blaðið - 12.08.2005, Síða 2

blaðið - 12.08.2005, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 blaöiö Við leitum að skemmtilegu fólki. Tökum daglega við umsóknum. Vilt þú vinna á KFC ? Leitað að kajakræðara Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF var kölluð út um tvöleytið í gærdag til að leita að erlendum kajakræð- ara. Maðurinn, sem var einn á ferði, hafði keypt veiðileyfi í Þingvalla- vatni, en þegar bíll hans hafði stað- ið yfirgefinn í talsverðan tíma var hafin leit að honum. Bæði björgun- arsveitir og lögreglan á Selfossi tóku þátt í leitinni ásamt þyrlunni. Mað- urinn fannst heill á húfi um klukk- an þrjú. 82% stjóm- enda fá hlunnindi: Veruleg aukning á hlunnindum Mikill meirihluti stjórnenda 1 fyr- irtækjum fá hlunnindi í starfi sínu, 58% skrifstofufólks og 64% sölu- og af- greiðslufólks, samkvæmt niðurstöð- um launakönnunar Verslunarmanna- félags Reykjavíkur. Þetta er veruleg aukning frá því í fyrra. f könnuninni var spurt hvaða hlunnindi fólk fengi sem hluta launakjara. Svarendur höfðu nokkra valmöguleika, þ.á m. engin hlunnindi. f fyrra sögðust 57% engin hlunnindi fá en það hlutfall hrapaði i 30% í ár. Sjö af hverjum tíu félagsmönnum VR fá þannig hlunn- indi sem hluta launakjara. Karlar eru líklegri til þess að fá hlunnindi heldur en konur, 75% á móti 66%. Þessi munur er þó minni en í fyrra en þá fengu 52% karla hlunnindi á móti 37% kvenna. Lik- amsræktarstyrkir, gsm sími og greiddur simakostnaður eru ofarlega á blaði en einnig fá margir afslætti af ýmsu tagi. BlaÖiÖ/SteinarHugi R-lista samstarfið í uppnámi Viðræðum slitið Boltinn hjá félagsmönnum flokkanna Viðræðunefnd stjórnmálaflokk- anna sem koma að R-listanum hefur lokið störfum sínum án þess að komast að niðurstöðu. Samkvæmt heimildum Blaðsins var það einkum ágreiningur milli Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna um ákveðna þætti samstarfsins sem ekki náðist samkomulag um. Á fundi nefndarinnar í gær mætti Samfylkingin með tillögu þar sem gert var ráð fyrir prófkjöri sem opið væri stuðningsmönnum R-lista. Þá yrði kosið í tíu sæti þar sem tryggt yrði að hver flokkur fengi einn fulltrúa í sæti 1-3 og einn fulltrúa í sæti 4-6.1 sæti 7-8 veljast þeir sem flest atkvæði fá í þessi sæti en sæti 9-10 fái þeir sem næstir koma að atkvæðatölum í heildina. Þó yrði þetta þannig að allir flokkarnir þrír fengju a.m.k. þrjú af tíu efstu sætunum. 1 yfirlýsingu frá VG segir að frá upphafi hafi fulltrúar flokk- sins lagt áherslu á jafna og sjálfstæða afkomu flokkanna að framboðinu en um þá grundvallarforsendu hafi ekki náðst samkomulag. Viðræðurnar hafa gengið upp og ofan en samkvæmt heimildum JÉ.D jTCjHILI Vegna ört vaxandi vinsælda vantar okkur starfsfólk í sal. í boði er starf á stað með ánægðum kúnnum og léttum anda. Vaktavinna eða Dagvinna. Upplýsingar í s:6601855 www.redchili.is R.ÉD CHIM heitur og seiðandi Viðskiptakort einstaklinga Nánari upplýsingar í sima: 591 3100 ATLANTSOLIA Atlantxolia • Vesturvðr 29 • 200 Kðpavogur - Slml 591-3100 - atlanbollaOatlantsolia.U var lítill grundvöllur fyrir frekari umræður. Svo virðist sem Samfylkingin hafi í upphafi sett of háar kröfur en í lokin hafi Vinstri- grænir gert slikt hið sama þegar Samfylkingin hafi leitað sátta. Enn er ekki útilokað að flokkarnir bjóði fram undir merkjum R-lista. Nú munu fulltrúar viðræðunefndarinnar fara með tillögur sínar fyrir félagsmenn flokkanna og þeir úrskurða um þær. Þó voru viðmælendur Blaðsins ekki mjög bjartsýnir á framhaldið. Auglýsingar í Bandaríkjunum höfða til sífelltyngri harna Ástæða er til að hafa áhyggjur Seljendur varnings hafa í auknum mæli beint sjónum sínum að börn- um og unglingum á síðustu árum og áratugum, og er nú svo komið að í Bandaríkjunum er markaðsfólk far- ið að sýna börnum allt niður á leik- skólaaldur áhuga. „Við sjáum sömu þróun hér á landi, þó hún sé ekki komin jafn langt, “ segir Brynhildur Pétursdóttir hjá Neytendasamtökunum. I grein sem birtist á heimasíðu samtakanna í gær segir að seljend- ur meti stöðuna þannig að börn séu ómótuð og því fyrr sem hægt sé að skapa hjá þeim viðskiptavild, því betra. Ennfremur að sölufólk sé fyrir löngu hætt að eyða orku og peningum í foreldrana til að ná til barnanna. Skilaboðin beinist fyrst og fremst að börnunum því mark- aðsfólkið treysti á svokölluð „nöld- uráhrif11, þ.e. að börnin muni sjá um að sannfæra foreldrana um að kaupa það sem þau langi í. Erlendar markaðsherferð- ir notaðar hér á landi Brynhildur segir að full ástæða sé til að hafa áhyggjur af þessu hér á landi. Hún segir að vísbendingar séu um að íslensk fyrirtæki hafi gert sérgreinfyrirþessumhlutum. Iþví sambandi bendir hún meðal annars á banka og kreditkortafyrirtæki sem nú beini sjónum sínum í sífellt BlaöiO/SteinarHugi Markaðsfólk er farið að sýna börnum nið- ur á leikskólaaldur áhuga. meira mæli á að markaðssetja sig hjá börnum og unglingum sem var algerlega óþekkt áður fyrr. „Ég held samt að Islendingar séu með hærri þolmörk en Bandaríkja- menn. Ég man eftir dæmum þar sem reynt var að markaðssetja vörur í grunnskólunum þar sem foreldrar mótmæltu. Þetta þótti einfaldlega ekki viðeigandi,“ segir Brynhildur. Sköpum samfélagið sjálf í Bandaríkjunum ráða markaðs- stofur til sín sálfræðinga, félags- fræðinga og mannfræðinga til að rannsaka atferli barna með það að markmiði að skilja betur hvernig best er að selja þeim vörur. Brynhild- ur segir að nauðsynlegt sé að vera vakandi fyrir þessari þróun. „Það er eðlilegt að fólk staldri við og spyrji sig hvaða áhrif auglýsingar og mark- aðsmennska hafi á börn“. Skerjafjarðarslysið Flugvélin átti aldrei að vera í notkun „Eftir rannsókn sérstakrar Rann- sóknarnefndar flugslysa (sRNF) þarf ekki nokkur maður að velkjast lengur í vafa um að flugvélin TF- GTI hafi ekki átt að fá skráningar- og lofthæfniskírteini á sínum tíma“. Þetta segja aðstandendur tveggja fórnarlamba flugslyssins í Skerja- firði 7. ágúst 2000 í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í gær. Þar segir ennfremur að sRNF telji þó að þessi staðreynd hafi engan þátt átt í flug- slysinu. Um þetta segir í yfirlýsing- unni. „Fyrir okkur sem misstum kæra ástvini í flugslysinu lítur málið öðru vísi út. Án þessara pappíra hefði flug- vélin einfaldlega ekki verið í umferð umræddan dag“. Það eru þeir Friðrik Þór Guð- mundsson og Jón Ólafur Skarphéð- insson sem skrifa undir yfirlýsing- una. Þar segir ennfremur. „I gagnrýni okkar vegna flugslyss- ins í Skerjafirði 7. ágúst árið 2000 og rannsóknar þess, hefur það ávallt verið leiðarljósið að komast sem næst sannleikanum um hvað það var sem raunverulega gerðist þetta örlagaríka kvöld og í aðdraganda þess“. Rannsóknarnefnd flugslysa rann- sakaði tildrög slyssins upphaflega. Aðstandendur voru ekki sáttir við niðurstöðu nefndarinnar og fengu óháða breska sérfræðinga til að fara yfir hana og gera nýja skýrslu. Að lokum skipaði samgönguráðherra sérstaka Rannsóknarnefnd flug- slysa (sRNF) sem skilaði niðurstöðu fyrir skemmstu. Fjölmörgu hefur verið breytt hjá Flugmálastjórn Aðstandendur hafa þannig allt fram til dagsins í dag unnið hörðum hönd- um að þvl að upplýsa nákvæmlega hvað olli slysinu. „Besti mælikvarðinn á það hvort barátta okkar hafi átt rétt á sér og skilað árangri, er að finna í þeim fjölmörgu tillögum til úrbóta sem séð hafa dagsins Ijós eftir að Rann- sóknarnefnd flugslysa komst að sinni niðurstöðu í mars árið 2001. Þótt Flugmálastjórn hafi aldrei við- urkennt opinberlega að nokkuð hafi verið að hjá þeim, höfum við fyrir satt að fjölmörgu hafi verið breytt í starfsemi stofnunarinnar í kjölfar gagnrýni okkar,“ segir ennfremur í yfirlýsingu aðstandenda. o Heiðskírt 0 Léttskýjað ^ Skýjað Q Alskýjað ✓ Rigning, lítilsháttar Rigning 9 9 Súld ífc *T* Snjókoma 9 ífc * ^j Slydda Snjóél s^J Skúr Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 17 28 17 22 19 17 18 18 19 30 30 19 26 26 18 22 18 11 22 26 19 15 9° P tfi 11° ✓ / 10° 12°^ iPW s® 14 0 P /; # • Á morgun ♦Œir 8°w 9° / / s / , Veðurhorfur i dag kl: 18.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands 14° 0 \V' 12' / / /

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.