blaðið - 12.08.2005, Qupperneq 30
30 IFÓLK
FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST2005 blaAÍA
SMÁboraarinn
DAUÐIKARL-
MENNSKUNNAR
Smáborgarinn er kona. Þetta er
tekið sérstaklega fram þar sem
kynferði smáborgarans skiptir
miklu máli fyrir innihald þess-
arar greinar sem fjallar um karl-
mennskuna - eða réttara sagt
skort á henni. Það er nóg til af karl-
mönnum en ekki nægilega mikið
afkarlmennsku. Nútímakarlmað-
urinn er nefnilega mjúkur, skoð-
analaus og einhvern veginn svo
óáhugaverður að það er erfitt að
taka eftir honum og fljótlegt að
gleyma honum.
Engin regla er þó án undan-
tekningar og það á einnig við
um þessa. Á nokkurra ára fresti
hittir smáborgarinn áhugaverðan
karlmann. Smáborgarinn verður
þá ætíð ákaflega hissa og virðir
karlmanninn lengi fyrir sér eins
og hann sé fágætt listaverk. Sem
hann náttúrlega er. „Hvaðan
kemur þú? Hvernig varðst þú að
almennilegum karlmanni?“ hugs-
ar smáborgarinn en spyr ekki upp-
hátt. Það er nefnilega svolítið eftir
afkvenlegri feimni í smáborgaran-
um, þótt hann geti stundum verið
hvatvís og sagt upphátt það sem
hann er að hugsa.
Fimm ára reglan
Það bregst varla að þessir áhuga-
verðu karlmenn ólust upp í af-
skekktri sveit eða litlu þorpi og
fengu því ekki hefðbundið fem-
ínískt uppeldi sem breytti þeim í
linkulegar dúkkulísur. Þeir fengu
að ólátast og slást við félaga sína og
leika sér með trébyssur. Svo urðu
þeir stórir töffarar með orðaforða
og sjálfstæðar skoðanir. Allt öðru
vísi en dæmigerðu karlmennirn-
ir sem láta alltaf eins og þeir vilji
helst breyta sér í konu. Og líta út
eins og þeir séu dauðhræddir um
að segja einhverja vitleysu - sem
þeir gera reyndar yfirleitt.
Smáborgarinn er hrifnæmur í
eðli sínu og finnst ósköp leiðinlegt
að geta ekki hrifist af karlmanni
nema á fimm ára fresti. Oftar ger-
ist þetta nú ekki. Það er ekki smá-
borgaranum að kenna. Ástandið
á markaðnum er bara svona. Smá-
borgarinn gerir ráð fyrir, ef allt
fer vel, að verða áttræður. Þá getur
hann horft yfir farinn veg og rifj-
að upp minningar af þessum 16
karlmönnum sem hann kynntist
og voru alvörukarlmenn.
Einn og hálfur karlmaður
Smáborgarinn biður siðavanda
lesendur um að misskilja sig ekki.
Þegar hann talar um 16 alvöru-
karlmenn er hann ekki að tala
um 16 elskhuga. Smáborgarinn
er nefnilega gamaldags í hugsun
og alls ekki lauslátur. Ef miða á
við prósentutölu er líklegt að smá-
borgarinn verði einungis alvar-
lega ástfanginn af einum tíunda
af þessum hópi. Sem er ca. einn og
hálfur alvörukarlmaður, ef smá-
borgarinn kann að reikna. Fyrir
smáborgara í hjónabandi er þetta
fremur þægileg tala en fyrir smá-
borgara sem kýs frelsið er þetta
uggvænlega léleg niðurstaða.
SU DOKU
talnaþraut
28. gáta
5 2 8 3 9 4
1 4 7 3 JJ
8 9
3 9 7 6
7 5
6 7 5 9 1
1 4 6 7 8 3
Lausn á 28.
gátu verður að
finna i
blaðinu á
morgun.
Lausn á 27. gátu
lausn á 27. gátu
6 4 5 9 1 8 7 2 3
7 8 2 5 4 3 9 6 1
9 3 1 7 2 6 8 5 4
8 6 7 4 5 2 1 3 9
1 5 9 3 8 7 6 4 2
4 2 3 6 9 1 5 7 8
2 1 4 8 6 5 3 9 7
3 9 6 1 7 4 2 8 5
5 7 8 2 3 9 4 1 6
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
í þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
Jamie Lee ^ i
gagnrýnir Botox
Jamie Lee Curtis er þekkt fyrir að
gagnrýna lýtaaðgerðir og sat hún
meðal annars fyrir í mótmælaskyni
á mynd án alls farða og í nærföt-
um eingöngu. Nú uppá síðkastið
hefur hún verið að gagnrýna Botox
lýtaaðgerðir, og segir að þetta sé far-
aldur sem hafi farið úr böndunum.
„Hvernig þau sprauta þessu og frysta
hluti, fólkið lítur út eins og geimver-
ur,“ sagði Jamie, en hún prófaði einu
sinni Botox og fékk sog á varirnar
en hún skammaðist sín svo mikið
að hún ákvað að hún myndi aldrei
gera þetta aftur. „Það er ein leik-
kona sem margir álíta eina af þeim
fallegustu og þú horfir á hana og seg-
ir: Hvað gerði hún við sjálfa sig? Hún
lítur ekki einu sinni út eins og hún
sjálf lengur. Ég myndi aldrei prófa
þetta aftur, aldrei aftur,“ segir hún.
Jamie nefndi sem dæmi að Jessica
Tandi hefði aldrei þurft á lýtaaðgerð-
um að halda á meðan ferill hennar
reis sem hæst. ■
Friends
stjama biðst
afsökunar
Matt LeBlanc, sem lék hinn fræga
Joey í Friends, hefur beðið konuna
sína og dóttur afsökunar á að hafa
káfað á nektardansmey á klúbbi.
Matt segir að hann skammist sín
mikið fyrir hegðun sína, en þetta
gerðist á ferðalagi með vinum hans í
Kanada. Segir dagblaðið Sun að kon-
an hans, Melissa, hafi næstum farið
frá honum eftir að upp komst um at-
vikið. Matt hefur sagt að þetta hafi
allt verið mistök, hann hafi ekki átt-
að sig á hvað var að gerast fyrr en að
hann var kominn í annað herbergi
með stelpunni, og að þá hafi hún
setið á honum og tekið hendur hans
til að fara yfir líkama hennar. Matt
bætir því við að ef hann hefði verið
edrú hefði hann auðvitað hættþessu
strax. „Ég gerði mér grein fyrir því
að þetta var fáránlegt og ég fór út.
Ég lét eins og asni og hefði aldrei átt
að láta þessar aðstæður koma upp.
Ég skammast mín.“, segir hann. ■
Renee saknar
auka
anna
Renee Zellweger segir
að hún sakni aukakíló-
anna sem hún var með
þegar hún lék í Bridget
Jones myndunum. Seg-
ir Renee að hún hafi feng-
ið miklu meiri athygli frá
karlkyninu þegar hún var
þyngri, og að það hafi ver-
ið sorglegur dagur þeg-
ar hún þurfti að fara
í minni fatastærðir.
„Karlmenn horfðu
miklu meira á
mig þegar að það
var eitthvað und-
ir blússunni,“
segir hún. ■
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Skoðaðu öll smáatriðin í þessu nýja verkefni
og fáðu aðstoð samstarfsfélaga til að kiKja yfir það.
Það þarf að leiðrétta það oft.
V 1 dag geturðu loksins tekið ákvörðun. Vinir
þínir mynau ekki beina þér í ranga átt. Nú geturðu
aðeins vonað að það rætist úr þessu.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Núna er góður tími til að hitta vfirmann eða
mikilvægan viðskiptavin og ræða áætlanir þínar.
Þú getur athugað hvernig landið liggur án þess að
rugga bátnum.
V Núna er góður tími til að hitta vfirmann eða
mikilvægan viðskiptavin og ræða áætlanir þínar.
Þú getur athugað hvernig landið liggur án þess að
rugga bátnum.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Samningar og skjöl eru tvíræð þóttJ)au virðist
vera skýr. Vertu viss um að fá góð ráð fra þeim sem
þú tre^tir áður en þú skrifar undir nokkuð.
V Ef þú ert ekki viss um hvað gangi á þá skaltu
taka þinn tíma til að leita að lausninni. Em revna
að leysa vandamál áður en þú veist nákvæmlega
hvað það er.
®Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Það verður auðvelt að reita þig til reiði þannig
að þú skalt reyna að halda öðrum í fjarlægo. Ekki
láta draga þig inn í aðstæður annarra jafnvel þótt
þú sjáir nákvæmlega hver hefur á réttu að standa.
V Það hvílir margt á þér í dag. Eitthvað er að
trufla þig. Það getur oroið til þess að þú komist í
uppnám vegna einhvers smávægislegs.
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Þú finnur að þú ert mjög vinsæl/1 á vinnu-
staðnum, í raun svo mjög ao þú þarft að velja og
hafna. En það eru til vern vandamál.
V Þú þarft ekki að vera ráðrík/ur. Það myndi
aldrei neinn yfirgefa þig enda hefurðu allt sem til
þarf.
©Tvíburar
(21. maí-21. júní)
$ Fjarlægðu þig frá verkefninu, sérstaklega ef
{>að er einhver ráogáta sem þú þarft að leysa. Álvar-
eg skoðun og íhugun ætti að vera nóg.
V Allt sem þú þarft er tími og friður til að hugsa
málið. Ef einnver er að ýta á eftir þér, leyfðu þeim
þá að ýta. Nældu þér í frið og ró.
©Krabbi
(22. júní-22. júlí)
$ Láttu einhvern sem þú treystir skoða skjölin
áður en þú skrifar undir þau. Þú gætir verið að
flýta þér of mikið til að taka eftir því atriði sem er
augljósast
V Vinnan eða húsnæðisaðstæður eru aðeins of
yfirþyrmandi þessa dagana. Taktu því bara rólega
og vertu viss um að þao sé allt eftir pínum skilmál-
um.
©
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Innsæið er gott þessa dagana og þú finnur
fullt af nýjum lausnum til að eiga samskipti við
nána samstarfsfélaga og yfirmenn.
V Það sem er á yfirborðinu vekur ekki áhuga
þinn. Þú hefur miklu meiri áhuga á þvi sem þú get-
ur ekki séð. Gerðu það sem þú getur til að finna út
alla leyndardómana.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Það er tími til að endurskoða markmið og her-
brögð. Hlustaðu jafn mikið á hjartað og heflann
þegar þú ákveður hvað er raunsætt og hvað ekki.
V Eitthvað er ekki alveg rétt. Vertu viss um hvert
þú vilt stefria í lifinu og búðu til áætlanir.
Vog
(23. september-23. október)
$ Þú þarft ekki að vera svona góð/ur. Það gæti
verið erfitt fyrir þig en nokkrir dagar eða vikur þar
sem þú einolínir á vinnu þína gætu breytt ýmsu
fyrirþig.
V Einhver ásakar þig um að vera nisk/ur og það
kemur þér á óvart. Þú ferð vel með peninga en þú
ert lika gjafmfld/ur. Sýndu hve gjafmild/ur þú ert.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
® Aðrir munu flykkjast að tfl að fá ráð og aðstoð
fráþér. Núna er goður tími til að styrkjaleiðtoga-
stöðu þfna.
V Þú hefur fundið orkulind i sjálfri/um þér og
fólk dregst að þér sem aldrei fyrr. Ér þetta ekki góð
tilfinning?
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
S Það er ýmislegt f gangi hjáþérþótt aðrir sjái
það ekki. Athugaðu hvort þú fmmr ekki góðan
staðþarsemerróognæðiogþú getur unnið vinn-
una og skoðað tilfmningar þinar.
V Þú ert með mjög svo virkt fmyndunarafl. En
það vissir þú núþegar. En er ekki kominn tfmi til
að aðrir viti það flka. Ekki fela hæffleika þina.