eitthvað seinna á ferð- inni en undanfarin ár. Veðrið undanfarið mjög hagstætt Ólafur Eggertsson, bóndi á Þovalds- eyri undir EyjafjöOum, segir að ekki sé annað að sjá á Suðurlandi en að kornspretta líti vel út. Þurrkar í maí hafi ekki gert korninu neitt til og tíð- mánudaginn. Þekkt slysahelgi Því miður virðist svo vera að óhjá- kvæmilegur fylgifiskur þessarar helgar séu fjölmörg umferðaró- höpp. Að sögn Sigurðar Helgasonar, upplýsingafuOtrúa Umferðarstofu, hefur ekki verið haldið sérstaklega utan um tíðni slysa um verslunar- mannahelgar undanfarinna ára. Hann segir þó að slysum hafi heldur fækkað undanfarin ár frá því sem málaráðherra væri að vænta var að engin ákvörðun hefur verið tekin um hvenær ákvörðun verði tekin. Flestir vilja Pál Samkvæmt könnun sem fyrirtækið Netleiðir gerði fyrir helgi nýtur PáO Magnússon mestrar hylli þeirra sem sóttu um útvarpsstjórastóOnn en 31% þeirra sem tóku þátt í könnun- inni vildu að hann fengi starfið. Fast. á hæla honum kemur EOn Hirst en um 28% vildu sjá hana sem útvarps- stjóra. 1 þriðja sæti er síðan Sigrún Stefánsdóttir með 13%. Umsóknir gætu ennþá borist Eins og áður sagði barst menntamála- arfarið undanfarið sé ákaflega hag- stætt kornbændum. „Veðrið hefur verið frábært þessa vikuna og að fá 18 til 20 stiga hita dag eftir dag þegar kornið er að safna í sig er mjög heppilegt. Júnímánuður var náttúrulega votviðrasamur en kornið nýtti sér vætuna vel“, segir Ólafur. Hann bendir þó á að erfitt sé að meta hversu góð sprettan verði og því sé ekkert fast á hendi fyrr en búið er að þreskja kornið í haust. í óða önn að sá vetrarhveiti Þegar Blaðið ræddi við Ólaf var hann í óða önn að sá hveiti. Hann segist hafa gert tilraunir með það sem hann kýs að kalla vetrarhveiti síðastliðin fimm ár. Þetta er hveiti áður var. „Hinsvegar verður alltaf að hafa þann vara á að slysin geta orðið hvenær sem er. Því skiptir máli að menn séu einbeittir og með hugann við það sem þeir eru að gera. Það á alltaf að miða hraða við aðstæður og að sjálfsögðu að nota bílbeltin. Ölvunarakstur vandamál Algengustu slysin í gegnum tíðina um verslunarmannahelgar tengjast ölvunarakstri að sögn Sigurðar. „Slys tengd ölvunarakstri hafa skor- ið sig talsvert úr, sér í lagi að nætur- lagi“, segir Sigurður. Hann vill einn- ig vara við að þegar umferð er orðin það mikil eins og hún verður um verslunarmannahelgi verði framúr- akstur mjög hættulegur og sé oftast ekki mögulegur. Því sé nauðsynlegt að sýna einfaldlega biðlund. Lögreglan gerir ráð fyrir að vera búin að setja af stað mikið umferð- areftirlit um komandi helgi. Mjög virkt eftirlit hefur verið undanfarin ár en nú er gert ráð fyrir að það verði jafnvel ennþá virkara. ■ ráðuneytinu ein umsókn um starfið á föstudag. Tekið er við umsóknum sem póstlagðar voru síðastliðinn fimmtudag, þ.e. 21. júlí. Því er enn- þá möguleiki á að fleiri umsóknir um starfið berist því ef einstakling- ur sem búsettur er erlendis hefur sótt um starfið og ekki sent umsókn fyrr en í síðari hluta síðustu viku gæti eitthvað dregist að sú umsókn berist í pósti. Það ræður því að lítið er farið að gera í umsóknarferlinu hjá ráðuneytinu því skiljanlega vill ráðherra tryggja að allar umsóknir hafi borist áður en nýr útvarpsstjóri verður ráðinn. ■ sem sáð er í akra seinnipart sumars og ekki þreskjað fyrr en næsta haust á eftir. „Kornið sprettur í um það bil 10 cm. hæð fyrir veturinn og bíður ein- faldlega grænt fram á næsta sumar.“ Hann segir að kornið þoli vel þó það verði 10 stiga frost og nánast hvaða veður sem er. Þegar fari að vora byrji það síðan að vaxa aftur. „Það verður þó að hafa í huga að undanfarin ár hefur veðrið verið óvenju hagstætt”, segir Ólafur. Hann segir að helsti óvinur korns- ins sé hinsvegar ekki veðrið heldur gæsin sem komi í þúsundatali á akrana á vorin. Gæsin étur blöðin af korninu sem verði til þess að upp- skera verði engin. ■ KAUPMANNAHÖFN - EKKI BARA STRIKIÐ Guölaugur Arason er frábær sagnameistari og leiðsögumaöur. í Gömlu góðu Kaupmannahöfn segir hann óborganlegar sögur af fólki og atburóum og leiðir lesandann um allar helstu götur okkar fornu höfuöborgar. Glæný, persónuleg og bráðskemmtileg bók, ómissandi ferðafélagi sem segir sögur á hverju götuhorni. Salka www.salkaforlag.is Ekki er vitað hvenær nýr útvarpsstjóri verður ráðinn Kornbændur búast við góðri sprettu bændur við góðri sprettu þetta árið Ráðist á mann í miðbænum Hópur manna réðist með fólsku- legum hætti að manni sem var á gangi í Hafnarstræti í mibæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnu- dags. Maðurinn komst undan við illan leik og var keyrður af leigubílstjóra á slysadeild. Þar kom í ljós að maðurinn var með brotnar tennur og lemstraður eftir árásina en óbrotinn að öðru leyti. Hann gat gefið lögreglu lýsingu af árásarmönnunum sem hann taldi vera fjóra eða fimm en óvíst er hvort atvikið náðist á upptökuvélar sem staðsettar eru víða um miðbæinn og hafa nýst til að upplýsa glæpi sem þessa. Lögregla vinnur nú að rannsókn málsins en í yfirgnæfandi fjölda tilfella tekst að upplýsa mál sem þessi.. Ókeypis úttektir á aftanívögnum Fyrir verslunarmannahelgi 1 vikunni verður boðið upp á ókeypis úttekt á vögnum (fellihýsum, hjólhýsum, tjaldvögnum og hestakerrum) til að fólk geti gengið úr skugga um að tengi- og öryggisbúnaður þeirra sé í lagi áður en lagt er upp í ferðalag um verslunarmannahelgina. Þjónustan er í boði á öllum skoðunarstöðvum Frumherja á afgreiðslutíma þeirra í vikunni fram að verslunarmannahelgi. í fyrra var talsvert var um að bílar hefðu ekki nægilega dráttargetu samkvæmt skráningarskírteini til að draga viðkomandi vagna án þess að eigendurnir vissu af því. Þá var nokkur misbrestur á að ökumenn hefðu aukaspegla á bílunum sína til að sjá út fyrir vagnana eins og reglur kveða skýrt á um. Lengri opnunartími Skoðunarstöð Frumherja að Hesthálsi verður opin til klukkan 20 af þessu tilefni mánudag til fimmtudags. Fólk er beðið um að koma með vagna sína á Hestháls á milli klukkan 17 og 20 þegar öðru amstri er lokið. 1 skoðun er þyngd vagns mæld og kannað hvort viðkomandi bíll megi draga hann. Þá eru speglar bílsins athugaðir og bremsubúnaður þegar við á, tengibúnaður og ljósabúnaður vagnsins. Að skoðun lokinni fá ökumenn í hendur minnisblað með athugasemdum og geta gert viðeigandi ráðstafanir ef þörf krefur. Aukið eftirlit á næstunni Lögreglan fylgist sérstaklega með því næstu daga hvort bílar með fellihýsi, hjólhýsi eða tjaldvagna í eftirdragi séu með tilskilinn búnað, sem og vagnarnir sjálfir. í alvarlegum tilvikum kann fólk að fá fyrirmæli um að snúa við eða það verður jafnvel kyrrsett. Fólk ætti því að koma með vagninn sinn til Frumherja til að komast hjá óþægindum í helgarferðinni.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.