blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2005 blaóiö
Pattstaða hjá Festingu
LYKILORÐIÐ SEM ÞÚ
GETUR EKKI GLEYMT
WWW.THINKPAD.IS
Sýslumaðurinn í Reykjavík setti i gær
lögbann á atkvæðisrétt minnihluta
eigenda í fasteignafélaginu Festingu
og kom þannig í veg fyrir að
hluthafafundur væri haldinn í
félaginu í dag.
Samkvæmt heimildum Blaðsins
er forsaga málsins að í mars
síðastliðnum var hlutafé í Festingu
aukið um íoo milljónir króna, en
félagið á meðal annars húsnæði
Decode, Samskipa sem og allar
bensínstöðvar Essó. Með þessu var
hlutafé félagsins meira en tvöfaldað.
Deilur höfðu verið um málið innan
stjórnar félagsins sem enduðu með
því að meirihluti stjórnar tók
ákvörðun í andstöðu við
minnihlutann um hlutafjár-
aukninguna. Það var fyrirtækið
Lögbann sett á
hluthafafund
Angus, sem er í eigu Jóhanns
Halldórssonar, framkvæmdastjóra
Festingar, sem keypti hið nýja
hlutafé. Við þetta gat minnihluti
eigenda ekki sætt sig og fékk í vor
sett lögbann á að Jóhann gæti notað
atkvæðisrétt út á hið nýja hlutafé.
1 framhaldi boðaði minnihlutinn
til stjórnarfundar þar sem meðal
dagskrárliða var stjórnarkjör í
félaginu, en sá fundur átti að fara
fram í dag. Segja heimildarmenn
Blaðsins að með því hafi minnihluti
eigenda í Festingu, undir forystu
Ólafs Ólafssonar í Keri, ætlað að
mynda nýja stjórn þrátt fyrir að
hafa aðeins um 38% hlutafjár á baki
við sig.
Sýslumaðurinn í Reykjavik
komst hinsvegar að því í úrskurði
Mannabreyting-
ar hjá FL GROUP
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarstýringar og viðskipta-
þróunar hjá FL GROUP, hefur ákveð-
ið að láta af störfum hjá félaginu
þann 1. september. Hann mun þó
vera félaginu innan handar til ráð-
gjafar á sviði stefnumótunar. Þá
hefur Þorsteinn Örn Guðmundsson
verið ráðinn framkvæmdastjóri
stefnumótunar og viðskiptaþróun-
ar en meðal viðfangsefna sviðsins
eru stefnumótun samstæðunnar,
nýsköpun og viðskiptaþróun innan
sem utan fyrirtækisins. Þorsteinn
er ekki ókunnur félaginu en hann
hefur unnið þar í tæpt ár sem for-
stöðumaður viðskiptaþróunar. ■
Fœrri í greiðsluerfiðleikum nú en áður
Lítið má út af bregða
Eiginfjárstaða heimila hér á landi
breyttist mjög lítið á síðasta ári.
Svo virðist því sem nýtilkomin hús-
næðislán viðskiptabankanna, sem
gerði fólki kleift að taka húsnæð-
islán og nota hluta af þeim til ann-
arrar neyslu, hafi ekki leitt til verri
eignarfjárstöðu heimilanna eins og
óttast hafði verið. Þetta kemur fram
í Viðskiptablaðinu í gær. Margt
bendir til þess um þessar mundir að
fjárhagsleg staða heimilanna hafi
batnað. Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafastofu um fjármál
heimilanna, segir að þar á bæ hafi
starfsfólk orðið vart við þessa þróun.
Þeim hafi fækkað talsvert sem leita
til stofunnar og er staðan nú þannig
að einungis um viku bið er eftir við-
tali við ráðgjafa þar. Þegar mest var
að gera var hinsvegar löng bið eftir
slíkum viðtölum.
Ákveðin hættumerki
Ásta bendir á að talsverð hættu-
merki séu um þessar mundir. Skuld-
setning heimilanna hafi aukist mik-
ið að undanförnu, og þrátt fyrir að
ástandið sé gott um þessar mundir
sé spurning hvað gerist eftir 1 til 2
ár. Uppgangur sé í samfélaginu og
ástandið almennt gott, en oft megi
lítið út af að bregða. Hún segir að
stærsti hópur skuldara sé á milli þrí-
tugs og fertugs - oft fólk sem er ný-
lega komið úr námi, með börn og er
að kaupa fasteign. Þessi hópur þoli
illa skakkaföll og þannig hafi þeir
sem leita til stofunnar oft á tíðum
lent í veikindum eða misst vinnuna
og heimilið ráði ekki við tekjumissi
sem slíku fylgi. ■
Dalvegi 32, Kópavogi
Sími 564-2480
20% afsláttur af öðrum plöntum
Betri plöntur á góðu verði — Tilboð alla daga
sínum í gær að óleyfilegt væri að
fara í stjórnarkjör á sama tíma og
stærsti hluthafinn gæti ekki notað
atkvæðisrétt sinn. Slíkt hefði þýtt að
minnihluti hluthafa gæti notað fyrri
lögbannsúrskurð til að kollvarpa
sitjandi stjórn. ■
R-listinn kominn
á síðasta snúning
Fulltrúar viðræðunefnda R-lista eru
sammála um það að samkomulag
verði að nást í vikunni ef listinn á að
starfa áfram. I dag fundar viðræðu-
nefndin enn einu sinni en fundir
hennar eru orðnir hátt á annan
tug. Á maraþonfundi í fyrradag lá
við að upp úr slitnaði, en hugmynd
um opið prófkjör, þar sem valið
yrði milli þriggja aðila frá hverjum
flokki þótti grundvöllur til þess að
hittast aftur í dag. „Hugmyndir á
þessa vegu komu upp klukkan hálf
tvö í [fyrrijnótt skömmu áður en við
lukum fundi. Það sem okkur fannst
merkilegt í því var að Samfylkingin
væri hugsanlega að samþykkja jafn-
ræði sem hún hafði hafnað fram að
því“, segir Þorleifur Gunnlaugsson,
fulltrúi Vinstri-grænna í nefndinni.
Páll Halldórsson, fulltrúi Sam-
fylkingar, segir að ekki sé um eig-
inlega tillögu að ræða eins og fram
kom í fjölmiðlum. „Svona hugmynd-
ir verða til þess að menn verða að
sýna þeim þá virðingu að skoða
þær.“ Hann vildi ekki segja til um
það hvort Samfylkingin tæki vel í
hugmyndina eða ekki. „Við erum
að skoða þetta, finna fleti og aðrar
mögulegar útfærslur á þessu þessa
stundina."
Viðmælendur voru þó sammála
um að einhver niðurstaða þurfi að
komast á viðræðurnar. Vinstri-græn-
ir hafa boðað til félagsfundar á mánu-
daginn og segir Þorleifur að þangað
þurfi fulltrúar viðræðunefndarinn-
ar að koma með einhverjar upplýs-
ingar. „Þessar viðræður eru að
komast á endapunkt, þær geta ekki
staðið mikið lengur“, sagði fulltrúi
Samfylkingarinnar. ■
Vífilfell framleiöir þrjár
söluhæstu bjórtegundirnar
Áfengis og tóbaksverslun ríkisins
(ÁTVR) birti í gær lista yfir sölu-
hæstu tegundir rauðvíns, hvítvíns
og bjórs í verslunum sínum í júlí-
mánuði en sá mánuður er að jafnaði
söluhæsti sumarmánuður hvers árs.
Samkvæmt listanum eru söluhæstu
rauðvínin sem hér segir.
1. Concha y Toro Sunrise Cabernet
Sauvignon
2. E1 Coto Crianza
3. Concha y Toro Sunrise Merlot
4. Boomerang Bay Cabernet
Shiraz
5. Montecillo Crianza
Það vekur athygli að tvö af ofan-
nefndum vínum eru frá Chile og tvö
frá Spáni. Eitt þeirra er hinsvegar
frá Ástralíu.
Vinsælustu hvítvínin voru hins-
vegar sem hér segir:
1. Rosemount GTR
Sætinú SætiíJúní Bjórtegund
1 i Víking
2 2 Víking Lite
3 3 Thule
4 6 Tuborg
5 4 Egils Gull
6 7 Carlsberg
7 5 Faxe Premium
8 9 Tuborg Gold
9 10 Heineken
10 8 Egils Pilsner
2. Ars Vitis Riesling
3. Guntrum Riesling Royal Blue
4. Concha y Toro Sunrise Chard-
onnay
5. Jacob’s Creek Chardonnay
Á þessum lista er Ástralía og
Þýskaland með 2 vín hvort um sig.
Ekki vel valið
Að sögn Stefáns Guðjónssonar vín-
þjóns hjá smakkarinn.is eru þessar
sölutölur ákveðin vonbrigði.
„Það er greinilegt að fólk er að taka
verð fram yfir gæði,“ segir hann og
bendir ennfremur á að verið sé að
kaupa vín frá vinsælum löndum.
„Þetta eru allt ódýr og þægileg
vín. Hvað rauðvínin varðar gera
þau litla kröfu til manns og hvítvín-
in eru þurr, ekki öf kraftmikil og í
raun þægileg. Inn á milli eru þó vín
sem eru góð miðað við verð,“ segir
Stefán.
Danskur bjór vinsæll
Hvað bjórinn varðar þá getur
Vífilfell velsætt sig við niðurstöðuna
því bjór frá fyrirtækinu vermir þrjú
efstu sæti listans (Viking, Viking
Lite og Thule) eins og sést á meðfylgj -
andi töflu. f fjórða sæti kemur síðan
fyrsta erlenda bjórtegundin, en það
er mjöðurinn sem um helmingur
Dana drekkur, þ.e. Tuborg. Bjórinn
sem hinn helmingur Dana kýs, þ.e.
Carlsberg, er síðan í sjötta sæti. ■
0H»iðskirt 0U«*íf** ^Skýjaí 0 Alskýjað /,' Rignlng, litllstiáttar '//' Rlgning Súld * ^ Snjókoma O Slydda O Snjóél
Slydda \^J Snjóél \^j
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Parfs
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
18
26
18
20
21
16
17
19
22
26
31
21
25
26
18
24
17
12
25
24
16
16
10“
✓ /
11
18°
%
,P
12'
€f
0F
i-HÉ
Á morgun
9?
10°
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
öyflflt á upplýslngum Irá Veiuretolu Islands
11° "
f'
IV
/ /