blaðið - 12.08.2005, Side 12
12 I VEIÐI
Þverá:
3000 laxinn
veiðist á næstu dögum
FÖSTUDAGUR 12. ÁGÖST2005 blaöið
Það er fínn gangur í veiði, lax er enn-
þá að ganga í margar veiðiár og sum-
staðar mikið af fiski.
Holl sem var í Vatnsdalsá fyrir
nokkrum dögum var komið með 130
laxa eftir tveggja daga veiði.
„Veiðiskapurinn gengur vel hjá okk-
ur þessa dagana, í báðum veiðiánum“,
sagði Jón Olafsson er við spurðum
um stöðuna í Þverá og Kjarrá.
Þverá og Kjarrá eru efstar núna
með 2910 laxa, síðan kemur Norðurá
í Borgarfirði með 2600 laxa, síðan
Eystri-Rangá með 2550 laxa, svo Ytri-
Rangá með 1200 laxa.
Góður gangur hefur verið í Selá í
Vopnafirði og þar eru komnir 1100
laxar á land, Víðidalsá í Húnvatns-
sýslu er með 1000 og síðan Langá á
Mýrum með 970 laxa.
Leirvogsá er komin yfir 500 laxa,
á aðeins tvær stangir, sem er frábært
en mikið er af fiski í ánni og fiskur er
ennþá ganga í hana.
Ólafur Ó.Johnson aö veiöa á Breiðunni I Hítará á Mýrum.
Alfreð Jóhannsson meö lax úr Kverkinni
við veiðihúsið í Hítará á Mýrum.
Miðá t Dölum:
Veiddu 16 laxa
á stuttum tima
„Veiðin hefur verið frábært í Miðá
í Dölum og núna eru komnir 160
laxar á land og veiðimenn eru að
fá fína veiði þessa dagana. Það er
eiginlega mokveiði hjá okkur“,
sagði Lúvík Gizurarson, er við
spurðum um veiðina í Miðá í Dölum,
en veiðimenn sem voru við veiðar í
ánni í fyrrdag veiddu 16 laxa í beit.
„Hún Arndís í bókabúðinni Iðu var
þarna ásamt fleirum og þær veiddu
á stuttum tíma 16 laxa neðarlega í
ánni. Það var mikið af fiski að ganga
uppí ána. Það hafa veiðst 160 laxar
og töluvert af bleikjum. Laxinn ætti
að vera að dreifa sér núna og veiðast
á fleiri stöðum núna“, sagði Lúðvík
ennfremur.
Það rigndi aðeins á svæðinu
fyrir tveimur dögum og það hefur
greinilega haft sitt að segja fyrir
veiðimenn og fiska.
Bullandi gangur hefur verið
á Vatnasvæði Lýsu og veiðimenn
hafa verðið að mokveiða laxi, fyrir
hádegi einn daginn veiddust 9 laxar
á svæðinu.
Dóra Lúðvíksdóttir
með fallegan lax úr
MiðáfDölum.
Enn einn laxinn komin á land en áin hefur
gefið 160 laxa.
HARÐVIÐARVAL
-flegar flú kaupir parket
Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík
Sími 567 1010
www.parket.is