blaðið

Ulloq

blaðið - 25.07.2005, Qupperneq 23

blaðið - 25.07.2005, Qupperneq 23
blaðið MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 ípróttir i 23 Formúla i: Alonso á sigurinn vísan Vonir Kimi Raikkonen um heims- meistaratitil ökumanna dvínuðu til muna eftir Formúlu t keppnina á Hockenheim-brautinni í Þýskalandi um helgina. Raikkonen ók McLar- en bíl sínum af öryggi frá byrjun og leiddi keppnina þar til bilun í vökva- kerft neyddi hann til að hætta eftir 35 hringi. Hver annar en Spánverjinn Fernando Alonso á Renault nýtti sér það og hrifsaði sigurinn og jók forystu sína í heildarstigakeppni ökumanna upp í 36 stig þegar sjö keppnir eru eftir. Það var smá sárabót fyrir McLaren að Juan Pablo Montoya náði öðru sætinu en þó ekki fyrir Raikkonen sem situr eftir með sárt ennið og má nánast ætla að Alonso eigi sigurinn vísan, sér- staklega miðað ökulag hans í síðustu Úrslitfrá Hockenheim 1 Fernando Alonso Renault 2 Juan Pablo Montoya McLaren 3 Jenson Button BAR 4 Giancarlo Fisichella Renault 5 Michael Schumacher Ferrari 6 Ralf Schumacher Toyota 7 David Coulthard Red Bull 8 Felipe Massa Sauber 9 Christian Klien Red Bull 10 Rubens Barrichello Ferrari keppnum. Montoya gerði vel í að ná öðru sætinu en hann byrjaði aftarlega í rásröðinni en náði að vinna sig upp. Jenson Button á Toyota náði svo þriðja sætinu en hann hóf keppnina annar en missti Alonso og Michael Schumac- her fram úr sér í ræsingunni. Mistök hjá Ferrari Heimsmeistarinn hélt forystunni á Button þar til í fýrsta viðgerðarhléinu en Schumacher ákvað að nota mýkri dekk til að reyna að ná sem mestu gripi í brautinni. Það skilaði sér ekki þar sem dekkin að aftan eyddust fljótt og hann tapaði á því dýrmætum tíma. Button nýtti sér það, saxaði á forskotið og tók svo glæsilega framúr Schumac- her á 45. hring. Button missti hann Staðan ístigakeppni ökumanna 1 Fernando Alonso Renault - 87 stig 2 Kimi Raikkonen McLaren - 51 stig 3 Michael Schumacher Ferrari - 47 stig 4JuanPabloMontoya McLaren - 34 stig 5 Rubens Barrichello Ferrari - 31 stig 6 JarnoTrulli Toyota - 31 stig 7 Giancarlo Fisichella Renault - 30 stig 8 Ralf Schumacher Toyota - 26 stig 9 Nick Heidfeld Williams - 25 stig 10MarkWebber Wiiliams - 22 stig reyndar aftur fram úr sér þegar hann tók viðgerðarhlé skömmu síðar en þeg- ar Schumcher tók sitt hlé hafði Button náð nægilegu forskoti til að halda for- ystunni. Áfram hélt slæmt grip á dekkj- unum að há Schumacher og Giancarlo Fisichella á Renault og bróðir hans Ralf á Toyota gerðu harða hríð að hon- um sem lauk með því að annar þeirra komst framúr, ítalinn Fisichella á síð- asta hringnum, en Michael náði að halda Ralf bróðir sínum fyrir aftan sig. Þeir enduðu í fimmta og sjötta sæti. Raikkonen var með góða forystu þeg- ar ósköpin dundu yfir en það var ein- ungis í fyrstu beygju sem Alonso hafði veitt honum einhverja keppni. Forysta Alonso í öðru sætinu var einnig örugg en Railckonen gjörsamlega trylltist eft- ir keppnina og strunsaði burt af svæð- inu án þess að yrða á íféttaþyrsta blaða- menn. Hápunktur keppninnar var þó glæsiakstur Montoya sem sýndi að McLaren eiga hraðskreiðasta bílinn. Liðið er hins vegar að klúðra sigur- möguleikum Raikkonen en þetta er ekki í fyrsta skipti sem bíll hans bilar í ár. Montoya hóf keppnina í ellefta sæti eftir frábæran fyrsta hring þar sem hann fór fram úr Ralf Schumacher og Christian Klien á Red Bull. Glæsi- akstur hans var þó ekki nóg en eftir á að hyggja er hann væntanlega sáttur með annað sætið. „Ég á ekki möguleika" Michael Schumacher viðurkenndi eftir keppnina að hann ætti enga möguleika á því að endurheimta titilinn en hann er 40 stigum á eftir Alonso. „Ég held að ég geti ekki tal- ið mig lengur vera í baráttunni um titilinn”, sagði Schumacher. „Það er augljóst að við þurfum að vera hrað- skreiðari. Aðalvandamál okkar eru dekkin, það er ekki nægjanlegt grip á þeim.” Ferrari ekur um á Bridge- stone dekkjum sem háðu Schu- macher mikið en menn á borð við Montoya og Button sem óku fram úr honum eru á Michellin. Næsta keppni fer fram í Ungverjalandi um næstu helgi. /iww/ff/ Úrslit frá Hockenheim I NAFN Framleiðandi NAFN Framleiðandi Stig j Sætúni 8 • 105 Reykjavík • Sími: 570 8600 • Fax: 552 9450 SMYRIL LINE ISLAND TILBD-Ð Færeyjar - Danmörk - Noregur (ath. takmarkað pláss) Danmörk - Noregur Verð frá pr. mann miðað við 4ra manna tjölskyldu og bíl. Siglt til Danmerkur og til baka frá Noregi. Gist í fjögurra manna klefa (inn) Heildarverð kr. 78.300 MK — flSOLMA\Ölf^< n það er yndislegt að aka um í Danmörku, ferðast meðfram ströndum eða keyra um falleg engi og skóga. Veðurlagið eitt og sér er annar heimur en við eigum að venjast. Við vesturhafið er upplagt að fara á ströndina, eða ferðast um skógana á Sjálandi, heimsækja gamlar hallir og herragarða eða fara í einhverja af þeim fjölmörgu skemmtigörðum sem eru víða um Danmörku. Einfalt er að leigja sumarhús eða gista á frábærum tjaldsvæðum og margt er til afþreyingar; Legoland, dýragarðar og allskyns skemmtigarðar eru staðsettir um allt land. Listinn er endalaus. Danmörk ber keim af Evrópu og framandi menningu og verðlag er einnig gott. Upplifið og njótið tónleika og annarra menningarviðburða á heimsvlsu, eða menningar hinna ýmsu staða í milda, danska loftslaginu. Lesið meira um Danmörku á www.visitdenmark.com Danmörk - Noregur Noregur vekur áhuga altra vegna stórfenglegs landslags og heillandi náttúrufegurðar. Þar eru firðir, há fjöll, miklir skógar og vinalegir dalir með fossum og ám sem falla að lokum í vötn og til sjávar.A, ferðamáti þeirra sem leggja leið sína yfir hafið til meginlands Evrópu með Norrænu er til Danmerkur og heim frá Noregi. Þannig er fljótlegasti mátinn til og frá meginlandinu, en þá er ekki viðdvöl í Færeyjum. Náttúrufegurð er einstök og alltaf eitthvað nýtt að sjá. Þórshöfn er minnsta höfuðborg í Evrópu. Á eyjunum sem eru 18 býr ein minnsta þjóð í heimi, um 47.000 manns. Frá Þórshöfn eru góðar samgöngur til allra eyjanna, sem bjóða hvern og einn velkominn sem vill kynnast þessum litla heimi. Lesið meira um Færeyjar á www.tourist.fo/www.faroeislands.com 40-200 Verð frá pr. mann miðað við 2 i fjögurra manna klefa (inn) og bíl. Siglt til Danmerkur og bl baka frá Noregi. Heildarverð kr. 80.400 Færeyjar Verð frá pr. mann miðað við 21 fjögurra manna klefa (inn) og bíl. Heildarverð kr. 46.400 Danmork - Noregur VISA Verð frá pr. mann miðað við 21 fjögurra manna klefa (inn) (deila kleta með öðmm) og bíl. Siglt til Danmerkur og til baka frá Noregi. Heildarverð kr. 45.000 Verð frá pr. mann miðað við 4ra manna fjölskyldu og bíl. Gist í fjögurra manna klefa (inn) Heildarverð kr. 50.400 Með þvi að nýta sér ferðaávísanir er hægt að fá enn meiri afslátt. Smyril Line tekur ferðaávísanír frá MasterCard, VR og Eflingu sem greiðslu upp í ferðir. Færeyjar 15.600 Verð frá pr. mann miðað við 2 i fjögurra manna klefa (inn) (deila klefa með öðmm) og bíl. Heildarverð kr. 31.200 Nú bókar þú á netinu www.smyrll-tlne.ls AUSTFAn I Fjarðargötu 8 • 710 Seyðisfirði • Sími: 4721111 | austfar@smyril-line.is • www.smyril-line.is www. smyril-line.is • email: info@smyril-line.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.