blaðið - 25.07.2005, Side 22
22 I ÍPRÓTTIR
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaðið
Hinn ótrúlegi
Lance Armstrong
Sir Alex og
Keane deila
Sir Alex Ferguson og Roy Ke-
ane, fyrirliði Manchester Unit-
ed, lentu í deilum á æfmgavelli í
Portúgal í síðustu viku sem urðu
til þess að Keane fór ekki með
liðinu í æfingaferð til Asíu. Sam-
kvæmt ensku blöðunum munu
Keane og Ferguson hafa deilt
fyrir framan hina leikmennina
í United liðinu vegna skipulags á
æfingavellinum. Þess vegna hafi
Ferguson skilið Keane eftir er
liðið flaug til Asíu í síðustu viku.
Félagið tilkynnti hins vegar að
Keane væri frá, meiddur á hásin.
Keane, sem verður 34 ára í næsta
mánuði, ætlaði að leggja skóna á
hilluna þegar samningur hans
rennur út í lok leiktíðarinnar en
hann mun þó hafa gefið í skyn
að hann gæti skipt um skoðun.
Forráðamenn Manchester Unit-
ed hafa ekkert viljað tjá sig um
þessar fréttir af deilum Keane og
Ferguson en Keane mun hafa ver-
ið ósáttur við að hafa stytt sumar-
frí með fjölskyldunni til að fara
í keppnisferðina til Portúgals og
komast svo að því að ferðin væri
tiltölulega óformleg.
ísland í A-
deildina
U-18 ára landsliðið Islands í
körfuknattleik karla gerði það
gott á Evrópumótinu í Slóvakíu
sem lauk í gær. Þrátt fyrir að
hafa tapað úrslitaleiknum gegn
Úkraínu má íslenska liðið vel við
una því liðið mun spila í A-deild
á næsta ári sem er frábær árang-
ur hjá strákunum. í mótslok var
valið úrvalslið mótsins og var
Pavel Ermolinskij valinn í það
auk þess sem hann var valinn
besti maður mótsins. Pavel hélt
íslenska liðinu nánast uppi á
stundum og er án efa efnilegasti
körfiiknattleiksmaður landsins
um þessar mundir.
Nú er þetta einfaldlega
orðið spurning um
hver geti unnið hann
ístaðinn fyrir hvort
hann muni vinna
Lance Armstrong sigraði í gær í
Frakklandshjólreiðunum sjöunda
árið í röð. Hann lauk síðasta keppn-
isdeginum um miðja þvögu sem var
nóg til að tryggja honum sigurinn
í síðustu hjólreiðakeppninni sem
hann ætlar sér að taka þátt í. Þessi
ótrúlegi íþróttamaður á sér glæsta
sögu og það var við hæfi að hann
lyki ferlinum á því að sigra í Tour
de France. Þetta var hans sjöundi
sigur í keppninni og er hann orð-
inn sigursælasti keppandinn í sögu
þessarar frægustu hjólreiðakeppni
heims. Armstrong var þó ekki langt
frá því að lenda í hörku árekstri rétt
áður en hann kom í mark en slapp
blessunarlega við það og kom í mark
á samtals fjórum mínútum á undan
næsta manni, Ivan Basso.
Ótrúleg saga
En það er það sem Armstrong þurfti
að ganga í gegnum, í gegnum tíðina
sem gerir sögu hans enn merkilegri
og óumdeilanlega mesta íþróttaaf-
rek í sögunni. f þrjú ár, fyrir fyrsta
sigur hans í Tour de France árið
1999, barðist Texasbúinn við krabba-
mein í eista, heila og lungum og átti
hann minna en helmingslíkur á því
að lifa af. Þessi 33 ára gamli garpur
ólst upp hjá móður sinni eftir að
faðir hans yfirgaf þau þegar hann
var tveggja ára. Móðir hans, Linda,
vann í kjörbúð en hún var aðeins 16
ára þegar hún varð ófrísk. Alla tíð
voru þau mjög náin og lýsti Linda
reyndar sambandi þeirra þannig að
þau voru í raun að alast upp saman.
Armstrong tók nafn stjúpföður síns
sem Linda er nú skilin við en hún
hefur gift sig fjórum sinnum og jafn
oft staðið í skilnaði. Linda ræktaði
keppnisskap Armstrong duglega en
hún lét hann, ungan að aldri, keppa
í þríþraut. Það var áður en hann
gat sér gott orð sem unglingur þeg-
ar hann byrjaði í ólympíuþjálfun
Bandaríkjanna í hjólreiðum. Árið
1991 var hann orðinn áhugamanna-
meistari í Bandaríkjunum og tveim-
ur árum síðar varð hann heimsmeist-
ari áhugamanna. Hann vann svo
sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður
árið 1995 þegar hann vann tilfinn-
ingaþrunginn sigur í keppni sem var
tileinkuð Fabio Casartelli, vini hans,
sem lést fyrr í keppninni.
Nafn: Lance Armstrong
Fæddur: 18. september, 1971
Heimili: Austin,Texas og Girona
á Spáni
Lið: Discovery
Hápunktar: Sjö sigrar (Tour de
France (1999-2005); heimsmeist-
ari í götuhjólum 1993; efstur á
heimslista 1996
Börn: Þrjú frá fyrra hjónabandi,
Luke, Isabelle og Grace.
Áhugamál: Stofnandi Lance
Armstrong samtakanna, hluti af
baráttu George Bush Bandaríkja-
forseta í baráttu gegn krabba-
meini.
Hjartsláttur: 32 hslm í
hvíld og 201 hslm mest
,Það besta sem gat komið fyrir mig"
Ári síðar var hann orðinn efstur á
heimslista hjólreiðamanna. Það var
áður en hann greindist með krabba-
mein sem byrjaði í eistunum á hon-
um en breiddist út í lungun og svo
í heilann. Armstrong segir í dag að
krabbameinið sé það besta sem hef-
ur komið fyrir sig. Þrátt fyrir að eiga
minna en helmings lífslíkur barð-
ist hann gegn mótlætinu og hóf að
stunda hjólreiðar aftur árið 1998. En
þegar hann hætti í keppninni á milli
París og Nice það ár íhugaði hann að
hætta að stunda hjólreiðar fyrir fullt
og allt. Hann sneri aftur til Banda-
ríkjanna til að æfa með vini sínum
og þjálfara Chris Carmichael en þar
hóf hann æfingar sem skiluðu sér í
fyrsta sigri hans á Tour de France ár-
ið 1999 í keppni sem hann bjóst varla
við að geta tekið þátt í.
Enski hjólreiðagarpurinn Chris
Boardman sem áður var keppinaut-
ur Armstrong en er nú hættur sagði
þetta um Bandaríkjamanninn: „Á
þeim tíma var ekki hægt að sjá fyr-
ir að hann myndi einu sinni gera
atlögu að titlinum - en hann gerði
það. Ég býst við að þetta hafi verið
í síðasta skipti sem hann kom mér á
óvart. Nú er þetta einfaldlega orðið
spurning um hver geti unnið hann
í staðinn fyrir hvort hann muni
vinna?” Orð þessi segja allt sem
segja þarf um yfirburði Armstrong
í hjólreiðaheiminum. Það verður
mikil eftirsjá að þessum magnaða
íþróttamanni sem hefur unnið hug
og hjörtu heimsins en hann stofnaði
sérstök samtök sem eru nefnd eftir
honum og stuðla að baráttu gegn
krabbameini í heiminum. ■
Sækjum og sendum báðar leiðir. Verð frá kr. 850
afsláttur
af vinnu við smur
Þú gerir góð kaup með því að láta okkur
(Bílkó sjá um að smyrja bílinn.
T3T C.Í- Vaxtalausar léttgreiðslur!
bilko.is\
Rafgeyman
Peruskipti
Smurþjónusta
Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110
Rey Cup lauk í gær
Hinu glæsilega Rey Cup móti lauk í
gær við hátíðlega athöfn á Laugardal-
svelli. Um 1100 þátttakendur tóku
þátt í mótinu sem er alþjóðleg knatt-
spyrnuhátíð ætluð íslenskum og er-
lendum unglingum í 3. og 4. flokki
drengja og stúlkna. Valur varð fyrsti
Rey Cup meistari dagsins í 4. flokki
kvenna eftir sigur á Þrótti. Þá vann
Breiðablik HK-i í úrslitum 3. flokks
karla B-liða. f úrslitum 4. flokks
karla B-liða vann Fylkir 2 - KA 3
á gullmarki. f 4. flokki kvenna (7
manna) þá sigraði Stjarnan lið Þrótt-
ar 6-0 í úrslitaleik. í 3. flokki kvenna
(7 manna) sigraði KFR lið Vals 6-2
og í 3. flokki karla (7 manna) sigraði
Víkingur lið lR í úrslitum 2-1. FC Kö-
benhavn vann Breiðablik 1 í hörku-
Ieik um sigur í 3. flokki A-liða, 3-1
var lokaniðurstaðan í þeim leik. f úr-
slitum 4. flokks karla A-liða sigraði
HK1 - ÍR1,4-0. Lokaleikur Rey Cup
2005 var úrslitaleikur Þróttar og
Víkings í 3 flokki kvenna en honum
lyktaði með sigri Þróttar 3-0. Und-
irbúingur fyrir næsta mót er þegar
hafið en stefnt er að því að fá enn
fleiri erlend lið á næsta ári en mótið
hefur vakið mikla athygli erlendis.
Rey Cup þótti takast afar vel í ár en
það er VISA sem er aðalstyrktarað-
ili mótsins.