blaðið - 12.08.2005, Page 10
FÖSTUDAGUR 12.ÁGÚST2005 blaöiö
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
Kiir skipaður varaforseti
Bíður það erfiða verkefni að sameina sundraða þjóð sína eftir dauða
hins dáða Johns Garang.
Súdan
Suður-súdanski leiðtoginn
Salva Kiir var í gær settur í
embætti varaforseta Súdan
og verður hann því eftirmaður
Johns Garang sem lést i þyrluslysi í
síðustu viku.
Aðeins voru
rúmar þrjár
vikur síðan
Garang tók
við þegar
hann lést
en hann
naut mikils
stuðnings
landsmanna. Herlið fjölmennti um
götur höfuðborgarinnar Khartoum
þar sem athöfnin fór fram en fáir
landsmenn mættu hins vegar til að
taka þátt í hátíðarhöldunum.
„Ég heiti tryggð minni við
ríkisstjórn Súdan. Ég mun hlýða,
virða og verja stjórnarskrána
og hlíta lögum landsins“, sagði
Kiir við athöfnina sem hófst með
múslimskum og kristnum bænum.
Kiir var yfirmaður hermála
SPLM-hreyfingarinnar í Súdan
og barðist gegn hinu íslamska
norðri í yfir tvo áratugi áður
en sameiningarríkisstjórn var
mynduð. Þrátt fyrir að hafa verið
þekktur aðskilnaðarsinni hefur
Kiir heitið því að viðhalda viðleitni
Garangs um að skapa einingu í
landinu og sameina þjóðina með
friðarsáttmálann að leiðarljósi
Slys eður ei?
Garang, leiðtogi fyrrum uppreisnar-
manna SPLM-hreyfingarinnar í
Súdan, undirritaði friðarsáttmála
í janúar sem batt enda á lengstu
borgarastyrjöld í sögu Afríku sem
áætlað er að hafi kostað 2 milljónir
mannslífa, að mestu vegna sjúkdóma
og hungurs. Friðarsáttmálinn leiddi
til myndunar nýrrar ríkisstjórnar
þarsemGarangtókstöðuvaraforseta
þann 9. júlí síðastliðinn.
Dauði Garangs tendraði mikið
ófriðarbál meðal þjóðarinnar
og miklar götuóeirðir urðu yfir
hundrað manns að bana á vikutíma.
Stuðningsmenn Garangs hafa þó
lýst því yfir og almennt er talið að
um slys hafi verið að ræða. Forseti
Úganda, Yoweri Museveni, sem átti
þyrluna segist hins vegar ekki geta
útilokað að ekki hafi allt verið með
felldu og mögulega hafi ekki verið
um slys að ræða. Yfirvöld Úganda þyrlunni en fulltrúar Sameinuðu sagt að 17 hafi verið á meðal þeirra
sögðu 14 hafa verið um borð í þjóðanna sem fluttu líkin brott hafa látnu. ■
í síðustu viku við jarðarför í borginni Kampala í gær.
Dagskrá:
Laugardagur 13. ágúst kl. 11:00:
Gönguferð: Menningar-og sögutengd ganga og fræðsla um Garð.
Gangan hefst við íþróttamiðstöðina.
Laugardagur 13. águst kl. 14:00:
Menningar-og sögutengd fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Fræðslan hefst við fuglaskiltin á Garðskaga.
Að öðru leyti hefst svo dagskráin kl. 13:00 laugardaginn 13. ágúst á Garðskaga.
Fjöruferð og fóndur fyrir börnin undir stjórn Kristjönu Kjartansdóttur, kennara.
Leikir og fleira skemmtilegt undir stjórn kennaranna Björns Vilhelmssonar
og Laufeyjar Erlendsdóttur.
Trúbadorar, harmonikkuleikarar, söngvarakeppni, leiktæki o.m..fl.
Dúkkusýning verður í vitavarðarhúsinu.
Aðstaða til að grilla verður á svæðinu.
Okkar nýja og glæsilega Byggðasafn verður opið og einnig stóri vitinn.
Flugmódel verða á flugi.
Sölubásar, blöðrur, kökubasar og pylsusala.
Um kvöldið.kl 23:00 verður varðeldur og hljómsveitin Grænir vinir munu
halda uppi fjörinu.
Flösin kaffitería verður opin allan daginn og til kl. 03:00 um nóttina.
Hægt verður að fá sér súpu ásamt öllum góðu veitingunum og meðlætinu
sem eru ávallt á boðstólum.
Ókeypis aðgangur er að svæðinu og ókeypis er einnig á tjaldsvæðið.
Sunnudagur 14. ágúst kl.l 1:00:
, Menningar-og sögutengd ganga frá Leirunni I Garðinn að Garðskagavita.
Hittumst hress og kát á Garðskaga.
GARÐUR
Sveitarfélag I sókn
Há sekt fyrir
útvarpsgrín
Útvarpsstöðin WHQT í New York
hefur samþykkt að greiða 240.000
dollara í sekt eftir að hafa fjármagn-
að svonefnda Löðrungakeppni, þar
sem ungar konur skiptust á að löðr-
unga hverja aðra í von um að vinna
tónleikamiða og peninga. Þá mun
útvarpsstöðin hafa samþykkt að
greiða 60.000 dollara til góðgerða-
hóps sem starfar að því að vekja fólk
til vitundar um heimilisofbeldi. Yfir-
völd héldu því fram að þær löðrunga-
keppnir sem haldnar hefðu verið,
sem töldu vel á þriðja tuginn, væru
lítið annað en ólögleg bardagaíþrótt
sem bera mætti saman við neðan-
jarðarbox. Á heimasíðu WHQT var
svo hægt að finna myndskeið af löðr-
ungakeppnunum og fór það mjög
fyrir brjóstið á yfirvöldum.
Útvarpsstöðin og yfirvöld New
York-fylkis komust að samkomu-
laginu eftir að ákveðið var að leggja
fram kæru á útvarpsstöðina. „Þetta
samkomulag ætli að vera vakning
til allra í skemmtanaiðnaðinum
sem halda að svívirðingar séu gáfu-
leg aðferð við markaðssetningu",
sagði Eliot Spitzer, ríkissaksóknari
New York í yfirlýsingu. „Þrátt fyrir
að keppendurnir hafi af fúsum og
frjálsum vilja tekið þátt í því sem
átti að vera skaðlaus skemmtun, var
þetta vissulega ekki á meðal okkar
bestu augnablika og New York-borg
á betra skilið", sagði Rick Cumm-
ings, forseti útvarpsstöðvarinnar. ■
Yahoo haslar
sér völl i Kina
Vefleitarrisinn Yahoo hefur keypt
hlUt f
YAxiv-?U,f kínverska net-
viðskiptafyr-
irtækinu Alibaba.com fyrir 1 millj-
arð Bandaríkjadollara. Alibaba er
netuppboðsfyrirtæki á borð við
eBay og er það allra stærsta sinnar
tegundar í hinu fjölmennasta ríki
heims - Kína. Þessi fjárfesting ger-
ir Yahoo kleift að keppa við eBay á
netuppboðsmarkaðnum þar sem
síðarnefnda fyrirtækið hefur ráðið
lögum og lofum undanfarin miss-
eri. Stærstu netfyrirtæki heims hafa
í auknum mæli beint sjónum sínum
að Asíu þar sem heimsálfan hefur
verið að tölvu- og netvæðast. Þá
hafa Kínverjar mjög sótt í sig veðrið
en Japanir hafa sem kunnugt er ver-
ið leiðandi á þessu sviði þar í álfu. ■
www.sv-gardur.is