blaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 38
38 I FÓLK FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 Maöiö SMAboraarinn SMÁVEGIS SNEIÐ TIL SMÁKÓNGANNA Smáborgarinn er kominn með upp í háls af fyrirferðinni í smá- kóngum landsins. Á kaffistofum landsins skiptast menn í fylking- ar eins og yfir fótboltaleik þegar rætt er mál málanna, Baugsmálið. Smáborgarinn fyrirlítur heilshug- ar báða málsaðila, Jón Ásgeir og klíkuna hans og forsætisráðherr- ann fyrrverandi og klíkuna hans. Vissulega hafa þessar smákónga- klíkur ólíkt til saka unnið en báðar eiga sinn hlut í auknu virð- ingarleysi gagnvart stofnunum lýðveldisins, þeim stofnunum sem hér eiga að viðhalda skipulagi sam- félagsins og tryggja samlyndið. Smáborgarinn sat að kveldi mið- vikudags fyrir framan fréttaveit- una sína, sjónvarpstækið, og fylgd- ist spenntur með endursýningum á þáttunum um Medici fjölskyld- una í Flórens. Auðvitað var þetta svolítið eins og að horfa á frétta- tímann aftur, bara öðruvísi bún- ingar, því átökin voru þau sömu, peningarnir keimlíkir og valda- fíknin eins og klónuð. Sú hugsun flaug þó að Smáborgaranum að betur færi á því í íslensku samfé- lagi nútímans að peningamenn sinntu hugmyndasmiðum og lista- mönnum af sambærilegri natni og stjórnkænsku og Cosimo gerði á fimmtándu öld. Það er þó líklega borin von í sam- félagi nútímans að menn sjái samhengi hlutanna, mikilvægi hugmyndanna og sköpun framtið- arinnar. Til þess eru eru íslenskir peningamenn alltof takmarkað- ir og „takkí“. Svo ekki sé minnst á íslensku stjórnmálamennina. Það er orðið æði langt síðan hug- myndaauðgi var fyrir að fara í þeirra hópi eins og framkvæmda- listinn sannar, stóriðja, stóriðja og aftur stóriðja. Þess vegna erfa þeir ekkert annað en allt hið versta frá tímum Medicifjölskyldunnar, valdagræðgi og við hin valdalaust Alþingi. Þeir samborgarar Smáborgarans sem hafa náð að klifra upp úr hjól- förum ládeyðu hugsunarskorts og leiðtogadýrkunar, sumir hverjir með miklum erfiðismunum, virð- ast loksins eftir áratug aukinnar einkaneyslu, vera að átta sig á því að þeir hafa það hvorki verra né betra en kotbændur fortíðar- innar, sé miðað við uppsafnaðan hamingjustuðul, þó þeir eigi DVD heima í stofu. í stanslausu fram- boði hugsanadrepandi afþreying- arefnis eru sífellt fleiri komnir með upp í kok af innihaldsleysinu og kæra sig ekkert um fleiri fyrir- ferðamikla leiðtoga. Það er sorglegt en það er ekki einu sinni hægt að líkja þessu íslenska ástandi nútímans við afturhvarf til miðalda. Því hvað sem segja má um stjórnarhætti Medici-manna og keppinauta þeirra með tilheyr- andi undirförli og átökum þá hafði þessi fjölskylda að minnsta kosti sans fyrir hugmyndasögu og listum. Það er af sem áður var og sá arfur sem smákóngar nútímans skilja eftir sig fyrir börnin okkar smáu, Islendinga framtíðarinnar, er virðingaleysi og upplausn. Þess- ir menn gleyma því að þessi þjóð tilheyrir Smáborgaranum ekk- ert síður en þeim. Og þeir eru að skemma. Þeir ættu að skammast sín. Smákóngar. Skyrp. SU DOKU talnaþraut Lausn á33. gátu verður að finna i blaðinu á mánudaginn. Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri Hnu og innan hvers box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. Lausn á 32. gátu lausn á 32. gátu 9 3 4 7 2 8 1 6 5 2 1 5 6 3 9 8 4 7 7 6 8 5 4 1 9 3 2 1 7 6 3 9 2 4 5 8 3 5 9 8 7 4 2 1 6 8 4 2 1 6 5 3 7 9 4 9 7 2 5 3 6 8 1 5 2 1 4 8 6 7 9 3 6 8 3 9 1 7 5 2 4 33. gata 9 5 8 2 6 7 4 5 5 2 7 6 5 2 4 7 8 2 4 6 1 3 3 2 5 sögð með átröskun G\ t ^ Nýjar myndir hafa birst af Teri Hatcher, stjörnu Desperate Housewives, þar sem að hún er úti skokkandi og velta menn nú fyrir sér hvort að Teri sé komin með átröskun, en hún hefur alltaf verið í grennri kantinum. Samkvæmt tímaritinu Closer, neitar Teri því. “Þyngd mín hefur ekkert breyst, ekki stærð mín, og ekki neitt. Ég er í mjög góðu formi - þess vegna er ég nú að skokka!”, segir hún. “Teri hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að setja gott fordæmi fyrir ungar konur. Hún er alls ekki með átröskun eða neitt þess háttar,” segir talsmaður hennar. Teri segist einungis vera sek um að vera of íþróttamannslega vaxin og neiti auk þess að borða ruslmat. ■ HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Steingeit (22. desember-19. janúar) $ íhugaðu lengri tíma áform og reyndu að skipu- leggja ems langt fram í tímann og mögulegt er. Pú séro framtíðina í skýrara ljósi en venjuiega og ættir að geta sannfært aðra. V Núna er einmitt rétti tíminn til að íhuga hvert þú stefnir, í vinnunni, í ástarlííinu eða í sköpuninni. Pú veist hvað þú vilt, gerðu það sem þú þarít til að náþví. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Talaðu á opinberum vettvan^i og vertu viss um að hugmyndir þínar heyrist. Þu munt hafa meiri áhrif en þú telur í fyrstu. V Þú ljómar af orku og vellíðan og aðrir munu vilja vera í návist þinni. Vertu einlæg/ ur og hlustaðu á aðra. OFiskar (19. febrúar-20. mars) $ Höfuðið er fullt af hugmyndum, svo mjög að það er í raun erfitt að einbeita sér. Reyndu aös&ifa pær niður en ekki búast við mikilli framleiðni. V Það er erfitt að einbeita sér en ekki vera of hörð/ harður við þig. Þú hefur gert svo margt nýlega og hitt svo marga. Slakaðu á. Jessicu boðin Las Vegas sýning Jessicu Simpson hefur nú verið boðin heil Las Vegas sýning fyrir sjálfan sig og hefur George Maloof beðið hana um að syngja í Palms Resort&Casino. Fjölmiðlafulltrúi Jessicu segist geta staðfest að það hafi verið áhugi þeirra megin, en að Jessica sé ekkert sérstaklega með hugann við tilboðið. Fyrr á þessu ári keypti Jessica og eiginmaður hennar Nick Lachley lúxus íbúð nálægt Palms Resort. ■ Brítney að eignast strák? Söngkonan Britney Spears er sögð munu eignast strák, en hún eyddi sem svarar til 700 þúsund krónum i barnaföt á stráka í búðinni Petit Tresor í Beverly Hills nýlega. Sagt er að Britney og eiginmaður hennar, Kevin Federline, séu að hugleiða mörg nöfn á barnið, en það sem að stendur upp úr sé nafnið Preston. Fréttir bárust hins vegar af því að Britney vildi helst skíra barnið Charlie, eftir sögupersónunni í myndinni Charlie and The Chocolate Factory. Hún á von á barninu í næsta mánuði. ■ Hrútur (21. mars-19. apríl) $ Stjómunarhæfileikar þínir eru sterkir og núna er tíminn til að skipuleggja hóp fólks sem deuir sýn þinni og skoðunum. V Safoaðu saman liði og skipuleggðu eitthvað Naut (20. apríl-20. maí) $ Samstarfsfélagi eða viðskiptavinur kemur við kaunin á þér í dag. Þú þarft að sýna auðmýkt svo þú móðgir hann ekki. V Heimurinn er skrýtinn í dag. Það er heillandi að skoða andlit fólks þegar það gengur hjá. Þú stenst ekki að hugsa hvernig lín þaðlifir. ©Tvíburar (21. maí-21. júní) $ Nýr samstarfsmaður eða viðskiptavinur mun koma og breyta hlutunum til hins betra. Það gæti virst ankannalegt til að byrja með en þú munt njóta breytinganna. V Þú ert rosalega opin/n í dag og hefur því ánægju af alls kyns umræðum. Það þarf llka lítið til að sannfæra þig. ©Krabbi (22. júní-22. júlí) $ Notaðu höfuðið eins mikið og þú getur þar sem það kemur þér lengra en hjartað í dag. Aðnr munu virðast kalair eða eigingjarnir en í raun eru þeir bara hugsandi. V Þú stendur frammi fýrir flóknu vandamáli og þú þarft að brjóta heilann til að finna lausnina. Reyndu að gera það í næði. Ljón (23. júlí- 22. ágúst) $ Þú þarft að horfa lengra en þú gerir venjulega til að leysa áskoranir dagsins. Þao er góð hugmynd að byrja á hlutum sem þú getur auðvddlegaleyst. Er allt í drasli heima hjá þér? Hvernig væri að losa sig við drasl sem þú þant ekki lengur. Það rýmk- ast þá Kannski til. Meyja (23. ágúst-22. september) $ Það er kominn tími til að þurrka rykið af göml- um skjölum og hagræða í skrifstofunm. Taktu til og losaðu þig við eins mikið og þú mögulega getur. V Tilraun er orð dagsins í dag. Hvort sem þú ætlar að gera tilraunir meö tilfinningar eða vatnsnotkun skaítu reyna eitthvað nýtt. Hver veit nema þú lærir eitthvað af því. Vog (23. september-23. október) $ Núna er einmitt tíminn til að laefæra eða styrkja móralinn í vinnunni. Samvinna nefur aldr- ei verið svona auðveld eða skilað eins mikilli ffam- leiðni. V Þér kemur betur saman við fólk en nokkru sinni fyrr. Vináttan er sterkari, róman- tíkin er heitari og það hafa allir bros fyrir þig. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Það verður erfitt að vinna með yfirmönnum í dag. Kannski eru þeir of íhaldssamir fyrir þinn smekk eða að þeir sjái hlutina ekki eins og þú. V Þú ætti að hlakka til því það eru góðir tímar ffamundan. Þér veitir ekki af eins og skap þitt í dag gefur til kynna. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) V Þú ert fljót/ur að hugsa í dag og enjginn þarf að útskýra neitt tvisvar. Enaa ertu náttúrulega forvitin/ n og tekur eftir fólkinu í kringum þig.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.