blaðið - 11.08.2005, Blaðsíða 30
30 i róuc
SMÁboraarinn
BANKARNIR LOKKA
BÖRNIN TIL SÍN
Smáborgarinn er óþreytandi að
ræða bankakerfið hér á landi - ger-
ir það við öll tækifæri sem bjóðast,
hvort sem það er jólaboð, ferm-
ingarveisla eða í heita pottinum.
Smáborgarinn er nefnilega á þeirri
skoðun að bankakerfið á íslandi sé
ekkert sérstaklega gott - bankarn-
ir skila gríðarlegum hagnaði en
sjá aldrei ástæðu til að verðlauna
viðskiptavini sína, allavega ekki þá
sem eiga ekki tugi millj óna á banka-
reikningum sínum. Reyndar buðu
þeir viðskiptavinum sínum upp á
ódýr húsnæðislán á dögunum, en
Smáborgarinn er þess fullviss að
ástæðan hafi frekar verið að múl-
binda viðskiptavini hjá ákveðnum
banka, frekar en að um verulega
kjarabót fyrir neytendur hafi verið
að ræða.
Smáborgarinn erlíka mjög ósátt-
ur við þá tilhneigingu bankanna
að reyna að lokka sífellt yngri börn
til viðskipta við sig. Hann horfði
með hryllingi á það þegar bankarn-
ir fóru að senda fermingarbörnum
gylliboð um iPod spilara í verð-
laun og frábær kjör, ef gjafafé ætt-
ingja yrði aðeins geymt hjá þeim.
Ennfremur hafa auglýsingar um
að sumarhýran af snattinu í vinnu-
skólanum sé best geymd í þessari
fjármálastofnunni eða hinni í
sumar vakið sterk viðbrögð. Smá-
borgarinn gerir sér nefnilega grein
fyrir því að íslendingar skipta
sjaldnar um banka en maka, og
veit að það er til mikils að vinna
fyrir bankana að lokka viðskipta-
vini til sín áður en þeir ná að fara
eitthvað annað - en veltir því fyrir
sér hvort ekki sé of langt gengið.
Það sem vekur hinsvegar mesta
reiði smáborgarans er framgangur
bankanna þegar skólar hefjast á
haustin. Þá arka jakkafataklæddir
karlar og konur í dröktum í skólana
og setja þar upp bása. Þar eru ung-
mennum kynnt frábær þjónusta
bankans - fartölvulán, skólabóka-
lán, framfærslulán og örugglega
líka sælgætislán og brennivínslán.
Allt þetta á frábærum kjörum með
það að markmiði að múlbinda þau
til framtíðar hjá bankanum, þ.e.
þá fáu sem völdu sér ekki banka
við fermingu eða þegar að Vinnu-
skólinn hófs.
Kreditkortafyrirtækin eru lítið
skárri. Smáborgarinn man nefni-
lega eftir sögu sem hann heyrði.
Ung stúlka mætti í skólann og hitti
þar fyrir starfsmann eins kortafyr-
irtækis. Sá hafði látið hana hafa
glænýtt kreditkort fyrir það eitt að
skrifa nafnið sitt. Hún hafði farið
á rúntinn, vopnuð kortinu, keypt
fartölvu, föt og nammi - enda ekk-
ert annað að gera þegar maður á
svona fínt kort.
Þegar reikningurinn barst var
hann heldur hærri en búist var við
og unga stúlkan fór miður sín til
foreldra sinna. Þeir áttu ekki millj-
ónir á bankareikningi - áttu eins
og svo mörg okkar nóg með dag-
legan rekstur, og gátu ekki borgað
fyrir dóttur sína. Hún lærði sína
lexíu - þurfti að hætta í skóla til
að borga visareikninginn. Stúlkan
vinnur nú í sjoppu og er búin að
greiða sína skuld. Ætlar í skóla nú
í haust og mun klárlega vara sig á
útsendurum banka og kortafyrir-
tækja.
SU DOKU
talnaþraut
Lausn á 27.
gátu verður að
finna i
blaðinu á
morgun.
27. gata
6 4 5 9 3
7
3 6 8 4
5 3 9
1 3 7 2
4 2 9
2 4 8 9
5
5 9 4 1
Lausn á 26. gátu
lausn á 25. gátu
4 1 5 61 2 7 8 3
6 '7| 3 5 9 8 4 2 1
8 ll 3 1 4 6 7 5
3 • 9 6 8 7 5 2 1 4
5 4 |2 1 3 6 7 8 9
7 8 1 2 4 9 3 5 6
1 3 8 9 6 2 5 4 7
9 5 ! 7 4 3 1 6 2
2 É 4 7 5 1 9 3 8
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
í þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera i miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
PTMMTTTnflHTTP 11 flfjTTQT 9nOR HlaAiA
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
VÖKVAÞOLIÐ
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Þú ert íjarlægari í dag en J?ú ert venjulega en
það gerir það að verkum að þu sérð verkefni þín í
skýrara ljósi sem leiðir til breytinga.
V Þú ert í góðu jafnvæei þessa daeana oe það
virðist allt ganga upp hjá pér. Þú átt pað fyflilega
skilið.
Lindsay: Kate er
tiskufýrirmyndin min
Lindsay Lohan segir að Kate Moss
sé tískufyrirmynd sín og að hún
dýrki fötin sem að hún klæðist. „Ég
hef verið að lesa mér aðeins til um
tískuheiminn. Kate Moss er tísku-
fyrirmynd mín. Hún lítur mjög
vel út. Hún fer í eitthvað sem tekur
marga klukkutíma að setja saman
en það virðist ekki vera mikið mál
hjá henni. Hún er “bóhó” gella, sem
er mjög í tísku núna,“ segir Lindsay.
Einnig sagði hún að Jennifer Ani-
ston væri mjög ofarlega á lista sín-
um yfir fyrirmyndir. ■
Catherine og
Michael í golfþœtti
Catherine Zeta-Jo-
nesogmaður
hennar, Mi-
chael Dou-
glas, hafa
samþykkt
að koma
fram í þættin-
um Ryder Cup,
sem heitir í höf-
uðið á frægu golf-
móti milli Banda-
ríkjanna og Evrópu.
I þessum tiltekna
golfþætti munu tvö lið
keppa um sigur, en að
þessu sinni mun eingöngu
frægt fólk keppa. Michael
og Catherine verða í sitt-
hvoru liðinu, og þar sem
Michael er bandarískur
verður hann í liði með
Mark O'Meara, Sylvest-
er Stallone,
Kyle McLac-
hlan, Hal-
ey Joel Os-
ment, Rob
Lowe og
Kenny G, á
meðan að
Catherine
verður í evr-
ópska liðinu
með Chris Ev-
ans, Gavin Hen-
son, Jodie Keet,
Ronan Keating
og James Nes-
bitt. Ryder Cup
verður sýndur á
sjónvarpsstöðinni
Sky í Bretlandi, og
mun keppnin fara
fram í Suður Wales
í ágúst. ■
Madonna
vinnur meo
Andre 3000
Að undanförnu hefur Madonna
verið að vinna með söngvaranum
þekkta úr Outkast, Andre 3000, við
upptökur á lagi sem verður á nýju
plötu hennar sem kemur út í nóv-
ember og nefnist Confessions on a
Dancefloor. Munu þau hafa hist í
kvikmyndaveri þar sem eiginmaður
Madonnu, Guy Richie var að leika
með André í kvikmynd. „Madonna
kom á svæðið og gerði mig mjög
óstyrkan. Hún gekk fyrir hornið og
ég gleymdi öllum línunum mínum.
Hún spurði mig hvað mér fyndist
um tónlist og hvert hún væri að
stefna. Síðan töluðum við um eitt-
hvað á nýju plötunni hennar," segir
Andre 3000.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Þú virðist vera óviss um hvert ferill þinn stefn-
ir og því er frábær tími til að íhuga breytingar.
V Þú ert tilfinninganæm/ur í dag og varla við
öðru að búast. En eKki hafa áhyggjur. Þetta líður
hjá.
OFiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Ekki láta notfæra þig einungis vegna óvissu
þinnar. Það verður ekki auðvelt en þú hefur styrk-
rnn til að segja nei við þá sem eru ao nota þig.
V Stattu með sjálfri/sjálfum þér ef það er ein-
hver sem er að nota þig. Þú hefur orku sem kemur
öðrum á óvart þegar þú notar hana.
Hrútur
(21.mars-19. apríl)
$ Það gengur meira á en sést á yfirborðinu svo
þú skalt vera viðbúin/n að skoða það vandlega.
Jafnvel lítilvægustu atvik dagsins gætu í raun verið
mikilvæg.
V Stundum ertu niðurdregin/n og vilt bara alls
ekki fara út. Sem betur fer áttu góða að sem skilja
þig-
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Það er heilmikið tilfmningaumrót í vinnunni
í dag svo þú skalt fara varlega og láta aðra taka
stjórnina.
Tilfmningar þínar gætu tekið völdin og þú
blaðrað einhverju sem pú ætlar að halda leyndu
um tíma. Reyndu að gæta að þér.
©Tvíburar
(21. maí-21.júní)
$ Það er nóg um að vera á vinnustaðnum þín-
um og það kemur senn sá tími þegar þú þarft að
taka áKvörðun. Frestaðu henni ef þu mögulega get-
ur, það er ýmislegt annað sem liggur á.
V Andaðu djúpt að þér, farðu í ióga eða ræktina.
Hvað svo sem þú þarft til að slaka á og losa um
neikvæðar tilfmningar. Þú verður að geta einbeitt
þér þessa dagana.
®Krabbi
(22. júní-22. júlí)
$ Frestaðu öllum ákvörðunum sem þú þarft að
taka í dag þar sem þú ert ffekar illa stemmd/ur.
Það kemur alltaf dagur eftir þennan dag.
V Ástin flggur í loftinu en hún lætur samt
bíða eftir sér En vertu viss um að hún kem-
ur fljótlega og jafnvel í líki andstæðings.
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Skoðaðu vel málefnin sem liggja fyrir. Það er
ansi margt sem þú þarft að læra og þú ert einmitt
í réttu hugarástandi til þess.
V Hugur þinn er tær og ætti því að vera í sam-
bandi við þarfir þínar og vina pinna. Og þér að
segja þá er ein persóna sem þarfnast mein nálægð-
arírápér.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Þú ert óvenju forvitin/n og eina leiðin til að
svala henni er að rannsaka. Þær staðreyndir sem
þú finnur munu aðstoða þig við að finna nýjar
aætlanir.
V Þú ert eirðarlaus ogheili þinn þarfnast örvunar.
Finndu einhverja góða og krefjandi bók til að lesa.
Vog
(23. september-23. október)
$ Það er kominn tími til að breyta því hvernig
þú stundar viðskipti þín. Þú hefur verið að hugsa
umþað í einhvern tíma og nú er tími til að stökkva
í djupu laugina.
V Auðvitað eru eipir ekki allt en þér Hkar við
það sem þú átt og þu passar vel upp á_það. Mundu
eftir að koma þannig fram við folkio í lífi þínu
líka.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
3 Þú veist nákvæmlega hvað þú átt að gera og
hvernig þú átt að gera það, að minnsta kosti þeg-
ar viðkemur viðskiptavmum og starfsfélögum. Þu
gerir allt rétt..
V Þú skilur aðstæðurnar nákvæmlega
og þú veist hvað þú þarft að gera til að fá
það sem þú vilt. Ekki hika við að gera það..
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Þú vinnur á hægum hraða í dag en ekki gefast
algjörlega upp. Haltu áffam að vinna þar til aagur-
inn er búinn.
V Þú hefur nýia sýn á lífið og hugsar á veraldleg-
um nótum. Þú skilur betur aðiitlu nlutirnir skipta
svo litlu máli.