blaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 4
4 I IWWLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaöiö Fiskisagan flýgur á ný Löcfbannskröfu vísað út í hafsauga Sýslumaðurinn í Reykjavík synjaði ígœr lögbannskröfu á bókina „Fiskisagan flýgur" sem bókaútgáfan Skruddagefur út. Kristinn H. Benediktsson Ijósmyndari hyggst kœra úrskurð- innfyrir Héraðsdómi áföstudaginn kemur. Kristinn er annar höf- unda bókarinnar ásamt Arnþóri Gunnarssyni sagn- fræðingi. Hann hafði farið fram á lögbann á útgáfu bókarinnar þar sem hann er ósáttur við myndvinnslu verksins. Eigendur Skruddu vildu ekki tjá sig um málið frekar og sagðist Steingrímur Steinþórsson, annar eigenda Skruddu, engu vilja við málið bæta öðru en því að „bókaútgef- andi vill alltaf að bókin sjálf tali sínu máli.“ [ opna skjöldu Kristinn er hins vegar mjög ósáttur við niðurstöðu sýslumanns og segir úrskurðinn mjög sér- kennilegan. „Það var svo að skilja á úrskurðinum að úr því að bókin er komin út sé ekkert hægt að gera í málinu. Ég sætti mig ekki við þessa niður- stöðu og mun fara með málið lengra", segir Kristinn. Mál- ið átti upp- haflega að taka fyrir á föstudaginn var en við fengum frest þar sem við þurftum lengri tíma til að útvega tryggingu upp á eina og Hlutabréf úrvals vísitölu falla um 28 milljarða Hlutabréf héldu áfram að falla í verði í Kauphöll íslands í gær þriðja dag- inn í röð. Markaðsvirði hlutabréfa í úrvalsvísitölunni einni féllu um 28 milljarða króna. Sérfræðingar segja löngu tímabæra leiðréttingu hluta- bréfaverðs eiga sér stað. Markaðsvirði fyrirtækjanna fimmtán í úrvalsvísitölu Kauphall- arinnar lækkaði um tuttugu og átta milljarða króna í dag. Þar af lækkaði verðmæti Landsbankans eins og sér um tæpa átta milljarða. Mest er þó lækkun hlutabréfa í Icelandic Gro- up, sem flestir þekkja sjálfsagt sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, en verð þeirra bréfa lækkaði um tæp sjö prósent. Úrvalsvísitalan féll um 6% fyrsta klukkutímann eftir að markaðir opnuðu í gær og gætti greinilegr- ar taugaveiklunar eftir lækkanir á mánudag og þriðjudag. Hún hækk- aði þó nokkuð aftur er leið á daginn og við lokun Kauphallarinnar reynd- ist lækkunin nema 2,4%. Tímabær leiðrétting Greiningardeildir bankanna telja að hér ræði fyrst og fremst um leið- réttingu á verði, þar sem miklar og óvenjuhraðar verðhækkanir hafi átt sér stað síðastliðnar vikur, hækkanir sem ekki hafi alltaf verið innistæða fyrir. Segja sumir að menn hafi í raun varpað öndinni léttar, því slík leiðrétting hafi verið löngu tímabær. Úrvalsvísitalan hefur nú lækkað þrjá daga í röð. Það sem af er vikunn- ar hefur úrvalsvísitalan lækkað um 5,3%. Þrátt fyrir það nemur hækkun hennar frá áramótum 34,4%. Hlutabréfamarkaðurinn hefur hækkað mikið undanfarin misseri hálfa milljón. Þegar við mættum svo í morgun var lögfræðingur þeirra með sex blaðsíðna greinagerð ásamt kröfum um að tryggingin yrði hækk- uð upp í 10 milljónir. Við bjuggumst alveg eins við því að sýslumaður myndi úrskurða að tryggingin hækkaði eitthvað, en að hann skyldi hafna kröfu okkar alfarið kom okk- ur í opna skjöldu.“ Bókin prentuð án vit- undar Kristins Kristinn kynnt útgefanda um að ef hann yrði ekki ánægður með bókina myndi hann krefjast lögbanns á prentun hennar. Skrudda hafi hins vegar prentað bókina án hans vitneskju þannig að hann gat ekki krafist lög- banns á prentunina. Honum finnst því út í hött að lögbanni sé synjað á grundvelli þess að bókin sé hvort sem er komin út. „Ég sé engan ann- an leik í stöðunni núna en að fara með málið lengra því það er augljóslega verið að sverta minn listamanns- heiður.“ ■ ur gert það jafnt og þétt án teljandi sveiflna. Á markaðinum hafa menn beðið leiðréttingar um nokkra hríð, sVo þessar lækkanir koma ekki beinlínis á óvart. Sér- fræðingar á markaðinum hafa tal- að um of hátt verðmat en hafa hins vegar tekið fyrir að um verðbólgu sé að ræða og telja enga hættu á verð- hruni. Verðbólgutölur kveikjan Talið er að kveikjan að lækkunun- um hafi verið nýjar verðbólgutölur o g u m - r æ ð a u m vaxtaþró- un. Á hinn bóginn bendi fátt til þess að frekara verðfall verði mikið þó hægjast muni á, uppgjör fyrirtækja hafi ver- ið ágæt og ekkert bendi til annars en að svo verði áfram er líður að vetri. Á göngum Kauphallarinnar er rætt um að lækkunina megi að miklu leyti rekja til mikillar sölu stórs aðila og berast böndin einkum að Lífeyrissjóði verslunarmanna. Sagt er að þar hafi frekar verið um tiltekt að ræða en markvissa sölu. ■ Markpósti bankanna beint til barna Börn í upphafi skólaferilsins eru í miðum bankanna þessa dagana þegar þeir reyna að smala til sín viðskiptavinum. Börninfá nestisbox, blýanta, sundpoka ogþess háttar sent til Bankar reyna að fá sífellt yngri við- skiptavini til sín með gjöfum og fögrum fyrirheitum. Dæmi eru um að bréf bankanna endi á orðunum: ,0g ef þú leggur peningana þína inn hjá okkur eiga þeir eftir að vaxa eins og þú.“ Það skal þó tekið fram að þrátt fyrir að pósturinn sé ætlaður börnum er hann stílaður á foreldra þeirra. Elín Thorarensen, fram- kvæmdastjóri Heimilis og skóla, segir að markaðssetning sem þessi hafi reyndar tíðkast 1 vegar mættu fyrirtæki líta í eigin dreift til barna í gegnum skólana. mörg ár þótt mark- _ .A barm og athuga hvar siðleg mörk „Við höfum óskað eftir því að skóla- pósti til barna hafi 'Nj- liggja í markaðssetningu.“ stjórnendur og sveitarfélög setji sér fjölgað mjög mik- i— . Elín telur e.t.v. að gjafir reglur um það hvað leyfist og hvað ið undanfarið. ’"w sem þessar geti komið ekki í þessum málum.“ Elín telur þó „Þetta er samt Æ . — börnum til góða ef þau ekki að markpóstur sem þessi sé sér- stílað á foreldr- ws£~-^. fengju ekki sambærileg- staklega skaðlegur þar sem foreldr- ana svo það er *’ '' ^ ar vörur annars. arnir geti ráðið því hvort börnin fái þeirra verk að 7^4 Fyrirtæki hafa vörurnar. Sem dæmi nefnir hún að ákveða hversu einnig farið fram á auglýsingamennska í kringum ferm- mikill áróður er það við skólastjórnendur ingar sé mikið verri. ■ æskilegur fyrir börnin. Hins og sveitarfélög að vörum verði 5777000 ‘iíraunhœr 121 Hrœringar á flugmarkaði: FL Group falast eftir Sterling Þreifingar eru hafnar milli FL Group og eignarhaldsfélagsins Fons um að FL Group kaupi hin nýsameinuðu flugfélög Sterl- ing og Mærsk af Fons eða um- talsverðan hlut i þeim. Viðræð- ur munu vera á algeru frumstigi og engu hægt að spá um lyktir. Ljóst er að Iceland Express mun ekki fylgja með í kaupunum, en það er einnig í eigu Fons. Þessi áform FL Group, eignar- haldsfélags Icelandair, eru sögð eiga rót að rekja til tilkynn- ingar Sterling fyrir skömmu um að félagið hygði á lágfar- gjaldaflug til Bandaríkjanna. Sterling flýgur til um 90 áfangastaða viða um Evrópu og hafa nýir eigendur félagsins lýst áhuga á að heíja flug vestur um haf. Það myndi opna alls kyns möguleika á tengiflugi og sæti Iceland Express þá vafalaust við það borð. Sú samkeppni kynni að reynast FL Group þung í skauti, en á hitt ber líka að líta að mikill fengur kynni að vera fyrir Icelandair að sameinast eða eiga í samstarfi við Sterling. Pálmi Haraldsson, annar aðaleigandi Fons, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í gær að FL Group væri ekki eina félagið, sem sýnt hefði áhuga á því að kaupa Sterhng. Að öðru leyti hafa stjórnendur félaganna var- ist allra frétta, en viðræðurnar eiga sér stað í Kaupmannahöfn. Mikill bílainn- flutningur Fjölgun nýrra bíla er hvergi í Evrópu meiri á milli ára en hér á íslandi samkvæmt fréttatilkynn- ingu frá Samtökum evrópskra bflaframleiðenda (ACEA). Segja samtökin að á sama tíma og skráningum á nýjum bifreiðum íjölgar ekki umtalsvert í löndum ESB og EFTA á milli ára eru þær helmingi fleiri hérlendis en á sama tíma í fyrra. Því hafa Is- lendingar flutt inn um 50% fleiri bfla í ár meðan að meðaltalið fýr- ir öll löndin er neikvætt um 1,2%. Leiðrétting Vegna mistaka við vinnslu Blaðsins í gær komust sjónar- mið Steinunnar A. Björnsdóttur hjá upplýsingasviði Þjóðkirkj- unnar ekki til skila. Steinunn vill árétta að þegar sóknargjald hafi verið skert á sínum tíma árið 2002 hafi Þjóðkirkjan og samstarfsnefnd trúfélaga mót- mælt þessari skerðingu, sem kom niður á öllum skráðum trúfélögum, og farið fram á að hún yrði dregin til baka. Stein- unn segir ennfremur ekkert hæft í málflutningi Siðmenntar þess efnis að kirkjan hafi farið fram á hækkun um 50%.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.