blaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 11

blaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 11
blaðið FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 Hungtirsneyð í Níger Matvæli rata ekki rétta leið Um 40 börn deyja að meðaltali á degi hverjum í Afríkuríkinu Níger vegna þess að mataraðstoð ratar ekki rétta leið samkvæmt upplýsing- um frá samtökunum Læknum án landamæra. Alþjóðleg aðstoð var send til landsins í sumar eftir að athygli alþjóðasamfélagsins hafði verið vakin á því hörmungarástandi sem þar ríkti. Fulltrúi Alþjóðlegu mataraðstoðarinnar segir að vistir séu tilbúnar til dreifingar en skipu- lagsvandamál hafi valdið töfum. Sameinuðu þjóðirnar telja að fjórð- ungur þjóðarinnar, eða um þrjár milljónir manna, líði matarskort i Félagi í Læknum án landamæra að störfum i Níger en þar ríkir sannkallað hörmungarástand. landinu og að um 32.000 börn sem þjást af alvarlegum næringarskorti bíði dauðans ef þau fá ekki brýna mataraðstoð og læknismeðferð. Skartgripir Imeldu Marc- os seldir Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú á Fillipseyjum, hefur heitið því að leita til dómsstóla til að koma í veg fyrir áætlanir yfirvalda að selja skartgripi upp á milljónir dala sem gerðir voru upptækir af fjölskyld- unni árið 1986. Ríkisstjórn Gloriu Arroyo vonast til að geta fjármagn- að landbótaáætlun með því að selja skartgripasafnið. f vikunni var fulltrúum helstu uppboðshúsa heimsins boðið að verðmeta hluta safnins en fjölmiðlar hafa talið að verðmæti skartgripanna sé allt að 20 milljónir Bandaríkjadala. Marc- os, sem á yfir höfði sér fjölda ákæra í tengslum við 20 ára stjórnartíð eiginmanns síns, Ferdinands heit- Imelda Marcos fyrrverandi forsetafrú á Fillipseyjum vill koma í veg fyrir sölu á skartgripum sínum. ins Marcos, sagðist myndi leggja fram kæru gegn yfirvöldum fyrir föstudag. „Ég er fullviss um að mér muni takast að koma í veg fyrir söl- una og endurheimta skartgripina mína. Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram neinar sannanir um að illa fengið fé hafi verið nýtt til að kaupa þá“, sagði Marcos. ■ Krókódíll á Kýpur Krókódílar eins og sá sem fannst á götu á Kýpur geta orðiðalltaðlO feta langir. Lítill krókódill sást leita sér matar á fjölfarinni götu í ónefndum bæ á Kýpur. Krókódílnum hefur að því er virðist verið smyglað til Miðjarð- arhafsevjarinnar og síðan skilinn eftir. „Ég tók hann heim með mér, setti hann í baðkarið og þá náði hann sér aðeins á strik. Hann virt- ist hafa gengið í gegnum miklar raunir“, sagði Evangelos Evangelou, yfirmaður dýraspítala í Limassol. Krókódíllinn, sem á uppruna sinn í Bandaríkjunum, var tæplega 20 sen- timetra langur en krókódílar af þess- ari tegund geta orðið allt að þriggja metra langir. ■ Hazzert Gillet Ibúi í New Orleans bakar brauð fyrir utan heimili sitt. Borgarstjórinn von- ast til að fólk geti bráðlega flutt aftur I viss hverfi, jafnvei í næstu viku. íbúar Louisiana snúa til baka fbúum þriggja borga í Louisiana var í gær leyft að snúa til síns heima í fyrsta sinn síðan fellibylurinn Katr- ín reið yfir þar sem búið var að koma aftur á rafmagni í borgunum og gera við vatnsleiðslur og skólpkerfi. Borgirnar urðu fyrir talsverðu tjóni í hamförunum en þó ekki nærri jafnmiklu og New Orleans. Ray Nag- in, borgarstjóri New Orleans, vonast til að einhverjir af þeim þúsundum sem þurftu að yfirgefa borgina geti bráðlega snúið til baka, jafnvel í næstu viku. Lík eru enn að finnast í borginni og mörg hverfi eru umlukin vatni. ,New Orleans er að ná sér. Við erum að endurvekja menningu hennar og tónlist. Ég er orðinn þreyttur á að hlusta á þessar þyrlur. Mig langar til að heyra svolítinn djass“, segir Nagin. Staðfest tala látinna eftir náttúruhamfarirnar er nú 648. í gær var lögð fram ákæra á hendur umsjónarmönnum hjúkrunarheim- ilis þar sem 34 sjúklingar fórust eftir að hafa orðið innlyksa í flóðum. SPRENGITILBOÐ TAKMARKAÐ MAGN OG FLÓÐ AF NÝJUM VÖRUM www.1928.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.