blaðið - 25.07.2005, Qupperneq 30
30 I FÓLK
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2005 blaðið
SMAborcrarinn
FYRIRMYNDIR
Átraskanir hafa verið mikið í
umræðunni undanfarið. Sumum
þykir kannski nóg komið en smá-
borgarinn er ekki á þeirri skoðun.
Með minnkandi umræðu dafnar
málflutningur þeirra sem telja át-
röskun ekki sjúkdóm og til þess
að vinna bug á vandamálinu verð-
ur umræðan að halda áfram á mál-
efnalegum forsendum.
Til er síður á veraldarvefnum
sem kenna fólki að þróa með sér
átröskun. Þessar siður er að finna
undir nafninu pro-ana sem stend-
ur fyrir Professional Anorexic
- nafnið segir sig sjálft.
Þeir sem halda uppi þessum
síðum segja að átröskun þjóni til-
gangi fyrir heiminn - annars væri
hún ekki til. Þeir skilgreina átrask-
anir sem lífsstíl - ekki sjúkdóm.
Þær stúlkur sem skrifa inn á þess-
ar síður hafa sett þar inn myndir
af frægum konum sem þær líta
upp til og vilja líkjast með öllum
mætti hversu veikar sem þær eru
orðnar eftir margra mánaða nær-
ingarskort. Matarvenjum þessara
veiku sálna er lýst skilmerkilega
og matseðillinn yfir daginn sam-
anstendur af nokkrum litlum epl-
um og grænu tei - því það eykur
brennsluna svo um munar!
Svo má heldur ekki gleyma
að strákar fá þennan sjúkdóm í
síauknu mæli enda ekki minni
kröfur gerðar til þeirra en stelpn-
anna.
Þeir sem hafa reynt að telja smá-
borgaranum trú um að unglingar
og aðrir séu ekki það heimskir að
þeir reyni bókstaflega að líkjast
fyrirmyndum sínum geta kíkt á
þessar síður og séð afleiðingar
þessa skelfilega sjúkdóms sem
herjar á velmegunarlöndin. Enda
er átröskun á engan hátt tengd
heimsku.
Hvers vegna vill fólk verða svo
grindhorað að hægt er að telja
hvert einasta bein í líkamanum
- öll 206 talsins? Hér áður fyrr
var það merki um velmegun að
vera svolítið vel í holdum en núna
hefur þetta snúist við. Núna þyk-
ir það allra flottast að vera grind-
horaður en þeir feitu eru iðulega
litnir hornauga og sagðir skorta
sjálfsstjórn og vilja.
Smáborgarinn gerir sér grein
fyrir því að ekki er hægt að út-
rýma of horuðu fólki og fréttum
af „elítunni" úr öllum upplýsinga-
miðlum okkar enda hefur það
fólk sama tilvistarrétt og allir hin-
ir. Svo eru að sjálfsögðu ekki allir
grannir haldnir lífshættulegri át-
röskun, sem betur fer.
Hins vegar verður að eiga sér
stað hugarfarsbreyting sem kem-
ur af stað byltingu. Byltingu í for-
gangsröðun okkar og hugsunar-
hætti. Byltingu sem leiðir það af
sér að fyrirmyndirnar í lífi okkar
verði ekki stúlka sem dillar sér fá-
klædd í takt við léttgeggjaða tóna
nýjasta slagarans heldur einhver
sem við getum borið virðingu
fyrir vegna innrætis, atorku og
skoðana.
tamajíraut
Lausn á 15.
gátu irerður að
finna i
blaðinu á
morgun.
Su Doku -15. gáta
2 7 5
4 8 6
2 3 9
9 6 2 4
7 2 8
2 5 1 3
8 4 9
6 4 8
9 3 8
Su Doku - lausn við 14. gátu
4 7 3 1 6 8 5 2 9
1 2 9 3 5 4 8 7 6
8 5 6 9 2 7 1 4 3
2 9 8 6 4 1 7 3 5
3 1 7 5 8 2 9 6 4
6 4 5 7 3 9 2 8 1
9 6 4 8 7 5 3 1 2
7 3 1 2 9 6 4 5 8
5 8 2 4 1 3 6 9 7
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
í þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
Lausn á 14. gátu
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
Gallagher og
Appleton
í hnapphelduna
Liam Gallagher, söngvari
ensku rokksveitarinnar Oas-
is, og kærasta hans Nicole
Appleton, fyrrum dýrlingur
í stúlknasveitinni All Saints,
hafa ákveðið að ganga í það
heilaga. Þau fyrirhuga að
brúðkaupið muni fara fram
í Skotlandi síðar á þessu ári.
Er undirbúningur þegar
hafinn og samkvæmt vini
turtildúfanna hafa þau þeg-
ar bókað eldgleypa og hoppi-
kastala fyrir börnin. Liam
og Nicole eiga saman barn,
hinn fjögurra ára gamla
Gene, en fyrir á Liam barn
með fyrrverandi eiginkonu
sinni, Patsy Kensit. ■
Fyrrverandi
Anistons selur
ástarbrét
Maður sem átti í ástarævintýri með
Jennifer Aniston fyrir 21 ári síðan
hefur boðið upp á eBay ástarbréf
sem leikkonan skrifaði honum. Ani-
ston var 15 ára og gekk í listaskóla í
New York þegar hún og maðurinn
rugluðu saman reitum, sumarið
1984. Ásamt ástarbréfinu býður
maðurinn til sölu bréfsnifsi sem
leikkonan skrifaði nafn sitt og
símanúmer á og klósettpappír sem
hún skrifaði á afmæliskveðju til
mannsins. Maðurinn, sem grein-
ir ekki frá raunverulegu nafni
sínu en kallar sig „MichaeT' í
auglýsingunni, vill fá minnst
100 þúsund dollara fyrir minn-
ingapakkann. „Michael" og
Aniston héldu áfram að vera
vinir til ársins 1991 en hafa ekki
talast við síðan eða þegar stjarna
leikkonunnar tók að rísa.
Eminem ekki
að hœtta
Rapparinn Eminem hefur gefið út
opinbera yfirlýsingu um að hann
sé ekki á þeim buxunum að leggja
hljóðnemann á hilluna. Dagblað í
Detroit, heimaborg rapparans, birti
á dögunum frétt þess efnis að Emi-
nem hyggðist einbeita sér að upp-
tökustjórn og framleiðslu á tónlist
annarra. Látið var í veðri vaka að
tónleikar Eminem við Slane Castle
á írlandi þann 17. september næst-
komandi yrðu þeir síðustu. Eminem
neitaði þessu alfarið og hæddist að
æsifréttablöðum á tónleikum sínum
í Washington um helgina. „Hversu
mörg ykkar lesa slúðurpressuna?
Því það er eitthvað rugl í gangi um
að ég sé að hætta“, sagði hann við tón-
leikagestina. Hann minntist einnig
á að fréttin hafi verið birt við hlið
greinar um að tunglið ætti eftir að
springa. „Að ég sé að hætta? Þá býst
ég við því að tunglið hafi sprungið“,
sagði hann áður en hann beraði á
sér afturendann framan í gestina. ■
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Heimilislífið eæti truflað framleiðslu þína í
vinnunni, revndu ao halda þessu tvennu aðskildu.
Þú ættir ekíd að þurfa ao velja á milli að svo
stöddu.
V Slakaðu á. Yfirnáttúrulegur skilningur þinn
á ábyrgð veldur þér áhvggium en þú þarft að taka
því rólega og treysta næfni þinm. Það mun allt
ganga upp vegna pess að þú lætur það ganga upp.
©Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Gefðu einhverjum góða hugmynd og þeir
munu vilja meira. Þú hefur nægar hugmyndir
þannig ao þú þarft ekki að hafa áhyggjur af að
vera hugmyndalaus.
V Þú vilt vera rómantísk/ur en þú ert of upp-
tekin/n af rósum og ástarsöngvum. Slepptu form-
legheitunum og farou hversdagslegu leiðina.
©Fiskar
(19.febrúar-20. mars)
$ Því meir sem þú reynir að fylgjast með
hvert dagurinn leiðir pig því áttavilltari verðurðu.
Það er auðvelt að einblína um of á röngu hlutina.
V Þú hefur alltaf treyst draumum þín-
um og þeir eru sérstakleea sterkir einmitt
núna en það er kominn tími á næsta skref.
Finndu leiðir til að gera þá að veruleika.
Hrútur
(21.mars-19.apríl)
$ Finndu nýiar leiðir og ný umráðasvæði.
Vertu viðbúin/n pví að þurfa ao taka stjómina
næst þegar þú sérð stórt tækifæri. Tíminn skiptir
öllu þannig að þú skalt ekki sóa honum.
V Hvað sem þú gerir í dag skaltu gera með
ástríðu. Þú munt neilla fólkið í kringum þig með
því að vera trú/r sjálff i/sjálfum þér.
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Hægðu á þér. Það er verið að freista þig inn
á umráðasvæði sem þú ert ekki tilbúin/n til að
fara inn á og ef þú heldur áfram muntu sjá eftir
því.
Með þvf að dreyma stóra drauma ertu
að stíga fyrsta skrefio í áttina að einhverju
stóru. Láttu þig dreyma og settu há markmið.
OTvíburar
(21. maf-21. júní)
$ Hlustaðu vel á starfsfélaga þína í dag. Það
eru nokkur góð ráð sem levnast í tali þeirra. Ef þú
ert opin/n fyrir því gæti það breytt lífi þínu.
V Venjulega leitar fólk ráða hjá þér en í dag
verður þao þú sem leitar ráða. Fáou alls kyns álit,
jafnvel frá kunningjum.
®Krabbi
(22. júnf-22. júlf)
$ Gáfur og minni þitt er beitt og nytsamlegt.
Ef það eru einnver vandamál sem hafa verið að
pirra þig þá skaltu kíkja á þau aftur.
V Það er ekkert að því að sýna tilfmningar
sýnar og í rauninni er það einn mesti kostur þinn.
Vertu bara viss um að tíminn og stundin sé rétt.
®Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Þú færð nýjar upplýsingar sem munu breyta
skoðun þinni á stóru vanaamáli sem hefiir truflað
þig undanfarið. Upplýsingarnar verða ánægjulegar,
láttu alla vita.
V Vertu opin/n fyrir nýju fólki í lífi þínu eða
E;1 nýjum hugmyndum frá kunnuglegu fólki.
vægt samtal mun veita þér nýja sýn á ýmis-
legt. Hvao svo sem gerist, þá skaltu líta á björtu
hnðarnar.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
s Þú færð innblástur sem verður óvenju öflug-
ur. Hann mun annað hvort blása lífi í núveranai
starfsframa þinn eða senda þig í leit að einhverju
sem veitir þer meiri ánægju.
Þú gætir ekki verið ánægðari með sjálfa/n
þig núna enda ertu full/ur af góðum hugmyndum
og styrk. Notaðu metnaðinn til að ná langt.
Vog
(23. september-23. október)
S Samband þitt við viðskiptavini oe samstarfs-
félaea mun heltaka daginn en ef þú skipuleggur
þig pá mun allt ganga upp.
V Sumariðerhálfnaðogþúertekkibúin/nað
skipuleggja ffíið. Eftir hverju ertu að bíða?.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
S Þú ert uppfull/ur af jákvæðri orku en þetta
er orka sem þu þarft að beina út á við. Aðstooaðu
viðskiptavim og samstarfsfélaga.
^ Láttu góðsemina ríkia í dag. Það þurfa marg-
ir á hjálp þinni að halda og þú hefur hugmyndir og
innsæio til að aðstoða.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Þráttfyriraðþúsértsérstaklegaafkastamik-
il/1 í dag þá muntu samt skemmta þér vel. Afköstin
munu vera í samræmi við áhugann.
V Þú átt ekki í vandræðum með að láta hlut-
ina gerast í dag. Þú hefur ofgnótt orku og metnað-
inn til að gera vel.