blaðið - 19.08.2005, Side 4

blaðið - 19.08.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 blaöiö SWw & Sm liyqqvaqatu X, 101 keyfyjavití -----------------^ »• ö// 2272 MCHHÍMQarMÓtt Saúsa stem*HÍM0 iO0lMC fi>vo u»4 Ljósmyndanámskeið Ljósmyndanámskeiö Hin vinsælu 3ja daga námskeið fyrir stafrænar myndavélar í sept., okt., og nóv. Kennt er mánu- ' daga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 18-22. Farið er í allar helstu stillingar á myndavélinni. Útskýrðar ýmsar mynda- tökur. Tölvuvinnslan ' ’ ' útskýrð ásamt Photoshop og Ijósmyndastúdíói. Fynr byrjendur og lengra komna. Leiðbeinandi Pálmi Guðmundsson. www.ljosmyndari.is Blaöiö/Cúndl Vöruskiptahalli tvöfalt meiri en í fyrra Ekkert lát virðist vera á halla vöru- skipta við útlönd en gert er ráð fyrir að hann hafi verið á bilinu 9 til 11 milljarðar króna í júlí. Til saman- burðar var vöruskiptahallinn í júní ríflega 10 milljarðar. Nú lítur út fyr- ir að vöruskiptahalli fyrstu sjö mán- uði ársins verði 44 miíljarðar króna sem er rúmlega tvöfalt meiri halli en á sama tímabili í fyrra. Þetta kom fram í morgunkorni íslandsbanka í gær. Þar segir ennfremur að gera megi ráð fyrir að útflutningur í júlí hafi numið 13-15 milljörðum króna að heildarverðmæti. Um sé að ræða nokkuð minni útflutning en í sama mánuði í fyrra og liggur munurinn í minni útflutningi sjávarafurða. Á sama tíma voru fluttar inn vörur fyrir um 24 milljarða í júlí. ■ Hjólastóla- hlaup Níu hlauparar úr Slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins ætla að hlaupa með þrjá fatlaða einstaklinga í hjólastólum í skemmiskokki Reykja- víkurmaraþonsins á laugardaginn. Hjólastólarnir hafa verið sérútbúnir af þessu tilefni. Þrír hlauparar skipt- ast á að hlaupa með hvern stól. Það eru Brunavarðafélag Reykja- víkur og íþróttafélag fatlaðra sem standa saman að uppátækinu en tilgangur þess er að safna fé til fé- lagsstarfs Iþróttafélags fatlaðra og í nýstofnaðan líknarsjóð Brunavarða- félagsins sem styrkja á félagsmenn ef slys eða veikindi ber að höndum. Góð ávöxtun Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er rek- inn af KB banka, skilaði góðri ávöxt- un á fyrstu sex mánuðum ársins. í tilkynningu er sagt að gott gengi á verðbréfamörkuðum og virk stýring sjóðsins hafi skilað árangri umfram þá kröfu sem gerð er í fjárfestingar- stefnu sjóðsins. Hrein eign sjóðsins til greiðslu líf- eyris nam í lok júní 39,9 milljörðum króna og jókst um 4,2 milljarða frá áramótum. Þar af var ávöxtun 2,4 milljarðar. Iðgjöld til sjóðsins námu 2,i milljarði og lífeyrisgreiðslur 207 milljónum. Sjóðsfélagar voru í lok júní 32.254 og fjölgaði um rúmlega 2.000 frá áramótum. ■ Baugsmálið í erlendum fjölmiðlum: íslenskt athafnalíf allt sagt fyrir dómi Talsvert er um Baugsmálið fjallað í erlendum fjölmiðlum þessa dagana og þó að umfjöllun flestra þeirra sé fremur hófstillt og haldi sig við opinber efnisatriði málsins, bæta aðrir um betur og segja íslenskt athafnalíf fyrir dómi meðan aðrir slá því föstu að undirrót málsins sé pólitísk. Hafa margir forystumenn í íslensku viðskiptalífi áhyggjur af þeirri mynd sem brugðið er upp í mörg- um miðlanna og taldi einn þeirra Baugsmenn hafa gert reginmistök með tali sínu um pólitísk afskipti af réttarfarinu hér á landi. Allmargir erlendir fjölmiðlar hafa sent blaðamenn til Islands til þess að fylgjast með Baugsmálinu. Sér- staklega á það við um breska miðla enda eru umsvif Baugs þar í landi mikil og hefur Jón Ásgeir Jóhann- esson, forstjóri Baugs, verið mest áberandi hinna „íslensku víkinga“, sem tíðræddir hafa verið í bresku viðskiptalífi. Einnig hafa danskir miðlar sýnt því áhuga enda hafa inn- kaup Baugsmanna í Danmörku að undanförnu vakið mikla athygli. Fátækt útrýmt Hið áhrifamikla blað Financial Times sendi blaðamanninn Henry Tricks til íslands til þess að setja sig inn í málið og í frétt hans í blaðinu í gær er því slegið upp að Jón Ásgeir telji málaferlin pólitísk og að íslensk fyrirtæki óttist frekari aðför. Þar er haft eftir Jóni Ásgeiri að lán, eins og hann er sakaður um að hafa veitt sjálfum sér, séu altíð á fslandi. Verður vart sagt að fréttin sé mikil traustsyfirlýsing við íslenskt við- skiptasiðferði eða réttarríki. f annarri og ýtarlegri frétt Tricks í Financial Times kveður þó við að- eins annan tón en þar er hlutverk dómaranna talið vandasamt og sagt að þeir muni vafalaust auðsýna ýtrasta hlutleysi. Nokkuð er fjallað um sakargiftirnar og þær skýringar sem Deidre Lo, fulltrúi endurskoð- unarfyrirtækisins Capcon-Argen, kom með á þeim fyrir hönd Baugs en einnig nefnt að verjendur Baugs- manna fallist á að málið allt kunni að hanga á fremur vandtúlkuðum lagagreinum um fjármál fyrirtækja. í grein Tricks má finna ýmis smáat- riði sem gera greinina litríkari eins og það að Jón Ásgeir hefði komið til réttarhaldsins með hvítt „vinaband" um úlnliðinn sem á var letrað: „End World Poverty" (útrýmum fátækt í heiminum). Villt partí Harry Wallop hjá Daily Telegraph skrifaði fremur lágtónaða frétt og sparaði sér alla umsögn um sakar- giftir eða líklega dómsniðurstöðu. Grein Susie Mesure í The lndepen- dent er máluð skarpari dráttum. í fyrirsögn greinarinnar er sagt að það sé sjálft athafnalífið á Islandi sem sé fyrir dómi. Sagt var að Baugs- m á 1 i ð snúist fyrst og fremst um tengsl Baugs við Gaum, fjölskyldufyrirtæki Jóns Ásgeirs, og nefnt að slík viðskipti skyldra aðila væru sjaldgæf á Bret- landi. Sagði jafnframt að örlög Jóns Ásgeirs væru í höndum þriggja dóm- ara fremur en kviðdóms, dómara sem sagðir voru harðir naglar. I danska blaðinu Politiken var það fullyrtí undirfyrirsögn að Baugsmál- ið hefði pólitiskan undirtón. Eðli meintra brota var tíundað og sagt að þarblönduðust saman milljarða fjár- svik og fremur lákúruleg tollabrot. Tónninn í Berlingske Tidende er nei- kvæðari í garð sakborninga og dreg- ið fram hvernig í brotunum felist tilraun Jóns Ásgeirs til þess að standa straum af „villtum part- íum“ í Flór- ída. þrefaldur pottur lottoJs Baugsmálið: Þarf að rannsaka ásakanir um pólitísk afskipti? Baugsmenn, hafa undanfarið margítrekað ásakanir um að pólitískur þrýstingur sé undirrót rannsóknarinnar á hendur þeim. Af því tilefni leitaði Blaðið til þingmanna allra flokka á Alþingi og spurði hvort ásakanirnar væru tilefni sérstakra við- bragða eða rannsóknar. Birkir J. Jónsson, Framsóknarflokki: „Ég ber fullt traust til lögreglunnar og dómstóla og tel fráleitt að halda því fram að þáverandi forsætis- ráðherra hafi hlutast til um eitthvað í þessu máli. Það er verið að reyna að blanda pólitík í þetta mál en það á ekkert erindi í sali alþingis." Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki: „Mér finnst allur þessi mála- tilbúnaður með ólíkindum og fiillkomlega órökstuddur. Af þeim ástæðum finnst mér aug- ljóst að það er ekkert að baki þessu, ekki nokkur skapaður hlutur nema tilraun til þess að draga athyglina ífá einhverj- um öðrum þáttum málsins. Núna fer fram tvenns konar umræða, annars vegar hin efnislega sem bíður réttarsal- arins, og hins vegar er verið að heyja hér áróðursstríð þar sem ekkert er til sparað." Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum: „Það væri vitaskuld eðlileg- ast að Davíð Oddsson sjálfur færi fram á það að málið yrði rannsakað og hann hreinsaður af þessum ásökunum. En svo er annað, sem er vandi í þessu, sem er að við höfum sáralitla hefð fyrir því að rannsaka emb- ættisathafnir ráðherra hér á landi. Það þarf að athuga betur.“ Margrét Frímannsdóttir, Samfylkingu: „Ég tel ástæðu til þess að bíða með yfirlýsingar um þessar ásakanir þeirra feðga. En það sem er alvarlegt við þær og þau orð sem falíið hafa í aðdraganda þingfestingarinnar er að þær vekja efasemdir um réttarkerfið í hugum fólk, svo það hlýtur með einhverjum hætti að þurfa að skoða hvort eitthvað kunni að vera hæft í þeim í fyllingu tímans." Þuríður Backman, Vinstri grænum: „Það fléttast margir þættir saman í þessu máli. f fyrsta lagi er það mál sem nú er fyrir dómstólum en ég hef þá trú á íslensku réttarkerfi að það gangi ekki persónulegra eða pólitískra erinda og hef því ekki áhyggjur af framgangi þess þar. Hins vegar er pólitíski þátturinn, því hér ræðir um gífurleg átök um pólitík og hagsmuni, en þau hafa ljóslega leitt til persónulegrar óvildar. En ég hef engar forsendur til þess að tjá mig um þau stóru orð sem menn hafa látið falla í þessu samhengi.“

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.