blaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 22
22 I MATUR
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaöiö
RAGGA ÓMARS MATREIÐSLUMEISTARA
Enn og aftur ætla ég að minnast á
hvað ég er ánægður með úrvalið í
verslunum í dag og það er hægt að
gera „gourmet” veislu heima hjá
sér án þess að þurfa að væla í heild-
verslununum um að redda sér hinu
og þessu. Ég ætla að gefa ykkur smá
hugmynd um hvernig á að matreiða
andabringur. Þessar bringur í búð-
unum eru allar erlendar alibringur
en því sem ég best veit er enginn að
framleiða andabringur hér heima,
allavega ekki í einhverju magni. Þeg-
ar andabringur eru matreiddar eru
ristir grunnir skurðir í fituna, það
er gert til að bræða sem mesta fitu
þegar þær eru steiktar. Gott er að
láta þær liggja í smá olíu og gróft
rifnum appelsínuberki og fersku
timiani í lágmark einn sólarhring.
Þá er panna hituð vel upp og bring-
urnar steiktar á fituhliðinni á þurri
pönnunni því það kemur heilmikið
af fitu úr bringunni. Bringurnar eru
steiktar þar til þær eru gullinbrúnar
og vel stökkar. Þá er bringunni snú-
ið við og steikt mjög stutt eða í um
það bil tvær mínútur og þær krydd-
aðar með salti og pipar. Andabring-
ur eru, að mér finnst og flestum
held ég, bestar miðlungs-steiktar og
það er sama reglan með andakjöt
og annað kjöt. Það þarf að leyfa þvi
að hvíla áður en skorið er í sneiðar.
Andakjöt kallar svolítið á eitthvað
súrsætt eins og ávexti í bland við
annað meðlæti.
Steiktar andabringur með mangó,
bak choy og sesam-soya gljáa.
Fyrir4
4 stk andabringur (eða 200 g á mann)
2 stk mangó.vel þroskaður
2 hausar bak choy (asískt kál.má nota
spínat eða eitthvað álíka)
saltog plpar
Aðferð:
Steikið andabringurnar eftir aðferð-
inni sem lýst er hér að ofan. Skerið
mangóið í grófa bita og bak choy-ið
í strimla. Þegar bringurnar eru tekn-
ar af pönnunni þá er mangóið og kál-
ið steikt á sömu pönnu og smakkað
til með salti og pipar.
Gljáinn:
4 msk soyasósa
2 msk tómatsósa
2 msk púðursykur
2mskbalsamicoedik
safi úr2appelsínum
safi úreinni sítrónu
1/3 tsk karrýduft
1/3 tsk engiferduft
2 msk sesamfræ
Aðferð:
Allt nema sesamið er sett í pott og
soðið þar til það byrjar örlítið að
þykkna. Þá er sesaminu bætt út í,
borið fram heitt eða kalt.
Kveðja Raggi
Blaðið kynnir:
Líklega besti bjór í
heimi klár í kælinn
Nú eru Carlsberg 33cl dósir fáanlegar í skemmtilegum 10 dósa kössum sem taka lítið pláss
í ísskápnum og eru afar þægilegir í ferðalagið.
Kassinn er opnaður að framan og dósirnar rúlla á móti manni.
Kassinn kostar aðeins 1.350 kr. í næstu vínbúð.
Cote de Nuits
í Búrgund
f annarri grein af fimm um Búrg-
und verður fjallað um Cote de Nuits
sem er talið helsta rauðvínssvæðið í
Búrgund. Eins og í flestum svæðum
í Búrgund er aðal rauðvínsþrúgan
Pinot Noir. Sú vinþrúga er almennt
ekki talin eins þung og kröftug og
Bordeaux vínþrúgurnar Cabernet
Sauvignon, Merlot eða Ca-
bernet Franc og alls ekki
eins krydduð og Syrah/
Shiraz vínþrúgan. En sagt
er að Pinot Noir beri meiri
klassa og sé vandaðara vin.
Hvort þetta er satt verð-
ur hver og einn að dæma
en enginn getur neitað
þvi að vel gert rautt Búrg-
und vín er hrein unun að
drekka! Pinot Noir hefur ákveðinn
eiginleika þegar það er fullþroskað,
það gefur af sér mikið af sveita-, villi-
sveppa- og fjósalykt og bragð. Þó að
þetta hljómi ekki beint vel er þetta
bragð sem hentar afar vel með alls
konar mat og gerir meðal annars
dádýr, hreindýr og villifugla að stór-
kostlegri máltíð.
Eins og í Chablis er Grand Cru
talinn hæsti gæðaflokkur, Premier
Cru næst besti og AC Bourgogne fyr-
ir neðan. Hér eru örlitlar upplýsing-
ar um helstu svæðin í Cote de Nuits,
fjallað verður um svæðin frá norðri
til suðurs.
Marsannay er nyrsta svæðið og
þar er aðallega búið til rauðvín en
svæðið er einnig þekkt fyrir mjög
góð rósavín framleidd úr Pinot Noir.
Fixin er rétt fyrir neðan Marsannay
og þar eru framleidd góð og ódýr
rauðvín á Búrgund mælikvarða.
Gevery-Chambertin er með flest
Grand Cru svæðin í Búrgund, alls
átta talsins og þar er eingöngu fram-
leitt rauðvín. Vínin eru þekkt fyrir
mikil gæði og möguleika á endingu
í 20 til 40 ár.
Morey-St.-Denis er með fimm
Grand Cru svæði og er talið aðeins
fínlegra en Chambertin svæðið.
Chambolle-Musigny er með tvö
Grand Cru svæði en býr einnig til
mjög vandað hvítvín. Vougeot er
með eitt af stærstu Grand
Cru svæðum Clos Vouge-
ot sem getur verið gott en
er oft ekki eins vandað
vín og á hinum svæðun-
um. Flagey-Echezeaux er
lítið svæði með einungis
tvö Grand Cru svæði og
ekkert Premier Cru, mjög
gott vín framleitt þar, en
erfitt að finna. Vosne-Ro-
manée er án efa besta svæðið í Cote
de Nuits. Bordeaux hefur Lafite, Petr-
us o.s.frv.. Búrgund hefur La Tache
og Romanée-Conti, dýrasta og án
efa besta Pinot Noir vín framleitt í
heiminum, vínin eru framleidd og
ræktuð í Vosne-Romanée.
Nuits-St.-George hefur 40 Premi-
er Cru svæði en ekkert Grand Cru
svæði. Það virðist vera að svæðið sé
gott en það vantar herslumun til að
búa til Grand Cru vín.
Premeaux svæðið er alltaf tengt
Nuits-St.-George og meðal annars
eru öll Premier Cru vínin þeirra
merkt sem Nuits-St.-George. Einn-
ig er búið til þokkalega gott hvít-
vín á svæðinu. I Cote de Nuits
Villages þorpunum er framleitt AC
Bourgogne vín sem er í aðeins hærri
gæðum en venjuleg AC Bourgogne.
Helstu þorpin eru Brochen, Coml-
acheim,
eaux.
Corgolion, ,Fixin og Prem-
WWW.SMAKKARINN.IS