blaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 38
38 IFÓLK FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaöiö SMAboraarinn BÖRN SEM EIGA EKKITILVERURÉTT Smáborgarinn hefur ósköp gam- an af börnum og á lifandis býsn af einstaklega myndarlegum og þeim mun gáfaðra frændfólki sem öll líkjast vitanlega Smáborg- aranum á allan hátt. En Smáborg- arinn er samt engan veginn til- búinn til barneigna sjálfur enda alltof latur og sjálfselskur til að hugsa um annað en nákvæmlega rassgatið á sjálfum sér. Sennilega mun Smáborgarinn einhvern tím- ann eignast börn þótt það verði ekki strax. Smáborgarinn skilur þess vegna mjög vel þá sem kjósa að eiga ekki börn. Haegt að eignast börn og sinna framanum Hitt er annað að það virðast vera fáir sem þora að segja það því þeir telja að það sé gagnrýni vert. Það sem er þó enn sorglegra er að Smáborgaranum virðist sem ansi margir foreldrar eignist börn án þess að nenna að hafa fyrir þeim. Það er eins og þeir foreldrar hafi einungis eignast börn vegna þess að þeim fannst það vera þeirra hlutverk! Eins fáránlegt og það hljómar á 21. öldinni. Sem betur fer lifa foreldrar í þeim veruleika að þeir geta eignast börn og sinnt frama sínum en það þýðir þó ekki að þeir geti algjörlega komist hjá því að eyða tíma með börnum sín- um því á endanum mun það bitna á börnunum og engum öðrum. Ja, og kannski þeim sem þurfa endalaust að vera að passa þessi blessuðu börn. Alitaf í pössun Smáborgaranum finnst trúlegt að flestir þekki svona foreldra en vonar að þeir foreldrar sem hann þekkir séu einsdæmi. Smá- borgarinn horfir nefnilega á þá koma börnunum sínum í pössun strax eftir að leikskóla eða skóla lýkur, helst dag eftir dag. Sömu foreldrar vilja helst að börnin séu í pössuninni fram yfir kvöld- mat svo einungis sé eftir að koma börnunum í háttinn þegar heim er komið. Smáborgarinn horfir á þessi börn með tárin í augunum því þau skynja þetta svo greini- lega enda eru þau frá unga aldri farin að biðjast afsökunar á til- veru sinni. Svona fólk á ekki að eignast börn. Börn sem stöðutákn Vitanlega er fullt af fólki þarna úti sem þarf að vinna mikið en eyðir öllum sínum fritíma í börn sín ut- an þess. Það er gott og blessað en Smáborgarinn þekkir allt of mik- ið af hinsegin fólki sem virðist vilja losa sig við börnin í tíma og ótíma til að geta gert eitthvað allt annað. Upp að vissu marki skilur Smáborgarinn þessa þörf en það er einmitt ástæðan fyrir því að hann á ekki börn. Það væri ósk- andi að þessir blessuðu foreldrar myndu fara að sinna börnunum sinum enda eru þau einstaklingar en ekki stöðutákn. SU DOKU talnaþraut Lausn á 42. gátu verður að finna i blaðinu á morgun. Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp i upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er i efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. Lausn á 41. gátu lausn á 41. gátu 7 8 9 6 2 3 4 5 1 5 3 6 9 1 4 2 7 8 1 2 4 8 5 7 6 3 9 9 5 7 1 4 6 8 2 3 4 1 8 2 3 5 7 9 6 3 6 2 7 8 9 1 4 5 6 9 5 4 7 1 3 8 2 2 4 1 3 9 8 5 6 7 8 7 3 5 6 2 9 1 4 42. gata 4 2 3 7 6 9 1 9 7 1 8 7 6 4 6 3 3 5 7 9 4 8 7 5 2 6 8 1 9 5 Brítney öskrar á unglingsstelpu HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Steingeit (22. desember-19. janúar) Britney Spears virðist gera sér það að leik að ráðast að unglingum með orðum og yfirlæti til að verja systur sína. En systir hennar Jamie Lynn leikur í þáttunum Zoey 101 ásamt ungri leikkonu að nafni Alexa Ni- kolas en þær eru báðar þrettán ára. Spears kom þar sem verið var að taka þættina og tók Alexu á eintal þar sem hún öskraði á hana að hún væri vond, lítil stelpa og ef hún gætti ekki að sér myndi hún aldrei vinna í þessari borg framar. Heimildarmaður á tökustað sagði: „ Alexa var grátandi og í virkilegu uppnámi. Hún hefur keypt Britney diska síð- an hún var sex ára göm- ul og síðan er Britney að brjóta hana niður. Þetta var alger óþarfi. Alexa og Jamie höfðu bara verið að rífast eins og þrettán ára stelpur gera og Britney hefði ekki átt að skipta sér af.“ Talsmaður systr anna viðurkenndi að atvikið hefði átt sér stað en sagði að Britney hefði ekki öskrað á stúlkuna og væri aðeins að leika sáttasemjara. ■ Viktoría er ósköp venjuleg mamma $ Þetta er dagur áskorana en það er ekkert sem þú getur ekki unnið með. Þú getur huggað þig við það að þótt ekkert sé auðvelt núna þá verður af- raksturinn þeim mun sætari. V Ekkert gengur upp hjá þérþessa dagana en það merkir einungis að jafnvægi kemst á von braðar. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Alhr vilja hlut af kökunni en hún er jafnvel ekki nógu stór. Skapandi hæfileikar þínir gera þér kleift ao ná þínum nluta og aðrir munu vera sáttir við sinn hlut. V Allt í einu vita aUir í kringum þig hvað þeir vilja og halda að þú sért manneskjan sem færir þeim það. Þú þarft að leika af fingrum fram áður en aUt gengur upp. ©Fiskar (19. febrúar-20. mars) $ Þú gætir orðið það upptekin með viðskipta- vinum að þú gleymir að oorða. Reyndu að hafa eitthvað vio hendina þegar blóðsykurinn lækkar. ▼ Nú væri gott að laea mataræðið. Það er algjör óþarfi að taka það algjörlega í gegn en aðeins meira af crænmeti og ávöxtum munu bæta skap þitt umtalsvert. Hrútur (21.mars-19. apríl) $ Dagurinn verður nánast fulUcominn þar sem þú reynir að sannfæra aðra um réttmæti hugsun- arháttar þíns. V Stundum þarf að vera á réttum stað og á rétt- um tíma fyrir rómantík. Einhvem veginn ert þú aUtaf á réttum stað á röngum tíma en það rætist úr því fljótlega. Naut (20. apríl-20. maí) $ Stjórnmál eiga stóran þátt í vinnustaða- stemmningunni um þessar mundir oe þú kemst ekki hjá því að vera með. Deildu skoounum þín- um en einbeittu þér að heUdarmyndinni. V Þú þarft að taka meiri þátt í einkalífum fólks en þú kýst að gera en þú kemst ekki hjá því. . ©Tvíburar (21. maí-21. júní) $ Fólk mun leita eftir ráðleggingum þínum. Ekki hafa áhvggjur af skUafresti eða hindrunum, þetta mun allt ganga eftir. V Það vilja allir eigna sér þig, jafnvel þeir sem varla þekkja þig. Þao er svona að vera vinsæl/l. ©Krabbi (22. júní-22. júlí) $ Þi^ langar að taka skyndiákvörðun sem gæti haft þyðingarmikU áhrif á feril þinn. Ef það geng- ur uj>p þá ætti lífið að reynast þér auðvelaara íkjol- Stundum þarf að gera eitthvað brjálað til að ná fram þvi sem maður viU. Þú verour álíka ánægð/ur með að hafa gert það og útkomuna. e Ljón (23. júlí-22. ágúst) Viktoría Beckham segist vera ósköp venjuleg stúlka sem klæðist gallabux- um og noti engan farða. Hún segist því vera eins og hver önnur mamma og að líf sitt með fótboltakappanum David Beckham sé svo venjulegt að það sé næstum leiðinlegt. „Fólk sér allar þessar myndir af okkur og ég er uppstríluð. Auðvitað reyni ég það þegar ég er að fara út með eigin- manni mínum en trúið mér þegar ég segi að heima, þegar enginn sér okk- ur, þá erum við svo eðlileg að það er næstum því leiðinlegt. Auðvitað snýst ég ekki um heima hjá mér í há- um hælum og dýrum kjólum þegar ég set í uppþvottavélina eða þegar ég leik mér við börnin." ■ Gwyneth gefur góð ráð Gwyneth Paltrow hefur boðið ráð- leggingar sínar handa Brad Pitt og Jennifer Aniston, þó heldur seint sé. En hún hefur látið hafa eftir sér að parið hefði aldrei átt að ræða sam- band sitt við fjölmiðla á meðan þau voru saman. Pitt og Aniston ræddu samband sitt frjálslega í fjölmiðl- um á meðan því stóð og Pitt sagði til dæmis að hann væri ekki viss hvort það væri í náttúru mannfólks að vera með einhverjum út ævina. „Það hefði verið miklu auðveldara fyrir Brad Pitt og Jennifer Aniston ef þau hefðu ekki rætt um hvort annað og allt annað við fjölmiðla. Ég lærði mína lexíu þegar ég var 24 ára.“ Gwyneth, sem var áður orðuð við Ben Affleck, Brad Pitt og Luke Wilson, er hamingjusamlega gift Chris Martin úr Coldplay og saman eiga þau ársgamla stelpu. Gwyneth segist vilja halda sínu einkalífi út af fyrir sig. „Hjónaband okkar er okkar einkamál. Ef við ákveðum að halda áfram að vera saman eða ekki þá er það okkar mál.“ ■ $ !’ii vekur athygli f vinnunni fyrir einstaklega póðan árangur. Vinnufélagar munu færa þér ham- mgjuóskir í nrönnum. V Þú ert á toppnum félagslega séð og allir vilja þekkja þig. Hver veit hve lengi það enaist svo þú skalt njota þess. Meyja (23. ágúst-22. september) $ Það er svo míkib í gangi að það verbur erfitt að halda ró sinni. En þvfmeira sem er að gera því auðveldara er að skara fram úr með því ao vinna vel og mikið. V Það er hægt að hafa stjórn á öllu í lífinu en ekki rómantíkmni og sérstaklega ekki núna. Slak- aðu á og njóttu þess. ®Vog (23. september-23. október) $ Þeir samstarfsmenn sem þú veist að þú getur treyst munu aðstoða þie. Láttu þá vita af því að þú þarfnist þeirra því þeir lesa ekki hugsanir. V Hittu það fólk sem þú þekkir best og þér þyk- ir vænst um. Þú þarfnast þeirra virkilega núna en það er ekki þar með sagt að þú eigir við eitthvað vandamál að stríða. Stundum er bara gott að hafa ástvini nálægt. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Ljúktu verkefnunum sem eru framundan.Yfir- menn þínir gaetu fengið þig til að taka á móti nýj- um verkefnum en reyndu að fresta þvf um sinn. V Það eru ekki allir sem vilia heyra þfnar skoðan- ir. Áður en þú býður fram ráðleggingar þf nar vertu viss um að það sé verið að leita eftir þeím. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Þú vilt kannski ekki hætta stöðu þinni en með því að taka áhættu núna máttu búast við jákvæðri niðurstöðu, sérstaklega ef það er eitthvað sem þarf fjarlægð til að Ijúka. V Klmnigáfa þln er kynþokkafyllri en margt ann- að.Notaðuþaðþér f haginn.það er alltaf þörf fyrir góða brandara.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.