blaðið - 26.09.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 bla6ið
Eve Online
Yfir 70þús-
und spilarar
íslenski fjölspilunartölvuleik-
urinn fagnar tímamótum
um þessar mundir þar sem
fjöldi spilara er kominn yfir
70 þúsund manns. Þá léku
yfir 15 þúsund manns leikinn
á sömu stundu í síðustu viku.
Haft er eftir Magnúsi Bergs-
syni einum af framleiðend-
um leiksins að hann láti lítið
yfir þessum árangri. „Eve er
byggður á þeirri hugmynd
að leikir þurfi ekki að vera
línulegir heldur krefjast þess
að spilarar taki virkan þátt
í framvindu hans. Það að
sjá þessa hugmyndafræði
virka gleður okkur mjög.“ ■
Vilja jarðgöng
milli Bolung-
arvíkur og
ísafjarðar
Baugsmálið í Fréttablaðinu:
Snýst um söguhetjur
fremur en söguna sjálfa
Fréttablaðið birti um helgina
fréttir af aðkomu þeirra Jónínu
Benediktsdóttur, athafnakonu,
Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra
Morgunblaðsins, Kjartans Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, og Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, þáverandi lög-
manns og nú hæstaréttardómara,
að upphafi Baugsmálsins. Þau áttu
í tölvusamskiptum og fundum um
mitt ár 2002 þar sem rædd voru
hvaða úrræði Jón Gerald Sullen-
berger hefði í málaferlum sínum
gegn Baugsmönnum.
Aðalefniviður fréttanna var
tölvupóstur Jónínu Benediktsdótt-
ur, bæði póstur frá henni og póst-
ur, sem henni barst frá öðrum, en
ekki liggur fyrir með hvaða hætti
Fréttablaðið komst yfir hann.
Fréttin fólst fremur í því hverj-
ar söguhetjurnar voru fremur en
hvað þeim fór á milli, en í sjálfu
sér er tæpast hægt að áfellast neinn
fyrir orð hans eða gerðir í málinu.
Hins vegar telur Fréttablaðið að
þarna sé sýnt fram á pólitíska vitn-
eskju um málið áður en það var
kært til lögreglu. Helstu eigendur
Fréttablaðsins, Baugsmenn, hafa
látið sömu skoðun í ljósi og telja
einsýnt að þarna sé sýnt fram á
pólitísk afskipti af réttarkerfinu
og ofsóknir í sinn garð.
Þá undirstrikaði Fréttablaðið
timasetningar, sem benda til þess
að Baugsmálið hafi átt sér lengri
aðdraganda en áður var talið og
að Jóni Steinari hafi verið kunnugt
um það áður en formleg afskipti
hans af því hófust.
Styrmir Gunnarsson staðfesti
við Fréttablaðið að að hann hefði
átt milligöngu um að Jón Gerald
Sullenberger fæli Jóni Steinari
Gunnlaugssyni málarekstur sinn.
Að því er ráðið verður af þeim
tölvupósti, sem Fréttablaðið birt-
ir, hafði Jón Gerald Sullenberger
áhyggjur af því að erfitt kynni að
vera að finna lögmann, sem ekki
hefði neinna hagsmuna að gæta
gagnvart Baugi og myndi sinna
sínum málum af einurð og heilind-
um.
Ólöglegt að hnýsast
í annara póst
Fram hefur komið að Jónína Bene- hæfið kann að brjóta í bága við ým-
diktsdóttir hyggst leggja fram is lög, en hin helstu eru hegning-
kæru á hendur Fréttablaðinu fyrir arlögin, lög um persónuvernd og
að hnýsast í tölvupóst hennar og fjarskiptalög. Viðurlög við þeim
birta glefsur úr honum í fréttum. brotum eru sektir eða fangelsisvist
Ekki er ljóst með hvaða hætti frá 1-3 ára, en gætu varðað háum
Fréttablaðið komst yfir tölvupóst sektum eða leyfissviptingu ef fjar-
hennar, en það kann að skipta 'skiptafyrirtæki á í hlut.
nokkru um framhald málsins. At-
Umsóknir streyma inn
Á sama tíma og mörgum stéttum reynist erfitt aðfáfólk til starfa er
sú staða ekki við líði hjá löggœslumönnum og slökkviliðsmönnum.
Fjölmargar umsóknir berast íþau lausu störfsem bjóðast.
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar
vill að kannaður verði til
hlítar möguleiki að gerð
verði jarðgöng milli Bol-
ungarvíkur og Isafjarðar. I
ályktun sem bæjarstjórn
sendi frá sér á dögunum
kemur fram að jarðgöng séu
sérstaklega mikilvæg í ljósi
þeirrar hættu sem steðjar að
vegfarendum á Óshlíð. Sam-
kvæmt könnun sem gerð var
í fyrra finnst 35% ökumanna
þeir ekki öruggir þegar
þeir eiga leið um veginn.
I ályktuninni er tekið undir
áhyggjur bæjaryfirvalda í Bol-
ungarvík vegna „viðvarandi
hættu af grjóthruni á veginn
um óshlíð“, en oft hefur
litlu mátt muna að illa færi
á þeirri leið upp á síðkastið. 1
„Það streyma inn umsóknir, það
er ekki hægt að segja annað“, seg-
ir Jón Friðrik Jóhannesson, sviðs-
stjóri slökkvistarfs hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins. Auglýstar
hafa verið um tíu stöður og rennur
skilafrestur umsókna út í dag. „Það
hefur oft verið þannig að mesta
hrúgan kemur inn síðasta daginn“,
segir Jón Friðrik sem óttast ekki að
lenda í manneklu eins og margar
starfsstéttir undanfarið.
Sérsveitin setti strik í reikninginn
Jónmundur Kjartansson, yfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra
sem fer með starfsmannamál
embættisins, segir horfur í starfs-
mannamálum góðar. „Það gengur
mjög vel að ráða í þær stöður sem
losna. Eina vandamálið undanfar-
in ár hefur verið skortur á mennt-
uðum lögreglumönnum. En menn
eru að reyna að ná þvi upp.“ Hann
segir að þróunin hafi þó verið góð
undanfarin ár og að afleysinga-
mönnum hafi fækkað úr 70 í um 15
Mikilvæg skilaboö til kvenna - www.mcorette.is
á fjórum árum. „Ástandið er miklu
betra en verið hefur og í desember
útskrifast vonandi 30 manns úr
Lögregluskólanum. Það er alveg
klárt að við náum ekki alveg end-
um saman en okkar áætlanir gerðu
ráð fyrir að við næðum því á um
þremur árum. Aðalástæða þess er
að fjölgað var í sérsveitinni, sem er
náttúrulega gott mál.“ Jónmundur
segir að það líti út fyrir að starf lög-
reglumannsins sé eftirsóknarvert.
í það minnsta sæki ávallt á annað
hundrað manns um 32 stöður í Lög-
regluskólanum.
íbúasamtök í Laugar-
dalshverfum
Borgarafund-
ur á morgun
Ibúasamtök Voga-Langholts-
og Laugarneshverfis verða
stofnuð á morgun. I tilkynn-
ingu frá skipuleggjendum
samtakanna segir að eitt fyrsta
verkefni þeirra verði að fylgjast
með skipulagningu Sunda-
brautar, og standa vörð um
að yfirvöld komi til móts við
kröfur íbúa í því máli. Und-
irbúningshópurinn segir að
þrátt fyrir fréttir þess efnis að
innri leiðin verði valin, sé ekki
fullreynt með að aðrar leiðir
verði fyrir valinu. Alhr aðal- og
varaborgarfulltrúar hafa verið
boðaðir á fundinn. Fundurinn
verður haldin klukkan 20:00
í Þróttaraheimilinu og búast
má við líflegum umræðum.
Ennfremur verður greint
frá aðdraganda stoftiunar
samtakanna, erindi flutt um
íbúalýðræði og stjórn hins nýja
félags verður kosin. Þá kemur
fuUtrúi frá borginni tU með
að kynna fyrirhugaðar ffam-
kvæmdir vegna Sundabrautar. ■
Eldur á bygg-
ingarsvæði
Töluverður eldur kom upp á
byggingarsvæði f Grafarholti
um miðjan dag í gær. Þegar
slökkvilið kom á vettvang
logaði í timburhrúgu og frauð-
plasti á svæðinu þar sem unnið
er að byggingu á bensínstöð.
Nágrannar héldu eldinum
niðri með slökkvitækjum þar
tU slökkvUið kom á staðinn.
Talið er nánast öruggt að um
íkveikju hafi verið að ræða. ■
Vilja efla
rannsóknir
í vinnurétti
Fyrsti fundur stjórnar Rann-
sóknarseturs vinnuréttar og
jafnréttismála við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst var haldinn
nú um helgina. Hlutverk set-
ursins er að vera miðstöð fræði-
legra rannsókna hér á landi á
sviði vinnuréttar og jafnréttis-
löggjafar. Setrinu er m.a. ætlað
að taka þátt í innlendu og al-
þjóðlegu rannsóknarsamstarfi
og að vera óháður álitsgjafi. Þá
mun það efla tengsl rannsókna
og kennslu í vinnurétti og veita
nemendum Viðskiptaháskól-
ans faglegan stuðning við eigin
rannsóknir. Það mun standa
fyrir útgáfu efnis og ráðstefn-
um og málstofum um innlend-
an og alþjóðlegan vinnurétt.
Aðsetur rannsóknarset-
ursins er í nýrri Rannsókn-
armiðstöð á Bifröst. ■
Kíktu á ísleuska uppboðsvefmn
www.uppbod.is r
Fullt af spennandi uppboðum sem þú vilt ekki missa af\ \
HÚSGÖGN..L|ÓS..I<RISTALSfl/lUNIR..GULLVÖRUR..SILFURfl/IUNIR..I<LUKKUR..MÁLVERI<..TEPPI..SKARTGRIPIR..ANTIK..A/lATAR- OG KAFFISTELL O./VI.FL... Lippbod.ÍS