blaðið - 12.08.2005, Page 4

blaðið - 12.08.2005, Page 4
www.icelandair.is/glasgow Flug og gisting í tvær nætur Verð á mann í tvíbýli á Jurys Inn Glasgow 16,-18. des., 13.-15. jan., 27.-29. jan. og 10.-12. mars. Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Hafið samband við söluskrifstofur lcelandair eða við Fjarsölu lcelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16). Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og ™°**+-**m «—* lcelandair notað 10.000 Vildarpunkta t* ... ~ Í£22S«Í sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið. ICELANDAIR www.icelandair.is út í heim 4 I INNLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 blaAÍA Bankarnir gefa ekki upp í hverju kostnaður liggur Tekjur af færslugjöldum um milljarður á ári Bíóí Grafarvogi Áform um að byggja nýtt bíóhús við Egilshöllina kom á borð borgarráðs í gær, en eigi áformin að ganga eífir kallar það á þá breytingu á aðalskipu- lagi Reykjavíkur að bygginga- svæði í kringum mannvirkið verði stækkað. Borgarráð hefur samþykkt að auglýsa breyting- una og þá gefst íbúum kostur á að kynna sér hana nánar. Viðbó tarlífeyriskerfið Veltir millj- örðum Islendingar settu um 7,6 milljarða króna í viðbótarlíf- eyrissparnað á síðasta ári og er það rúmlega 12% hærri fjárhæð en árið á undan. Yfir helmingur þeirra sem eru á vinnumarkaði eru með viðbót- arlífeyrissparnað og fjölgaði þeim um rúm 8% milli ára. Enn fremur eru þeir sem spara með þessum hætti með heldur lægri tekjur en þeir sem ekki gera slíkt. Þetta er sagt benda til þess að þeir sem yngri eru séu frekar með viðbótarlífeyris- sparnað en hinir eldri. „Bendir það til þess að þeir séu heldur yngri en meðaltalið enda fara tekjur almennt hækkandi með aldri langt fram eftir starfsæ- vinni. Aukinn fjöldi launþega telur skynsamlegt að eiga von á meiri ráðstöfunartekjum þegar þeir hætta störfum en almennu lífeyrissjóðirnir og almannatryggingarkerfið, munu bjóða þeim“ segir í Vefriti Fjármálaráðuneytisins. íslendingar straujuðu debetkortin sín rúmlega 27,5 milljón sinnum á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt upplýsingum í Hagtölum Seðlabanka Islands og eyddu að meðaltali rúmlega 7.500 krónum í hvert skipti. Það þýðir að heildarvelta debetkorta á tímabilinu var um 206 milljarðar króna. Samkvæmt útreikningum Blaðsins má gera ráð fyrir að tekjur bankanna af færslugjöldum debetkorta á einstaklinga hafi numið um 275 milljónum á tfmabilinu og ef gert er ráð fyrir að debetkortin verði jafn mikið notuð síðari hluta ársins og þann fyrri, má gera ráð fyrir að tekjur bankanna af þessum gjaldalið nemi um 500 milljónum króna á ári. í útreikningnum var gert ráð fyrir að meðal færslugjald væri 12,5 krónur og að 20% allra færslna væru ókeypis. Ef tekið er inn í reikninginn að þeir aðilar sem taka við debetkortum þurfa einnig að greiða gjald, færslugjald, mágeraráð fyrir að heildartekjur bankanna af færslugjöldum debetkorta nemi um milljarði á hverju ári. Kostnaður trúnaðarmál Samkvæmt upplýsingum frá bönkunum eru umrædd gjöld notuð til að dekka þann kostnað sem fellur til af greiðslukerfinu sem haldið er úti, og að ekki væri um tekjustofn fyrir bankana að ræða. Blaðið sendi því öllum bönkunum, sem og Sparisjóðunum, fyrirspurn u m hversu mikill þessi kostnaður væri og í hverju hann fælist. Ekkert svar barst frá Sparisjóðunum og hinir bankarnir neituðu að gefa þetta upp og vísuðu þar meðal annars til þess að þetta væri „trúnaðarmál vegna samkeppnisstöðu1. Börn með fríar færslur? í framhaldi af umfjöllun Blaðsins um kostnað ungmenna af færslugjöldum höfðu nokkrir bankar samband og bentu á að engin færslugjöld væru tekin af 16 ára einstaklingum og yngri. Þó virðist í einhverjum tilfellum vera nauðsynlegt fyrir foreldra og ungmenni að skrá sig sérstaklega í ungmennaklúbba bankanna til að njóta sérkjara á borð við ókeypis færslugjöld, og því full ástæða til að kynna sér málið áður en nýtt kort er fengið. Einn banki, Netbankinn sendi þegar frá sér yfirlýsingu að engin færslugjöld væruyfirhöfuðtekin hjábankanum. ■ tvöfaldur pottur Loka fyrir íslensk greiðslukort Samtök myndrétthafa á íslandi höfðu frumkvæði að því að Sky sjónvarpsstöðin ætlar að loka á öll íslensk kreditkort sem borga áskrift- ir af stöðvum hennar. {tilkynningu frá SMÁÍS segir að það skekki rekstr- argrundvöll íslenskra fjölmiðla að þurfa að keppa við ólöglega starf- semi sem þrífst á því að selja það sem aðrir eiga. Þannig er vísað til þess að langmest af því efni sem Sky býður upp á hafa íslenskar sjónvarpsstöðv- ar keypt dreifingarréttinn á. „Með þessu hverfa peningar úr veltu ís- lenskra fjölmiðla, sem gerir rekstur þeirra erfiðari og framboð þeirra fá- tæklegra.“ Tekið skal fram að þetta nær ekki yfir frétta- stöðina Sky news. Ekki ólöglegt Margir Islendingar kaupa áskrift að Sky og nálgast dagskrána með aðstoð gervihnatta. Seljendur mót- tökubúnaðar tóku illa í ákvörðun SMÁÍS þegar Blaðið hafði samband við þá. Þeir tóku fram að þeir stund- uðu ekki ólöglega starfsemi en efuð- ust hins vegar um lögmæti aðgerðar Sky. Fólki væri boðið upp á að taka við útsendingum um gervihnött en keypti áskriftina hins vegar frá út- löndum. Bagalegt í Bretlandi Ljóst er að fjölmargir Islendingar bú- settir í Bretlandi - og annars staðar í Evrópu - munu einnig lenda í því að lokað verði fyrir áskrift þeirra hjá Sky. Einn sagði að þetta gæti orðið bagalegt fyrir marga þar sem erfitt væri fyrir fólk að fá greiðslukort í Bretlandi, sérstaklega fyrir þá sem eru í námi. ■ Sér akreinar fyrir Strætó Strætisvagnar fá forgang í umferð- inni um Lækjargötu. Til suðurs verð- ur strætóakrein milli Hafnarstrætis og Austurstrætis og forgangsljós fyr- ir strætó á þeim gatnamótum. Til norðurs verður strætóakrein allt frá Bókhlöðustíg að Hverfisgötu. Þá var formlega samþykkt í borgarráði í gær að Strætó fái forgangsakrein við Miklubraut frá aðkeyrslu að bensín- stöð austan Miklubrautar og nær akreinin um 150 metra vestur fyrir Stakkahlíð. Þessi mál fara nú sem tillögur til lögreglustjórans í Reykja- vik sem tekur endanlega ákvörðun. í samræmi við stefnu Þetta er samþykkt í anda yfirlýstrar stefnu aðildarsveitarfélaga Strætó bs. um að þau tryggi strætisvögn- um aukinn og samræmdan forgang í umferðinni. „Þá er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að með for- gangi strætó í umferðinni njóti far- þegar þess hagræðis til fulls sem felst í því að ferðast með strætó en við upptöku nýs leiðakerfis hafi ver- ið lögð áhersla á styttri ferðatíma“, er haft eftir Ásgeiri Eiríkssyni, for- stjóra Strætó, í tilkynningu. ■ Frímerki fær verðlaun Islenskt frímerki hefur hlotið fyrstu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni um þýðingarmestu frímerkjaútgáfur í Evr- ópu á síðasta ári. Samkeppnin var hald- in á Italíu en undanfarin 44 ár hefur verið haldin samkeppni um listræna hönnun ffímerkja. Póstrekendur í öll- um Evrópulöndum sem eru meðlimir í Alþjóðapóstsambandinu (UPU) sendu frímerld í keppnina. íslenska frímerkið sem hlaut verð- launin að þessu sinni var gefið út 11. mars 2004 í röð fimm frímerkja um jarðhita á íslandi og sýnir það borholu á Hengli og hefur verðgildið 55 kr. Örn Smári Gíslason teiknari hannaði frí- merkin fyrir Islandspóst. ■ Ný tœkni hjá farsímafyrir- tcekjum Margfaldar burðargetu í GSM kerfinu Á næstunni munu símafyrirtækin tvö, Og Vodafone og Síminn, taka í notkun svokallaða EDGE tækni (Enhanced Data Rates for Global Ev- olution) en hún mun koma til móts við ört vaxandi þarfir viðskiptavina fyrir hraðari gagnaflutningi í GSM síma. Tæknin gerir notendum m.a. mögulegt að miðla gögnum, eða vafra á Internetinu á þrisvar til fjór- um sinnum meiri hraða en mögu- legt hefur verið hingað til. Flutnings- hraði í EDGE er í raun mismunandi hvað fjarlægð frá sendum varðar og milli einstakra farsíma en tækn- in er frá 120 kb/s til 238 kb/s í kerfi Og Vodafone. Þessi tækni er skref í átt að því sem kallað hefur verið þriðja kynslóð farsímaþjónustu og hefur gjarnan verið nefnd kynslóð 2,75. Og Vodafone hefur þegar hafið prófanir og gert er ráð fyrir að þeim verði lokið fyrir lok ársins. Þá mun Síminn á næstu mánuðum kynna fjölda þjónustutegunda sem nota EDGE tæknina sem flutningsleið. ■ íbúðalánasjóður Lán hafa tvöfaldast milli ára Húsnæðiskaupendur tóku lán fyrir rúma 6,4 milljarða króna hjá íbúða- lánasjóði í júlimánuði síðastliðnum, og er það tvöfallt hærri lánsupphæð hjá sjóðnum en á sama tíma í fyrra. I mánaðarlegri skýrslu sjóðsins fyrir júlímánuð segir að útlán hafi gengið vel að undanförnu og að dregið hafi úr uppgreiðslum. Vegna þessa hafi áætlanir sjóðsins verið endurskoðaðar. Þær gerðu ráð fyr- ir að heildar útlán sjóðsins yrðu 16 milljarðar á þriðja ársfjórðungi, en sú tala hefur nú verið hækkuð upp i 19 milljarða. I samræmi við þetta er nú gert ráð fyrir að heildarútlán Ibúðalánasjóðs á þessu ári verði um 75 milljarðar króna, en fyrri áætlan- ir gerðu ráð fyrir að þessi tala yrði tæpir 64 milljarðar. ■

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.