blaðið - 25.07.2005, Page 30

blaðið - 25.07.2005, Page 30
30 I FÓLK MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaðið SMAborcrarinn FYRIRMYNDIR Átraskanir hafa verið mikið í umræðunni undanfarið. Sumum þykir kannski nóg komið en smá- borgarinn er ekki á þeirri skoðun. Með minnkandi umræðu dafnar málflutningur þeirra sem telja át- röskun ekki sjúkdóm og til þess að vinna bug á vandamálinu verð- ur umræðan að halda áfram á mál- efnalegum forsendum. Til er síður á veraldarvefnum sem kenna fólki að þróa með sér átröskun. Þessar siður er að finna undir nafninu pro-ana sem stend- ur fyrir Professional Anorexic - nafnið segir sig sjálft. Þeir sem halda uppi þessum síðum segja að átröskun þjóni til- gangi fyrir heiminn - annars væri hún ekki til. Þeir skilgreina átrask- anir sem lífsstíl - ekki sjúkdóm. Þær stúlkur sem skrifa inn á þess- ar síður hafa sett þar inn myndir af frægum konum sem þær líta upp til og vilja líkjast með öllum mætti hversu veikar sem þær eru orðnar eftir margra mánaða nær- ingarskort. Matarvenjum þessara veiku sálna er lýst skilmerkilega og matseðillinn yfir daginn sam- anstendur af nokkrum litlum epl- um og grænu tei - því það eykur brennsluna svo um munar! Svo má heldur ekki gleyma að strákar fá þennan sjúkdóm í síauknu mæli enda ekki minni kröfur gerðar til þeirra en stelpn- anna. Þeir sem hafa reynt að telja smá- borgaranum trú um að unglingar og aðrir séu ekki það heimskir að þeir reyni bókstaflega að líkjast fyrirmyndum sínum geta kíkt á þessar síður og séð afleiðingar þessa skelfilega sjúkdóms sem herjar á velmegunarlöndin. Enda er átröskun á engan hátt tengd heimsku. Hvers vegna vill fólk verða svo grindhorað að hægt er að telja hvert einasta bein í líkamanum - öll 206 talsins? Hér áður fyrr var það merki um velmegun að vera svolítið vel í holdum en núna hefur þetta snúist við. Núna þyk- ir það allra flottast að vera grind- horaður en þeir feitu eru iðulega litnir hornauga og sagðir skorta sjálfsstjórn og vilja. Smáborgarinn gerir sér grein fyrir því að ekki er hægt að út- rýma of horuðu fólki og fréttum af „elítunni" úr öllum upplýsinga- miðlum okkar enda hefur það fólk sama tilvistarrétt og allir hin- ir. Svo eru að sjálfsögðu ekki allir grannir haldnir lífshættulegri át- röskun, sem betur fer. Hins vegar verður að eiga sér stað hugarfarsbreyting sem kem- ur af stað byltingu. Byltingu í for- gangsröðun okkar og hugsunar- hætti. Byltingu sem leiðir það af sér að fyrirmyndirnar í lífi okkar verði ekki stúlka sem dillar sér fá- klædd í takt við léttgeggjaða tóna nýjasta slagarans heldur einhver sem við getum borið virðingu fyrir vegna innrætis, atorku og skoðana. tamajíraut Lausn á 15. gátu irerður að finna i blaðinu á morgun. Su Doku -15. gáta 2 7 5 4 8 6 2 3 9 9 6 2 4 7 2 8 2 5 1 3 8 4 9 6 4 8 9 3 8 Su Doku - lausn við 14. gátu 4 7 3 1 6 8 5 2 9 1 2 9 3 5 4 8 7 6 8 5 6 9 2 7 1 4 3 2 9 8 6 4 1 7 3 5 3 1 7 5 8 2 9 6 4 6 4 5 7 3 9 2 8 1 9 6 4 8 7 5 3 1 2 7 3 1 2 9 6 4 5 8 5 8 2 4 1 3 6 9 7 Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers Lausn á 14. gátu box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. Gallagher og Appleton í hnapphelduna Liam Gallagher, söngvari ensku rokksveitarinnar Oas- is, og kærasta hans Nicole Appleton, fyrrum dýrlingur í stúlknasveitinni All Saints, hafa ákveðið að ganga í það heilaga. Þau fyrirhuga að brúðkaupið muni fara fram í Skotlandi síðar á þessu ári. Er undirbúningur þegar hafinn og samkvæmt vini turtildúfanna hafa þau þeg- ar bókað eldgleypa og hoppi- kastala fyrir börnin. Liam og Nicole eiga saman barn, hinn fjögurra ára gamla Gene, en fyrir á Liam barn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Patsy Kensit. ■ Fyrrverandi Anistons selur ástarbrét Maður sem átti í ástarævintýri með Jennifer Aniston fyrir 21 ári síðan hefur boðið upp á eBay ástarbréf sem leikkonan skrifaði honum. Ani- ston var 15 ára og gekk í listaskóla í New York þegar hún og maðurinn rugluðu saman reitum, sumarið 1984. Ásamt ástarbréfinu býður maðurinn til sölu bréfsnifsi sem leikkonan skrifaði nafn sitt og símanúmer á og klósettpappír sem hún skrifaði á afmæliskveðju til mannsins. Maðurinn, sem grein- ir ekki frá raunverulegu nafni sínu en kallar sig „MichaeT' í auglýsingunni, vill fá minnst 100 þúsund dollara fyrir minn- ingapakkann. „Michael" og Aniston héldu áfram að vera vinir til ársins 1991 en hafa ekki talast við síðan eða þegar stjarna leikkonunnar tók að rísa. Eminem ekki að hœtta Rapparinn Eminem hefur gefið út opinbera yfirlýsingu um að hann sé ekki á þeim buxunum að leggja hljóðnemann á hilluna. Dagblað í Detroit, heimaborg rapparans, birti á dögunum frétt þess efnis að Emi- nem hyggðist einbeita sér að upp- tökustjórn og framleiðslu á tónlist annarra. Látið var í veðri vaka að tónleikar Eminem við Slane Castle á írlandi þann 17. september næst- komandi yrðu þeir síðustu. Eminem neitaði þessu alfarið og hæddist að æsifréttablöðum á tónleikum sínum í Washington um helgina. „Hversu mörg ykkar lesa slúðurpressuna? Því það er eitthvað rugl í gangi um að ég sé að hætta“, sagði hann við tón- leikagestina. Hann minntist einnig á að fréttin hafi verið birt við hlið greinar um að tunglið ætti eftir að springa. „Að ég sé að hætta? Þá býst ég við því að tunglið hafi sprungið“, sagði hann áður en hann beraði á sér afturendann framan í gestina. ■ HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Heimilislífið eæti truflað framleiðslu þína í vinnunni, revndu ao halda þessu tvennu aðskildu. Þú ættir ekíd að þurfa ao velja á milli að svo stöddu. V Slakaðu á. Yfirnáttúrulegur skilningur þinn á ábyrgð veldur þér áhvggium en þú þarft að taka því rólega og treysta næfni þinm. Það mun allt ganga upp vegna pess að þú lætur það ganga upp. ©Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Gefðu einhverjum góða hugmynd og þeir munu vilja meira. Þú hefur nægar hugmyndir þannig ao þú þarft ekki að hafa áhyggjur af að vera hugmyndalaus. V Þú vilt vera rómantísk/ur en þú ert of upp- tekin/n af rósum og ástarsöngvum. Slepptu form- legheitunum og farou hversdagslegu leiðina. ©Fiskar (19.febrúar-20. mars) $ Því meir sem þú reynir að fylgjast með hvert dagurinn leiðir pig því áttavilltari verðurðu. Það er auðvelt að einblína um of á röngu hlutina. V Þú hefur alltaf treyst draumum þín- um og þeir eru sérstakleea sterkir einmitt núna en það er kominn tími á næsta skref. Finndu leiðir til að gera þá að veruleika. Hrútur (21.mars-19.apríl) $ Finndu nýiar leiðir og ný umráðasvæði. Vertu viðbúin/n pví að þurfa ao taka stjómina næst þegar þú sérð stórt tækifæri. Tíminn skiptir öllu þannig að þú skalt ekki sóa honum. V Hvað sem þú gerir í dag skaltu gera með ástríðu. Þú munt neilla fólkið í kringum þig með því að vera trú/r sjálff i/sjálfum þér. ©Naut (20. apríl-20. maí) $ Hægðu á þér. Það er verið að freista þig inn á umráðasvæði sem þú ert ekki tilbúin/n til að fara inn á og ef þú heldur áfram muntu sjá eftir því. Með þvf að dreyma stóra drauma ertu að stíga fyrsta skrefio í áttina að einhverju stóru. Láttu þig dreyma og settu há markmið. OTvíburar (21. maf-21. júní) $ Hlustaðu vel á starfsfélaga þína í dag. Það eru nokkur góð ráð sem levnast í tali þeirra. Ef þú ert opin/n fyrir því gæti það breytt lífi þínu. V Venjulega leitar fólk ráða hjá þér en í dag verður þao þú sem leitar ráða. Fáou alls kyns álit, jafnvel frá kunningjum. ®Krabbi (22. júnf-22. júlf) $ Gáfur og minni þitt er beitt og nytsamlegt. Ef það eru einnver vandamál sem hafa verið að pirra þig þá skaltu kíkja á þau aftur. V Það er ekkert að því að sýna tilfmningar sýnar og í rauninni er það einn mesti kostur þinn. Vertu bara viss um að tíminn og stundin sé rétt. ®Ljón (23. júlí- 22. ágúst) $ Þú færð nýjar upplýsingar sem munu breyta skoðun þinni á stóru vanaamáli sem hefiir truflað þig undanfarið. Upplýsingarnar verða ánægjulegar, láttu alla vita. V Vertu opin/n fyrir nýju fólki í lífi þínu eða E;1 nýjum hugmyndum frá kunnuglegu fólki. vægt samtal mun veita þér nýja sýn á ýmis- legt. Hvao svo sem gerist, þá skaltu líta á björtu hnðarnar. Meyja (23. ágúst-22. september) s Þú færð innblástur sem verður óvenju öflug- ur. Hann mun annað hvort blása lífi í núveranai starfsframa þinn eða senda þig í leit að einhverju sem veitir þer meiri ánægju. Þú gætir ekki verið ánægðari með sjálfa/n þig núna enda ertu full/ur af góðum hugmyndum og styrk. Notaðu metnaðinn til að ná langt. Vog (23. september-23. október) S Samband þitt við viðskiptavini oe samstarfs- félaea mun heltaka daginn en ef þú skipuleggur þig pá mun allt ganga upp. V Sumariðerhálfnaðogþúertekkibúin/nað skipuleggja ffíið. Eftir hverju ertu að bíða?. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) S Þú ert uppfull/ur af jákvæðri orku en þetta er orka sem þu þarft að beina út á við. Aðstooaðu viðskiptavim og samstarfsfélaga. ^ Láttu góðsemina ríkia í dag. Það þurfa marg- ir á hjálp þinni að halda og þú hefur hugmyndir og innsæio til að aðstoða. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Þráttfyriraðþúsértsérstaklegaafkastamik- il/1 í dag þá muntu samt skemmta þér vel. Afköstin munu vera í samræmi við áhugann. V Þú átt ekki í vandræðum með að láta hlut- ina gerast í dag. Þú hefur ofgnótt orku og metnað- inn til að gera vel.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.