blaðið - 25.07.2005, Page 14

blaðið - 25.07.2005, Page 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. SAGA AF AHUGALEYSI að verður að segjast eins og er að listi yfir umsækjendur um starf útvarpsstjóra veldur vonbrigðum. Vissulega eru tveir eða þrír hæfir menn á listanum en upp til hópa eru þetta ein- staklingar sem fyrst og fremst eru að sækja um til að vekja athygli á sjálfum sér. Hvernig stendur á því að starf útvarpsstjóra heillar ekki fleiri einstaklinga úr atvinnulífinu? Hvernig stendur á því að fleiri reynslumiklir stjórnendur skuli ekki sækja um? Listinn er að sumu leyti spegilmynd af þeim lista umsækjenda sem höfðu áhuga á starfi fréttastjóra útvarps. Áhuginn á þessum tveimur störfum var enginn - nema hjá fjölmiðlum sem kepptust um að smjatta á því hver myndi sækja um og hver ekki. Staðreyndin er þessi - Ríkisútvarpið er stofn- un sem fáir hafa áhuga á að vinna hjá nema þeir sem þegar eru þar innandyra. Þetta er sorgleg staðreynd sem ber vitni því hnignunar- skeiði sem stendur yfir hjá þessari annars merku stofnun. Það má fyrst og fremst kenna framtaksleysi pólitíkusa um hvernig komið er. Þeir hafa ekki haft dug í sér til að taka á þeim vandamálum sem blasa við hjá RÚV. Þrasað er um minnstu smáatriði í rekstri stofnun- arinnar sem auðvitað hefur gegnt merku hlutverki í menningarsögu okkar. Það er verulega illa komið þegar ekki er hægt að ráða íþrótta- fréttamann hjá RÚV nema hann hafi réttan pólitískan stimpil eins og Hermann Gunnarsson benti réttilega á í morgunþætti Stöðvar 2 á föstudag. Framundan er svo ráðning fréttastjóra og í fljótu bragði virðist Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir geta útilokað flesta umsækj- endur - eftir standa þrír, Páll Magnússon, Elín Hirst og Bjarni Guð- mundsson. Þau hafa öll sína kosti. Páll hefur mikla reynslu af fjöl- miðlun. Hann er almennt vel liðinn af þeim sem hann hefur unnið með, er góður leiðtogi sem nær að koma málum áfram. Það sama má segja um Elínu Hirst. Hún hefur í raun ekki síðri reynslu af fjölmiðl- um en Páll og hefur þar að auki verið innandyra hjá RÚV síðustu árin. Bjarni Guðmundsson þekkir hins vegar rekstur RÚV manna best og það skiptir ekki minnstu máli þegar upp verður staðið. Öll eru þau hæf í starfið - við verðum hins vegar að vona að ráðherra beri gæfu til að velja í starf útvarpsstjóra þann sem talinn er hæfast- ur og að allri pólitík verðiýtt til hliðar. Það væri auðvitað alveg nýtt í mannaráðningum hjá RÚV en einhvern tímann verður að byrja og eitt er víst - Þorgerður Katrín myndi reisa sjálfri sér minnisvarða sem stæði um alla framtíð ef hún hætti að hlusta á misvitra flokks- bræður í þessu máli en léti skynsemina ráða. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. AÖalsimi: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Hundabúr - Hvolpagrindur Full búð af nýjum vörum 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLU TOKYO gæludýravörur Hjallahraun 4 Hafnarfirði s.565-8444 Opið mán-fös. 10-18 Lau. 10-16 Sun 12-16 14 I ÁLIT MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaöiö Lífið er ekki bara „business" Á næstu árum er mikilvægasta verk- efni stjórnvalda að brjótast út úr gamaldags hugsun um barnafjölskyld- Katrfn una. Fara út fyrir Júlíusdóttir, ramma hefðbund- alþingismaður jnnar skilgreining- ar á fjölskyldu og sjá hana eins og hún raunverulega er í dag, fjölbreytilega samsett og gerbreytt frá því sem áður var. Þann- ig förum við vonandi að ná árangri í að bæta stöðu barnafjölskyldna í þessu landi og þá ekki síst stöðu barnanna sjálfra sem gleymast oft í atinu sem fylgir hversdagslífi nú- tímasamfélags. Stjórnvöld á villigötum Ég lít á stjórnmálin sem tæki til að gera líf okkar í samfélagi létt- ara. Snúast stjórnmálin um þetta í dag? Svo tel ég ekki vera. Sitjandi stjórnarflokkar eru með svo kolr- anga forgangsröðun ef þeir hafa ein- hverja forgangsröðun yfirleitt því stjórnvaldsaðgerðir þeirra virðast að mestu snúast um að halda völd- um, valdanna vegna. Raða réttum mönnum á rétta staði svo heims- mynd þessara ágætu manna verði „rétt“. Niðurstaðan er sú að sitjandi ráðamenn Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokks skipta sér alltof mikið af íslensku efnahags- og viðskiptalifi en alltof lítið af stöðu barna og fjöl- skyldna þeirra og hvernig gera megi líf þeirra léttara. Þessi ríkisstjórn er búin að sýna það í verki að hún er ekki að hugsa um börnin og þeirra fjölskyldur. Þetta sést í lækkuðum barnabótum, vaxtabótum, háu vöruverði vegna skatta og gjalda á þeim, háum leik- skólagjöldum, háu stimpilgjaldi við íbúðarkaup, himinháu ibúðaverði, háum greiðslum fyrir lækna- og tannlæknaheimsóknir svo einungis nokkur atriði séu nefnd. Þegar allt þetta leggst á eitt er útkoman ekki einföld né er auðvelt fyrir ungar fjöl- skyldur að koma sér af stað í lífinu. Allt þetta leiðir til þess að foreldrar eru tilneyddir til að vinna langan vinnudag til að ná endum saman. Fæðingarorlof of stutt Fæðingarorlofið hefur verið lengt í tíð rískisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks en ekki er nóg að gert. Börnin okkar fá of stutta samveru með foreldrum sínum fyrstu mánuði eftir fæðingu eða 6-9 mánuði eftir samsetningu fjöl- skyldu þeirra. Og ekki sitja öll börn við sama borð hvað fæðingaorlofið varðar en munur er á því hvort þau búa hjá báðum foreldrum eða ein- 99....................... Það erþvímín einlæga skoðun að lengja beri fæðingarorlofið í skrefum þar til það hefur náð allt upp í 18 mán- aða samveru foreldra og barns. stæðu foreldri. Þessu þarf auðvitað að breyta því í þessu felst ekkert réttlæti. Það er ekki nóg að hugsa um stöðu kynjanna þegar að fæðing- arorlofi kemur heldur þarf að huga að rétti barnanna sjálfra. Yfirleitt fá börnin of lítinn tíma með foreldr- um sínum áður en þeir þurfa að hverfa aftur til vinnu, flestir fullan vinnudag og margir gott betur svo endar megi ná saman. Á þessum aldri eru börnin að taka gríðarleg þroskastökk, byrja að sitja, borða venjulegan mat, standa upp, skríða og sum taka jafnvel fyrstu skrefin. Mikilvægustu tengsl barna, það sem brjóstvitið segir manni og rannsókn- ir sýna, eru tengslamyndanir barna við foreldra sína. Þessi grunntengsl barna marka alla þeirra framtíð. Það er því mín einlæga skoðun að lengja beri fæðingarorlofið í skref- um þar til það hefur náð allt upp í 18 mánaða samveru foreldra og barns. Sveigjanleiki er lykilatriði Til þess að geta fjölgað samveru- stundum barna við foreldra er sveigj- anleiki lykilorð. Þar spilar atvinnu- lífið ekki síður stórt hlutverk en hið opinbera. Atvinnulífið getur lagt sitt að mörkum með því að stytta viðveru starfsmanna sinna og gefa þeim í auknu mæli kost á sveigjan- legum vinnutíma og vinnuaðstöðu heimavið þar sem þess er kostur. Hornsteinn í velferð til framtíðar eru sterkir einstaklingar og ham- ingjusamir og atvinnulífið veikist án hvorutveggja. Sveigjanleikinn af hálfu hins opinbera þarf einnig að vera til staðar og taka þarf tillit til mismunandi fjölskylduaðstæðna við veitingu fæðingarorlofsins og spila þannig með atvinnulífinu. Hið opinbera á að sjálfsögðu að vera öfl- ug fyrirmynd i þessum efnum sem langstærsti atvinnurekandinn í landinu. Klisjan um forgangsröðunina Nú eru án efa margir sem spyrja sig hvernig eigi nú að fjármagna öll her- legheitin. Því er til að svara að ekki er um að ræða þannig kostnað að ríkiskassinn fari á hliðina. Þetta er spurning um forgangsröðun. Ein sparnaðarleið væri til dæmis sú að fækka sendiráðum á Norðurlönd- um úr fjórum í eitt. Það eru nú bara nokkur hundruð milljónir. Önnur leið væri sú að endurskoða landbún- aðarkerfið sem fær einhverja tugi milljarða á nokkurra ára fresti án þess að bændur hafi það betra eða neytendur fái betri vöru eða verð. Svona mætti halda áfram. Stjórnmál- in snúast nefnilega um klisjuna um forgangsröðunina margfrægu. Ef við stjórnmálamenn brjótumst út úr rammanum og byrjum að horfa á samfélagið og öll þess tann- hjól út frá börnunum, mikilvægustu kynslóð hvers tíma, og mismunandi samsettum fjölskyldum þeirra þá er ég sannfærð um að sá leiðangur verði árangursríkur. Því lífið er ekki bara „business“. ■ Stökustund Sem fyrr hefjum við leikinn á botnum sem bárust við fyrriparta síðasta þáttar. V.L. Botnar: Vinstri grœnir þrasa’á þingi þráfaldlega’um slœma tíð. Ekki er von til, að þeir kyngi öllu sem að kallast níð. Þ.Ó. botnar svo: Vinstri grœnir þrasa’á þingi þráfaldlega’um slæma tíð. íformannshöfði háttþó klingi, heill eryfir vorum lýð. V.L. botnar: Bjart eryfir bœndastétt baula kýr í haga. Guðna þetta þykir létt ogþjóðinni ei til baga. Þ.Ó. botnar svo: Bjart eryfir bændastétt Baula kýr í haga. Þetta er snældu snúinfrétt sem snarlega þarfað laga. í umsjón Péturs Stefánssonar Bragi frá Hoftúnum orti eitt sinn: Sannleikur er seinn íför, sjaldan nœr’ann hylli. En lygin þýtur likt og ör landshornanna milli. Baldur Þór Bóasson frá Siglufirði yrkir um mann: Ennþá virðist karlinn kúl konu sinni, fengur. Bráðgreindur og bjútífúl og bragðarþað ekki lengur. Árni Vigfússon orti þessa mann- lýsingu: Þó að drottinn þyki snjall, þá kom samt á daginn að þegar hann gerði þennan karl þá var hann ekki laginn. Hinrik frá Merkinesi orti um flagð undir fögru skinni: Vantar snilli margan mann, -mengaðir spillingunni. Oft má grilla’íóþverrann undir gyllingunni. Pétur yrkir um rannsókn lögreglu á starfssemi vændiskvenna á ís- landi, viðskiptavinum til hrelling- ar: Það er fátt sem maður má -meinuð eðlishvötin, eflöggan setur lokur á lífsins skráargötin. Fyrripartar: Að ferskeytlunnarforna sið, fleiri mættu hlúa. V.L. sendir þennan fyrripart: Heilum vagni heim að aka, held éggagni öllum best. Botnar, visur ogfyrripartar send- ist til: stokustund@vbl.is eða á Blað- ið, Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.