blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 20

blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 20
20 I MATUR FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 2005 blaðið * é Ragga Ömars MATREIÐSLUMEISTARA Á þessum tíma eru íslenskir villisvepp- ir farnir að spretta upp og er fátt betra en steiktir, nýir villisveppir. Ég var einmitt að fá sendingu fyrir fáeinum dögum, nýtínda lerkisveppi frá Hall- ormsstað fyrir austan. Ég skellti þeim beint á matseðilinn hjá mér og ekki að spyrja að því, þeir renna út. Enn ef þið komist yfir svona gullmola þá þarf að fara svolítið varlega með þá. Til að byrja með þarf að hreinsa þá vel og geyma þá inni í kæli undir klút eða dagblaði því dagsbirta fer illa með þá. Villisveppir eru langbestir snöggsteikt- ir á vel heitri pönnu í smá olíu og bæta síðan smjörklípu á pönnuna með salti og pipar. Einfalt en algjörlega skothelt. Svona sveppir eru góðir með öllum mat, s.s.fiski, kjöti, pasta og síðast en ekki síst „risotto" en það er einmitt uppskriftin sem fylgir með í dag. Þeg- ar risotto er lagað þarf til að byrja á að vera með réttu grjónin því það er ekki hægt að laga risotto með hvaða grjónum sem er. Algengustu grjónin sem hægt er að fá hérna heima heita Arborio-grjón og fást í öllum betri verslunum. Aðferð: Skolið grjónin vel undir köldu vatni í sigti þar til vatnið verð- ur glært undan sigtinu. Þá er fínt sax- aður laukur léttsvitaður upp úr smá smjöri í heitum potti og grjónunum bætt út í. Síðan er kjúklingasoði bætt út í í litlum skömmtum og látið sjóða niður þar til það er nánast horfið og grjónin orðin soðin en samt með smá biti f „al dennte.“ Þá er nauðsynlegt að vera með mascarpone-rjómaost og nýrifinn parmesanost. Þannig að þetta er grunnur í alvöru RISOTTO. Svo er hægt að bæta hverju sem er út í en við ætíum að setja fullt af íslensk- um villisveppum og bera þetta fram sem forrétt eða meðlæti með aðalrétti. Kveðja Raggi. Blaðið/SteinarHugi Risotto með íslenskum villisveppum og gras- lauk-(Fyrir fjóra) Fjórir hnefafyllir arboriogrjón í stk skarlottulaukur (fínt sax- aður) 5 dl kjúklinasoð(eða teningur leystur uppí vatni) 2 msk mascarpone ostur 4 msk parmasanostur(rifinn fínt) 150 gr íslenskir villisvepp- ir(lerkisveppir,kúalubbar,kant- arellur) 1 msk smjör Salt og pipar Aðferðinni er lýst hérna á síðunni. Blaðið kynnir: Framleiðandi ársins í USA Delicato White Zinfandel Blush. Delicato - Californía - USA. Fallega þykkt og bleikt, hefur magnaðan jarðaberja- og kiwi keim, sem endist út vínið. Einkennist af sætu sem gefur því suðræna stemningu. Það er vel þess virði að prófa vínið með bleikju eða léttum laxaréttum. Vínið er einn besti kosturinn fyrir mannfagnaði og með pinnamat eins og tapasróttum. Drekkist kalt! Ómissandi í útileguna eða sumarbústaðinn. deli verð: 990,- Besta Shiraz vínið í Kaliforníu, fjórða árið í röð >ELI Delicato fjölskyldan er einn af elstu vínframleiðendum í Kailiforníu. Sykileyingurinn Gasparé Indelicato stofnaði fyrirtækið Delicato í Kaliforníu árið 1935. Undir stjóm þriggja sona hans, Tony, Frank og Vince, hefur fyrirtækið tekið stórstígum framförum og vakið verðskuldaða athygli fyrir framleiðslu sína undanfarin ár. Fyrirtækinu hlotnaðist sá heiður að vera kosið vínframleiðandi ársins 2003 í Kaliforníu. þetta er sérstakur heiður, þar sem framleiðendur Kaliforníu kjósa hann úr sínum röðum. Eins má geta þess að hinn virti vínrýnir, Robert Parker sá ástæðu til að taka sérstaklegafram að Delicato vínin væru góð viðbót við gæðavínflóru Kalifomíu. Delicato Shiraz er dumbrautt, með angan af grænum pipar og lakkrís. Afar góð fylling. Það er með kraftmiklu bragði með keim af leðri og í löngu eftirbragðinu kemurfram bragð af bláberjum og vanillu. Margverðlaunað vín. Vínið er kjörið með grillmat og piparsósa á eintaklega vel með. Vínið er einnig afar gott með þroskuðum ostum. verð: 1220,- Vín frá Ástralíu Aströlsk vín eru að vinna sér inn góðan og traustan aðdá- endahóp fólks hér á landi, sem er engin furða þegar hugað er að því hvað vínið getur verið gott miðað við verðið. Ástralía er hinum megin á hnettinum sem þýðir að þegar það er sumar hér, þá er vetur þar. Bestu vínsvæðin í Ástralíu hafa mjög svipuð loftslagseinkenni og Bordeaux og Burgundy. Hins vegar er loftslagið í Ástralíu stöðugra en i Frakklandi sem þýðir að þaðan kem- ur sjaldan slæmur árgangur. Helstu vínþrúgur Ástralíu eru til dæmis Shiraz, Merlot og Cabernet Sauvign- on i rauðu en Chardonnay og Ries- ling í hvítu. Vínhéruð Ástralíu. í Ástralíu eru helstu vínhéruðin New-South Wales, Viktoría og Tas- mania, Suður Ástralía, Vestur Ástr- alía, Queensland og Northern Ter- ritories. Hér verður sagt frá helstu vínsvæðum. New South Wales: Árið 1788 var fyrsti vínviðurinn ræktaður af Arthur Phillips í New South Wales. Þekktasta svæðið þar er Hunter dalurinn. Shiraz (Syrah) vínþrúgan ræður helst ríkjum þar, þó að Cabernet Sauvignon og Pinot Noir séu farin að gefa vel af sér und- anfarið. New South Wales er heim- kynni margra af frægustu vínfram- leiðendum í Ástralíu. Suður Ástralía: Án efa frægasta vínhéraðið í Ástral- íu, helstu svæðin eru Barossa dalur- inn, Mclaren Vale og Clare dalurinn. mrésMW* Þýskir innflytjendur byrjuðu að búa til vín hér fyrst og tilraunir þeirra með hvit- og rauðvínsframleiðslu ;engu svo vel að fljótlega var Suður stralía talið besta héraðið til vín- ræktunar í Ástralíu. Viktoría og Tasmania: Hafa flest vínsvæðin í Ástralíu og frægasta svæðið er Rutherglen. Lofts- lagið og jarðvegurinn í Rutherglen gerir vínið þar mjög kröftugt, og besta vínþrúgan sem er ræktuð þar er Shiraz. Hin héruðin Vestur Ástralía, Que- ensland og Northern Territories eru ekki eins vel þekkt og selja mest af vínframleiðslunni á heimamarkaði. WWW.SMAKKAR.INN.IS Dieter Roth- Hans Dalh - lestu þetta. Hef til sölu málverk eftir Dieter Roth sem né er orðinn gífurlega vinsæll og verðmikill í Evrópu og vaxandi í Ameríku. Sennilega eina málverkið sem ertil sölu á frjálsum markaði í heiminum í dag. Eitthvað er til af bókarskreytingum og öðrum teikningum á markaðnum en ekkert málverk. Til sýnis og sölu hjá Fyrirtækjasölunni í Suðurveri á venjulegum skrifstofutíma. Verkið er afstrakt, hreint Geometrik verk, signerað af honum sjálfum og á mjög sérstaka og kunnuga sögu. Frábær fjárfesting og vaxandi. Tilboð óskast. Upplýsingar ekki gefnar í síma aðeins á staðnum. Á sama stað er til fallegt verk eftir hinn heimsfræga norska málara Hans Dalh sem dó 1937.Verkið hefur verið á íslandi yfir 60 ár í eigu sömu fjölskyldunnar. Fyrirtækjasalan Suðurveri.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.