blaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 12.09.2005, Blaðsíða 38
38 I FÓLK MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 blaöiö SMÁborcrarinn DO - heilkennin „Nú er Davíð hættur og allt í skralli,” sagði vinkona Smáborg- arans þegar hún hringdi í hann í greinilegu uppnámi. Vinkonan hefur vinstri-græna slagsíðu og því kom Smáborgaranum á óvart að hún skyldi trega svo mjög brott- hvarf leiðtoga íhaldsmanna. Smá- borgarinn man reyndar eftir því að hafa hitt vinkonuna, sem er fyrrum samstarfskona, í miðjum deilum umfjölmiðlafrumvarpiðogþásagð- ist vinkonan vera í vondu skapi. „Hverju er um að kenna?“ spurði Smáborgarinn? „Davíð Oddssyni", var svarið. Smáborgarinn tók svar- inu næstum eins og sjálfgefnum hlut. Þetta voru þannig tímar. Það voru allir á valdi tilfinninga. Smá- borgaranum leið þá dálítið eins og hann væri í miðri frönsku bylting- unni. Það átti að taka hausinn af valdhöfunum sem höfðu sýnt af sér freklegan yfirgang. Svo greip forset- inn í taumana og lægði öldurnar. Eða þannig. Málinu var allavega lokið, nema þá í minningu þeirra sem engu vilja gleyma. Smáborgarinn er enn að hitta fólk sem ekki vill gleyma og vill ekk- ert annað ræða en Davíð Oddsson og það sem hann hefur gert á hlut þess. Þegar til kemur hefur Davíð Oddsson ekki gert þessu fólki neitt annað en að vera tiL Mjög merki- legt, finnst Smáborgaranum, að stjórnmálamaður skuli geta komið fólki svo úr jafnvægi með þvf einu að vera til að það fái sérheilkenni. DO - heilkennin birtast í því að fólk hefur skyndilega og án nokkurs for- mála upp langa ræðu um það hversu mikið mein það hafi verið að Davíð Oddsson komst til valda. Því lengur sem þetta fólk talar því æstara verð- ur það og lokamálflutningur þess er nokkuð á þá leið að þjóðin hafi of lengi búið í einræðisríki þar sem for- sætisráðherra og vinir hans fengu að valsa um óáreittir meðan fjöldi manns lenti á hrakhólum vegna andstöðu sinnar við klíkuna. Smá- borgarinn verður að viðurkenna að í miðri ræðu tók hann ætíð að syfja. Sennilega er hann ekki nægi- lega mikið gefinn fyrir samsæris- kenningar. Eða kannski er hann of hrekklaus. Allavega botnar hann ekkert í því hvernig menn geta lát- ið tilveru stjórnmálamanns koma lífi sínu úr svo miklu jafnvægi að fátt annað komist að. Þetta væri vissulega skiljanlegt ef í hlut ætti stjórnmálamaður sem hefði fang- elsað andstæðinga sína og hamlað frelsinu en því er ekki til að tjalda í þessu tilviki. Það hefur hvarflað að Smáborg- aranum að einstaklingarnir með DO heilkennin ættu að leita sér hjálpar. Það getur ekki verið eðli- legt að menn láti stjórnmálamann fara jafn mikið í taugarnar á sér og Smáborgarinn hefur séð gerast í tilviki Davíðs Oddssonar. Smáborg- arinn hefur nefnilega hitt Davíð Oddsson nokkrum sinnum og veit að það er fjarska auðvelt að kunna vel við hann. Reyndar virðast fleiri vera komnir á þá skoðun, nú þegar fjarlægð gerir mönnum kleift að sjá hlutina í samhengi. Smáborgarinn horfir þar til vinkonu sinnar. Hún er greind kona, sem í einhverjum misskilningi gerðist vinstri græn og er það reyndar enn, en horfir nú til valdatíma Davíðs Oddssonar með nokkrum söknuði og umtalsverðri virðingu. Enn ein sönnun þess að batnandi mönnum er best að lifa. SU DOKU talnaþraut 48. gáta 5 1 8 2 6 9 3 5 2 9 6 3 1 3 2 6 4 8 4 9 6 3 4 7 1 9 4 3 7 8 Lausn á 47. gátu lausn á 47. gátu Lausn á 48. gátu verður að tinna i blaðinu á morgun. Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu. Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. Lance og Sheryl Crow i hnapphelduna Hjólastjarnan Lance Armstrong úr Tour de France og söngkonan Sher- yl Crow eru trúlofuð. Lance sendi frá sér tilkynningu þess efnis að hann hefði borið fram bónorðið síðasta miðvikudag í Sun Valley í Idaho. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær giftingin fer fram, en einn tals- manna reiðhjólamannsins segir að hugsanlega verði þetta vorbrúðkaup. Lance á að baki eitt hjónaband og eignaðist þrjú börn með fyrri eigin- konu sinni, en þetta er fyrsta hjóna- band Sheryl. HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Allt smellur saman, bæði í vinnunni oe per- sónulegum málum, á meðan J>ú heldur þig við upp- runaleg plön. Jafnvel þótt þú svindlir smá, mun ganga veiJr Allt sem þú snertir breytist í gull í aag. En þú verður að muna að ráða sjálf(ur) ferð- inni. Ef þú lætur undan þrýstingi frá öðrum geng- ur hægt og þú gætir lent í erfiðleikum. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ I>ú verður að læra að temja þér aga. Það gæti valdið nokkrum usla í dag, en verður pér til góðs þegar til lengri tíma er litio. Vertu sanngjarn og þú kemur vel út. V Hugsanlega ertu of þreytt(ur) til að leggjast í einhver rómantísk þrekvirki, en þú þarft eWcert að vera döpur/dapur. Hvíldu þig bara,nvfldin gerir þér örugglega gott. OFiskar (19. febrúar-20. mars) $ Þú átt bandamenn i hverju horni, svo þú þarft engar áhyggjur að hafa um að vera skilinn útund- an. Ekki vera feiminn að biðja þá um hjálp.hvenær sem þú þarfnast þess. Þú syndir lygnan sjó um þessar mundir, og það gerir líf þitt svo sannarlega auðveldara. Vertu góður við vini þina, þvi þeir eru góðir við þig. ®Hrútur (21. mars-19. apríl) $ Stórt tækifæri bíður bin handan við hornið, og það passer einmitt inn í íerilinn þinn. Þú hefur nóg- , an tíma til að sjá það birtast þér, svo ekki örvænta. Þetta verður fínt. ▼ Velgengni er þér í blóð borin, og þú þarft ekkert að sætta pig vio eitthvað hálíkák í ástarmálum heldur. Þú þarft samt að slaka á þegar kemur að ástinni, gefðu henni pláss til að anda og þá blómstrar hún. Juliette Lewis brjáluð út atkjatta- sögum um dóp Naut (20. apríl-20. maí) $ Þú ert jarðtengd(ur) um þessar mundir, og hef- ur mun meira innsæi en samstafsfólk þitt vartandi hvað er að gerast. Nýttu þér það og stingdu keppi- nautana af. V Þú nennir ekkert að daðra, og ert bara ein- beitt(ur) og ákveðin(n). Það er besta mögulega ástandið til að gera eitthvað verulega rómantfskt. ©Tvíburar .....121,.ma(-2.1.jún.O Juliette Lewis brjálaðist á netfundi um daginn, er hún fékk spurningu tengda eiturlyfjum frá aðdáanda. Þegar hún var spurð að því hvað hún ætlaði að gera við peningana sína, nú þegar hún væri hætt að nota eiturlyf, svar aði hún: „Hverslags heimskuspurning er þetta eiginlega?“ „Ég notaði eiturlyf fyrir tíu árum, en aldrei kóka ín svo ég var ekki að eyða m i k 1 u m peningum Ég prófaði einhver eiturlyf, en aldrei kók. Ég i er svo lítil að ég þurfti lítið þannig að neyslan var ekki mikil! Eiturlyfjaneysla kemur mun verr niður á sálarlífinu en budd- unm. Fœðingar- staður Ringó rifinn $ Daeurinn í dag verður svolítið erfiðari en flestir aagar, því vinnufélagarnir bregðast þér og sinna bara sínum málefnum, og efast um þínar hugmyndir. Sannfærðu þau. Þér líður eins og fólk taki ekki eftir þér. Það er leiðinlegt, en þú getur samt tranað þér aðeins ffam og þá færðu verðskuldaða athygli. Ekki búast samt vio klappi. ®Krabbí (22. júní-22. júlQ $ Ef þú efast um hvaða ákvörðun þú átt að taka þá er það merki um að það sé best ao fresta því að !;era upp hug þinn. Bíddu eftir að þú fáir frekan upp- ýsingar sem njálpa þér að ákveoa hvað er best aö gera istöðunni. Þu þarft ekki að bíða lengi og það er allt eins lfldegt að þú fáir vísbendingar strax á morg- un eða á næstu dögum. Það er mikið að gera hjá þér á næsta sólar- hring, en þú ættir að ráða við þetta. Reyndu að deila ábyrgðinni svo þú hafir tíma fyrir astarmál- in. Ljón (23. júlí-22. ágúst) $ Þér líður eins og þú sért á hápunkti vinnusemi Íinnar, en ekki láta það misskiljast sem hroka. ausnin er að hafa samstarfsfólk þitt með í ráðum. r Þér líður frábærlega, og ert tilbúin(n) í að reyna við alla í 10 kflómetra fjarlæeð. Taktu bestu vinina með á djammið og tæklaðu nópinn. Meyja (23. ágúst-22. september) $ Þú ert í svo eóðu sambandi við vinnuna þína þessa dagana ao tíminn flýgur framhjá. Gott er að styrkja stoðirnar enn fremur og þá ertu vel sett(ur). V Rómantíkin er í stjörnunum þínum um þessar mundir, svo mikið að hún gæti litað hina tilbreytingarlausu veniur dagsins. SKoðaðu hver er í kaffi á sama tíma og pú,þeir gætu verið að skoða þig- e Vog (23. september-23. október) $ Gamlar viðskiptahugmyndir skjóta upp koll- inum, og trufla einbeitinguna meira en þú vildir. Reyndu að hrista af þér það sem tengist elcki fyrir- liggjandi verkefnum. V Þér líður eins og þú sér fangi í fortíðinni. Reyndu að vera í núinu, en ekki örvænta þótt þú sért að endursýna gamla hluta lífs þíns, því stund- um er eina leiðin tilframfara að dveija í endurtekn- ingunni. Borgarráð Liverpool hefur ákveð- ið að rífa húsið sem Ringo Starr, trymbill Bítlanna fæddist í, því það hafi ekki sögulegt gildi. Húsið sem stendur við Madryn Street verður, ásamt 459 öðrum húsum, látið víkja fyrir nýjum lúxusblokkum, ætluð- um hærri stéttum. Borgarstjórn telur að húsið hafi ekkert gildi, því Ringó eyddi einungis 3 fyrstu mán- uðum ævi sinnar þar. Hann fluttist þriggja mánaða gamall til Admir- al Grove, þar sem hann bjó í 20 ár. Starr reyndi að bjarga húsunum fyrr á þessu ári, en fékk ekki mikinn hljómgrunn. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) 3 Ef þie langar að vinna samkeppni dagsins í dag, þá tekst þér það og þú nærð langt. Skjóttu til hægri og vinstri, og keppinautarnir sjá aldrei hvað- an skotio kom. V Rómantíkin ruglar þig í ríminu. Kannski þarftu að tæma hugann, og vera svolítið ein(n), til að ná áttum. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Ráðstu beint í næsta verkefni, og notaðu þér sköpunargáfuna til að koma samkeppninni á óvart. Þú kemstlangt á útgeisluninni ▼ Þú ert eitthvað að endurmeta hvað rómantík er fyrir þér, eða að hugsa persónuleg sambönd þín upp á nýtt. Hreinskilio spjall gæti orðið þér og öðr- um til góðs á þessum tímapimkti.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.