blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 14

blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Rltstjóri: Ár og dagurehf. SigurðurG.Guðjónsson. Karl Garðarsson. LEIÐTOGALAUS BORG Líklega er það best ef það slitnar upp úr samstarfi Reykjavikurlistans í Reykjavík. Mikil þreytumerki eru á þessu samstarfi sem hangir saman á viljanum til að halda völdum - stjórna borginni. Málefnin eru aukaatriði svo framalega sem flokkarnir sem standa að R-listanum fá að sitja í fjögur ár í viðbót. Deilur um hver á að fá borgarstjórastólinn eru dæmigerðar fyrir það sem skiptir þessa aðila mestu máli. f nýjustu tillögunni er gert ráð fyrir að Reykvíkingar velji sér sjálfir borgarstjóraefni í prófkjöri. Þannig tilnefni hver flokkur þrjá frambjóðendur þar sem efsti maður verður borgarstjóraefni listans. í sjálfu sér er þetta ekki óvitlaus tillaga. Að minnsta kosti hafa borgarbúar þá eitthvað um það að segja hver sest í stól borgarstjóra en að það verði ekki geð- þóttaákvörðun stjórnmálamanna. Það er hins vegar annað og alvarlegra mál að R-listinn virðist vera í mikilli leiðtogakreppu. Enginn sjáanlegur leiðtogi er innan raða þeirra flokka sem standa að samstarfinu og það veit ekki á gott. Áður hefur verið leitað út fyrir raðir þeirra flokka sem standa að R-listanum og fundu menn Þórólf Árnason. Hann hrökklaðist frá í lok síðasta árs, en það breytir engu um það að Hklega væri þetta skásta leiðin. Þórólfur stóð sig vel í starfi, enda hafði hann víðtæka reynslu úr atvinnulífinu við rekstur og stjórnun - en það er þekk- ing sem skortir hjá mörgum sem telja sig sjálfkjörna í borgarstjóra- stólinn. Reykjavíkurborg er nefnilega lítið annað en stórt fyrirtæki og í flestu tilliti þarf að reka borgina sem slíka. Leiðtogavandræðin eru ekki bundin við R-listann. Sjálfstæðismenn eru í sömu vandræðunum. Margir efast um að Vilhjálmur Þ Vil- hjálmsson hafi það sem þarf til að sigra í borgarstjórnarkosningum og setja verður spurningamerki við Gísla Martein. Það er eitt að vera vinsæll í sjónvarpi - annað að fá atkvæði á kjörstað. Sjálfstæð- ismenn þurfa að hafa það í huga. Það má búast við spennandi kosningum að ári, hvernig sem fer hjá R-listanum. Nýjar kannanir um fylgi Sjálfstæðisflokks og R- lista segja lítið um framhaldið, það er einfaldlega of langur tími til kosninga. Það er hins vegar mikilvægt fyrir báða aðila að misstíga sig ekki á meðan menn eru á upphafsreit. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Innimálning Gljástig 3,7,20 / Verð frá kr. 298 pr.ltr. ^ Gæða málning áfrábæru veröi / Útimálning / Viðarvörn / Lakkmálning / Þakmálning / Gólfmálning / Gluggamálning "ÍSLANDS MÁLNING Sætúni 4/Sími 517 1500 14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2005 blaðiö Hommast á hálendinu - Gay Pride ogflokkarnir MEST VERÐLAUNAÐA FARTÖLVA SÖGUNNAR WWW.THINKPAD.IS Á hinsegin dögum í Reykjavik eða Gay Pride eins og það er oftast kallað vakti það athygli hve afdráttarlaus fé- Önundur Páll lagsmálaráðherra Ra9narsson var í ræðu sinni í Lækjargötu. Mörg- þúsund manns hlýddu á og fögnuðu vel. Skrúðgangan var nokkuð vel heppnuð, en tvímælalaust var Hommahniúkavirkjun besta hug- myndin. Áhorfendur hlógu mikið að því þegar Felix Bergsson kallaði í gjallarhorn “Virkjum hommana!” og “Við hommumst á hálendinu!” Það var alveg prýðilegt og minnti mjög á eftirminnilegt atriði úr Simp- sons þætti þar sem Homer fór með Bart son sinn í stáliðjuver til þess að sýna honum sanna karlmenn, en hann óttaðist mjög að sonurinn væri hommi. Það fyrsta sem gerðist í stál- iðjuverinu var að bjallan hringdi í kaffitíma og verkstjórinn sagði með rámri röddu “We work hard, and we play hard.” Þá tóku hin sönnu amer- ísku karlmenni til við að dansa við lagið “Everybody dance now.” og meðfylgjandi leysigeislasýningu. Þannig grín er ögrandi því að það kemur inn á svið sem má telja nokk- urs konar vígi karlmennskunnar ennþá og vekur jafnframt athygli á því að hin dæmigerða ímynd homm- ans er fáránleg. Þetta þýðir ekki að ef hommarnir fengju að ráða væru sko allir að hommast uppi á hálendi. Fyrr í sumar sagði við mig vélstjóri sem hefur verið lengi á sjó að hann hafi verið með mörgum hommum til sjós, og að þeir hefðu ekki verið neitt öðruvísi en aðrir sjómenn fyrir utan það að vera hommar. En það má segja um skipulag há- tíðarinnar að hún fór dálítið út um þúfur þegar niður í Lækjargötu var komið. Þar stóðu þúsundir manna og góndu út í loftið eftir að ræðu ráðherrans var lokið og misgóð skemmtiatriði tóku við. En það er ekki aðalmálið því þetta var vel heppnað sem viðburður í réttinda- baráttu. í kjölfarið hefur orðið umræða um stefnu flokkanna í málinu. Þeir virðast allir vera hlynntir því að rétt- ur samkynhneigðra verði gerður sá sami og réttur annarra, hvað varð- ar tæknifrjóvgun, ættleiðingu og hjónaband, nema Sjálfstæðisflokk- 99......................... Þannig grín er ögrandi því að það kemur inn á svið sem má telja nokkurs konar vígi karlmennskunnar ennþá og vekur jafn- framt athygli á því að hin dæmigerða ímynd hommans er fáránleg urinn sem ekki hefur tekið formlega afstöðu. Við leit á fjölsóttum Sjálfstæðis- netsíðum er til að mynda afar lítið að hafa með leitarorðum á borð við samkynhneigð(-a, -ir), hommi(-a, -ar) eða lesbía(-u, ur). Má þar til dæm- is nefna xd.is, heimasíðu dóms- og kirkjumálaráðherra Björns Bjarna- sonar bjorn.is, heimasíðu Einars K. Guðfinnssonar þingflokksfor- manns ekg.is o.fl. Það má til dæmis teljast nokkuð merkilegt að ekkert af framangreindum leitarorðum eða orðmyndum skilaði einni ein- ustu niðurstöðu á bjorn.is, og þó hef- ur ráðherrann þar tjáð sig um afar margvísleg málefni á þeim tíma sem síðan hefur verið starfrækt. Það seg- ir auðvitað ekkert um viðhorf hans til málefnisins, en gefur til kynna visst áhugaleysi. Það er helst á netsíðum sem ung- liðahreyfingin hefur yfir að ráða sem finna má skrif um þetta mál. Til dæmis er ljóst að Samband ungra sjálfstæðismanna er hlynnt fullum réttindum (http://sus.is/frett- ir/nr/561) samkynhneigðra, og að Heimdallur félag ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjavík er það einnig (http://frelsi.is/leit?SearchFor=sam- kynhneig%Foir). Þá kom það fram í Fréttablaðinu í gær að Bjarni Bene- diktsson þingmaður telur ekkert benda til þess að samkynhneigðir séu verri uppalendur en aðrir og seg- ir löngu tímabært að taka á þessum málum. Mögulega er þarna ákveðinn kyn- slóðamunur greinanlegur. Það var svo sem viðbúið, en allt bendir þó til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hallist frekar að frjálslyndum skoð- unum þegar kemur að málefnum samkynhneigðra en einhverjum afturhalds- og misréttissjónarmið- um. Það er auðvelt að sleppa þessum málaflokki ef maður þekkir engan sem er samkynhneigður og verður fyrir barðinu á misrétti, pæla bara ekki í því. En það er hins vegar ekki rétt. Ég hef fulla trú á því að forystu- menn Sjálfstæðisflokksins átti sig á því að samkynhneigðir eru eðlilegt fólk, eins og þeir sjálfir. Það þarf bara að staðfesta þá skoðun og drífa í að afnema misréttið. Önundur Páll Ragnarsson, laganemi Hinsegin þjóð? Ætla skal að miðað við áhorfenda- fjöldannáhinsegin dögum nú í ágúst sé homma og lesbíu faraldurinn stöðugtaðbreiðaúr sér á Islandi. Með dyggum stuðningi stjórnvalda við útbreiðslu sóttarinnar stefnir hratt í að ísland verði eitt mesta homma og lesbíu bæli jarðarinnar að San Fransisco meðtalinni. Munum við íslendingar þá eignast enn eitt heimsmetið og eru þau ærin fyrir og gerast sífellt heimskari. Árni Magnússon félagsmála- ráðherra steig í púltið í miðjum fíflalátum hinsegin daga og boðaði fagnaðarerindið líkt og sjálfur frelsarinn væri endurborinn. Lofaði hann samkynhneigðum þar meðal annars vígðri sambúð, ættleiðingum barna og tæknifrjóvgun, amen. Vil ég aðeins segja við homma og lesbíur að trúa ekki um of á bullið í ráðherranum því slíku sem þessu getur enginn lofað framhjá þingi og kirkju og veit ég að allflest okkar hinum eðlilegu finnst það fáránlegt að leyfa slikt nokkurn tíma. Sannleikurinn er sá að ráð- herrann er í örvæntingarfullum atkvæðaveiðum fyrir Framsóknar- flokkinn sem er flokkur opinn í báða enda og við það að gefa upp öndina. Ættleiðing barna inn í samfélag samkynhneigðra er þó alvarlegasta krafan. Ættleitt barn sem elst upp við daður og ástarleiki tveggja karla eða kvenna fær svo ekki sé meira sagt mjög óeðlilegt uppeldi sem auðvitað mun skemma barnið sem síðar kemur sjálft til með að breiða út óeðlið. Stjórnvöld hafa boðið kynlífsfræðingum í grunnskólana til að segja við börnin að það skipti ekki máli hvort farið sé heim með Siggu eða Sigga í ástarleiki, það sé jafn eðlilegt. Eru ekki skólayfirvöld sem boða börnunum slíkan boðskap stórhættuleg landi og þjóð. Aldrei hafa fleiri ungmenni en nú skráð sig inn í samtökin. Er það vegna þess að hommum og lesbium fjölgi svo ört? Nei, það er ekki ástæðan heldur er það fyrst og fremst forvitni unglinganna sem einmitt vaknar við fíflalegar uppákomurnar á götum úti. Er það ekki meiningin með öllu saman? Allt sem er öðruvísi er vissulega forvitnilegt þó að það sé ekki að sama skapi eðlilegt né skynsamlegt. Við homma og lesbíur vil ég segja þetta að lokum: Hættið að rugla börnin okkar í ríminu jafn lymskulega og raun ber vitni. Hættið líka að segja við heiminn að þið séuð eitthvað annað en óeðlileg. Farið aftur inn í skápinn og lifið ykkar kynlífi í friði og fjarlægið frá okkur hinum og lokið vel á eftir ykkur. Fordómana hafið þið sjálf skapað. Jóhann L. Helgason Jóhann L. Helqason www.sumarferdir.is 575 1515^ BÓKAÐU ALLAN SÓLARHRINGINN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.