blaðið

Ulloq

blaðið - 19.08.2005, Qupperneq 14

blaðið - 19.08.2005, Qupperneq 14
blaöi Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. UTGERÐARMENN OPINBERA HROKA SINN Undanfarna daga hafa útgerðarmenn tilkynnt landsmönn- um að þeir hyggist berjast í dómstólum gegn hrópandi óréttlæti sem þeir þurfa að lifa við. Þeir hafa farið mikinn og bent á að þau gæði sem þeir hafi fjárfest í fyrir milljónir króna, og jafnvel milljarða, séu tekin af þeim af stjórnvöldum. Það má skilja á orðum þeirra að við búum hér í bananalýðveldi þar sem stjórnvöld fari um ruplandi og rænandi - steli af útgerðarmönnum lögvarin réttindi sem keypt hafi verið dýrum dómi. Málið snýst um kvóta. Eins og almenningur veit er ákveðnu magni af honum útdeilt á hverju ári. Útgerðarmenn hafa síðan fengið út- deilt heimild til að nýta ákveðið hlutfall af kvótanum, aðrir hafa keypt slíkan kvóta. Útgerðarmenn fullyrða að allir hafi hinsvegar fjárfest fyrir háar upphæðir í tækjum og tólum, skipum og bátum í þeirri vissu að kvótinn væri þeirra. Þetta eru þær leikreglur sem settar hafa verið og eru langt í frá að vera óumdeildar hér á landi. Út- gerðarmenn segja hinsvegar að þegar stjórnvöld grípi til sértækra aðgerða, meðal annars þegar byggðakvóti er aukinn, sett er á línu- ívilnun o.s.frv. sé þessi réttur þeirra skertur - verðmæti tapist. Tek- ið sé af köku sem skilja má að sé þeirra og við það sé ekki hægt að lifa. Útgerðarmenn hafa verið að færa sig upp á skaftið frá því að kvóta- kerfið tók gildi árið 1984. Þeir hafa greinilega gleymt því að þegar alþingi ákvað að setja þetta kerfi á var það hugsað sem neyðarúr- ræði til að leysa vanda sem sjávarútvegurinn stóð frammi fyrir. Engum datt í hug að þarna væri komið kerfi til frambúðar, hvað þá að með kerfinu myndi skapast einhverskonar eignaréttur á óveidd- um fiski í sjónum. Kerfið hefur hinsvegar undið upp á sig frá því það tók gildi og nú er svo komið að eignarréttur á kvóta nær út fyrir gröf og dauða því eignarrétturinn erfist. Fram að þessu hefur þó verið óumdeilt að stjórnvöld hafa haft fullan rétt til ákvörðun- artöku um hvernig fiskinum í sjónum er skipt - allt til þessa dags. Útgerðarmenn segja nefnilega nú að stjórnvöld hafi í raun ekkert með kvótann að gera lengur. Þau megi jú taka ákvörðun um hversu mikill kvótinn er á hverju ári en það sé hinsvegar útgerðarmann- anna sjálfra að skipta kökunni. Hana má alltént ekki skerða. Með þessu hafa útgerðarmenn opinberað þá hrokafullu skoðun sína að þeir eigi fiskinn í sjónum - þeir og þeir einir. Það er hinsvegar mis- skilningur. Útgerðarmenn hafa afnotarétt af þessari auðlind og þennan afnotarétt er hægt að taka af þeim. Þó þeir hafi fjárfest fyrir einhverjar krónur í framhaldi kemur málinu einfaldlega ekki við. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aóalsimi: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 5103701. Simbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: fslandspóstur. I CAMBRIDGE Á EIUGLAIUDI BÝÐUR UPP Á ALLT, FLOTTAR VERSLANIR, FRÁBÆRA VEITINGASTAÐI, GLÆSILEGA GOLFVELLI, GET ÚTVEGAÐ HÓTEL MEÐ ÖLLU SEM ÞARF FYRIR ÁRSHÁTIÐINA. Hafðu samband NÚNA Cambridge er aðeins í 45 mln. fjarlægð weststarmarketing@btinternet.com frá miðborg London með lest. Get einnig eða (sfma 00447748424233 útvegað miða á knattspymuleiki 14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST2003 i blaöiö 25% aukning á yfirdráttarlánum Ástæða var til að ætla að möguleik- ar fólks á skuld- breytingu lána með lægri vaxta- kjörum hefðu leitt til þess að veru- Jóhanna lega myndi draga Sigurðardóttir úr yfirdráttarlán- " um í bönkum en uppgreiðsla lána hjá Ibúðalánasjóði vegna endurfjármögnunar lána nam á einu ári u.þ.b. 150 milljörðum króna. Þróunin hefur verið önnur en á einu ári hafa yfirdráttarlánin aukist um 25% og vextir af yfirdrátt- arlánum hafa einnig hækkað mikið á þessum tíma eða um 3.5-3.75% og hæstu yfirdráttarvextir eru nú yfir 19%. Áætla má að bankarnir hafi haft um 10 milljarða í vexti af yfir- dráttarlánum á sl. 12 mánuðum Okurvextir á yfirdráttariánum. Á einu ári eða frá því í lok júlí 2004 til loka júní 2005 hafa yfirdráttarlán heimilanna hækkað um tæp 25% eða tæplega 13.5 m.kr.. I lok júlí 2004 voru þau um 54.5 milljarðar króna en ári síðar, í lok júlí 2005, eru þau um 68 milljarðar króna. Á þessum tíma hafa vextir af yfirdráttarlánum hækkað um 3.5-3.75%, en hæstu yfir- dráttarvextir er nú rúm 19%. Áætla má miðað við 17% meðalvexti að vaxtataka bankanna á 12 mánaða tímabili hafi verið um 10 milljarðar króna. 99....................... Áróður um að oddvitarnir hafi verið eins konar borgarstjórar er tilbúningur Sjáifstæðismanna. 330 þúsund krónur í yfirdrátt- arlán á hvern íslending 18-80 ára Fyrst í stað eftir að fólk fór í veru- legu mæli að skuldbreytinga og end- urfjármagna lán eftir að bankarnir breyttu lánskjörum sínum í ágúst 2004 drógust yfirdráttarlán heim- ilanna saman en í apríl 2005 höfðu þau aftur náð fyrri hæðum frá því sem þau voru 1 ágúst 2004. Þau hafa síðan aukist jafnt og þétt og voru tæpir 68 milljarðar í lok júní. Að meðaltali voru því yfirdráttarlán í júní síðastliðnum, umreiknað á hvern íslending á aldrinum 18-80 ára, um 330 þúsund krónur. Ef reikn- að er með 19% yfirdráttarvöxtum á þessi lán þá þyrfti að greiða af 330 þúsund króna yfirdráttarláni um 62 þúsund krónur á ári. Breyta þarf ákvæðum laga um dráttarvexti. Ástæða er til að hafa áhyggjur af þess- ari þróun ekki síst vegna þess að yf- irdráttarlánum virðist vera otað að fólki enda blóðmjólka bankarnir fólk með okurvöxtum á þessum lánum. Bankarnir ákveða sjálfir yf- irdráttarvextina en hæstu yfirdrátt- arvextir eru nú um 19.2% eða rúmu einu prósentustigi lægra en almenn- ir dráttarvextir. Full ástæða er til að skoða þau lagaákvæði sem gilda um dráttarvexti en Seðlabankinn ákveð- ur dráttarvexti auk þess sem nauð- synlegt er að huga að því að bönkum verði settar ákveðnar skorður i töku yfirdráttarvaxta. Jóhanna Sigurðardóttir, alþingis- kona - www.althingi.is Stökustund í umsjón Péturs Stefánssonar í síðasta þætti misritaðist önnur sléttubandavísan eftir V.L.. Þar stóð: Sprettinn léttir.. en átti að vera Sprettinn Léttir... Sprettinn Léttirþrýfurþrátt þýtur sléttar grundir. Glettinn réttir btfur brátt brýtur kletta undir. V.L. botnar: Ljúfu sumri lýkur brátt, lifnar haustsins kvíði. Við það skilja skulum sátt, skart er alltafprýði. Þ.Ó. botnar: Sumir eiga ósköp bágt í allskyns sálarstríði. eða: Botna verð égþetta þrátt, þó þyki hrákasmíði. Magnús Hagalínsson botnar: Glöð i rúmið göngum sátt, oggleymum öllu stríði. Pétur botnar fyrripart V.L. Alltafskeður eitthvað nýtt, sem aldinn gleður muna. Nú þá eða aumt ogskítt er eykur geðvonskuna. Páll Ingólfsson frá Fagrabæ yrkir: Bakkus karlinn brattur er, ber af öðrum kónum. Sannast best að segja hér, sækist eftir rónum. Þeir.sem húseignir eiga.þurfa að greiða þrenn gjöld mánaðarlega: Auðunn Bragi Sveinsson yrkir: lll eru gjöldin okkar, afleiðing húseignar: til borgar.ríkis og blokkar, íbyrjun hvers mánaðar. Við fáum líkamann að láni sem endast á langa œvi. En misjafntfara menn með hann. Auðunn Bragi kveður: Líkaminn er lánuð hlíf, lengstsem œtti að spara Eiturnautnir.óhófslíf illa með hannfara. Auðunn Bragi yrkir þessa mann- lýsingu: Lítið fékk hann lífsverkþreytt, lyndishýr ogglaður, enda varð hann ekki neitt áberandi maður. Á síðustu Menningarnótt stóð fólk uppi á þaki verslunarinnar Zimsen í Hafnarstræti og kastaði af sér vatni niður á gangandi fólk. Uxi orti: Þegar fjöldinn fer á stjá, fagrar listir dafna. Á menninguna mátti sjá míga nœturhrafna. Fyrripartar: Að Bónusfeðgum fast er sótt, fyrir litlarsakir. Vinstri grænna valdaþrá, varð þeim loks aðfalli. V.L. sendir þennan: Vinstri grænir vilja ei virkja samstarflengur. Botnar, vísur og fyrripartar send- ist til: stokustund@vbl.is eða á Blaðið, Bæjarlind 14-16, 201 Kópa- vogur

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.