blaðið - 25.07.2005, Side 10
10 I BÍLAR
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaöiö
■ VOLVO S40:
Stór smábill með
sér ef maður kýs að aka honum eins
og sportbíl - sem getur verið svolitið
freistandi. Dísilvélin er svo glæný að
það er erfitt að fullyrða um viðhalds-
þörf. Ef miðað er við það hversu vel
bíllinn er smíðaður og hvernig eldri
gerðir S40 hafa reynst er hún ekki
áhyggjuefni.
Nytsemd og gæði
í borgarakstri kemur S40 mjög vel
út. Hann er kraftmikill, sæmilega
lipur og afar öruggur í akstri. Rými
fyrir farþega og farangur er ágætt,
staðalbúnaður vel valinn og gæðin
mikil. Ef fjölskyldan er fjölmenn
eða stórvaxin er S40 e.t.v. ekki rétti
bíllinn, því hann er gerður fyrir
fjóra. Verðið er í hærri kantinum fyr-
ir bíl í þessum flokki en öryggi og
búnaður stendur fyllilega undir því.
Endursöluverðið er eins og jafnan
gerist um Volvo svo S40 er sjálfsagt
góð fjárfesting.
andres. magn usson@vbl. is
Volvo S40
Brimborg
Verð: 2.695.000
Fjölskyldubíll
Eldsneyti: Dísii
Lengd: 4-47 m
Breidd: 1.77
Hæð: 1,45
Þyngd: 1.457 kg
Dyr:4
Vélarstærð: 1560 cc
Hestöfl: 110
Kostir: Fallegur, vandaður, ör-
uggur og leynir á sér.
Gallar: Rýmið aftur í mætti vera
meira og aðgengið í skottið
sömuleiðis.
Niðurstaða: Volvo S40 er eng-
inn smábíll, vel hannaður og
vel smíðaður. Dísilútgáfan er
skemmtileg og fyllilega athug-
unar virði. Verðið kann að virðast
hátt þar til hugað er að miklu ör-
yggi bílsins og staðalútbúnaði.
Simi 896 1189 Fax 565 5389
kratta í kögglum
inn er afskaplega vel smíðaður og er
þannig í senn verklegur og snotur.
Rými
Það er ágætt rými í bílnum, sæmileg
hæð og gott olnbogarými. Þannig
geta að fjórir fullorðnir komist prýði-
lega vel fyrir með gott fótarými og
aftur í má hafa barn á milli sín án
þess að það þrengist um of. Sætin
eru mjög þægileg og gefa góðan
stuðning við axlir og mjöðm. Það
er hægt að stilla stýrið við hvers
manns hæfi og á milli ökumanns og
farþega er ekki meira rými tekið und-
ir græjur og miðstöð en nauðsynlega
þarf. Sú eining er aukin heldur fest
að ofan og neðan, þannig að þar fyr-
ir aftan er kærkomið geymslurými.
Staðalútbúnaður er vel úti látinn en
þar á meðal má nefna leður í stýri og
gírstöng og upphituð framsæti sem
nokkur fengur er í. Síðan má bæta
sæg af aukabúnaði í bílinn.
Farangur
Farangursrýmið er furðumikið í
þessum svokallaða smábíl en þar
má hæglega koma fyrir tvennum
helgarinnkaupum. Eini vandinn er
kannski að skottið gæti opnast bet-
ur því opið er ekki alveg nógu hag-
anlegt. Barnahjól smellur t.d. ekki
alveg beint ofan í það þó plássið sé
nægt. I farþegarými er líka að finna
ýmsar aukaholur fyrir lauslega
hluti.
Öryggi
Það á ekki að þurfa að nefna það
að öryggið í Volvo er fyrsta flokks.
S40 fékk hæstu einkunn í árekstra-
prófi Euro NCAP, en það má rekja
til einstaklega vel styrktrar grindar
bílsins. Farþegarnir eru svo varðir
með loftpúðum að framanverðu og
til hliðar. Því til viðbótar er svo bak-
hnykksvörn, spólvörn, ABS hemla-
kerfi og svo mætti lengi áfram telja.
Öryggið er mikið og áþreifanlegt fyr-
ir ökumann og farþega og sú tilfinn-
ing skiptir máii, fyrir nú utan það að
það kemur að góðu ef á reynir.
P.ekstur og viðhald
Eyðslan í S40 er ekki mikil, um 5,2
lítrar á hundraðið í blönduðum
akstri. Það er þó rétt að nefna að það
hægt að missa eyðsluna talsvert frá
Volvo hefur um áratugabil
þótt vandaður og öruggur
fjölskyldubíll en að sama
skapi þótti mörgum hann löngum
fremur litlaus og óspennandi kostur.
Volvo S40 á ekki við þennan ímynd-
arvanda að glíma. Hönnunin er eins
og hún hafi átt sér stað á landamær-
um Frakklands og Þýskalands, hann
er sportlegur en samt fjölskyldubíll,
hann er vel smíðaður og öruggur
í hæsta máta. í orði kveðnu er S40
smábíll en það er erfitt að taka und-
ir það. Þetta er vissulega smæsti Vol-
voinn og hann er ekki mikill um sig
en hann er einhvern veginn miklu
stærri að innan en mann grunar
þegar horft er á hann. Blaðið fékk
dísilútgáfuna af S40 í reynsluakstur
og undirritaður varð ekki fyrir von-
brigðum.
Akstureiginleikar
Þó S40 eigi að heita venjulegur fólks-
bíll, og það í smærri kantinum, er
hann í rennilegra lagi og það ekki
aðeins í útliti. Það er kraftur í bíln-
um, eins og nánar verður vikið að,
en maður finnur fyrir mikilli örygg-
istilfinningu í akstri. Hann er eilítið
fastur fyrir í akstri og þegar maður
er á miklum hraða finnur maður lít-
ið fyrir veginum, en bíllinn er afar
stöðugur. Hið sama er upp á teningn-
um þegar rennt er í krappar beygjur.
Á möl er bíllinn sömuleiðis ágætur
og skríður lítið til þó þjarmað sé að
SÍMI5771313 •kistufell@c8ntrum.is
Tímareimasett í
flestar gerðir bíla
www.kistufell.com
honum. Það er allt gott og blessað
en maður myndi vilja hafa stýrið að-
eins næmara. Eins mætti fjöðrunin
vera eilítið mýkri á þvottabrettum
Vegagerðarinnar.
Vél og drif
Fá má S40 með margvíslegum vél-
arafbrigðum, bæði bensín og dísil.
Bíllinn, sem Blaðið reyndi, var með
1,6 1 túrbó dísilvél og beinskiptur.
Hestöflin eru sögð 110 talsins en
krafturinn minnti frekar á bíl sem
er með 150 hestöfl. Hann er þrælfljót-
ur upp og heldur sér vel um miðbik-
ið. Maður þarf hins vegar að venjast
gírunum aðeins og ef maður ætlar
í framúrakstur á Keflavíkurvegin-
um getur borgað sig að skipta niður
fyrst. Þegar ég ræsti bílinn í fyrsta
skipti heyrði ég vel að það var dísil-
vél undir húddinu en hún er samt til-
tölulega hljóðlát. Það er líka ástæða
til þess að taka fram að bíllinn er sér-
staklega vel hljóðeinangraður þann-
ig að vélarhljóðið truflar mann
sáralítið og hið sama má segja um
vindgnauð og vegrið.
Útlit
Útlitið á S40 er afar evrópskt og þar
er ekkert klossað þó bíllinn sé stærri
en maður gæti haldið og þyngdin
sæmileg. Yfirbragðið er þýskt í meg-
inatriðum en smáatriðin minna
meira á franskar hefðir. En það sem
maður tekur helst eftir er hvað bíll-
klakavelar
Verð *=->
28.000 kn[ö - 0
£3^. ís-húsid 566 6000