blaðið - 19.08.2005, Page 32
32 I MENNING
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 blaðiö
Ólíkax
stíttegundir
1 næstu viku, nánar tiltekið miðviku-
daginn 24. ágúst og fimmtudaginn
25. ágúst, verðurtónlistarveisla í Þjóð-
leikhúskjallaranum. Þar gefst gott
tækifæri til að heyra, á einu kvöldi,
margar ólíkar stíltegundir tónlistar
í flutningi góðra tónlistarmanna.
Fluttur verður rjóminn af því besta
sem flutt var á Kammertónleikum
á Kirkjubæjarklaustri fyrr í þessum
mánuði. Flytjendur eru Auður Haf-
steinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadótt-
ir, Björn Thoroddsen, Edda Erlends-
dóttir, Gunnar Þórðarson, Olivier
Manoury, Jón Rafnsson og Egill Ól-
afsson en á tónleikunum verður flutt
nýtt lag eftir hann, Kysstu kysstu
steininn. „Lagið er í síðrómantísk-
um stíl en ég held að mér takist að
merkja það þannig að augljóst er að
það er frá okkar tímurn", segir Egill.
Tónlistin á efnisskránni er fjölbreytt,
djass, tangó og klassísk tónlist.
.Surnir hafa fordóma gagnvart tón-
list, þurfa ekki annað en að sjá fiðlu
og tauta þá: Hættið þessu sinfóníu-
gargi. Alveg eins er þegar menn sjá
lúðra. Þá segja þeir: Hættið þessu
djassgargi", segir Egill. „Mér þyk-
ir gaman að hlýða á efnisskrá sem
samanstendur af ólíkum stíltegund-
um. Það er krefjandi og þroskandi
upplifun og oftar en ekki opnast
nýjar víddir við að heyra það sem
maður er ekki vanur.“ í Þjóðleik-
húskjallaranum verða leikin verk
eftir Janceck, Kodaly, Piazzolla, El-
lington, Gunnar Þórðarson, Olivier
Manoury, Egil Ólafsson, Björn Thor-
oddsen o.fl.. Aðgöngumiða er hægt
að kaupa á vefsíðu Þjóðleikhússins,
www.leikhusid.is
Tengslin við klassíkina
Edda Erlendsdóttir hefur undan-
gengin 15 ár verið listrænn stjórn-
andi Kammertónleika á Kirkju-
bæjarklaustri. Tónleikarnir nú í ár
eru þeir síðustu undir hennar stjórn
og því þykir hópnum í ár við hæfi að
enda með bravúr í Þjóðleikhúskjall-
aranum þar sem leikin verða valin
tónlistaratriði frá þessum síðustu
Klausturtónleikum 1 umsjá Eddu.
Egill var meðal þátttakenda árið
2001 og söng ljóðalög eftir Schubert
og Brahms. Þetta árið mætti hann á
ný og söng þá lög eftir Schumann.„Á
sínum tíma lærði ég klassískan söng
í Tónlistarskólanum í Reykjavík
og hafði hugsað mér að fara í fram-
haldsnám til Mílanó þegar skall á
með poppi“, segir Egill. „Ég var lý-
rískur baritón en er meira í ætt við
bass- baritón í dag. Eftir sýningu á
Vesalingunum árið 1987 kom Edda
til mín og sagði að ég ætti að syngja
Schumann. Það leið og beið og árið
2001 hafði hún samband og bauð
mér á Klaustur. Ég vildi takast á við
Brahms sem er minn maður sem
rær á djúpmið í ljóðalögum sínum.
Þetta gerði ég og þá tók Edda af mér
loforð um að syngja Schumann. Það
gekk eftir núna á Klaustri fyrr í þess-
um mánuði og var mjög gaman.”
Hlutverktækninnar
Er ekki sitthvað að syngja dœg-
urlög eða klassíska tónlist?
„Til að vera góður í dægurlagasöng er
æskilegt að ráða yfir tækni sem er í
grunninn sú sama og þegar fengist
er við klassískan söng. Klassískur
söngur gerir oft á tíðum meiri kröf-
ur um nákvæmni og tækni en þó eru
margar hliðstæður við dægurlaga-
sönginn. Þess vegna er mikilvægt
að þeir sem fást við söng almennt
verði sér út um tilsögn, þetta er ekki
sist nauðsynlegt ef röddin á ekki að
verða fyrir varanlegum skaða. Ég
heyri stundum hjá ungum söngvur-
um að best sé að hafa enga tækni og
að sé afstætt hvað sé hreinn tónn.
g segi að tæknin eigi ekkert að
þurfa að flækjast fyrir og getur jafn-
vel hjálpað til við að syngja óhreint
og bjagað ef menn vilja það. Ég er
hrifinn af mörgu í nýrri tónlist bæði
í listmúsíkinni og rokkinu og er á
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
því að nauðsynlegt sé að taka á móti Egill Ólafsson.„Til að vera góður í dægurlagasöng er æskilegt að ráða yfir
allri tónlist fordómalaust, það er tæknisemer ígrunninnsúsamaog þegarfengisterviðklassískansöng."
þroskandi og svo gerir það lífið auð-
ugra og skemmtilegra." ■
Hopkins og Dench bestu
leikararnir
Old Vic leikhúsið í London
gekkst á dögunum fyrir
skoðanakönnunum um
bestu leikara Bretlands fyrr og síðar.
Þátttakendur voru um 6000. Niður-
staðan var sú að Anthony Hopkins
er besti leikari sem Bretland hefur
alið og Judy Dench besta leikkonan.
Laurence Olivier var valinn ann-
ar besti leikarinn, Sean Connery
varð í þriðja sæti, Alec Guiness núm-
er fjögur og Michael Caine í fimmta
sæti. Af öðrum leikurum má nefna
að Richard Burton varð númer sex
og sjarmörinn Cary Grant lenti í átt-
unda sæti.
Julie Walters varð í öðru sæti
á leikkvennalistanum, Elizabeth
Taylor í því þriðja, Maggie Smith
númer fjögur og hin dásamlega
Julie Andrews náði fimmta sætinu.
Helen Mirrren varð númer sex og
finnst eflaust mörgum að hún hefði
átt skilið að lenda ofar. Nokkra at-
hygli vekur að kynbomburnar Joan
Collins og Diana Dors náðu níunda
og tólfta sæti. Julie Christie varð
númer ellefu og Kristin Scott Thom-
as númer sautján.
Anthony Hopkins var valinn besti leikari
Breta fyrr og sfðar.