blaðið - 19.08.2005, Page 22

blaðið - 19.08.2005, Page 22
22 I VIÐTAL FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 blaöið Borgarstjórastóllinn kitlar ‘Þetta var erfiður dagur. Á sömu klukkustundinni tapaði ég formennskunni og konunni sem ól mig í þennan heim. Ég náði því samt að vera hjá henni þegar hún dó. Allt annað hvarf á þeim degi. Það var ekki fyrr en ég hafði kvatt hana á gang- stéttinni fyrir utan um kvöldið þegar við höfðum þrír frændur flutt hana niður sjö hæðir sem annað komst að. Þá virtist töpuð formennska hjóm í samanburði við aðra atburði dagsins", segir Össur Skarphéðinsson um örlaga- daginn þegar hann laut í lægra halidi fyrir Ingibjörgu Sólrúnu í formannskjöri Samfylkingar og missti móður sína örskömmu seinna. Hafðirðu trú á því að þú myndir vinnaformannskosninguna? „Ég er eldri en tvævetur í pólitík og það var töluvert ljóst orðið áður en kom að lokadegi hvernig úrslitin yrðu. Það breytti ekki þvi að ég ein- setti mér að koma út úr kosningabar- áttunni sáttur við alla. 1 dag ber ég ekki kala til nokkurs manns vegna formannskjörsins. Eftir furðu stutt- an tíma var ég búinn að ná mér af kosningunni. Þá fann ég til ósegjan- legs og undarlegs léttis sem ég hafði ekki áttað mig á að ég myndi upplifa. Mér leið eins og kálfi sem er sleppt úr fjósi að vori. í sumar hef ég svo verið í sannkölluðu banastuði. Ég finn að nýr kafli er að hefjast í lífi mínu með nýjum tækifærum og ég hlakka til hans einsog allra kafla- skipta i lífinu." Um hvað snýstþessi nýi kafli? „Mitt hlutverk í Samfylkingunni er að nýta reynslu mína og stöðu til að gera allt sem í mínu valdi stend- ur til að Samfylkingin nái góðum ár- angri í næstu kosningum - og kom- ist í ríkisstjórn. Það yrði flokknum mjög erfitt ef það gengi ekki. Það kann að hljóma undarlega í eyrum margra en ég lít á það sem eitt af mín- um hlutverkum að skapa Ingibjörgu Sólrúnu starfsumhverfi í flokknum sem gerir henni kleift að blómstra sem leiðtogi. Milli okkar eru eng- in eftirmál. Nýir formenn, hversu öflugir sem þeir eru, þurfa tíma til að fóta sig og Ingibjörg Sólrún er á réttri leið. Það er lífsspursmál fyrir Samfylkinguna að verða sam- stillt heild og ég ætla sannarlega að leggja mitt af mörkum til þess. Eg er í vaxandi mæli þeirrar skoð- unar að þjóðfélagsbreytingar sem hafa orðið á síðustu árum hafi leitt til misskiptingar sem ekki hefur áður átt sér stað. Það hljómar þver- stæðukennt en góðærið hefur alið af sér hópa sem eru útundan. Ég vil ýta undir frumkvæði einstaklings- ins með því að auka frelsi og fækka lögum í atvinnulífinu en ég vil samhliða berjast fyrir auknum jöfn- uði. Ég vil beita ríkiskerfinu, þar á meðal skattkerfinu, til að bæta kjör þeirra sem hafa setið eftir. Þetta setur grænar bólur í andlit margra intellektúala í mínum eigin flokki sem finnst hallærislegt að tala um fátækt og að útrýma henni. En þetta er eitt af þeim verkum sem eru eftir og ég vil taka þátt í að vinna.“ Sýti ekki endalok R-listans Nú er Reykjavíkurlistinn allur. Hver eru viðbrögð þín við því? „Ég hef fylgst með borgarmálum og ekki verið sáttur við ýmislegt í verkum R-listans. Eitt þeirra mála sem sýndi að hann var kominn á ranga braut var þegar tuttugu og tveimur gæslukonum, sem höfðu lengi unnið hjá borginni, var sagt upp. Þar á meðal var fatlaður ein- staklingur. Borgarstjórn, sem ég styð með ráðum og dáð, kemur ekki svona fram við fólk. Ég mótmælti því harkalega opinberlega. Ég tel að málið endurspegli þá staðreynd að Reykjavíkurlistinn var að mörgu leyti búinn að missa jarðsambandið við fólkið í borginni. Ég sýti ekki endalok Reykjavikurl- istans enda hefur Samfylkingin góð spil á hendi. Reykjavíkurlistinn hef- ur lokið hlutverki sínu og er að vissu marki fórnarlamb sinnar eigin vel- gengni. Ýmis góð störf voru unnin sem breyttu borginni til batnaðar en hitt er morgunljóst að Reykjav- íkurlistinn hefði ekki getað haldið áfram nema þar yrði endurfæðing hugmynda og nýtt fólk kæmi til sögunnar. Síðustu vikurnar virtist samstarfið aðallega snúast um valda- brölt og stóla.“ Það er erfitt að koma auga á sterkan leiðtoga í hópnum og borgarstjórinn virðist valtur í sessi. „Sú manneskja sem gegnir emb- ætti borgarstjóra hlaut það við sérstakar aðstæður þar sem mjög vinsæll og þekkilegur borgarstjóri varð að láta af völdum. Hún var borg- arstjóri með samþykktum inni á flokkskontórum. Borgarstjóri þarf pólitískt umboð til að vera sterkur. Sterkur borgarstjóri verður ekki til úr hrossakaupum að tjaldabaki. Sá einstaklingur sem þannig hlýtur sitt embætti er alltaf ofurseldur kon- tóravaldinu." Útiloka ekkert Finnst þér eitthvað betra ástand inn- an Sjálfstæðisflokksins? „Síður en svo. Stór hluti flokksins er greinilega óánægður með forystu oddvita meirihlutans og það dylst engum að til stendur að gera harða atlögu að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Gísli Marteinn er geðfelldur en hann þarf að sýna meira til að verða ann- að en pólitísk sumarfluga. Þótt ég sé alltaf á bandi þeirra sem brosa og eru glaðværir og góðgjarnir þá þurfa menn líka að koma fram með hugmyndir um framtið borgarinnar. Það hef ég hvorki séð Gísla Martein né Vilhjálm gera.“ Þú virðist hafa yfirburði yfir aðra Samfylkingarmenn sem borgarstjóra- efni í könnunum og Jónas Kristjáns- son fullyrti í leiðara i vikunni að þú vœrir ákjósanlegasta borgarstjóraefn- ið. Viltu verða borgarstjóri? „Ég er þingmaður Reykvíkinga og hef áhuga á málefnum borgarinnar en ég hef aldrei séð afskipti mín þann- ig fyrir mér að ég væri mögulegt borg- arstjóraefni. Hins vegar get ég alveg viðurkennt að það hefur kitlað mig að menn skuli orða mig við borgar- stjórastólinn. En það hefur ekki ýft öldur í mínum huga sem hefur verið með allra kyrrlátasta móti í sumar.“

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.