blaðið - 15.09.2005, Side 6

blaðið - 15.09.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 blaöiö Gríðarlegar launahækkanir á Austurlandi Heildarlaunagreiðslur hér á landi hækkuðu að meðaltali um 10% millifyrsta ársfjórðungs á þessu ári ogársins á undan. Hœkkunin er mest á Austurlandi, eða rúm 17%, en minnst á Vestfjörðum, um 4,5% Heildar launagreiðslur á íslandi hækkuðu um 10% ef bornir eru sam- an íyrstu sex mánuðir ársins í ár og sama tímabil í fyrra. Mest hækkuðu launin á Austurlandi, um 17,2%, en næst mest á höfuðborgarsvæðinu án Reykjavíkur, um rúm 12%. f Reykja- vík hækkuðu heildarlaunagreiðslu um tæp 9,5%. Minnst var hækkunin hinsvegar á Vestfjörðum, eða tæp 4,5% og næst minnst á Norðurlandi vestra um tæp 5%. Einstök sveitarfélög Ef einstök sveitarfélög eru skoðuð kemur í ljós að launagreiðslur hafa hækkað langmest í Fljótsdalshreppi, eða um tæplega 62%, en hluti af Kára- hnjúkavirkjun er einmitt byggð á landi þessa fámenna sveitarfélags. Laun í Fljótsdalshéraði (Egilsstöðum og nágrenni) hafa hækkað um tæp 36% en það sveitarfélag á einnig land að Kárahnjúkavirkjun. Launagreiðsl- ur hafa hinsvegar lækkað mest í Helgafellssveit á Vesturlandi, eða um 12,5%. Fleiri störf og lengri vinnutími hafa áhrif Ekki er um eiginlegar launahækkan- ir einstaklinga að ræða heldur heild- arlaunagreiðslur á ákveðnum svæð- um. Á Austurlandi skýrist hækkunin væntanlega af þvf að mun fleiri eru við störf á svæðinu nú en í fyrra sem og að þensla þar hefur bæði lengt vinnutíma (sem augljóslega hækkar heildarlaun einstaklinga) og hefur valdið launaskriði sem hækkar tíma- laun nokkuð. Upplýsingarnar eru fengnar frá Hagdeild Sambands ís- lenskra sveitarfélaga sem reikna þær út frá útsvarstekjum sveitarfélaga. ■ Stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi auka tekjur sveitarfélaganna á svæðinu verulega. Vertu velkominn vetur konungur minnti á það sem koma skal. „Eftir að við fengum 3M gluggafilmuna frá RV, hefur loksins verið hægt að vinna hér á skrifstofunni á solardögum". Jón isaksson, framkvæmdastjóri Verslunartækni Glerfínar gluggafilmur - auka vellíðan á vinnustað Rekstrarvörur - v/nna með þér Réttarhálsi 2*110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is EURO SKO Firði Hafnarfirði s. 555 4420 ERUM AÐ TAKA UPP HAUSTVÖRURNAR Stærðir 41-46 Verð 7.990,- Stærðir 22-28 Verð 5.990,- Stærðir 36-41 Verð 5.990,- NÝTT KORTATÍMABIL Stærðir 36-41 Verð 12.990,- Fylgst með SMS-Ieikjum Dómsmálaráðuneytið hefur fýlgst með þróun á svokölluðum SMS- leikjum sem Blaðið fjallaði um á mánudag. Ný lög um happadrætti voru sett í júlí 2006 og á samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu eftir að semja reglugerðir sem fjalla nán- ar um það hvernig framfylgja skuli lögunum. Vonast er til þess að reglu- gerðin verði tilbúin og komin í notk- un fyrir áramót. í happadrættislög- unum segir að þau nái yfir hvers konar happadrætti þar sem vinn- ingur er valinn að nokkru eða öllu leyti með tilviljunarkenndum hætti eða vinningur ráðist af úrslitum keppni eða atburðar. Þá er óheimilt að reka happadrætti nema með leyfi ráðherra. ■ Úr fréttum i alþjóðamál Brynhildur Ólafsdóttir hefur tekið við starfi sem forstöðumaður Al- þjóðamálastofnunar og Rannsókna- seturs um smáríki við Háskóla ís- lands. Þar mun hún gegna starfinu á meðan Ásthildur Elva Bernharðs- dóttir, sem hefur veitt stofnununum forstöðu síðustu þrjú ár, er í rann- sóknarleyfi í Bandaríkjunum. Brynhildur hefur undanfarin 17 ár starfað við fjölmiðla, bæði á dagblöðum sem og f útvarpi og sjón- varpi og hefur síðustu árin verið yfirmaður erlendra frétta á frétta- stofu Stöðvar 2. Brynhildur hefur jafnframt sinnt stundakennslu við stjórnmálafræðiskor félagsvísinda- deildar H.í. og kennt námskeið um stjórnmál þriðja heimsins og hryðju- verk. ■ Ragnar Sær í 5. sæti D-listans Ragnar Sær Ragnarsson, fyrrver- andi sveitarstjóri Bláskógabyggðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar næsta vor. Ragnar Sær hefur starfað sem sveitarstjóri sfðastliðin sjö ár, fyrst fyrir Biskupstungnahrepp en síðan fyrir sameinað sveitarfélag þriggja hreppa Bláskógabyggð en lét af störfum þann 1. ágúst. Samkvæmt tilkynningu var það til að „geta ein- beitt sér að komandi prófkjöri og þeim breytingum sem eru nauðsyn- legar til að skapa skarpari framtfðar- sýn fyrir Reykjavíkurborg.“

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.