blaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 16

blaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 16
16 I HEILSA MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 blaöiö Ætihvanna- lauf eykur svefnfrið karla Blöðruhálskirtilsvandamál eru vaxandi hjá karlmönnum. Af einhverjum óþekktum or- sökum virðist þetta vandamál aukast hraðar á Norðurlöndum en annars staðar. Talið er að um fimmtugsaldur eigi 50% karlmanna við þetta vandamál að stríða og við sjötugsaldur hafi þetta hlutfaU hækkað i 70%. Þegar blö ð r uhálskir till stækk- ar þrýstir hann á þvagrásina sem getur truflað þvaglát. Þetta lýsir sér m.a. í tíðari þvaglátum einkum um nætur og ættu menn þá að leita til læknis. Ef um góðkynja stækkun á blöðru- hálskirtli er að ræða þá er unnt að fá hjálp með SagaPro sem unnið er úr ætihvannalaufi. Rannsóknir sýna að í ætihvannalaufi er m.a. efnið osthenol (kúmarín efni). Hindr- ar það virkni á mikilvægu ensími en virkni ensímsins vex með stækkun á blöðru- hálskirtlinum. Fleiri efni eiga sennilega þátt í virkninni og eru þau í rannsókn. Nýlega hefur SagaMedica sett á markað nýja vöru sem framleidd er úr íslenskri æti- hvönn og seld undir nafninu SagaPro. SagaPro hefur verið í reynslunotkun í tvö ár og virku efnin verið rannsökuð bæði hér á landi og erlendis. SagaPro auðveldar þeim karl- mönnum lífið sem þurfa oft að vakna á nóttunni. Varan hefur fengið afar góðar viðtökur hér á landi og hún virðist hjálpa mörgum karlmönnum. Auk þess að fækka salernisferðum hafa ýmsir nefnt að við töku SagaPro hafi skeggvöxtur aukist og hjónalífið batnað. Á því eru liífræðilegar skýringar. SagaPro auðveldar þeim karlmönn- um lífið sem þurfa oft að vakna á nóttunni. Fœðubótaefnið Spirulina Á þessum síðustu og verstu tímum þegar fólk hefur varla tíma til að borða, hvað þá tíma til að borða holl- an mat er það oft raunin að ónæm- iskerfið slappast og kvefbakteríur herja á af fullum krafti. Þá er gott að vita af einhverjum hjálparkokk- um sem gætu hugsanlega gert málin eitthvað skárri. I baráttunni við veir- urnar hafa mörg vopn verið brýnd í gegnum tíðina og eitt það allra nýj- asta er fæðubótaefnið Spirulina sem unnið er úr blá- og grænþörungum, sem þrífast best í heitum sólríkum löndum eins og Mið- og Suður-Am- eríku og Afríku, en finnst einnig í basískum vötnum víða annars stað- ar. Algengustu tegundirnar sem not- aðar eru í bætiefni eru Spirulina plat- ensis og Spirulina maxima, og eru þessar tegundir til sölu í Heilsuhús- inu. Margar aðrar tegundir eru til, og er Yggdrasill meðal annars með Spirulina-þörunga frá Solaray, en þeir eru lífrænt ræktaðir í sjónum umhverfis Hawaii. Til að koma í veg fyrir að þeir missi eiginleika sína og gæði í framleiðsluferlinu þá eru þeir kaldþurrkaðir um leið og þeir koma upp úr hafinu. Hvað er í Spirulinaþörungum? I dag mæla næringafræðingar með því að við borðum allt að 5 skammta af ávöxtum og grænmeti á dag. í nútímaþjóðfélagi eru fáir sem gera það en spírulína-þörungarnir eru sú fæða sem inniheldur meira af samþjappaðri fæðu sem jafnast á við grænmeti og ávexti en nokkur önnur þekkt planta, korn eða jurt. Um 60-70% þeirra er prótín, sem er um 20 sinnum meira en er í soja- baunum. I þeim er einnig að finna fitusýrurnar GLA (gamma línólen), linólín og AA (arachidonic), vítam- ín B-12, járn, amínósýrur, RNA og DNA kjarnsýrur, beta-karóten og karótenóíð, chlorophyll og phytocy- anin. Hið síðastnefnda er (litar)efni sem eingöngu hefur fundist í blá- grænum þörungum og hefur verið notað við rannsóknir á músum með lifrarkrabbamein. Þeim sem var gef- ið þetta efni virtust eiga meiri mögu- leika á bata en þær sem ekki fengu efnið. Spirulina er fæða sem hjálp- ar til við að vernda ónæmiskerfið, lækka kólesteról og taka upp stein- efni. Spirulina er æskileg þegar ver- ið er að fasta, þar sem þetta bætiefni jafnar matarlystina og hefur hreins- andi áhrif á líkamann. Hún getur einnig hjálpað fólki með sykursýki, þar sem hið háa prótínmagn henn- ar jafnar blóðsykurinn. Hún hentar tvímælalaust fólki sem borðar lítið af grænmeti eða prótínum þó hún komi alls ekki í staðinn fyrir fæðu úr þessum flokkum. ■ Kúamjólk Eúamjólk eykur vöxt barna Á doktor.is er að finna niðurstöður úr rannsóknum sem vísindamenn við Konunglega dýralækna- og land- búnaðarháskólann i Danmörku hafa nýverið birt. Samkvæmt þeim, býr venjuleg kúamjólk yfir þeim eig- inleikum að börn sem drekka hana verða hærri en önnur börn. Þegar eru fyrir hendi niðurstöður annarra rannsókna sem benda til að kúa- mjólk hafi áhrif á vaxtahormónið IGF-I. Önnur próteinefni eru í mjólk- inni sem ekki er að finna í öðrum landbúnaðarafurðum eins og t.d. kjöti. Camilla Hoppe, einn vísinda- mannanna sem starfar við næringar- fræðideild skólans sagði í viðtali við Jyllands-Posten að það sé ekki ein- ungis próteinið í mjólkinni sem hafi þessi áhrif á vöxt barna. „Kúamjólk er ætluð kálfum, sem þurfa að vaxa hratt. Þess vegna er eðlilegt að hún Kýrnar á bænum Hofsá í Svarfaðardal kæra sig kollóttar um danskar rannsóknir og bfta sitt gras. innihaldi eitthvað annað, sem veldur hraðari vexti,“ sagði hún. Þessi upp- götvun getur orðið til þess að leiðir verði fundnar til að hjálpa börnum sem vaxa hægt. „Þegar við höfum fundið út hvað það nákvæmlega er í mjólkinni sem eykur vöxt barna þá munum við geta fundið leiðir til að hjálpa þeim,“ sagði Hoppe. Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum 100 ára hefð og ekkert nema hollusta Þú borðar þær með uppáhalds álegginu, kannski ylvolgar úr ofninum, ristaðar, með hvltlauksollu, stundum eins og pizzur ...eða eins og Strandamenn, glænýjar með íslensku smjöri. Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku ( næstu matvöruverslun. Hollara brauö finnst varla. • . - . * BlaöiÖ/lngó

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.