blaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 blaAiA
Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Kristilegra demókrata, greið-
ir atkvæði nærri heimili sínu i Kolbotn I Noregi.
Tvísýnar
kosningar í Noregi
Vinstriflokkarnir sigra í kosning-
um til norska stórþingsins í dag ef
marka má skoðanakönnun sem
stærstu fjölmiðlar í Noregi birtu
í gær. Samkvæmt könnuninni fá
vinstriflokkarnir 87 þingsæti en 85
þarf til að tryggja sér meirihluta á
stórþinginu. Hægri og miðflokkarn-
ir fá 81 þingsæti en munurinn er inn-
an skekkjumarka. 1 annari könnun
sem birt var í gær fara hægri og mið-
flokkarnir aftur á móti með naum-
an sigur og er því ljóst að það stefnir
í spennandi kosningar í dag.
Enn er fjöldi kjósenda óákveðinn
og er talið að þeir kunni að ráða úr-
slitum um endanlegar niðurstöður
kosninganna. Þá er ekki ólíklegt
að minni flokkar kunni að komast
1 oddaaðstöðu þegar stjórnarmynd-
unarviðræður hefjast.
Framan af kosningabaráttunni
var vinstriflokkunum með Jens
Stoltenberg sem forsætisráðherra-
efni spáð sigri í skoðanakönnun-
um. I könnunum sem gerðar hafa
verið undanfarna daga hafa aftur
á móti hægriflokkarnir með Kjell
Magne Bondevik, forsætisráðherra,
í broddi fylkingar, haft betur. Nú
virðast vinstri menn vera að sækja
í sig veðrið á ný.
Staða Bondeviks óljós
Þó að stjórnarflokkarnir og Fram-
faraflokkurinn sigri kosningarnar
er óvíst um framtíð Kjell Magne
Bondeviks í stóli forsætisráðherra.
Framfaraflokkurinn sem hefur var-
ið fráfarandi ríkisstjórn vantrausti
hefur nefnilega lýst yfir að hann
vilji skipta um karlinn í brúnni eftir
kosningar.
Hið svokallaða Rauðgræna
bandalag vinstriflokkanna saman-
stendur af Verkamannaflokknum,
Miðflokknum og Sósíalíska vinstri-
flokknum en bandalag hægri flokk-
anna af stjórnarflokkunum auk
Framfaraflokksins.
www.ecc.is
Hreinsar loftið
Eyðir lykt
Drepur bakterfur
ECC Skúlagötu 63
Sími 5111001
Opið 10-18
ísraelsmenn
yfirgefa Gaza
Palestlnskir hermenn búa sig undir að taka við fyrrum landnemabyggðum gyðinga á Gazasvæðinu í gær.
irnir yfirgefi svæðið í dag. Síðustu
hindruninni var rutt úr vegi þegar
ríkisstjórn Israels ákvað að skilja eft-
ir tæplega tuttugu bænahús á Gaza-
svæðinu og láta Palestínumönnum
eftir að ákveða örlög þeirra.
Palestínska heimastjórnin hef-
ur ásakað yfirvöld í ísrael um að
vilja nota sig sem blóraböggul á al-
þjóðavettvangi ef bænahúsin verða
skemmd eða eyðilögð. Ríkisstjórn-
in hætti við að jafna húsin við jörðu
eftir að rabbínarnir sögðu það vera
meiri synd en hugsanleg vanhelgun
Palestínumanna.
Landamærin enn lokuð
Gideon Meir, háttsettur embættis-
maður í utanríkisráðuneyti Israels,
sagði þetta vera sögulegan dag. „Við
erum að yfirgefa Gazasvæðið eftir
38 ár til að gera Palestínumönnum
kleift að lifa eigin Hfi. Nú er komið
að þeim að sýna að þeir geti lifað
vejulegu lífi með eðlilegum efnahag
og byrjað upp á nýtt“, sagði Meir.
Palestínumenn benda aftur á móti
á að ísraelsmenn hafa enn sem fyrr
stjórn á lofthelgi Gazasvæðisins,
vatnslindum og landamærastöðv-
um. „Svo lengi sem landamærahlið-
in eru lokuð lítum við á Gazasvæðið
sem hernumið land“, sagði Sufian
Abu Zaydeh, ráðherra í palestínsku
heimastjórninni. ■
ísraelsmenn lýstu yfir lokum her-
setu sinnar á Gazasvæðinu í gær.
Þar með stendur ekkert í veginum
fyrir að brottflutningi þeirra af
svæðinu verði lokið og það afhent
Palestínumönnum eftir hernám
sem staðið hefur í 38 ár. Israelskar
hersveitir héldu af svæðinu í gær
enda eru yfirgefnar landnemabyggð-
irnar sem þær áttu að gæta í rúst og
búið að taka niður herstöðvar. Búist
er við að síðustu ísraelsku hermenn-
Búddamunkar á bæn í hofi í Sjanghæ.
Vilja reka hofsín betur
Munkar með MBA-gráðu
Átján búddamunkar og fáeinir leik-
menn stunda nú sérhæft MBA-nám
við háskóla í Shanghæ í Kína til að
vera betur í stakk búnir til að reka
hof sín. í námskeiðinu er meðal
annars hofrekstur og viðskipta-
kænska kennd, auk þess sem farið
er í hvernig markaðssetja skuli trú-
arlegar greinar. „Með þessu námi
viljum við læra hvernig hinum
veraldlega heimi er stjórnað", segir
Tjang Tjún, zen-búddamunkur, sem
er framkvæmdastjóri búddahofs í
borginni. Þúsundir af búddahofum
hafa verið gerð upp eða endurbyggð
á síðustu árum, aðallega til að laða
að ferðamenn. I því tilviki þar sem
lengst var gengið voru rústir gamall-
ar pagóðu í hinni fornu borg Hang-
sjú endurbyggðar úr gleri, stáli og
steypu, með lyftum og rúllustigum
og rafrænum snertiskjám. ■
ENSKA ER OKKAR MAL
Enskunámskeið að hefjast
Okkar vínsælu talnámskeið auka orðaforða og sjálfstraust
• Talnámskeið - 5 og 10 vikur * Einkatímar
Barnanámskeið frá 5 til 12 ára Námskeið fyrir 8-10. bekk
* Viðskiptanámskeið * Málaskólar í Engfandi
Málfræði og skrift Umræðuhópar
Indverskur strákur með apana sína tvo.
Jóga Jóga Jóga
Al-Einingar öndun byrjar 9 sept. kl.20
Raja Jóga hefst 12.sept. kl.20
Sálar Jóga hefst 1B sept. kl.20
Vertu velkomin í heimsókn og ráðgjöf
Hríngdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8
Upplýsingar fást hjá Karli Þorsteinssyni í síma 660-7796
og/eða sjá www.andlegiskolinn.is Andlegi Skólinn